Morgunblaðið - 10.02.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
37
Eldur, eldur ...
- eftir Steinar
Guðmundsson
Eldur, eldur var hrópað, en það
var enginn eldur og kom það hróp-
andanum i koll síðar. Eitur, eitur
er nú hrópað, en hvar er eitrið og
hvað er eitrið? Hvernig stendur á
því að í hillum vínverslunar eða í
kristalglösum á dúkuðum borðum
er áfengi ekki eitur, en samskonar
áfengi í lúkum leynivínsalans eða í
bokkunni, sem skotið er undir
belti; er það orðið baneitrað?
Ekki er ég eitraður segja bæði
karlar og kerlingar, strákar og
stelpur, en láta flöskuna eða vönd-
ulinn svo ganga. Ekki ét ég eitur
titrar pillugarmurinn út úr sér —
ég er bara svo siæmur á taugum.
Menn gera sér ekki ljóst hvar
þetta margumtalaða eitur er, að
öðru leyti en því að hver og einn
telur það vera hjá hinum. Hrædd-
ur er ég um að þessi hálfkveðna
vísa sé stöðugt að slá til baka og
að hættulegt sé að beina athygl-
inni um of að eitri þegar um vand-
ræði vegna ofnotkunar áfengis eða
annarra vímuefna er að ræða.
Sprækir menn fussa við þessu eit-
urmasi og skála kampakátir, en
rolum og hlédrægum unglingum
verður fróun í að sýna að þeir séu
hvergi hræddir við skrímslið.
Spurning mín er sú hvort ekki
megi finna fyrir of augljósu plati í
hinum vel meintu varnaðarorðum
og hvort ekki sé réttara að reyna
heldur að nálgast rætur vanda-
málsins. En ef einhver er í vafa
um hvar rætur þess liggja og
hvernig það þróast má benda á ný-
útkomna bók sem ber titilinn:
Furðuheimar alkóhólismans.
Hvort ástandið sem skapast af
ógætilegri meðferð vímuefnisins
er kallað alkóhólismi, dópismi eða
kæruleysi skiptir engu. Nafngift
er bara nafngift. Orsökin er ein sú
sama. Flótti. Æskilegasta hjálpin
til þeirra sem ekki ná að fóta sig
er líka ein og sú sama: fræðsla. En
það er ekki sama hvernig fræðsl-
unni er beitt.
Þegar að því kemur að mönnum
finnst taka því að leggja eitthvað
á sig til að ræða í alvöru við þá
menn sem í vandræðum standa er
mikils um vert að ekki sé farið of
langt út fyrir það efni sem á
dagskrá er og aldrei gripið til
ágiskana um orsakir, eins og t.d.
hugsanlegra rasskellinga í frum-
bernsku, vanþakklætis eða geð-
veiki eða annars margþvælds til-
búnings sem spekúlöntum í
ofdrykkjuvörnum hættir til að
veifa vegna blindu á staðreyndir.
Ýmsar grundvallarreglur hafa
myndast við aðför að þessu vanda-
máli. Fyrsta reglan gæti verið sú,
að hæpið sé að foreldri, maki eða
afkvæmi geti komið vitinu fyrir
sinn nánasta. önnur, þriðja,
fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda
reglan mætti vera sú, að ætla
aldrei þroska ruglarans út frá
aldri hans, því blinda fylgir mein-
inu. Hvenær þroski hnökraðist eða
gliðnaði er ekki gerlegt að vita og
ástæðulaust að leita það uppi, en
mynda má þumalputtareglu sem
segði, að í upphafi fræðslu ætti að
nálgast:
A. Áfengisofneytendur — svo
kallaða alkóhólista — sem
væru þeir 12 ára (alveg án til-
lits til þess hvort þeir eru 30,
40, 50 eða 60 ára) og reikna
undantekningarlaust með því
að þeir viti ekki hvað alkóhól-
ismi er.
B. Víxlneytendur áfengis og lyfja
sem lúmska 10 ára krakka.
C. Hassneytendur sem grípa til
áfengis og áfengisneytendur
sem sefja sig með hassi ætti að
ræða við sem væru þeir átta
ára gamlir að þroska til.
D. Og við klára hassneytendur og
lyfjaætur (svo kallaða kúlu-
bjána) ætti að tala við í sama
dúr og velviljaðir tala við
sæmilega greinda sex ára
snáða.
Þegar þessir aðilar fara að taka
við fræðslunni og afneitunin fer
að láta undan siga, hrekkur ald-
ursmarkaviðmiðunin fljótlega upp
um helming, þannig: að sá sem bjó
við það sem ég kalla 6 ára þroska
kippist upp í eðlileg 12 ára ald-
ursmörk. Atta ára viðmiðunin fer
að skima í kring um sig á eðlilegu
16 ára þroskaskeiði. Stranda-
glópurinn sem hrapaði niður á 10
ára sviðið slæst í fylgd með tvítug-
um sem ekki höfðu misst af lest-
Steinar Guðmundsson
„Sprækir menn fussa
við þessu eiturmasi og
skála kampakátir, en
rolum og hlédrægum
unglingum verður fróun
í að sýna að þeir séu
hvergi hræddir við
skrímslið.“
inni og drykkjumaðurinn sem í
víxlverkandi sjálfsvorkunn og
derringi vó salt í gervi 12 ára
unglings nær fullum þroska 24 ára
manns með þeim takmörkunum
þó, að hann verður að æfa upp
skynvídd sína næstu 1—2 árin.
Þannig getur fimmtugur maður
auðveldlega hlaupið uppi þann
þroska sem hann missti af tvítug-
ur.
íslenskir sumarnemar í Bandaríkjunum 1983.
Sumardvöl unglinga
erlendis á vegum AFS
Á vegum AFS á íslandi (alþjóðleg
fræðsla og samskipti) gefst ungu
fólki nú kostur á að dvelja sumar-
langt erlendis.
Er hér um að ræða bæði náms-
dvöld og fjölskyldudvöl í Frakk-
landi, Danmörku, Finnlandi,
Portúgal, Spáni, Þýskalandi og
Bandaríkjunum, auk Englands, en
þar leggja unglingarnir stund á
sjálfboðavinnu. Aldurstakmörk
eru 17—19 ár fyrir England,
15—18 ára fyrir önnur Evrópu-
lönd og 15—30 fyrir Bandaríkin.
Umsóknarfrestur er til 13.
febrúar og fást allar upplýsingar á
skrifstofu samtakanna að Hverf-
isgötu 39, Reykjavík.
(0r frétUtilk;nningu.)
Af þessu má ráða, að þegar tal-
að er um unglingavandamál eiga
fleiri hlut að máli heldur en tán-
ingarnir.
Við þetta má svo bæta því, að
það sem maðurinn hefur lært og
æft upp áður en hann þrengdi að
tölvubankanum sínum verður ekki
frá honum tekið nema heilabúið
slái varanlega út að einhverju
leyti. Menn geta leyst talnaþraut-
ir, sólað skó og smíðað skip og
haldið sér jafnframt gangandi
með deyfandi eða örvandi inntök-
um, en geta samt ekki leyst ein-
falda flækju eigin lifnaðarhátta
við svipaðar kringumstæður. Eng-
an þarf því að undra þótt þessir
menn maldi í móinn þegar þeir
eru kallaðir ræflar, aumingjar eða
sjúklingar. Drykkjuskapur kemur
djúpskyggni manna ekkert við,
eins og sannast á skáldunum sem
yrkja hvort heldur þau eru við
skál eða ekki.
Að hrópa eitur eða ræfill, ræfill
að þessum mönnum er fávíslegt,
og að telja þeim trú um að þeir séu
drykkjusjúklingar er enn vitlaus-
ara og gerir ekki annað en að
herða á þeirri afneitunarhneigð
sem er stór hluti þeirra vandræða
sem menn, af eðlisávísun, telja að
þurfi að fela. Til lausnar þessu
ástandi er aðeins til ein leið, og
hún felst í fræðslu. Að ögra ungl-
ingum sem í þroskaleysi eru að
reyna að sýna að þeir séu stórir og
óhræddir bæði við sprúttið og
„stöffið" sem gamlingjarnir kalla
eitur, gerir ekki annað en að æsa
þá upp til að sýnast enn klárari.
Að beina athygli almennings að
eiturlyfinu sem orsök þeirra vand-
ræða sem skapast af drykkjuskap
og öðrum flótta frá raunveruleik-
anum auðveldar óreglumanninum
að trúa því að vandamálið liggi
ekki hjá honum sjálfum.
I bókinrri Furðuheimar alkóhól-
ismans er ofnotkun áfengis og
annarra vímuvalda skoðuð í þeim
tvöfalda tilgangi að vísa færa leið
frá villu og forða frá villu. Þar er
leiðsögn að finna. Upphaf lausnar-
innar gæti legið í því, að afla sér
bókarinnar í næstu bókabúð, eða
hringja til mín í síma 74303 og er
ég fús til að koma henni til skila
tafarlaust, persónulega eða með
pósti.
Steinar Guðmundsson hefur teng-
ist rið leiðsögn frí alkóhólisma í
meira en fjórðung aldar.
sýning á Kjarvalsstöðum dagana 10.-19. febrúar
•Mý íslensk skólahúsgögn - hönnuð með aukið heilbrigði
íslenskra barna að leiðarljósi.
•Mý skrifstofuhúsgögn - skrifstofustólar
tölvuborð
•Mý húsgögn úr beyki fýrir fundarsali og félagsheimili.
•Stacco-stóllinn í nýjum búningi.
Stjórnendur skóla og fýrirtækja og aðrir þeir sem láta sig varða
heilbrigði skólabarna og skrifstofufólks ættu ekki að láta þessa
sýningu fram hjá sér fara.
%
STÁLHÚSGAGNAGERÐ
STEINARS HF. I
SKEIFUNNI 6.SÍMAR: 33590.35110. 39555 í