Morgunblaðið - 10.03.1992, Blaðsíða 56
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
SÍMl 601100, FAX 691181, PÓSTllÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Forsætisráðherra ræddi við Jórdaníukonung:
Island biðst ekki
undan að hýsa
friðarviðræður
í VIÐRÆÐUM sínum við Hussein Jórdaníukonung og ráðherra hans
sögðust Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra ekki mundu biðjast undan því að Jórdanir nefndu
ísland sem eitt þeirra landa sem til greina kæmu sem gestgjafaland
fyrir næstu umferð friðarviðræðna fyrir botni Miðjarðarhafs. Að sögn
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra var ekki um tilboð af hálfu Islend-
inga að ræða heldur kom þetta fram sem svar við fyrirspurn Jórdaníu-
manna um hvort þeir mættu nefna ísland í þessu sambandi.
„Þetta bar þannig að að Jórdan-
imir spurðu hvort Island væri einn
af þeim stöðum sem nefna mætti í
þessu sambandi. Báðir aðilar nefna
nokkra staði sem þeir telja að til
greina komi. Israelsmenn hafa þegar
nefnt nokkra staði og ísland er ekki
þeirra á meðal, að ég hygg,“ sagði
Davíð Oddsson. „Við mundum ekki
biðjast undan hlutverki gestgjafa ef
sú yrði niðurstaðan en það eru svo
sem ekki miklar líkur á því.“
Um viðræðurnar við Jórdani að
öðru leyti sagði forsætisráðherra að
farið hefði verið yfir stöðu mála fyr-
ir botni Miðjarðarhafs. Hann sagði
að fróðlegt hefði verið að heyra kon-
ung lýsa afstöðu Jórdaníumanna og
annarra viðsemjenda Israels. „Það
er enginn vafi á að konungur leggur
mikla áherslu á að þessar friðarvið-
ræður gangi en hann telur að vísu
að ísraelsmenn sýni mjög litla samn-
ingalipurð og lítinn samningsvilja
og hefur áhyggjur af því,“ sagði
forsætisráðherra. „Hann bendir á
að hann hafi gengið í gegnum mjög
harkalega hluti 1967 og aftur 1990
og vildi ógjaman ganga í gegnum
slíkt á nýjan leik. Hann segist von-
ast til að öfgamenn hvomgu megin
frá ráði ferðinni í þessum efnum,
þá fari illa.“
Þá sagði forsætisráðherra að
komið hefði fram hjá forsætis- og
utanríkisráðherra Jórdaníu að þeir
telji mikilvægt að forystumenn frá
íslandi, eins og annars staðar úr
Evrópu, sæki ísraelsmenn heim.
„Þeir telja æskilegt að ísraelsmenn
heyri viðhorf Evrópumanna til
ástandsins og voru ánægðir með það
að af okkar hálfu hefðu menn tekið
tíma í að sækja það land heim,“
sagði Davíð Oddsson.
Þá sagði forsætisráðherra að kon-
ungur hefði boðið sér í opinbera
heimsókn til Jórdaníu ef tími og
tækifæri gæfist.
Sjá miðopnu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Davíð Oddsson forsætisráðherra tekur á móti Hussein Jórdaníukonungi við Ráðherrabústaðinn í
Reykjavík í gær.
Birgir ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri:
Stöðugleikinn gefur tilefni
til lækkunar raunvaxta nú
Forsenda að breytingar raski ekki jafnvægi á fjármagnsmarkaði
BIRGIR ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir Seðlabanka ís-
lands telja að sá stöðugleiki sem að undanförnu hafi ríkt í efnahags-
málum gefi tilefni til lækkunar raunvaxta. Bankinn sé því fyrir
sitt leyti reiðubúinn til að stuðla að því með þeim ráðum sem hann
býr yfir, þ. á m. með lækkun á vöxtum spariskírteina í samvinnu
við ríkissjóð, eins og rætt hafi verið um.
„Forsendur þess að slíkir raun-
vextir haldist til lengdar eru að
ekki verði einhveijar þær breyting-
ar í okkar efnahagsmálum, sem
raski verulega jafnvægi á fjár-
magnsmarkaðnum," sagði Birgir
ísleifur í samtali við Morgunblaðið
í gær. Hann sagði að íslenski fjár-
magnsmarkaðurinn væri að verða
æ frjálsari og tengdist æ meir er-
lendum fjármagnsmörkuðum með
fastgengisstefnunni og frjálsari
fjármagnsflutningum milli landa.
„Okkar íjármagnsmarkaður er
ASÍ óskar eftir aðild BSRB
að samningaviðræðunum
Formannafundur BSRB ræðir málið í dag
SAMNINGANEFND Alþýðusambandsins samþykkti í gær að fresta
viðræðum við atvinnurekendur til miðvikudags eða fram yfir fund
sljórnar og formanna aðildarfélaga BSRB í dag til að fá úr því skor-
ið hvort BSRB sé reiðubúið að koma inn í viðræður samhliða samn-
inganefnd ASI og samræma kröfur.
Forystumenn ASÍ áttu fund með
formanni BSRB í gærmorgun og í
kjölfar þess lagði Ásmundur Stef-
ánsson, forseti ASÍ, til við samn-
inganefndina að viðræðunum yrði
frestað og var það samþykkt.
„Ástandið í dag gerir það brýnna
en oft áður að breið samstaða ná-
ist,“ sagði Ásmundur. Hann sagði
að eftir sem áður væri gert ráð
fyrir samningi til eins árs.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, sagði að á bandalagsráð-
stefnu í fyrri viku hafi komið fram
að samtökin væru tilbúin til að
ræða forsendur fyrir sameiginleg-
um aðgerðum samtaka launafólks
og samræma kröfur vegna skamm-
tímasamnings. „Staðan verður nú
skoðuð í nýju ljósi og formenn félag-
anna taka ákvörðun sína á fundin-
um í dag um framhaldið," sagði
Ögmundur.
Forystumenn ASÍ og samtaka
vinnuveitenda hittu forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra á laug-
ardag. Þar kom fram að ríkisstjórn-
in er reiðubúin að grípa til aðgerða
til að stuðla að gerð kjarasamninga
sem m.a. felast í að stuðla að lækk-
un raunvaxta að sögn Ásmundar
og Þórarins V. Þórarinssonar, fram-
kvæmdastjóra VSI.
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi vildi Davíð Oddsson for-
sætisráðherra ekki tjá sig efnislega
um fundi sína með aðilum vinnu-
markaðarins. „Við gerðum grein
fyrir því með hvaða hætti við horfð-
um á málið og með hvaða hætti
væri hægt að koma inn í það af
ríkisstjórnarinnar hálfu. Sú staða
er þröng, eins og við höfum bent
á,“ sagði forsætisráðherra.
Stjórn Dagsbrúnar samþykkti á
laugardag að hætta þátttöku í
samninganefnd ASÍ að sinni, að
sögn Guðmundar J. Guðmundsson-
ar formanns Dagsbrúnar. Guð-
mundur átti fund með forsætisráð-
herra á sunnudag og sagði eftir
fundinn að viðræður þeirra hefðu
verið til bóta fyrir framhald kjara-
samninganna.
Sjá frásögn af viðræðum aðila
vinnumarkaðar og ríkisstjórn-
ar um helgina á bls. 25
því mjög viðkvæmur fyrir aukinni
ásókn ríkisins og annarra opin-
berra sjóða í lánsfé. Bætt afkoma
ríkissjóðs og minni ásókn hús-
næðiskerfísins í lánsfé skiptir hér
miklu máli. Ýmsar aðstæður geta
og aukið eftirspum eftir lánsfé,"
sagði Birgir ísleifur, „og þar með
valdið auknum viðskiptahalla og
gjaldeyrisútstreymi. Má þar nefna
breytingar á ytri skilyrðum efna-
hagslífsins, skyndilegar verðbólgu-
væntingar almennings og fyrir-
tækja og breytingar á afkomuskil-
yrðum atvinnuveganna."
Birgir ísleifur sagði að það væri
því mjög mikilvægt að samfara
raunvaxtalækkun yrðu engar
ákvarðanir teknar sem röskuðu
stöðugleika efnahagslífsins. Þann-
ig væri aðeins verið að tjalda til
einnar nætur.
Birgir ísleifur var spurður
hveiju Seðlabankinn svaraði gagn-
rýni viðskiptabankanna á Seðla-
bankann vegna bindiskyldunnar:
„Bindiskylda innlánsstofíiana hjá
Seðlabankanum er mjög mikilvægt
tæki til að hafa áhrif á útstreymi
lánsfjár og þar með jafnvægið á
fjármagnsmarkaðnum," sagði
Birgir ísleifur. „Innlánsbindingin
er nú 7% af ráðstöfunarfé. Inn-
stæðurnar hjá Seðlabankanum eru
verðtryggðar og bera 2% vexti.
Bankinn hefur reynt að hafa vissan
sveigjanleika, eins og t.d. síðari
hluta síðasta árs, þegar innláns-
bindingin var lækkuð í 6% vegna
árstíðabundins lausafjárvanda
innlánsstofnana. Hið bundna fé er
og mjög mikilvægt mótvægi við
gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans.
Seðlabankinn hefur reynt að stuðla
að því að hér þróaðist verðbréfa-
markaður sem bankinn gæti tekið
þátt í og á þann hátt haft aukin
áhrif á stjórn peningamála. Ekki
er líklegt að bankinn breyti afstöðu
sinni til bindiskyldunnar fyrr en
sá markaður hefur náð ákveðnum
þroska.“
Pernilla Wiberg.
Olympíu-
meistari
Svía keppir
á Islandi
PERNILLA Wiberg frá Sví-
þjóð, sem er ólympíu- og
heimsmeistari í stórsvigi
kvenna, verður á meðal kepp-
enda á alþjóðlegu Visa;bikar-
móti Skíðasambands íslands
sem haldið verður hér á landi
í næsta mánuði.
Wiberg er 21 árs og vann einu
gullverðlaun Svía á Ólympíúleik-
unum í Albertville og varð jafn-
framt fyrst sænskra kvenna til
að vinna til gullverðlauna í alpa-
greinum á Olympíuleikum.
Alþjóðlega Visa-bikarmótið
fer fram hér á landi dagana 11.
til 18. apríl og verður keppt á
Akureyri, ísafirði og í Reykjavík.
Sjá íþróttir bls. B1