Morgunblaðið - 10.03.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992
Ný 6 vikna námskeið að hefjast í öllum aldurshópum
Athugið! Síðast komust færri að en vildu.
Innritun stendur yfir í síma 677799, 677070 fyrir Reykjavík og
Mosfellsbæ. Akranes hjá Helgu í síma f 2485.
Stig I byrjendur
Stig II framhald og fyrír lengra komna
_________Stig III tískuljósmyndun______
Athugið! Eldri nemendur geta nú farið í nýja tískuljósmyndun
og komist inn á skrá.
NýttNýtt
Akranes — Helga, sími 12485
Mosfellsbær—sími 677070
Afhending skírteina í Kringlunni laugardaginn 14. mars kl. 14-16.
TÍSKUSÝNINGAR-, FRAMSÖGN OG FRAMKOMA
þurfi að gera eitthvað til að samn-
ingar megi takast. Það kom skýrt
fram að ríkistjórnin væri okkur
sammála um að ríkisvaldið yrði að
hafa frumkvæði að því að ná veru-
legum árangri við lækkun raun-
vaxta og að þeim væri ljóst að það
yrði að koma til móts við okkar
kröfur. Það voru engin loforð gefm
en þessi almenni vilji kom fram.“
A minnisblaði vinnuveitenda um
þau áhersluatriði sem kynnt voru
ráðherrum á fundinum á laugardag
segir m.a.: „Raungengi, þ.e. kostn-
aður hér á landi miðað við sam-
keppnislönd, þarf að lækka frá því
sem nú er, því afkoma þorra fyrir-
tækja í útflutnings- og samkeppnis-
greinum er óviðunandi."
Vinnuveitendur telja að varanleg
Morgunblaðið/Sverrir.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, og Björn Grétar Sveinsson,
formaður Verkamannasambandsins, við upphaf fundar samninga-
nefnda þjá ríkissáttasemjara í gær.
bót á samkeppnisskilyrðum atvinn- aðarhækkunum minni en annars
ulífs náist helst með því að halda staðar gerist. Verðbólga megi ekki
gengi krónunnar stöðugu og kostn- verða umfram 2% á þessu ári en
Ásmundur Stefánsson um viðræður aðila vinnumarkaðar og ráðherra:
auk þess verði stjórnvöld að taka
ákvarðanir sem miði að eflingu at-
vinnurekstrar og að bættum sam-
keppnisskilyrðum. Vinnuveitendur
lögðu því til við ráðherra á fundin-
um að gripið verði til eftirfarandi
aðgerða:
►Ríkisstjómin hafi forgöngu um
marktæka lækkun raunvaxta bæði
til skemmri og lengri tíma.
►Horfið verði frá áformum og-
ákvörðunum um frekari kostnaðar-
skattlagningu á atvinnulífið. Er sér-
stök athygli vakin á nýjum launa-
skatti, sérstöku vörugjaldi á allan
inn- og útflutning og hækkun
ýmissa þjónustugjalda á sjávarút-
veg og samgöngur, s.s. gjaldtöku
fyrir botnfiskkvóta, veiðieftirlits-
gjaldi, vitagjaldi, skipaskoðunar-
gjaldi og skoðunar- og eftirlitsgjöld-
um skipa og flugvéla. Ennfremur
benda vinnuveitendur á að kostnað-
ur við löggildingu vigta og annarra
mælitækja hafi verið hækkaður upp
úr öllu valdi. Vilja vinnuveitendur
að þessar hækkanir verði endur-
skoðaðar þar sem þær samrýmist
ekki stefnumörkun um varanlegan
stöðugleika.
►Loks lögðu vinnuveitendur til
að aðstöðugjald verði afnumið og
fyrsti áfangi þess eigi sér stað um
næstu áramót samhliða aðild ís-
lands að EES. „Um það þarf að
koma stefnumótun og skýr yfirlýs-
ing,“ segir á minnisblaði vinnuveit-
enda
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði vaxandi
skilning á áherslum vinnuveitenda.
„Ríkisstjórnin segir að ef nást sam-
an samningar til eins árs sé ríki-
stjórnin reiðubúin að hafa forystu
um að vextir geti lækkað og við
metum það sem fullnægjandi svör
á þessu stigi.
Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ um kostnað og tekjur vegna áfengisneyslu:
Heildarkostnaður samfélagsins
5,7-6,1 milljarður á ári 1985-89
HAGFRÆÐISTOFNUN Háskóla íslands hefur gert úttekt á kostn-
aði og tekjum þjóðfélagsins vegna áfengisneyslu Islendinga fyrir
Landssambandið gegn áfengisbölinu. í skýrslu Hagfræðistofnunar-
innar kemur m.a. fram að heildarkostnaður samfélagsins vegna
áfengisneyslu hafi verið á bilinu 5,7 til 6,1 miHjarður ki’óna á árun-
um 1985 til 1989 á verðlagi ársins 1991 og á sama tíma hafi tekjur
af áfengissölu verið á bilinu 5,3 til 6,9 milljarðar króna á sama
verðlagi.
Sá kostnaður sem talinn er í
úttektinni er beinn kostnaður, eða
t.d. kostnaður vegna læknishjálp-
ar, félagslegur kostnaður, t.d.
félagsleg aðstoð, löggæsla og
áfengisvamir og kostnaður vegna
tjóns. Þá er reiknað með að óbeinn
kostnaður sé t.d. framleiðslutap
vegna dauðsfalla, meðferðar og
ótímabærrar örorku en skipting
kostnaðar er þannig að um 65%
er framleiðslutap, um 20% er lækn-
ishjálp og um 15% er félagslegur
kostnaður. Þegar tekjur þjóð-
félagsins eru teknar er þar talað
um hagnað ÁTVR af áfengissölu
sem og söluskattstekjur ríkisins
af þessari sölu.
Fram kemur að árið 1985 hafi
kostnaður þjóðfélagsins verið um
5,7 milljarðar króna á móti 5,3
milljörðum króna í tekjur, árið
1986 hafí kostnaður verið um 5,8
milljarðar á móti um 5,5 milljörð-
um, árið 1987 um 6 milljarðar á
móti um 6,1 milljarði, árið 1988
um 6,1 milljarður á móti um 6,3
milljörðum og árið 1989 tæpir 6
milljarðar á móti tæplega 7 millj-
örðum króna.
Kristín H. Sigurbjörnsdóttir,
sem sá að mestu leyti um úttekt-
ina, segir tölur um tekjur þjóð-
félagsins vera mjög auðfengnar en
hins vegar sé mun erfiðara að
komast yfir tölur um kostnað þar
sem þær liggi ekki alltaf fyrir á
rekstrarreikningum og því sé erfitt
að bera þær saman auk þess sem
sala áfengis hafi aukist á árinu
1989. Hún segir að því verði að
taka þessum niðurstöðum með fyr-
ii-vara þar sem mikilvægar upplýs-
ingar hafi ekki verið fyrir hendi.
Helgi Seljan, formaður Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu,
segir að samfélagið sjálft ætti að
sjá um slíka úttekt en ekki áhuga-
samtök. „Hér er um frumvinnu að
ræða þar sem þetta er í fyrsta
skipti sem slík úttekt er gerð.
Okkur óraði ekki fyrir því í upp-
liafi þessa starfs hversu erfítt það
væri að fá allar talnalegar upplýs-
ingar í þessu tölvuvædda tækni-
þjóðfélagi okkar þar sem upplýs-
ingafátæktin var með ólíkindum
þegar kom að þætti áfengis. Það
er ljóst að löggjafinn getur ekki
látið við svo búið standa,“ segir
Helgi.
Jafnframt segir hann úttektina
vera mjög mikilvæga í umræðu um
það hvort einkavæða eigi áfengis-
sölu hér á landi en augljóst sé að
gróði ÁTVR sé ekki sá sem hann
sýnist í íjárlögum á ári hverju.
Afdráttarlaus afstaða ríkisstjóm-
ar að greiða fyrir samningum
A
Dagsbrún dregnr sig út úr samninganefnd ASI
Fundir voru haldnir í sérstökum
vinnuhópum samningsaðila um
helgina. Framkvæmdastjórn Verk-
amannasambandsins hélt fund kl.
13.30. í gær og síðdegis hófust
fundir samninganefnda hjá Ríkis-
sáttasemjara. Þar var samþykkt að
bíða með frekari viðræður fram
yfir fund stjómar og formanna að-
ildarfélaga BSRB í dag til að freista
þess að fá samtökin í samflot um
gerð nýrra kjarasamninga.
Gagnrýni Dagsbrúnar
Guðmundur J. Guðmundsson
sagði að á stjórnarfundinum í Dags-
brún á laugardag hefði verið gagn-
rýnt að ekkert hefði verið gert með
tillögur þeirra m.a. um samstöðu
um aðgerðir og að setja vinnuveit-
endum tímamörk í samningum.
„Við ákváðum að athuga okkar
gang og mæta ekki á fundi hjá
samninganefnd á mánudag. Það er
álit okkar að betra sé að ASÍ og
BSRB leysi þetta sameiginlega. Við
viljum láta kanna það betur en gert
hefur verið og teljum nokkuð ámæl-
isvert að það skuli ekki hafa verið
gert betur af hendi Alþýðusam-
bandsins," sagði hann.
Á fundinum var stjórnarmönnum
falið að leita út á vinnustaði og fá
umsögn félagsmanna um stöðu
mála.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagðist í gær lítið geta tjáð
sig um hvaða þýðingu ákvörðun
stjórriar Dagsbrúnar hefði fyrir
samningaviðræðumar. „Öllum hlýt-
ur að vera ljóst að það skiptir máli
að halda sem mestri breidd í sam-
stöðunni,“ sagði hann.
Aðspurður hvort rétt væri að
gengið hefði verið framhjá Dags-
brún í viðræðunum sagði Ásmundur
að ekki færi milli mála að Dagsbrún
hefði haft mikið vægi í öllu sam-
starfi innan ASÍ og myndi vonandi
hafa það áfram.
Afstaða ríkisstjórnar
Um fund forystumanna ASÍ með
ráðherrum sagði Ásmundur: „Það
kom fram í fyrsta skipti afdráttar-
laus afstaða af hálfu ríkistjórnar-
innar um að henni sé ljóst að hún
Á FUNDI stjórnar verkamannafélagsins Dagsbrúnar á laugardag
var samþykkt að taka ekki að sinni frekari þátt í fundum samninga-
nefndar Alþýðusambandsins, að sögn Guðmundar J. Guðmundssonai’
formanns Dagsbrúnar. Forystumenn ASI og samtaka vinnuveitenda
áttu fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Jóni Baldvin
Hannibalssyni utanríkisráðherra á laugardag. Þar kom m.a. fram
að ríkisstjórnin væri reiðubúin að stuðla að vaxtalækkun í tengslum
við gerð nýrra kjarasamninga. Ásmundur Stefánsson forseti ASI
segir að frekari fundir með ríkisstjórninni séu áformaðir. Á sunnu-
dag gekk Guðmundur J. Guðmundsson á fund Davíðs Oddssonar þar
sem farið var yfir stöðu mála í samningaviðræðunum.