Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIP, LAUGARDAGUR 18. MAl 1885 9 Sædýrasafniö er opiö alla daga frá kl. 10—19. Fáar sýningavikur. GróArarstöð við Hagkaup, Skeifunni, sími 82895. Það er alltaf jafn mikið úrval af blómum hjá okkur hvort sem þig vantar úti eða inni. Opiö til kl. 9 öll kvöld. Græna TS'damaikaduzinn citf11 ^■idttisqötu 12-18 VW Bus Diesel 1982 Ðrúnn, ekinn 81 þús. km. Útvarp, segul- band, feröabíll m/svefnplássi f. 2—4. Olíu- kynding, sœti f. 8. Westfala-toppur. Verö Fiat Uno 45 1984 Blár, ekinn 10 þús. Útvarp, segulband, snjó- dekk, sumardekk. Verö 240 þús. Toyota Tercel 5D 1983 Ekinn 17 þús. km. Verö 320 þús. Lada 1600 1982 Ekinn 36 þús. km. Verö 165 þús. BMW 728i 1980 Ekinn 80 þús. km„ m/öllu. Verö 750 þús Daihatsu Runabout 1980 Ekinn 50 þús. km. Verö 160 þús. Datsun King Cab 1982 Rauöur, ekinn 27 þús. km. Bensin, vökva- stýri, útvarp, segulband. Subaru Station 4x4 1983 Silfurgrár. ekinn 31 þús. km. Útvarp. Verö 390 þús. Lada Sport 1979 Grænn, ekinn 78 þús. km. Nýtt lakk, gott útlit. Verö 150 þús. VW Golf 1982 V-rauöur, ekinn 44 þús km. Útvarp, segul- band. Verö 280 þús. Toyota Tercel 4x4 1983 Ekinn 19 þús. km. Verð 440 þús. Suzuki Fox 1982 Ekinn 33 þús. km. Verö 280 þús. Mazda 626 Coupé 1983 Ekinn 45 þús. km. Verö 390 þús. BMW 320 1982 Ekinn 38 þús. km. Verö 430 þús. Citroén BX TRS 1984 Svartur, ekinn 15 þús. km. 5 gíra. Vökva- stýri, útvarp, segulband, litaö gler og fl. Verö 540 þus________________________ Metsölubladá hverjum degi! Svavar í sjónvarpinu Þátturínn með Svavari Gestssyni, formanni AJ- þýðutNÍndalagsins, í sjón- varpinu á þriðjudags- kvöldið var óvenjulega fróðiegur af slíkum þáttum að vera. Má ekki síst rekja það til þess, að spyrlarnir þeir l’áll Magnússon og Elias Snæland Jónsson voru vel undir búnir og létu Svavar ekki komast upp með að drepa umræðu- efninu á dreif. f samtali þeirra félaga kom glöggt í Ijós, að Svavar á f vök að verjast bæði inn á við í fktkki sínum og út á við vegna þess hve lítilla vin- sælda flokkurinn nýtur. Svavar Gestsson var þó afls ekki á þeirri skoðun að orsakanna fyrir vandræð- um Alþýðubandalagsins væri að leita hjá forystu flokksins eða sér, heldur ættu menn að Ifta til verka- lýðshreyfingarinnar til að llnna sökudólginn. Hvað eftir annað endurtók Svav- ar, að verkalýðshreyfingin væri í vanda, innan hennar ríkti spenna og vegna þess að Alþýðubandalagið væri verkajýðsflokkur þá væri það í vanda. Af þcssari skilgreiningu má draga þá ályktun að það fari eftir því hvað gerist f verkalýðs- hreyfingunni, hvernig Al- þýðuhandalaginu ferst í sjálfú sér er einkennilegt að heyra flokksformann tala með þessum hætti, að víkjast alfarið undan ábyrgð á stöðu eigin flokks og kasta henni yfir á berð- ar verkalýðsforingja, en eins og kunnugt er hefur hefðbundin forystusveit Al- þýðubandalagsins í verka- lýðsmálum verið að fjar- lægjast flokkinn og harð- línumenn með boðskap Kylkingarinnar um komm- úniska heimsbyltingu á vörunum verið að fá meiri ftök. Það er táknrænt fyrir þá ímynd sem Svavar Gests- son vill nú að komist á Al- þýðubandalagið, eftir að ráðberrasósíalismi og þrá eftir ráðherrastóhim hefur ráðið ferðinni um langt árabil (og ræður enn), að flokksform&öurinn sat á teíköáffigí? Alþýðubandalagið í kreppu í sjónvarpsþætti í vikunni kynntust áhorfendur kreppunni í Alþýðubanda- laginu þegar Svavar ftokksformaöur reyndi með slagoröum, áhersluþunga og þó nokkrum handasveiflum að sýna fram á aö kreppan væri ekki í Alþýöu- bandalaginu heldur innan verkalýös- hreyfingarinnar. Ekki fór á milli mála, aö Svavar Gestsson lítur á verkalýöshreyf- inguna sem handbendi sitt og Alþýöu- bandalagsins, þar eigi menn aö hlýöa hinni óskeikulu flokksforystu. Sann- gjarnt væri aö sjónvarpið gæfi Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýöusambands- ins, kost á aö svara þessum digur- barkalegu yfirlýsingum. Alþýðubandalagsins að hvetja menn til að beita nú skyrtunni í viðtalinu við sjónvarpsmennina sem tekið var í Alþingishúsinu. Innan Alþýðubandalagsins eru sterk pólitísk öfl sem telja það hið besta sann- indamerki um róttækni hvernig fötum menn klæð- asL Vonandi hefur Svavari tekist að afla sér hylli þess- ara hópa með þvf að vera á skyrtunni Um hitt skal ekkert fullyrt, hvort honum hafi með orðum sínum tek- ist að ná þeim, sem með opinberum yfirlýsingum hafa að undapförnu sagt skilið við Alþýðubandalag- ið, aftur inn í fiokkinn. Órökstudd loforð Þrátt fýrir allt sem á undan er gengið og þá dýrkeyptu reynshi sem menn hafa af því að hlýða áróðri um að stífni í kjara- samningum, hótanir um vinnustöðvun og verkföll auki kaupmátt launa, hélt Svavar Gestsson sig enn á þeim fornu slóðum foringja samtakamættinum. Kaupið hækkar með samstöðu vinstri aflanna! sagði fiokksformaðurinn. Annað eins lýðskrum er fáheyrt, meira að scgja hjá íslensk- um vinstrisinnum. Kaup- máttur hækkar ekki nema þjóðarframleiðsla aukist, nema sköpun nýrra verð- mæta leiði til bættra Iffs- kjara. Staðreynd er, sem best sannaðist með setu Hjörleifs Guttormssonar f embætti iðnaðarráðherra, að ekkert er fjær vinstri öflunum en auka arðbæra verðmætasköpun. Kenning Svavars Gestssonar um að þjóðarframleiðsla aukist við það eitt að samið sé um hærra kaup, fær auðvitað eklri staðist Svavar lét eins og nú væri hann alveg að ná tökum á verkalýðs- hreyfingunni að nýju. Ef það felst í pólitískri forsjá Alþýðubandalagsins að verkalýðshreyfingin tekur upp þá stefnu sem Svavar Gestsson boðaði, þá er voð- inn vís bæði fýrir launþega og vinnuveitendur. Formaður í vanda Eyrirspyrjendur höfðu greinilega afiað sér upplýs- inga um ýmislegt sem er að gerast innan dyra í Alþýðu- bandalaginu. Þeir nafn- greindu ekki heimildar- menn sína en þegar allt um þraut og Svavar var kom- inn í mestan vanda, tók hann sig til og kallaði þá ,jólasveina“ sem hefðu upplýst spyrlana. Hér skal ekki leitt neinum getum að þvf, hvaða menn í Alþýðu- bandalaginu Svavar tehir f ,Jólasveinaf1okknum“ en athygli vakti, að hann takii Þröst Ólafsson, fram- kvæmdastjóra Dagsbtún- ar, sérstakan vin sinn en hafði ekki uppi nein slfk vinarhót þegar nafn Ólafs R. Grímssonar bar á góma en mjög var vitnað í þau orð hans, formanns Þing- mannasamtaka um heims- skipulag, að Alþýðubanda- lagið væri í kreppu. Einn helsti vandi Svav- ars Gestssonar er að sjá til þess, að Ólafur R. Gríms- son komist f það sæti á framboðslista við næstu kosningar sem tryggi hon- um setu á AlþingL Kostirn- ir f þvf máli þrengjast eftir þvf sem fylgi Alþýðubanda- lagsins minnkar. Nú liggur líklega eins Ijóst fyrir og hægt er á þessari stundu, að Keyknesingar vilja ekki Ólaf R. Grfmsson á lista hjá sér og varla kemst hann nema í 4. sæti í Keykjavík, ef formaðurinn, kona og verkalýðsforingi eiga að hafa forgang eins og hefðbundið er f Alþýðu- bandalaginu. Landsfundur er f AK þýðubandalaginu næsta haust og þá verður meðal annars gengið til for- mannskjörs. Samkvæmt flokksreghim getur Svavar setið þrjú ár í viðbóL Auð- vitað kynni að draga til þess í flokknum, að Ólafiir R. Grímsson sæi sér þann kost vænstan til að tryggja sér öruggt sæti á Reykja- víkurlistanum að slá tvær flugur í einu höggi, ná formannskjöri og fyrsta sætinu í Reykjavík um leið. Vorbækur 1985 handa IjóÖaunnendum einskonar höfuðlausn og Hlýja skugganna Gyröir Elíasson Sigfús Bjartmarsson Krefjandi, hjartahlýjar, ögrandi, afhjúpandi, heillandi Ijóöabækur! Mál og menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.