Morgunblaðið - 10.03.1992, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992
Barn slasast
í árekstri
Þriggja ára telpa slasaðist al-
varlega í hörðum árekstri á mót-
um Kringlumýrárbrautar og
Miklubrautar um kl. 13 á sunnu-
dag. Telpan var farþegi í Honda-
bifreið, sem var ekið norður
Kringlumýrarbraut og beygt vest-
ur eftir Miklubraut, í veg fyrir
Mitsubishi-bifreið sem ók í suður
eftir Kringlumýrarbraut.
Fimm manns voru í Hondunni og
var einungis farþegi í framsæti í bíl-
belti, samkvæmt upplýsingum lög-
reglu. Ung kona í aftursæti sat með
telpuna í fanginu, en við áreksturinn
kastaðist barnið út um glugga bif-
reiðarinnar og skall í götuna. Aðrir
farþegar í bílnum hlutu minni háttar
meiðsli. í Mitsubishi-bifreiðinni var
einn farþegi í framsæti, en hvorki
hann né ökumaðurinn voru í bílbelt-
um. Farþeginn slasaðist, en ekki al-
varlega. Báðir bílarnir skemmdust
mjög mikið, auk þess sem þriðji bíll-
inn skemmdist lítillega, þegar brak
úr hinum kastaðist i hann.
....
Húsbréfaviðskipti:
Eftirspum um-
fram framboð
FRAMBOÐ á húsbréfum hjá Verð-
bréfaviðskiptum Samvinnubank-
ans er nú mun minna en eftir-
spurn, að sögn Þorsteins Ólafs,
forstöðumanns fyrirtækisins, sem
lækkað hefur ávöxtunarkröfu
húsbréfa úr 7,88% í 7,85%. „Það
er töluvert ójafnvægi í þessum
viðskiptum núna. Ég hef ekki get-
að selt öllum þeim sem spurst
hafa fyrir um húsbréf," sagði
Þorsteinn i samtali við Morgun-
blaðið.
Þorsteinn sagði að það ætti án efa
þátt í því að menn héldu að sér hönd-
um að þeir væntu þess að ríkisstjóm-
in hefði forgöngu um vaxtalækkun
í tengslum við komandi kjarasamn-
inga. Þorsteinn kvaðst telja að búast
mætti við því að ávöxtunarkrafan
leitaði enn frekar niður á við innan
skamms.
♦ ♦■■»■■■
Fangelsi
fyrir 3 millj-
óna tollsvik
SAKADÓMUR
Reykjavíkur
dæmdi í gær 57 ára mann í eins
árs fangelsi, þar af 9 mán. skil-
orðsbundið, og til greiðslu 100
þús. kr. sektar, fyrir að hafa 1989
og 1990 falsað 25 vörureikninga
og afhent tollyfirvöldum.
Svikin tengdust innflutningi
mannsins á bflum, snjósleðum og
þvflíku. Maðurinn játaði brot sín fyr-
ir lögreglu og sakadómi og hafði
staðið ríkissjóði skil á um það bil
tveimur milljónum af þeim þremur
sem hann hafði komist undan
greiðslu á vegna svikanna.
Amgrímur ísberg sakadómari
kvað upp dóm í máli mannsins.
Bifreiðin Ienti út af veginum utarlega í Reyðjarfjarðarkauptúni
og hafnaði á hvolfi í sjónum. Farartækið er gjörónýtt eins og sjá
má hér til vinstri.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Helga
Erla Rut
Sigurlaug
Þijár stúlkur bjargast úr bílslysi:
Rankaði við mér þegar Jón Omar
var að draga mig út úr bílnum
- sagði Helga Harðardóttir, ein stúlknanna sem bjargaðist
„ÉG var að hægja á bilnum
þegar við komum inn í bæinn,
en þá fauk hann til. Ég veit
ekki hvort ég reyndi að bremsa,
en bíllinn lenti út af. Svo hlýt
ég að hafa rekið höfuðið í, því
ég rankaði við mér þegar Jón
Ómar var að draga mig út úr
bílnum,“ sagði Helga Harðar-
dóttir, 18 ára Eskfirðingur.
Bifreið, sem hún ók, lenti út
af veginum utarlega í Reyðar-
fjarðarkauptúni á sunnudag og
hafnaði á hvolfi í sjónum. Tvær
vinkonur Helgu komust af
sjálfsdáðum upp á veg, en Jón
Omar Halldórsson óð út í sjóinn
og bjargaði Helgu.
Helga sagði að hún hefði orðið
mjög óttaslegin þegar Jón Ómar
hafði náð henni út úr bflnum og
spurði hana hvort fleiri hefðu ver-
ið í bílnum. Hún hélt þá að vinkon-
ur hennar, Sigurlaug Sveinsdóttir
og Erla Rut Oladóttir, væru enn
í bílnum, en þær höfðu þá komist
sjálfar út. „Erla Rut var í fram-
sætinu og hún losaði öryggisbeltið
af mér,“ sagði Helga. „Þá var ég
meðvitundarlaus og hún náði mér
ekki út. Ég fékk sjó í lungun og
er nokkuð marin á öxl og víða
nokkuð rispuð eftir glerbrot úr
rúðunum. Sigurlaug sat í aftur-
sætinu. Hún meiddist mest, skarst
illa á handlegg og þurfti að loka
sárunum með nær 50 sporum.
Hún hefði sjálfsagt meiðst enn
meira ef hún væri ekki með mikið
og sítt hár, sem hlífði andlitinu á
henni, því hárið var þakið gler-
brotum. Erla er mikið marin eftir
bílbeltin. í rauninni er furðulegt
hvað við sluppum vel, því bíllinn
er gjörónýtur. Við hljótum að
hafa farið 2-3 veltur.“
Stúlkumar þtjár vom fluttar á
heilsugæslustöðina á Eskifirði, en
Helga var síðar flutt á sjúkrahús-
ið á Norðfirði. Hún fékk að fara
heim í gær, en þarf að liggja fyr-
ir næstu vikuna. Stöllur hennar
fengu að fara heim strax að lok-
inni skoðun. Helga kvaðst í gær
ekki vera búin að átta sig almenni-
lega á því hvað hefði gerst. „Þetta
er svona að renna upp fyrir mér
núna og ég á. eftir að hafa sam-
band við Jón Ómar og þakka hon-
um lífgjöfina," sagði Helga Harð-
ardóttir.
Gengur ef ótti nær
ekki tökum á manni
- segir Jón Omar Halldórsson
„ÉG gerði bara mitt besta og það hlýtur að vera hugsunin hjá öllum
við svona aðstæður. Þetta gengur upp ef maður lætur óttann ekki
ná tökum á sér,“ sagði Jón Ómar Halldórsson, sem bjargaði Helgu
Harðardóttur úr bílnum í Reyðarfirði á sunnudag.
Jón Ómar, sem er 29 ára, sagði eða hvort hún var brotin áður. Ég
að hann hefði setið með heimilis-
fólkinu við kaffidrykkju þegar hátt
járnhljóð heyrðist. „Við sáum út
um gluggann hvar bíllinn hentist
út í sjó. Hann þeyttist 20-30 metra
og endaði -á toppnum. Ég stökk
niður í fjöru og þá voru tvær stelpn-
anna komnar á þurrt. Þær sögðu
að vinkona þeirra væri föst í bíln-
um. Ég man ekki hvernig ég opn-
aði bílinn, hvort ég braut rúðuna
komst að Helgu, sem virtist vera
að missa meðvitund. Hún hafði
greinilega sopið sjó, en var fljót
að jafna sig þegar hún var komin
á land.“
Þegar Jón Ómar hafði náð Helgu
út úr bílnum leið stutt stund þar
til læknir og sjúkrabíll komu á vett-
vang. „Þetta fór miklu betur en á
horfðist," sagði hann. „Bíllinn er
algjörlega ónýtur og óþekkjanleg-
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Jón Ómar Halldórsson
ur. Ég hef nú alltaf haft mikinn
áhuga á bílum og hélt mig þekkja
tegundimar vel, en ég sá ekki bet-
ur en að þetta væri Subaru, sem
síðar reyndist vera Mazda."
Ferðaskrifstofuauglýsingar kærðar til siðanefndar SÍA:
Samvinnuferðir telja auglýsingar
Úrvals - Útsýnar brot á siðareglum
„Ottast ekki niðurstöðuna,“ segir markaðsstjóri Úrvals-Útsýnar
AUGLÝSINGASTOFAN Hvíta
húsið hefur kært Úrval-Útsýn og
Evrópubandalagið:
Tollfrjáls kvóti salt-
fisks að verða búinn
HRATT hefur gengið á tollfrjáls-
an saltfiskkvóta Islendinga hjá
Evrópubandalaginu á þessu ári
og svo gæti farið að greiða þyrfti
13% toll af einhverju magni fram
til 1. apríl þegar innflutnings-
kvóti með 6% tolli tekur gildi.
ísland hefur tollfijálsan 25 þús-
und tonna innflutningskvóta hjá
Evrópubandalaginu á hveiju ári
gegnum GATT-samninginn en 1.
apríl tekur gildi 55 þúsund tonna
innflutningskvóti með 6% tolli sem
EB setur einhliða. Sá tollur var 7,5%
í fyrra. Annars er 13% tollur á salt-
fisk hjá EB.
Að sögn Haralds Aspelund hjá
viðskiptaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins voru um 4.000 tonn eftir
af tollfijálsa kvótanum fyrir viku,
og útlit fyrir að hann endist ekki
nema fram í miðan mars. Því gæti
þurft að greiða fullan 13% toll af
saltfíski inn í EB um einhver tíma
eða þar til 6% tollurinn tekur gildi.
Harald sagði að venjulega hefði
það staðið á endum að tollfrjálsi
kvótinn hefði enst út mars. Aðal-
kaupendur saltfísks frá íslandi eru
Portúgalir, Spánverjar og Italir.
íslensku auglýsingastofuna fyrir
siðanefnd Sambands íslenskra
auglýsingastofa fyrir brot á siða-
reglum samtakanna með auglýs-
ingum sem birst hafa í dagblöðum
og útvarpi undanfarna daga. Að
sögn Gunnars Steins Pálssonar
framkvæmdastjóra Hvita hússins
var það auglýsing sem birtist í
Morgunblaðinu á sunnudag sem
réð því að auglýsingastofan ákvað
með hagsmuni viðskiptavinar síns
í huga að leiða auglýsingarnar
ekki hjá sér. Að sögn Tómasar
Tómassonar markaðsstjóra hjá
Úrvali-Útsýn stendur fyrirtækið
við allt sem birst hefur í auglýs-
ingum þess og telur þær ekki
ganga gegn siðareglunum, en
Tómas kvaðst aðspurður telja að
í auglýsingunum væri farið út á
ystu nöf með tilliti til siðaregln-
anna en ekki yfir strikið.
Að sögn Gunnars Steins Pálssonar
beinist kæra Hvíta hússins að
þrennu: í fyrsta lagi að því sem
hann kallar stuld eða stælingu Úr-
vals-Útsýnar á útliti auglýsingar
Samvinnuferða-Landsýnar, sem
birtist í Morgunblaðinu á föstudag.
Útgáfa Samvinnuferða-Landsýnar
bar heitið Fundarlaun en útgáfa
Úrvals-Útsýnar hét Verðlaun. í öðru
lagi er um að ræða útvarpsauglýs-
ingar sem birtust frá því á föstudag
og um síðustu helgi. í þriðja lagi,
og það sem Gunnar Steinn segir að
gert hafi útslagið um að ákveðið var
að kæra, er auglýsing frá Úrvali-
Útsýn sem birtist í Morgunblaðinu
á sunnudag, þar sem gerður er sam-
anburður á því sem sagt er sambæri-
legar ferðir til Mallorka.
Gunnar Steinn Pálsson segir að
kæruefnin séu villandi samanburður,
þar sem bornar séu fram ferðir með
ólikum greiðslukjörum; last í garð
samkeppnisaðila; brot á siðareglum
um sannleiksgildi auglýsinga og
misnotkun á velvild, með því að
prenta merki SL í auglýsingu. Gunn-
ar Steinn kvaðst telja borðleggjandi
að niðurstaða siðanefndarinnar yrði
á þann veg að nokkrar greinar siða-
reglna hefðu verið brotnar.
Tómas Tómasson markaðsstjóri
Úrvals-Útsýnar sagði að þessi kýt-
ingur fyrirtækjanna tveggja ætti sér
þá forsögu að á síðasta ári hefðu
Samvinnuferðir birt auglýsingu þar
sem bomar voru saman ferðir og
var niðurstaðan SL í hag. „Við töld-
um ekki um sambærilega hluti að
ræða og kærðum til siðanefndar
SIA, verðlagsráðs og siðanefndar
Félags íslenskra ferðaskrifstofa. All-
ir þessir aðilar tóku undir okkar
kvartanir. Við héldum að við hefðum
kveðið þetta niður í eitt skipti fyrir
öll þangað til í síðustu viku að þeir
gera sama hlutinn aftur með því að
bera saman ósambærilegar ferðir og
fá út að þeir séu ódýrari. Við töldum
þetta kalla á harkalegri viðbrögð og
fórum á sama stig og þeir í auglýs-
ingum.“ Tómas kvaðst telja að Ur-
val-Útsýn þyrfti ekki að óttast niður-
stöðu siðanefndarinnar.
í siðanefnd SÍA eiga sæti fulltrú-
ar auglýsingastofa, Verslunarráðs
og Neytendasamtakanna. Nefndin
birtir úrskurði um brot á siðareglum
opinberlega en hefur ekki á valdi
sínu önnur úrræði en áminningu.