Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 Bretland: 20 mánaða gamalt barn lést úr AIDS Iiondon, 12. aprfl. AP. TUTTUGU mánada gamall breskur drengur lést í London á miðvikudags- kvöld af völdum AIDS-sjúkdómsins, er hann hafði fengið við blóðgjafir á bandarískum spítala skömmu eftir fæðingu, að sögn lækna. Úrskurður réttarrannsóknar Ekki kom fram við réttarrann- var sá að dauða drengsins hefði sóknina, við hvaða spítala í borið að höndum „fyrir óhapp“, en hann er fyrsta barnið sem deyr úr AIDS-sjúkdómnum í Bretlandi. Bandaríkjunum hefðu átt sér stað. blóðgjafirnar Geimferjan Discovery: Þingmaður á braut um iörðu K.n.vornlkhfAn Í7 anrfl AP. K*naver»lhofA», 12. aprfl. AP. GEIMFERJUNNI Discovery var skotið á loft í dag og í áhöfninni er öldungadeildarmaðurinn Jake Garn. Ferðin hefur gengið að óskum. Fimm sinnum hefur orðið að fresta geimskoti vegna bilana og sjöttu tilrauninni varð að fresta um 55 mínútur vegna veðurs og skipaferða á þeim slóðum þar sem fyrstu flaugarhlutarnir féllu í sjó- Sjö manna áhöfn er á ferj- unni, sem skotið var upp ná- kvæmlega fjórum árum eftir fyrstu ferð bandarískrar geim- ferju út fyrir gufuhvolf jarðar. I ferðinni verða gerðar margvís- legar tilraunir, m.a. verða fram- leidd lyf, sem kunna að valda byltingu, og tveimur fjarskipta- hnöttum verður komið á braut. Á þingmanninum verða gerð- ar tilraunir í þá veru að kannað verður hvernig likaminn aðlag- ast þyngdarleysinu. í því skyni hafa verið festir fimm skynjarar á höfuð honum, fjórir á kviðinn og þrír á brjóstkassann. Discovery verður fimm daga í þessari ferð. Annar gervihnött- urinn er eign bandaríska varn- armálaráðuneytisins og hinn kanadísks fyrirtækis. Hlutlausir með- stjórnendur skipaðir í Súdan Khartoam, Súdaa, 12. aprfl. AP. FULLTRÚAR stjórnmálaflokka og verkalýðsfélaga í Súdan hafa lagt að herstjórninni nýju að samþykkja meðstjórnunarráðuneyti skipað óbreyttum borgurum ótengdum flokkum og samtökum. Meðstjórnendur þessir leggi hönd á plóginn við stjórn landsins í eitt ár og að því loknu fari fram almennar kosningar og þjóðkjörin borgarastjórn taki við völdunum. Sameiginlegur talsmaður stjórnmálaflokkanna og verka- lýðsfélaganna sagði í dag, að æðsti ráðamaðurinn, Swareddahab hershöfðingi, hefði samþykkt þessa uppástungu í flestum meg- inatriðum, m. a. að stjórnarhlut- deild þeirra yrði aðeins eitt ár. Hershöfðinginn, fyrrum varnar- málaráðherra í stjórn Nimeiris, tilkynnti hins vegar að núverandi varnarmálaráðherra landsins myndi fylgjast náið með starfsemi meðstjórnarinnar og vera helsti milliliður hennar við hina 15 manna herstjórn, sem þó mun hafa allt úrslitavald á stjórnun landsins umrætt ár. Talsmaðurinn fyrrgreindi sagði það með ráðum gert að velja ópóli- tíska aðila í meðstjórnina, „því bráðabirgðastjórnin þarf að tak- ast á við mörg erfið verkefni á næstu mánuðum og það mun gera henni auðveldar fyrir ef hún þarf ekki standa í pólitísku þrasi á meðan. Þetta teljum við farsæl- ustu lausnina og bráðabirgða- stjórnin er á sama máli, samstarf- ið er gott“, eins og talsmaðurinn komst að orði. Arne Kokkvoll, forstöðumaður skjal&safns norsku verkalýðshreyfingarinnar, með nokkur trúnaðarskjalanna. Noregur: Upplýsingar skjalavarð- arins hafa vakið furðu yfirstjórnar hersins Ósló, 12. aprfl. AP. Frá J»n Erik Laure, fréttariUra Mbl. UPPLÝSINGAR þær, er fram komu í Treholt-málinu nýlega, um að mikill fjöidi trúnaðarskjala væri geymdur í skjalasafni norsku verkalýðshreyfíngar- innar, hafa vakið furðu yfirstjórnar hersins. Kann að verða nauðsynlegt að leggja hald á hluta skjalanna. Það var forstöðumaður skjalasafnsins, Arne Kokkvoll, sem kom með þessar óvæntu upplýs- ingar við vitnaleiðslu í Treholt-málinu. Kvað hann það alvanalegt, að stjórnmálamenn hefðu trúnaðarskjöl í einkaskjalasöfnum sinum. Auk þess höfðu margir stjórnmálamenn úr Verka- mannaflokknum gefið skjalasafninu einkasöfn sín, að sögn Kokkvolls. Sagði hann, að á meðal trúnaðarskjala í þeim hefðu nokkur verið frá Nató, merkt sem alger trúnaðarmál. Yfirmaður öryggismáladeildar hersins, Oddvar Solnördal, sagði: „Trúnaðarskjöl eiga alls ekki heima í einkaskjalasöfnum og eru ekki eign stjórnmálamannanna. Þvert á móti eru stjórn- málamennirnir persónulega ábyrgir fyrir, að ör- yggisfyrirmæli varðandi skjölin séu virt. Og það er mjög alvarlegt brot að hunsa þessi fyrirmæli." Starfsmenn öryggismáladeildarinnar höfðu ekki minnstu hugmynd um trúnaðarskjölin í skjalasafni verkalýðshreyfingarinnar. Sagði Sol- nördal, að þegar í stað yrði haft samband við stjórn stofnunarinnar og hafist handa um að kanna umfang málsins, svo að unnt yrði að koma skjölunum aftur í vörslu hersins eða þeirra ráðu- neyta, sem gefið hafa þau út. Arne Kokkvoll, forstöðumaður skjalasafnsins, sagðist fús til samstarfs, en fyrst yrði að liggja fyrir lagaleg skilgreining á því, hverjar væru skyldur safnsins til að veita hernum aðgang að skjölunum. Hins vegar taldi hann ekki koma til greina, hvernig sem allt ylti, að greina frá því, hvaða einstaklingar hefðu gefið stofnuninni einkasöfn sín. Tilræði við Khadafy mistókst í tvígang Washington, 12- apnl. AP. Andróðursmenn í Líbýuher reyndu tvívegis að ráða Khadafy Líbýuleiðtoga af dögum og hefur þessa verið grimmilega hefnt með lífláti fjölda hermanna og foringja, samkvæmt fregnum Washington Post, sem byggir á leyniþjónustu- heimildum. s em eina aflið, sem skert gæti völd sín. Með stofnun sveitanna hyggst hann draga tennur úr at- vinnuhermönnunum. Ovenjulegt nauðgunarmál: Situr inni fyrir nauðgun sem aldrei átti sér stað Markham, Illinois, 12. aprfl. AP. DÓMARI neitaði að breyta refsingu manns, sem þegar hefur setið sex ár í fangelsi vegna meintrar nauðgunar. Mál hans var tekið upp að nýju þar sem konan sem kærði segir nú að nauðgunin hafi verið uppspuni. Gary Dotson var dæmdur til 25 ára vistar 1979 fyrir að hafa nauðgað konu að nafni Cathleen Crowell Webb 9. júlí 1977. Hann var látinn laus gegn tryggingu 4. apríl sl. er frú Webb dró fyrri framburð sinn til baka. En nú hefur hann aftur verið settur á bak við lás og slá. Dotson, sem er 28 ára, neitar sakargiftum sem fyrr. Kveðst hann aldrei hafa séð konuna fyrr en hún hafi borið nauðgun upp á hann. f gærkvöldi sagðist dómarinn Richard Samuels ekki breyta fyrri úrskurði sínum, þar sem kon- unni hefði ekki tekist að sanna að hún hefði borið ljúgvitni í öndverðu og kvaðst hann ekki telja hana seka um meinsæri. f dag óskaði hún eftir því að réttarrannsókn fari fram í því hvort hún hafi framið meinsæri. Læknir, sem skoðaði frú Webb kvöldið sem hún kvað sér hafa verið nauðgað, fann engin merki um nauðgunina við skoðun. I leggöngum hefði hvorki fundist sáðvökvi né sæði. Frú Webb var 16 ára þegar hún bjó nauðgun- arsöguna til. Segist hún hafa gripið til þess ráðs þar sem hún hélt sig ólétta. Þorði hún ekki að segja fósturforeldrum sínum frá því að hún hefði átt kynmök við kærasta sinn. Reyndist hún ekki þunguð þegar til kom. Frú Webb er nú 23 ára og tveggja barna móðir. Fyrra tilræðið átti sér stað í marz í forsetahöllinni fyrir utan Trípólí, en í síðara tilfellinu var ráðist gegn bílalest, þar sem Khadafy var á ferð. Reynt var að ráða Khadafy af dögum í maí í fyrra er hópur námsmanna var skikkaður til að vera viðstaddur þegar tveir menn voru hengdir á almannafæri. Samkvæmt Washington Post voru a.m.k. 15 liðsforingjar líf- látnir eftir fyrra tilræðið og a.m.k. 60 eftir hið síðara. Að baki tilræðunum stóðu íhaldssamir foringjar í her Líbýu, sem eiga í valdabaráttu við bylt- ingarnefndir, sem Khadafy hefur fært aukin völd í hendur. Hefur Khadafy m.a. sett á laggirnar sér- stakar hersveitir róttæklinga til höfuðs hernum til þess að tryggja sig betur í sessi. Hafa róttækl- ingasveitirnar m.a. nýlega tekið við landamæravörzlu við landa- mæri Ttunis úr höndum hersins, foringjum hans til mikillar niður- lægingar. Tilvist róttæklinga- sveitanna er skýrð á þann veg að Khadafy hafi litið á her landsins, Líbería: Vilja hafa hendur í hári tilræðismanna Monroviu, Líberíu, 12. aprfl. AP. GEFIN hefur verið út handtökuheim- ild á hendur tveimur háttsettum emb- ættismönnum borgaralegrar stjórnar Líberíu, sem steypt var. Eru þeir sak- aðir um ráðabrugg um að steypa af stóli Samuel Doe, leiðtoga landsins. Mennirnir tveir búa nú í Banda- ríkjunum og Fílabeinsströndinni. Báðir flúðu land er Doe steypti og lét taka af lífi William Tolbert for- seta í apríl 1980. Eru mennirnir tengdasynir Tolberts. Þeir eru sagðir hafa átt aðild að samsæri Líberíumannsins Elmer Johnson og bandaríska sjóliðans Henry Woodhouse, sem hugðust steypa Doe 3. nóvember sl. Yfirvöld í Líb- eríu hugleiða að óska eftir að fá mennina tvo framselda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.