Morgunblaðið - 10.02.1984, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1984
45
| Mætir Dönum á sama tíma
og leikir ’ iroru fyrir-
hugaðir 1 lér á landi
• Pálmar Sigurðsson, Haukum, hefur leikiö mjög vel í vetur í úrvals-
deildinni. Hann á sjálfsagt öruggt sæti í landsliöinu sem keppir í Osló.
Morgunblaðiö/Einar Falur.
Landslióshópur
f körfuknattleik
Landsliösnefnd KKÍ hefur valiö
eftirtalda leikmenn til æfinga fyrir
Evrópukeppni landsliða sem
fram fer í Osló í apríl næstkom-
andi. Hópinn skipa þessir leik-
menn:
Jón Sigurösson KR, Guöni
Guönason KR, Garöar Jóhanns-
son KR, Torfi Magnússon Val,
Kristján Ágútsson Val, Tómas
Holton Val, Valur Ingimundarson
UMFN, Sturla Örlygsson UMFN,
Jónas Jóhannesson Reyni, Jón Kr.
Gíslason ÍBK, Ríkharöur Hrafn-
kelsson Snæfelli, Þorvaldur Geirs-
son Fram, Pálmar Sigurösson
Haukum, Flosi Sigurösson Uni-
versity of Wasington, Hreinn Þor-
kelsson ÍR. Þjálfari er Hilmar Haf-
steinsson. Aöstoöarþjálfari er Sig-
uröur Hjörleifsson.
Sovéska handknattleikslandsliðið:
FYRIRHUGAÐIR eru þrír lands-
leikir í handknattleik viö Sovét-
menn um miöjan mars. Þeir áttu
aö koma hingað til lands þann 13.
og fara aftur 17. mars. Nú viröist
eitthvert babb komið í bátinn.
Sovétmenn munu mæta Dönum í
þremur landsleikjum í Kaup-
mannahöfn á sama tíma og
ákveöiö haföi verið að þeir yröu
hér á landi.
„Það kom flatt upp á okkur er
viö heyröum þetta meö leikdaga
þeirra í Danmörku," sagöi Jón Er-
lendsson, varaformaöur HSÍ, er
Mbl. talaði viö hann. Jón hefur enn
ekki fengiö neinar skýringar hjá
sovéska sendiráöinu varöandi
Deildarkeppnin í badminton:
Kínverji keppir
í B-liói TBR
NU UM helgina, 11.—12.
febr., fer fram í Laugar-
dalshöliinni deildakeppni
BSÍ. Hefst keppnin kl. 14.00
á laugardaginn og kl. 10.00 á
sunnudaginn, og lýkur
seinni partinn þann dag.
Leikiö veröur í 1. og 2.
deild.
í 1. deild eru 6 liö. Þau eru
TBRa, TBRb, TBRc, ÍAa, KRa
og Valur, sem sigraði í 2.
deild í fyrra. Þess má geta aö
TBR hefur sigrað í 1. deild frá
upphafi keppninnar og þar
meö unnið sér rétt til þátt-
töku í Evrópukeppni félags-
liöa.
í 2. deild veröa 9 lið. Þau
eru TBRd, TBRe, TBRf, ÍAb,
KRb, Víkingur, UMFS (Sel-
foss), TBV (Vestm.eyj.) og
Afturelding (Mosfellssv.). í 2.
deild er liöunum skipt í 2
riöla og spila efstu liöin úr
hvorum riöli um sæti í 1.
deild.
Eftirtektarvert er að nú
mun útlendingur leika í fyrsta
sinn í deildakeppninni. Er
þaö Kínverjinn Wang Junjie,
sem veröur í b-liöi TBR. Hef-
ur hann starfað viö þjálfun
hjá TBR í vetur og einnig aö-
stoðað viö þjálfun landsliös-
ins.
Er ekki aö efa aö góö
skemmtun veröur í því fyrir
áhorfendur aö sjá hann í
keppni viö okkar besta
badmintonfólk, sem allt
veröur meðal þátttakenda.
Pétur Guömundsson
Pétur er
löglegur
Körfuknattleikssam-
bandi íslands hefur borist
skeyti frá FIBA, alþjóða-
körfuknattleikssamband-
inu, þar sem staðfesting
kemur fram á því aö Pétur
Guðmundsson sé full-
komlega löglegur leikmaö-
ur hér á landi með liöi ÍR,
þar sem hann sé enn
áhugamaöur í greininni.
FIFA bannar afmælismót Brasilíumanna:
Brassar íhuga að bjóða
liðunum til æfingaleikia
Frá Bob Hennetsy, fréttamanni Morgun-
blaöeint á Englandi, og AP.
„ÞETTA eru nokkur vonbrigöi,"
sagöi Bobby Robson, er honum
var tjéö aö ekkert yröi af sex
landa keppninni sem Brasilíu-
menn hugöust halda í tilefni af 70
ára afmæli brasilíska knatt-
spyrnusambandsins næsta
sumar. FIFA bannaöi þeim aö
halda keppnina, þar sem hún átti
aö vera á sama tíma og Evrópu-
keppnin í Frakklandi.
„Ég var farlnn aö hlakka til
keppninnar. Hún heföi komiö sér
mjög vel fyrir okkur. Leikmenn
mínir heföu fengiö mjög góöa
reynslu af því aö leika í Brasilíu,“
sagöi Robson.
Fram kom í skeyti frá forráöa-
mönnum FIFA í Sviss i gær til Giul-
ite Coutinho, formanns brasilíska
sambandsins, aö til greina kæmi
aö fresta keppninni þar til eftir 27.
júní, er Evrópukeppninni væri lok-
iö. Coutinho var ekki hrifinn af
þeirri hugmynd. „Viö erum aö
hugsa um aö bjóöa liöunum aö
koma hingaö samt sem áöur á
þeim tíma sem til sóö aö keppnin
yröi, og efna til æfingaleikja þeirra
á milli. Viö þurfum ekki samþykki
FIFA til j>ess,“ sagði Coutinho.
Þjóöirnar sem boöiö haföi veriö til
keppninar eru England, Holland,
Mexíkó, Uruguay og Argentína.
Heimamenn ætiuöu svo auövitaö
aö keppa sjálfir.
Knattspyrnuþjálfarafélag fslands hélt þjálfaranámskeið um helgina í
samvinnu viö Knattspyrnusambandiö. Fór það fram á fólagssvæöi
Þróttar og hótel Eaju. Þátttaka var mjög góö og voru menn ánægöir
meö námskeiöiö. Aðalleiðbeinandi var Daninn Karsten Jörgensen,
sem sóst hér á myndinni í fremri röö fyrir miöju. Aðrir á myndinni eru
þeir sem störfuöu aö námskeiöinu. Eggert Jóhannesson, formaöur
KÞÍ, er lengst til hægri í fremri röö. Morgunblaðlð/Skapti Hallgrimsson.
þetta mál og í gær ætlaöi hann aö
reyna aó ná sambandi viö sovéska
handknattleikssambandið i
Moskvu.
„Við værum reiöubúnir að
seinka leikjunum — setja þá á 17.
til 20. mars ef þeir óska þess,“
sagöi Jón. „Viö viljum alls ekki
missa af þessum leikjum. Rússar
eru meö frábært liö sem gaman
yröi aö sjá.“
Þess má geta aö flug var bókaö
fyrir Sovétmenn fyrir alllöngu —
og því er slæmt fyrir handknatt-
leikssambandiö að fá ekki aö vita
ef þeir hyggjast koma seinna til
landsins en ráögert var.
— SH.
Sveinn þjálfar
á Seyðisfirði
SVEINN Sveinsson, knattspyrnu-
maöur úr Vestmannaeyjum, hafur
veríö ráöinn þjálfari Hugins frá
Seyöisfiröi. Sveinn mun einnig
leika meö liöinu.
Sveinn er þriöji leikmaöurinn
sem ÍBV missir í vetur, Ómar Jó-
hannsson gekk til liös viö Framara
og Valþór Sigþórsson fór til Kefla-
víkur. — hkj.
• Dalglish sést hér eftir aö
hafa meiöst I ieiknum gegn
United. í Ijós kom aö hann var
kinnbeinsbrotinn.
Dalgtish má
fara að æfa:
Hefur lést
umsjö
Frá Bob Hennesry, Iréttwnannl Morg-
unbiaðaina i Englandí.
KENNY Dalglish, sem kinn-
beinsbrotnaöi í deildarleik
gegn Manchester United 2.
janúar, er enn ekki farinn aö
geta æft, og Joe Fagan hetur
gefiö upp von um aö hann geti
leikiö gegn Benfica I fyrri leik
liöanna í Evrópukeppni meist-
araliöa, undanúrslitum. Leik-
urinn fer fram 7. mars.
„Þaö yröi óvæntur glaöning-
ur fyrir okkur ef hann yröi til-
búinn í slaginn þá. Þetta voru
verstu meiösli af þessari teg-
und sem ég hef nokkurn tíma
séö — og mér líst ekki á að
hann veröi reiöubúinn til að
leika gegn Benfica," sagöi Joe
Fagan, framkvæmdastjóri Liv-
erpool í gær.
Sérfræöingar hafa gefiö
Dalglish leyfi til að hefja léttar
æfingar eftir helgina — en aö-
eins léttar. Og finni hann eitt-
hvaö til veröur hann aö hætta
samstundis. Þess má geta aö
eftir slysiö hefur hann aöeins
getaö neytt fljótandi fæöis —
og hefur hann lést um 7 kíló.
„Hann bætlr því aftur á sig
nú þegar hann fer aö geta
borðaö almennilegan mat, en
hann veröur líka aö ná fyrri
styrkleika," sagöi Fagan. „Þaó
veröur eflaust erfiðara."