Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985 27 AÐALFUNDUR IÐNAÐARBANKANS: Ragnar Önundarson bankastjóri: Hlutafjáreign í bankanum verði arðbær fjárfesting AÐALFUNDUR Idnaðarbankans samþykkti tillögu bankaráðs um að hækka hlutafé bankans í árslok 1984 með útgáfu jöfnunarhlutabréfa um 109,47% úr 65.859.290 kr. I 137.952.820 kr. Jafnframt var samþykkt að greiða hluthöfum 5% arð fyrir liðið ár, samtals 3.293 þús. kr. Hluthafar fylgjast með kjöri bankaráðs, en það var óbreytt frá síðasta ári að því undanskildu að Ingólfur Finnbogason húsasmíðameistari gekk inn í stað Gunnars Guðmundssonar rafverktaka. Hinir fjórir eru: Davíð Sch. Tborsteinsson iðnrekandi, Sigurður Kristinsson málarameistari, Sveinn Valfells verkfræðingur og Brynjólfur Bjarna- son framkvæmdastjóri. Yfirboð ríkissjóðs ástæða hækk- andi vaxta og lánsfjárkreppu — sagði Davíð Sch. Thorsteinsson, formaður bankaráðs „ARIÐ 1983 námu heildarinnlán í innlánsstofnunum að meðaltali um 26,8 %af vergri þjóðarframleiðslu. Ár- ið 1984 var þetta hlutfall komið upp í 31,3% og hefur ekki verið svo hátt síðan 1972. Þessar tölur staðfesta að árangur varð af vaxtabreytingum á síðasta ári og þær staðfesta ennfrem- ur hið nána samband sem er á milli vaxta og sparnaðar í landinu," sagði Davíð Sch. Thorsteinsson, formaður bankaráðs Iðnaðarbankans, í ræðu sinni á aðalfundinum, en þar gerði hann m.a. að umræðuefni þær miklu hækkanir sem urðu á raunvöxtum á sl. ári. Davíð lagði á það þunga áherslu að vaxtahækkunin væri ekki afleiðing af því að bankar og spari- sjóðir befðu í fyrsta skipti fengið svig- rúm til að ákvarða eigin vexti. Taldi hann óhjákvæmilegt að raunvextir hækkuðu vegna þróunar efnahags- og peningamála, og það breytti engu hverjir önnuðust framkvæmdina, stjórnvöld ein eða viðskiptabankarnir einnig. Davíð vakti athygli á því að þrátt fyrir hækkun vaxta hefðu raun- vextir á innlánum i innlánsstofn- unum verið neikvæðir á síðasta ári um 0,8%. Kvað hann það þó mikla breytingu til batnaðar miðað við árið 1983, en þá voru raunvextir neikvæðir um 14,4%. Davðið velti næst upp á yfirborð- ið þeirri spurningu hvað öfl það væru sem í raun réðu ferðinni í vaxtamálum hér á landi. Hann sagði: „Upphaf núverandi þróunar má rekja til nóvembermánaðar 1983, þegar vextir af spariskírteinum ríkissjóðs voru hækkaðir úr 3,5% í 4,16%, á sama tíma og verðbólgan minnkaði ört. í upphafi árs 1984 voru vextir af verðtryggðum 6 mánaða reikningum I bönkum 1,5%. Ríkissjóður sá samt ástæðu til þess, í febrúarmánuði sama ár, að hækka enn vexti af spariskír- teinum og urðu þeir þá 5,08%. í maímánuði hækkuðu vextir á verð- IryfKðum bankareikningum úr 1,5% í 2,5% og í ágústmánuði voru vextir þessara innlána yfirleitt hækkaðir í 4,5%. Viku seinna voru hins vegar vextir spariskírteina enn hækkaðir, og nú úr 5,08% í 8%. Þessi þróun hefur síðan haldið enn áfram og má í því sambandi minna á, að vextir af verðtryggðum bundnum reikningum í bönkum eru Valssonar bankastjóra er hann gerði grein fyrir ársreikningi bank- ans sl. ár. Á árinu 1984 var 3,1 m.kr. tap á rekstri Iðnaðarbankans, en veð- deild bankans skilaði hins vegar 8,9 m.kr hagnaði. 1 árslok var lausa- fjárstaðan neikvæð um tæplega 100 m.kr. Valur Valsson sagði að af- koma bankans hefði valdið von- brigðum, en skýringin lægi í litlum mun á innláns- og útlánsvöxtum á síðasta ári. Valur sagði að á árinu 1983 hefði vaxtamunur farið vax- andi og verið 11,42% síðustu fjóra Bragi Hannesson bankastjóri: Iðnlánasjóður tapaði 74 m.kr. IDNLÁNASJÓDUR tapaði á síðasta ári um 74 m.kr., fyrst og fremst vegna vegna gengisbreytinga, en tæpur helmingur af innlánsfé sjóðsins er í erlendum gjaldmiðli, en útlán sjóðsins eru í íslenskum krónum og bundin lánskjaravísi- tölu. Þetta kom fram í ræðu Braga Hannessonar bankastjóra, en hann gerði grein fyrir starfsemi Iðnlánasjóðs á árinu 1984 á aðalfundinum. Bragi sagði að gcngisfcllingin ein í nóvember sl. hefði haft í för með sér 62 m.kr. tap fyrir sjóðinn. Það kom fram í máli Braga, að á sl. ári hefðu 276 lán verið afgreidd frá sjóðnum, að fjárhæð 353 m.kr., sem er 61% aukning frá árinu á undan. Um 53% lánsfjárupphæðar- innar rann til vélakaupa, en 46% voru lán til byggingar iðnaðarhúsa. {júní sl. voru útlánsvextir Iðnlána- sjóðs hækkaðir um 1%, þannig að vélalán voru með 5,5% vexti, en byggingalán báru 6% vexti. Bragi sagði að til að reka sjóðinn halla- laust á síðasta ári hefðu útláns- vextir þurft að vera 5 prósentustig- um hærri. Gert er ráð fyrir því að sjóðurini. hafi 570 m.kr. til ráðstöfunar á þessu ári, en Bragi sagði, að miðað við fyrstu þrjá mánuði ársins mætti gera ráð fyrir að alls verði sótt um 1200 m.kr. lán úr sjóðnum á árinu. nú yfirleitt 3,5%, en ríkissjóður býður 7% vexti og verðtryggingu. Það er því ríkissjóður sem leiddi vaxtahækkanirnar allt síðastliðið ár. Að kenna skammvinnu frelsi bankanna um vaxtahækkanir síð- asta árs er að hengja bakara fyrir smið.“ Og síðar sagði Davíð: „Afleið- ingar þessarar útþenslustefnu ríkisins hljóta að vera öllum hugs- andi mönnum mikið áhyggjuefni. Ríkissjóður er markvisst að soga til sín fjármagn frá atvinnulífinu og einstaklingum og gerir bönkum erfiðara um vik að greiða fyrir viðskiptamönnum sínum. Og þetta hlýtur að vekja spurningu um það, hvort það sé hlutverk ríkissjóðs að keppa við atvinnulffið um fjár- magn. Mitt svar er skýrt — af- dráttariaust NEI.“ Ragnar Önundarson bankastjóri gerði grein fyrir ástæðum hækkun- ar hlutabréfanna: Hann sagði, að úthlutun jöfnunarhlutabréfa Iðn- aðarbankans hefði um nokkurra ára bil fylgt svonefndri vísitölu jöfnunarhlutabréfa, sem ríkis- skattstjóri reiknar út, en hún hækkaði um 16,37% milli áranna 1983 og 1984. En Ragnar minnti á að iðnaðarráðherra hefði látið gera mat á þeim bréfum sem hann seldi fyrir hönd ríkissjóðs í fyrra og það mat hefði verið staðfest með raun- verulegum viðskiptum. Taldi hann það sterka vísbendingu um raun- verulegt verðmæti brófanna. Ragnar sagði, að Þegar útgáfa jöfnunarhlutabréfa kom til athug- unar hjá bankaráðinu, hefði það sjónarmið komið fram, að æskilegt væri að þeir hluthafar, sem keyptu hlut ríkissjóðs i bankanum á sfð- asta ári, fengju jöfnunarhlutabréf fyrir því yfirverði sem þeir greiddu við kaupin. Endanlegt yfirverð reyndist vera .80% og tillaga bankaráðs byggðist þvf á þeirri tölu að viðbættri hækkun á vísitölu jöfnunarhlutabréfa. Ragnar lauk máli sínu með þess- um orðum: „Með tillögu sinni um svo umtalsverða útgáfu jöfnun- arhlutabréfa er bankaráðið í raun að gefa út stefnuyfirlýsingu um, að hlutafjáreign í bankanum skuli í framtíðinni vera arðbær fjárfest- ing og samkeppnisfær við aðra kosti á íslenska fjármagnsmark- aðnum.“ Davíð Sch. Thorsteinsson, formaður bankaráðs, í ræðupúlti á aðalfundi Iðnaðarbankans, sem haldinn var í gær á Hótel Sögu. Bankastjórar bankans hlýða á Davíð, þeir Valur Valsson, við hlið Davíðs, Bragi Hannesson og Ragnar Önundarson. Drög að nýju merki Iðnaðarbankans er framan á ræðupúltinu. Morgunblaftið/Ól.K.M. Valur Valsson bankastjóri: Innlánsaukningin aldrei verið meiri „HEILDARINNLÁN lðnaðarbankans jukust um 55,5% á sfðasta ári, úr 1.156 m.kr. f 1.798 m.kr., en innlánsaukning viðskiptabankanna var á árinu 35,3%að meðaltali. Jafnframt jókst hlutdeild Iðnaðarbankans af heildarinnlánum viðskiptabankanna úr 7,3 %í 8,4 %á síðasta ári. Að raungildi nam innlánsaukn- ing Iðnaðarbankans 1984 30,8%, og er þetta í sjöunda árið í röð sem innlán bankans aukast að raungildi, þótt aldrei hafi aukningin orðið jafn mikil og nú. Útlán bankans jukust um 540 m.kr„ eða 50,9% Þetta kom fram f máli Vals mánuði þess árs. Hann hefði hins vegar verið lækkaður í 4,53% f upp- hafi árs 1984 og þvf minnkað á einu bretti um 60%. Valur sagði: „Þegar á heildina er litið reyndist vaxtamunurinn hjá okkur vera 10,11% allt árið 1983, en aðeins 5,62% árið 1984. Þetta er skýringin á því hvers vegna afkom- an hefur versnað á síðasta ári. Sem dæmi má nefna að hefði vaxtamun- urinn orðið sá sami á árinu 1984 og hann var 1983, hefðu vaxtatekjur umfram gjöld orðið 75 m.kr. hærri en raun varð á og afkoman að sjálfsögðu þar með betri." NISSANSUNNY NI5SAN SUNNY Sedan 1.5GL Veitum ffrábær kjör á öllum Sunny-bílum. Annaö eins heffur varla þekkst hingaö til. Tökum fflesta notaöa bíla upp í A aöeins kr. 399.000 Meö Nissan Sunny færöu bókstaflega alla þá aukahluti sem þú veröur aö panta sérstaklega í aöra bíla t.d.: Upphituö framsæti, útvarp, tölvuklukku, snúningshraöa- mæli, öryggisbelti fyrir fimm, þriggja hraöa miöstöö, rafhitaða afturrúðu, farangurs- geymsla og bensínlok eru opnanleg úr ökumannssæti, þurrkur á framljósum, tveir útispeglar stillanlegir innan frá, Ijós í farangursrými o.m.fl. Auövitað er Sunny fram- hjóladrifinn. Vélin er 83 hestöfl, 1500 cc. Muniö bilasýningar okkar um helgar kl. 14—17. INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn /Rauöagerði, simi 33560
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.