Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1985 Keppnin um Fegurðardrottningu íslands 1985 verður haldin að viku liðinni, annars vegar hinn 24., er „Vinsælasta stúlkan 1985“ og „Ljósmyndafyrirsæta ársins" verða krýndar, og hins vegar 27. maí þegar Fegurðardrottning íslands 1985 verður valin og krýnd. Keppnin fer fram í veitingahúsinu Broadway og geta gestir greitt atkvæði þeim stúlkum sem þeir helst vildu sjá sem Fegurðardrottningu Islands og Fegurðardrottningu Reykjavíkur 1985. Mun dómnefndin hafa þau atkvæði til hliðsjónar við valið. Hér á síðunni eru kynntar sex stúlknanna sem taka þátt í keppninni, en hinir sjö þátttakendurnir verða kynntir á morgun, sunnudag. Halldóra M.M. Steingrímsdóttir Reykvíkingur sem rekur ættir sínar vestur og norður, er Halldóra M. M. Steingrímsdóttir, fædd 30.05.1966. Eftir að hafa lokið verslun- arprófi frá Verslunarskóla íslands flutti hún sig i Ármúlaskólann og hugðist ljúka þaðan stúdentsprófi — en hætti náminu í verkfalli kennara og hefur síðan unnið í veitingahúsinu Sælkeranum. „Ég ætla nú samt að halda náminu áfram næsta vetur og Ijúka prófi með tíð og tíma," segir Halldóra. Á meðal áhugamálanna eru skíðaíþróttin og sund. „Svo auðvitað líkamsræktin, sem er efst á baugi þessa dagana. Það kemst eiginlega ekkert annað að í bili,“ segir Halldóra, sem enfremur á það til að teikna, eins og hún hefur ættir til. „Ég teikna aðallega hugmyndir að fatnaði, þó ekki svo mikið fyrir sjálfa mig. Hef þó látið bæði sauma á mig og prjóna eftir hugmyndum sem þannig eru tilkomnar." Halldóra kvað talsvert stress vera komið í sig fyrir keppnina, „eða réttara sagt fyrir því að koma fram á sundbol og eins að svara spurningunum. Hins vegar hlakka ég svolítið t:l að koma fram á kjólnum," segir hún. „En keppnin leggst mjög vel í mig, andrúmsloft- ið innan hópsins er gott og einhvernveginn ekki eins og maður átti kannski von á. Það er ekki eins og að við séum að keppa, heldur styðjum við hver aðra og það er örugglega ein ástæðan fyrir því hvað þessi tími hefur verið skemmtilegur." Ragnheiður Borgþórsdóttir Ragnheiður Borgþórsdóttir, önnur tveggja fulltrúa Vestmannaeyja í keppninni, er fædd 28.01.1967, íþróttamanneskja með áhuga á jass- ballett, aerobic, sundi og allri almennri líkamsrækt, sem og andans íþrótt, ræðumennsku. „Við Vestmanneyingar tókum í fyrsta sinn þátt í Morfis, rökræðu- og mælskukeppni framhaldsskólanna á sl. vetri og það var virkilega gaman," segir Ragnheiður. „Töluðum fyrst með tillögu um að líkamsrefsingar verði teknar upp á nýju í skólum og þá gegn nemendum. Unnum það, en töpuðum síðan þegar við áttum að tala á móti því að hreindýrum á Islandi yrði útrýmt!" segir hún hlæjandi. Ragnheiður er um þessar mundir að ljúka prófum í Framhalds- skólanum í Vestmannaeyjum, en hefur á milli þeirra skroppið til Reykjavíkur vegna keppninnar. Og hvernig leggst keppnin um feg- urðardrottningu íslands í hana? „Ég hugsa nú lítið út í keppnina sjálfa, hef lítinn tíma til þess. En miðað við hvað búið er að vera gaman á undirbúningstímanum, þá verður hún örugglega mjög skemmtileg,“ segir Ragnheiður. „Það er líka gaman að því hvernig andrúmsloftið í Eyjum hefur breyst gagnvart keppninni. Fyrst voru menn heldur neikvæðir fyrir keppn- inni um Ungfrú Vestmannaeyjar, en það breyttist mikið þegar keppnin fór fram. Núna má segja að viðhorfið sé kannski líkara því sem við þekkjum með fótboltann, þar sem Vestmanneyingar styðja sína menn í bak og fyrir!“ Rósa María Waagfjörð Þó að Vestmannaeyjar eigi tvo fulltrúa í keppninni, má segja að sá þriðji sé Rósa María Waagfjörð, fædd 29.11.1966 — að sjálfsögðu í Eyjum. Eftir gos fluttist hún síðan á höfuðborgarsvæðið og býr nú í Garðabæ, þar sem hún stundar nám í Fjölbrautaskólanum. Þar fyrir utan fer allur tíminn f áhugamál númer eitt, tvö og þrjú — hesta- mennskuna. „Ég er svona hálfgerð sveitakerling!" segir Rósa María og vísar þar með einnig til hins áhugamálsins, en þá sjaldan færi gefst sest hún niður með prjóna. „En hestaáhuginn byrjaði þegar ég var tólf ára og fékk fyrsta hestinn — „draumahest" sem ég á ennþá.“ Fyrir utan að sinna sínum eigin, sýnir hún hesta hjá Gusti í Kópavogi og hefur tekið að sér að temja og þjálfa hesta. „Ég er í hestamennsk- unni meira og minna alla daga, þannig að það liggur við að ég hafi engan tíma fyrir keppnina, frekar en annað,“ segir Rósa. En hvernig er líðanin fyrir keppnina? „Ég er nú svolítið feimin og er smám saman að sannfærast um það að ég verð farin á taugum þegar að henni kemur! Annars hef ég varla tíma til að hugsa um þá hlið málsins, þannig að það verður bara að koma í ljós.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.