Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 29 Reagan Bandaríkjaforseti: Varar við oftrú á leiðtogafund London, 12. aprfl. AP. RONALD Rcagan, Bandaríkjaforseti, segir í viðtaii, sem birtist í dag í breska blaðinu The London Times, að ekki sé hyggilegt að búast við of miklu af væntanlegum fundi þeirra Gorbachevs og að ólíklegt sé, að hann einn verði til að breyta miklu um samskipti þjóðanna. »Ég sé ekki að fundur okkar Gorbachevs verði til að brjóta í blað í samskiptum þjóðanna. Á það er að líta, að Gorbachev hefur setið í fjögur ár í stjórnmálaráð- inu og í 14 ár í miðstjórninni. Sov- éska stjórnin er samstjórn þar sem stjórnmálaráðið ræður mestu. Um aðrar stefnubreytingar verður því ekki að ræða en þær, sem það samþykkir," sagði Reag- an í viðtalinu. Um þá ákvörðun Gorbachevs að fresta um sinn uppsetningu með- Veður víða um heim Lægst Hæst Akureyri 0 skýjaö Amsterdam 3 9 skýjað Aþena 14 26 heiösk. Barcelona 18 skýjaö Berlín 8 10 skýjaö BrUssel 3 10 akýjaö Chicago 6 16 skýjaö Dublin 5 10 skýjað Feneyjar 11 skýjaö Frankfurt 5 12 skýjaö Genf 5 12 rigning Helsinki 6 heiósk. Hong Kong 17 19 rigning Jerusalem 15 28 heiðsk. Kaupm.höfn 1 2 skýjaö Las Palmas 20 hálfsk. Lissabon 10 17 heiósk London 6 11 heiösk. Los Angeles 12 23 heiðsk. Luxemborg 5 skúrir Malaga 22 skýjaó Mallorca 19 skýjaö Miami 22 24 skýjaö Montreal +« 3 heiösk. Moskva 2 4 skýjað New York 4 12 akýjaö Osló +2 2 skýjaö París 6 9 heiðskirt Peking 9 15 skýjaö Reykjavík 5 skýjaö Rio de Janeiro 23 36 skýjaö Rómaborg Stokkhólmur 5 21 rigning vantar Sydney 17 25 heiösk. Tókýó 7 13 rigning Vinarborg 8 13 skýjaö Þórshöfn 9 akýjaö. aldrægra eldflauga í Austur- Evrópu sagði Reagan, að hún kæmi ekki á óvart. Sovétmenn gerðu allt, sem þeir gætu, til að hindra Atlantshafsbandalagsríkin í því að efla varnir sínar og ákvörðunin væri tilraun til að reka fleyg á milli Bandaríkja- manna og bandamanna þeirra í Vestur-Evrópu. „Áróðursbrögðin þeirra eru öll gamalkunn, rang- túlkanir, hótanir og nú tilraun til að njörva niður yfirburði þeirra í kj arnorku vopnaeign." FAO veitir fimm lönd- um aðstoð Róm, 12. tprfl. AP. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO, tilkynnti á skírdag, að tekin hefði verið ákvörðun um að veita fimm löndum 43 milljóna dollara matvælaaðstoð. Afríkulöndin Níger, Súdan og Burkina Faso munu fá aðstoð að upphæð 15,5 milljónir dollara vegna þurrkanna, en afgangurinn, 27,5 milljónir dollara, rennur til Pakistans, Eþíópíu og Súdans vegna flóttamannahjálpar í lönd- unum. Gengi gjaldmiðla Dollar og gull lækkuöu Lundúnum, 12. aprfl. AP. DOLLARI lækkaði enn í dag vegna vaxtalækkana og breska pundið seldist síðdegis á 1,2510 dollara, en í gær var samsvar- andi verð 1,2455 dollarar. Staða dollarans gagnvart öðrum mik- ilvægum gjaldmiðlum var í gær sem hér segir, miðað við einn dollara og tölurnar í svigunum eru tölur gærdagsins: Vestur-þ. mörk 3,0745 (3,0790) Svissn. frankar 2,5815 (2,5980) Franskir frankar 9,3675 (9,4000) Hollensk gyllini 3,4840 (3,4845) ítalskar lírur 1.960,00 (1.972,50) Kanad. dollarar 1,3635 (1,3665) Gullverð lækkaði einnig nokkuð, únsan kostaði síðdegis 329,50 dollara, en í gær kostaði hún 332,25 dollara. Morðum mót- mælt í Chile Santiago. Olile. 12. apríl. AP. LÖGREGLAN í Santiago í Chile beitti í dag vatnsbyssum og táragasi og skaut gúmmíkúlum á fólk, sem safnast hafði saman til að mótmæla morði þriggja manna. Voru þeir úr flokki kommúnista og hafa stjórnvöld ekkert gert til að upplýsa málið. Frammámenn í verkalýðsfélög- unum höfðu hvatt nemendur til að sækja ekki skóla í dag og verka- menn til að mæta í mótmæla- göngu að húsi hæstaréttar. Var lítil þátttaka í aðgerðunum fram eftir degi en þegar kvöldaði var víða kveikt í bálköstum á götum fátækrahverfanna. Skutu lög- reglumenn af hríðskotabyssum upp í loftið til að dreifa mann- fjöldanum og beittu gegn honum vatnsbyssum og táragasi. Ókunnir menn á bíl skutu á einn mótmæl- endanna, 23 ára gamlan mann, en að sögn lækna leið honum eftir atvikum vel eftir uppskurð. Á fundi með stúdentum sagði einn frammámanna í verkalýðshreyf- ingunni, að Chilemenn væru búnir að fá sig fullsadda á kúgun Pin- ochets, það væri aðeins óttinn við grimmilegar aðfarir lögreglunnar, sem kæmi í veg fyrir uppreisn. AP/Sím&mynd „Lucy“ fær sér nýjan mann Lucy í DaJls eða Charlene Tilton eins og hún heitir réttu nafni giftist öðru sinni 8. apríl sl. og heitir nýi maðurinn hennar Domenick Allen. Voru þau gefin saman í Kaliforníu og að sjálfsögðu var um kirkjubrúðkaup að ræða. OECD: Viðræður um verslun- arfrelsi París, 12. apríl. AP. FULLTRÚAR helstu iðnríkja heims ákváðu í dag að hefja undirbúning nýrra viðræðna um aukið verslunar- frelsi en ekki náðist samkomulag um hvenær þær skyldu hefjast. I yfirlýsingu, sem gefin var út að loknum tveggja daga fundi ráð- herra frá 24 aðildarþjóðum OECD, Efnahags- og framfarastofnunar- innar, sagði, að meginverkefni væntanlegra viðræðna væri að koma í veg fyrir þá hafta- og verndarstefnu, sem nokkuð væri farið að bera á. Samþykkt var einnig að vinna áfram ötullega gegn verðbólgunni enda væri það forsenda fyrir efnahagslegum bata og minna atvinnuleysi. Full- trúi Bandaríkjanna lagði áherslu á, að væntanlegar viðræður yrðu dagsettar, en á það var ekki fallist að sinni. Er gert ráð fyrir, að það verði ákveðið á fundi leiðtoga sjö helstu iðnríkjanna í Bonn í maí. 88 hæða skýja- kljúfur byggð- ur í Kína Tókýó, 12. apríl. AP. FIMM byggingarfyrirtæki frá Frakklandi, Kanada og Mónakó hafa hafizt handa um að byggja áttatíu og átta hæða skýjakljúf í Shenzhen skammt frá landamær- unum við Hong Kong. Kostnaður við bygginguna mun verða um 450 milljón dollarar. Frá þessu sagði í fréttum kínverska útvarpsins og var tekið fram að byggingin yrði þar með 26 hæðum hærri en hæsti skýjakljúfur í Hong Kong. MISSAM SUNNY INISSAN SUNNY Wagon 1.5GL Meö Nissan Sunny færöu bókstaflega alla þá aukahluti sem þú veröur aö panta sérstaklega í aöra bíla t.d.: Upphituö framsæti, útvarp, tölvuklukku, snúningshraða- mæli, öryggisbelti fyrir fimm, þriggja hraöa miöstöö, rafhitaöa afturrúöu meö rúöuþurrku og rúöusprautu, þurrkur á framljósum, hliöarrúöa aö aftan opnast meö takka úr framsæti, farangursgeymsla og bensínlok eru opnanleg úr ökumannssæti o.m.fl. Vélin er 83 hestöfl, 1500 cc. Sunny er auðvitað framhjóladrifinn og fimm gíra eöa sjálfskiptur. Muniö bílasýningar okkar um helgar kl. 14—17. Veitum frábær kjör á öllum Sunny-bílum. Annaö eins hefur varla þekkst hingaö til. Tökum flesta notaöa bíla upp A aðeins kr. 429.000 Sll INGVAR HELGASON HF. - ■ Sýningarsalurinn/Rauðagerði, stmi 33560
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.