Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 Auðlindir og at- vinnuuppbygging Álögur og skattar ríkisins eru stór hluti virkjunarkostnaöar — eftir Aðalstein Hallgrímsson Á þessum vetri hefur það gerst að stjórn Landsvirkjunar hefur skorið niður framkvæmdir um hálfan miljarð króna eða um það bil sömu upphæð og ætluð er til nýbygginga vega á landinu í ár. Ástæða þessa niðurskurðar er sú að ekki er markaður fyrir orkuna á því verði, sem Lands- virkjun þarf að fá til þess að endar nái saman. Landsmönnum hefur í áratugi verið talin trú um, að mik- il auðlegð væri fólgin í fallvötnum landsins. Þegar nú sú staða er upp komin að ekki er mögulegt að nýta þessar auðlindir sakir kostnaðar, vaknar sú spurning, hvort hér sé um tímabundið ástand að ræða eða hvort við Islendingar séum á villigötum, og ekki borgi sig að nýta vatnsorku landsins. Sem betur fer er ástæðulaust að afskrifa þessar auðlindir okkar að svo stöddu. En þá þarf hugar- farsbreytingu hjá ráðamönnum þessarar þjóðar. Skýringar á há- um stofnkostnaði virkjana og raunar flestra framkvæmda á Ís- landi í dag er að leita í óhóflegri skattlagningu á alla uppbyggingu. Landsvirkjun er sameignarfyr- irtæki ríkissjóðs, Reykjavíkur- borgar og Akureyrarbæjar og hef- ur lögum samkvæmt það hlutverk að framleiða og selja raforku í landinu. Fyrirtækið hefur sjálf- stæðan fjárhag og hlýtur að þurfa að standa undir kostnaði við öflun raforkunnar, með sölu hennar, enda ekki um aðrar tekjur að ræða. Stofnkostnaður vatnsafls- virkjana er hlutfallslega mikill en beinn rekstrarkostnaður þeirra, eftir að þær eru komnar í gagnið, hlutfallslega lítill. Orkuverð frá vatnsaflsvirkjunum ræðst því að langmestu leyti af kostnaði vegna byggingar þeirra og nauðsynlegs dreifikerfis frá þeim, svo og fjár- magnskostnaði. Þá er ástæða til þess að spyrja hver sé stofnkostnaður vatnsorku- vera í dag og hvernig hann sé saman settur. I fljótu bragði virðast um 30—40% af stofnkostnaði virkj- ana vera ýmsar álögur hins opinbera á framkvæmdir. Áætlað er að orka frá nýju orkuveri kosti nú um 18—20 millidali hver kílówatt- stund. Séu felldar niður álögur á Aðalsteinn Hallgrímsson „Öflug fyrirtæki eru lífsnauðsyn þessari þjóð, ef hún ætlar sér bætt lífskjör í framtíð- inni, og skiptir þá rekstrarform þeirra ekki máli.“ stofnkostnað, yrði kostnaöur trú- lega 10 til 14 millidalir á hverja kílówattstund. Þetta kann að koma mönnum á óvart, þar sem lög um Landsvirkj- un gera ráð fyrir niðurfellingum ýmissa gjalda, sem önnur fyrir- tæki búa við. Heimilt er að fella niður aðflutningsgjöld, og er það gert af innfluttu efni, sem verður hluti mannvirkja. Heimild er einnig fyrir endurgreiðslum að- flutningsgjalda á vélavinnu, og er framkvæmd þeirrar heimildar sú að Landsvirkjun fær, seint og síð- ar meir, endurgreidd 11—12% af taxta fyrir vinnuvélar sem unnið hafa við framkvæmdirnar. Þessi endurgreiðsla er innan við 20% af raunverulegum tekjum ríkissjóðs vegna þessara véla. Erlent verð vinnuvéla er um 47% af verði þeirra tollaðra í landinu. Sama er að segja um flutningabíla, en minni bílar eru enn hærra tollað- ir. Rekstrarkostnaður vélanna er skattlagður á sama hátt og einnig varahlutir til þeirra, en hjólbarð- ar eru enn hærra tollaðir. Greidd- ur er þungaskattur af öllum flutn- ingum innan virkjanasvæða, víðs- fjarri almennum vegum, þótt kostnaður við vegagerðina lendi allur á Landsvirkjun. Sama gildir um minni bíla, þar sem þunga- skattur er greiddur af bensini. Er varlegt að áætla að 50—60% af rekstrarkostnaði véla og bíla renni beint í ríkissjóð. Laun starfsmanna við virkjun- arframkvæmdir eru há, miðað við almenn laun i landinu. Starfs- menn greiða þvi allháa skatta bæði beint og óbeint í formi neysluskatta og fær ríkið þannig dágóðar tekjur af vinnu þeirra. Ofan á þetta bætast svo veltu- skattar á fyrirtækin sem vinna að framkvæmdum, en allur umrædd- ur kostnaður endar að sjálfsögðu hjá Landsvirkjun. Nú skal ég ekk- ert efast um að rikissjóður nýti þessar tekjur til ýmissa þarfra hluta, en það er ekki málið. Þessi skattheimta er á góðri leið með að gera að engu möguleikana á að nýta þá auðlind sem við íslend- ingar eigum stærsta, utan fiski- miðanna, og stefnir þannig i voða allri uppbyggingu i landinu. Hér hefur ekkert verið sagt um allan þann kostnað sem Landsvirkjun hefur orðið að bera til þess að fá (!) að virkja, en þar má nefna ýmiskonar bætur til bænda og meintra landeigenda, gerð vega, sæluhúsa og jafnvel fiskeldis- stöðva. Þær kvaðir allar eru nán- ast þjóðarskömm. Landsvirkjun hefur einnig orðið að kosta tals- verðu til vegagerðar innan hins al- menna vegakerfis (í Gnúpverja- hreppi og Blöndudal til dæmis), en tekjur af vegunum renna hinsveg- ar beint til ríkisins eins og áður segir. Óllum þessum álögum og kvöð- um sem nú eru lögð á nýtingu auð- linda I landinu þarf tafarlaust að aflétta. Að öðrum kosti mun þjóð- inni reynast nánast ókleift að nýta þessar verðmætu auðlindir sínar. Því miður eru starfsskilyrði Landsvirkjunar ekkert einsdæmi { okkar þjóðfélagi. Nýjasta dæmið er fjaðrafokið út af ákvörðun landbúnaðarráðherra að heimila Islandslaxi hf. að nýta jarðhita við væntanlega fiskeldisstöð á Reykjanesi. Upphlaup þingmanna, (jafnvel þingmanna kjördæmis- Fri virkjunarframkvæmdum. ins) út af þessu máli er vægast sagt grátlegt. Þegar ráðherrann stuðlar, á sjálfsagðan hátt, að uppbyggingu nýrrar útflutnings- greinar, sem á í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi, þá rjúka upp menn, sem hefur verið falið það hlutverk að leiða þjóðina til meiri hagsældar, og væna ráðherrann um annarlegar hvatir í þessu máli. Ástæðan virðist sú, að Sambandið er eignaraðili að íslandslaxi, enda er það rækilega tíundað af gagn- rýnendum samningsins. Menn geta kyngt því að hinn norski meðeigandi Sambandsins „fái hlutina á gulldiski" en ekki Sam- bandið, og segir það sína sögu. Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, gat þess á dögunum í viðtali, að hann yrði var ein- hverskonar sjálfseyðingarhvatar i flokki sínum. Þessi hvöt er ekki bundin við Sjálfstæðisflokkinn, heldur er engu líkara en hún hrjái almennt þessa þjóð. öfund og ill- vilji í garð öflugra fyrirtækja eins og Sambandsins eru landlæg, og nánast þjóðhættulegt fyrirbæri. Öflug fyrirtæki eru lffsnauðsyn þessari þjóð, ef hún ætlar sér bætt lífskjör I framtíðinni, og skiptir þá rekstrarform þeirra ekki máli. Það er því full ástæða til þess að fagna samningsgerð landbúnaðar- ráðherra við íslandslax hf. sem skrefi í rétta átt. En betur má ef duga skal. Það ber brýna nauðsyn til þess að fella niður allskonar álögur á stofnkostnað útflutn- ingsfyrirtækja, sem eiga í alþjóða- samkeppni, á sama hátt og endur- skoða þarf stofnkostnaðarskilyrði virkjana. Að öðrum kosti verða þessi fyrirtæki ekki að veruleika, og lífskjör í þessu landi munu versna enn frá þvi sem nú er. Þeg- ar fallvötn eru beisluð og orku þeirra komið á markað og blómleg útflutningsfyrirtæki risin munu þau vissulega leggja sinn skerf i þjóðarbúið, en fyrr ekki. Ef við höldum uppteknum hætti, að skræla kartöflurnar áður en við setjum þær niður, verður uppsker- an í samræmi við það. Adalsteinn Hallgrímsson er fram- kvæmdastjóri bjá Hagvirki bf. Morgunblaðið/Amir Nokkur kunn andlit af bridgeáhorfendabekkjunum virða fyrir sér stöð- una í íslandsmótinu. „Ef Jón vinnur Jón og Þórarinn tapar fyrir Stefáni og Úrval vinnur Guðbrand þá er Jón orðinn íslandsmeistari o.s.frv.... Bridge Arnór Ragnarsson Hreyfill — Bæjarleiðir Tveimur umferðum í 24 para barometer er lokið og er staða efstu para þessi: Jón Sigtryggsson — Skafti Björnsson 121 Cyrus Hjartarson — Hjörtur Cyrusson 108 Daníel Halldórsson — Victor Björnsson 78 Lilja Halldórsdóttir — Páll Vilhjálmsson 76 Tómas Kristjánsson — Vagn Kristjánsson 74 Kristinn Sölvason — Stefán Gunnarsson 74 Eyjólfur ólafsson — Gisli Sigurtryggvason 50 Þriðja umferð verður spiluð 15. apríl kl. 20 í Hreyfilshúsinu. Bridgefélag Kópavogs Fimmtudaginn 11. apríl sl. lauk Board-a-match sveita- keppni félagsins með sigri sveit- ar Jóns Inga Ragnarssonar sem hlaut 93 stig. Auk Jóns spiluðu í sveitinni Trausti Finnbogason, Burkni Dómaldsson og Sæmund- ur Árnason. Röð efstu sveita var þessi: Sveit Jóns I. Ragnarssonar 93 Ármanns J. Lárussonar 92 Gríms Thorarensen 92 Ragnars Jónssonar 91 Hauks Hannessonar 83 Næsta keppni félagsins verður tvímenningur, sennilega þriggja kvölda og hefst hann fimmtu- daginn 18. april nk. Skráningarfrestur að renna út Á mánudaginn, 15. april, renn- ur út skráningarfrestur til að tilkynna þátttöku i eftirtalin mót á vegum Bridgesambands íslands: fslandsmótið í tvímenn- ingskeppni — undanrásir, sem verða í Tónabæ 20.—21. apríl nk. í landsliðskeppnir BSÍ, i opnum flokki og kvennaflokki sem verða helgina 10.—12. maí nk. í Drang- ey v/Siðumúla og i yngri flokki, sem spiluð verður helgina 26.-28. apríl, einnig í Drangey v/Síðumúla. Hægt er að hafa samband við Ólaf Lárusson í s: 18350 eða 16538 til kl. 18.00 á mánudaginn nk. Vakin er athygli á þvi, að þau pör, sem ekki hafa samband fyrir auglýstan tíma, geta ekki gert ráð fyrir því að fá að vera með, er að spilatíma kemur. Bridgedeild Barð- strendingafélagsins Mánudaginn 1. apríl hófst tveggja kvölda firmakeppni fé- lagsins með þátttöku 36 fyrir- tækja. Staða 12 efstu fyrirtækja: Múrarafélag Reykjavikur 210 (Ragnar Þorsteinsson — Helgi Einarsson) Múrarameistarafélag Reykjavikur 196 (Þórarinn Árnason — Ragnar Björnsson) íslenska Álfélagið 193 (Ragnar Hermannsson — fsak Sigurðsson) Blikk og stál 186 (Guðrún Jónsdóttir — Ágústa Jónsdóttir) Pétur O. Nikulásson 183 (Sigurður Kristjánsson — Halldór Kristinsson) Hekla hf. 180 (Guðmundur Jóhansson — Jón Magnússon) Glerskálinn Kópavogi 180 (Ólafur Guðjónsson — Samúel Guðmundsson) Nesskip 179 (Friðjón Margeirsson — Valdimar Sveinsson) Barðstrendingafélagið í Reykjavík 177 (Ólafur Jónsson — Kristinn Óskarsson) fstex 174 (Björn Björnsson — Birgir Magnússon) Vélsmiðja Einars og Viðars 173 (Þröstur Einarsson — Didda) J.S. Gunnarsson sf. 173 (Björn Kristjánsson — Hjörtur Elíasson) Meðalskor 165 stig. Mánudaginn 15. apríl lýkur firmakeppni félgsins. Spilað er í Síðumúla 25.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.