Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 18.05.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLADIÐ, bAUGARDASUB 18. MAÍ 198fc M Höldum vöku okkar, kristnir menn Gerður Ólafsdóttir, Bugðutanga 5, Mosfellssveit skrifar: Haraldur Blöndal lögfr. ritaði „kjallaragrein" í Dagblaðið föstu- daginn 10. maí sl. undir heitinu: „Enn stefnir í hneyksli með kvikmyndahátíð". Grein þessi snerti óþyrmilega viðkvæma strengi innra með mér. Hafi Har- aldur þökk fyrir greinina, en þar gerir haun að umtalsefni væntan- lega kvikmyndahátið hér í Reykjavík. Nefnir hann sérstak- lega eina ákveðna kvikmynd, sem ráðgert hefur verið að sýna þar. Er hér um að ræða guðlastskvik- mynd eftir franska leikstjórann J.L. Godard. í myndnni er m.a. fjallað á svívirðilegan hátt um Maríu Guðsmóður, sem vakið hef- ur viðurstyggð hjá kristnu fólki, þar sem myndin hefur verið sýnd. Þessum sama leikstjóra mun auk þess vera boðið að vera gestur há- tíðarinnar! Nú vill svo til, að við íslend- ingar lifum í kristnu landi, þar sem um 95% þjóðarinnar játa kristna trú (þótt kirkjusókn sýni að váu annað, en það er önnur saga). Yfirmaður kirkjunnar er biskup íslands og þjónandi prest- ar um land allt eru á annað hundrað talsins. Nokkrar aðrar kirkjudeildir eru starfandi hér á landi, auk minni kristinna samfé- laga. Eftir lestur greinarinnar beið ég átekta í nokkra daga í von um einhver viðbrögð kristinna manna vegna tíðindanna, en hef ekki orð- ið vör við neitt á prenti. Og nú er svo komið, að ég sé mig knúna til að skrifa nokkrar línur um það, sem brennur á mér vegna þessa atburðar. Ég get ekki þagað. Fyrir tveimur árum var ég stödd á kristilegu móti í Noregi. Þá gerðist það, að á sama tíma átti að frumsýna í Osló guð- lastskvikmynd eina, mikinn óþverra. Þá tók sig til hópur krist- inna manna og mótmælti sýning- unni. Stóðu þeir við kvikmynda- húsið fyrir sýningar með spjöld, þar sem á voru rituð hvatningar- orð til fólks að sjá ekki myndina. Aðrir stóðu bænavakt, þar sem málið var tekið fyrir. Árangur þessa varð sá, að margir hættu við að sjá myndina, sýningar urðu ör- fáar og halli mikill af fyrirtækinu. Ég trúi Biblfunni sem Guðs heilaga orði og á Jesú Krist sem persónulegan frelsara minn. Af þeim sökum má ég ekki til þess hugsa, að hinn þríeini Guð og aðr- ar persónur hinnar helgu bókar seú ataðar auri og þjóð minni boð- ið upp á að horfa á siíkt, hvort sem er á svokallaðri „hátíð" eða á öðr- um vettvangi. SÍÍkt athæfi er að- eins frá Satan komið og hann vinnur hratt f dag, því að hann veit, að hann hefur lftinn tíma. Gegn verkum hans eigum við kristnir menn að berjast. Minn- umst þess, að við höfum vopnin! Þau eru nefnd í 6. kafla Efesus- bréfs: „Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins ... takið skjöld trúar- innar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda.“ — Við eigum bænina, Jesú-nafnið, blóð Lambsins og sigur Hans yfir hinu illa. Kommúnistar á Kúbu sögðu eitt sinn: „Ef hinir kristnu hefðu lifað í sókn, væru þeir ekki svona ofsóttir í dag. En vegna þess hve óeiningin er mikil á meðal þeirra og þeir standa bara í því að verja sig, þá höfum við þetta vald í dag.“ Já, hinir óvinveittu koma auga á veikleika okkar og notfæra sér þá. En ábyrgð okkar hinna kristnu er mikil. Og nú vil ég hvetja okkur öll, sem elskum Jesú og viljum ekki vita Hann hæddan og smáðan og boðorð Hans fótum troðin: Snúum vörn í sókn. Höldum vöku okkar og stöndum saman f þvi að verja Jesú á opin- berum vettvangi. Tökum vopn Guðs og notum þau f baráttunni gegn þeim öflum, sem vilja ráðast gegn því helgasta og dýrmætasta sem okkur hefur verið gefið: Trúni á Guð föður skapara okkar, Jesú Krist frelsara okkar og Heilagan anda, sem gefinn er öllum þeim, sem Guði hlýða. (Post. 5:32.) Verum minnug þess að „Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og upp- skera.“ (Gal. 6:7.) Þess vegna skul- um við biðja fyrir þeim mönnum sem slíka óhæfu fremja sem fram- leiðslu slfkra mynda. Einnig hin- um sem hampa þeim og stuðla að þvf að þær komi fyrir augu sem flestra. Augu þeirra eru haldin og þeir vita ekki hvað þeir gjöra. Þeir þarfnast sannarlega fyrirbænar. — Og Guð er máttugur, það höfum við fengið að reyna, sem höfum helgað honum lif okkar. Páll segir í 2. Korintubréfi (13:3—4): „Krist- ur er ekki veikur gagnvart yður, heldur máttugur á meðal yðar. Hann var krossfestur í veikleika en Hann lifír fyrir Guðs kraft.“ Verum staðföst í bæninni og biðjum með sigur Jesú í huga, vit- andi nákvæmlega, hvað við biðjum um. „Guð séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist.“ Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til Tóstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nðfn, nafnnúmer og heimilislong verða að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar óski nafn- leyndar. Sérstaklega þykír ástæða til að beina því til iesenda blaðsins itan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir iiggja Siér í dálkunum. Aðstaða fyrir verklega kennslu setur takmörk iokkur orð frá Leiðsögn sf. ;æri Velvakandi. yrsta maí sl. spyr „einn forvit- “ (í símadálki) hvort Leiðsögn geti ekki boðið þá þjónustu að beina fólki um húsarafmagn, sningar o.þ.h. til að spara pen- i, við byggingar úr því að hægt ið hafa námskeið s bifvélavið- )um sem sé 'öggild iðngrein. vi er til að svara að námskeið Leiðsagnar sf. hafa m.a. verið fyrir almenning í viðhaldi bifreiða til að gera fólk færara um að hugsa vel um eigin bíla, en ekki til að mennta það sem bifvélavirkja. Á sama hátt mætti eflaust hafa námskeið í öðru, en aðstaða fyrir verklega kennslu setur okkur þó nokkur takmörk. Með þökk fyrir ábendinguna. Við munum hugleiða málið. Kynmngarfundur um leitar- og eftirlitssveit Vélflugfélags íslands. Vélflugfélag íslands og flugmálastjórn gangast fyrir kynningarfundi um leitar- og eftirlitssveit einkaflugmanna aö Borgartúni 6 í dag laugar- daginn 18. maí kl. 14.00. Gestur fundarins er Byron King jr. yfirmaöur Civil Air Patrol í Bandaríkjunum. Fundurinn er öllum opinn og fer fram á ensku. Vélflugfélag Flugmálastjórn íslands íslands. Blindrafélagiö Dregiö var í happdrætti Blindrafélagsins 7. maí. Vinningsnúmer eru: 1. 13818 2.17199 3.39938 Vinninga má vitja á skrifstofu félagsins. Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra, Hamrahlíð 17. GOÐ • t HUSGOGN Á GÓÐU VERÐI MEÐ GÓÐUM KJÖRUM Já, það borgar sig aö líta inn í stærstu húsgagnaverslun landsins um helgina I dag, laugardag, til kl. 4 (16.00). Sunnudag er sýning frá kl. 2—5 (14.00—17.00). HUS6A6NAH0LLIN BÍLDSHÖFDA 20-110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410 Metsölublad á hverjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.