Morgunblaðið - 22.05.1992, Page 14
w
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 1992
Á skal að
ósi stemma
Ráðstefna um ríkissjóðsvandann
Laugardaginn 23. maí á Hótel íslandi
Irá kl. 12.00 til 16.30.
Efnistök:
1. Markmið ríkisstjórnarinnar í ríkisfjármálum:
Friðrik Sóphusson, fjármálaráðherra.
2. Samræmd skattlagning eigna og eignatekna:
Yngvi Harðarson, hagfræðingur F.í.l.
3. Bætt skattheimta:
Einar Hálfdánarson, lögg. endurskoðandi.
4. Sala ríkisfyrirtækja:
Ari Edwald, varaformaður S.U.S.
5. Starfsmannamál og launakerfi ríkisins:
Benedikt Jóhannesson, tölfræðingur.
6. Útboð og hagræðing:
Þórleifur Jónsson, framkvæmdastjóri
Landssambands iðnaðarmanna.
7. Mikilvægi hallalausra fjárlaga:
Steingrímur Ari Arason, hagfræðingur.
8. Samantekt og niðurstöður:
Geir FT. Haarde, alþingismaður.
Ráðstefnustjóri:
Ólafur Örn Klemensson, formaður Varðar.
Ráðstefnan verður haldin í norðursal Hótels íslands
og hefst kl. 12.00 með hádegisverði og slit verða
ekki síðar en kl. 16.30.
Ráðstefnugjald með hádegisverði er kr. 2500,-
Að ráðstefnunni lokinni er
boðið til síðdegismóttöku í Valhöll.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR
SKATTANEFND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
SAMBAND UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
1 1 jsrfpwl jl
| Metsölublað á hverjum degi!
Hvers á gift barna
fólk að gjalda?
eftir Margréti
Thoroddsen
Nýlega var þrem ráðherrum
afhentur undirskriftalisti, þar sem
fullyrt var og því mótmælt að stór
hópur sambýlisfólks skrái sig sitt
á hvorum stað til að há hærri
barnabætur og eiga greiðari að-
gang að barnaheimilum. Ráðherr-
ar viðurkenndu að um vandamál
væri að ræða, en þeir stæðu ráð-
þrota gagnvart því.
í Morgunblaðinu nokkrum dög-
um síðar var viðtal við biskup Is-
lands, séra Ólaf Skúlason, sem
segir að eina leiðin til að koma í
veg fyrir slíka misnotkun sé að
þjóðfélagið reyni að höfða til þess-
ara einstaklinga um að allir eigi
að standa jafnt að vígi.
En standa allir jafnt að vígi?
Það er eitthvað bogið við það þjóð-
félag, þar sem borgar sig að hafa
slík brögð í tafli. Heyrt hefur
maður jafnvel dæmi þess að fólk
skilji af þessum ástæðum. Hjóna-
bandið, sem átti að vera horn-
steinn þjóðfélagsins, er farið að
riða til falls.
Það er alkunna að útilokað er
fyrir venjulegan launamann að sjá
fyrir fjölskyldu á eigin launum.
Konan neyðist því til að vinna utan
heimilis, hvort sem henni líkar
betur eða verr. En hve mikið ber
hún úr býtum?
Tökum fjölskyldu með tvö ung
börn. Um dagheimilispláss er ekki
að ræða fyrir gift fólk eða í sam-
búð, svo það þarf að koma börnun-
um fyrir hjá dagmömmu, þar sem
gjaldið er a.m.k. 25 þúsund á
mánuði fyrir hvort þeirra. Maður
getur rétt ímyndað sér hve mikið
verður eftir af lágum launum.
Akveði hjónin hins vegar - áð
hagkvæmara sé að konan sé heima
og annist börnin en maðurinn taki
á sig eins mikla aukavinnu og
honum er unnt, þá fær hann ekki
að nýta nema 80% af skattkorti
konunnar, 20% fara til spillis. Það
er eins og heimavinnandi foreldri
sé annars flokks þjóðfélagsþegn.
í Morgunblaðinu 1. maí var við-
tal við nokkra launþega, þ. á m.
verkakonu, sem er gift og á tvö
ung börn. Hún segir orðrétt: „Erf-
iðast er að geta ekki verið heima
hjá börnunum. Ég hef nokkrum
sinnum gert tilraun til að vera
heima, en það hefur einfaldlega
ekki gengið upp og ég hef orðið
að fara út að vinna aftur.“
Er þetta ekki átakanlegt í okkar
allsnægtaþjóðfélagi, að mæður,
sem þrá að annast börnin sín geti
ekki veitt sér það? Fyrirheit fyrrv.
borgarstjóra fyrir síðustu kosning-
ar um að greiða heimavinnandi
húsmæðrum laun var mikið fagn-
aðarefni, en því miður hefur það
ekki komið til framkvæmda, hvað
sem veldur.
Ég álít mjög aðkallandi að bæta
hag þeirra barnaijölskyldna, sem
beijast í bökkum, t.d. með því að
hækka barnabætur þeirra og miða
ekki eingöngu við hvort sé um
hjón að ræða eða einstæða for-
eldra. Þá er ekki síður mikilvægt
að meta hlutverk heimavinnandi
mæðra meira en verið hefur, þann-
ig að þær sem það kjósa geti dval-
ið heima hjá börnum sínum.
í þvf sambandi mætti benda á
ýmislegt misræmi, sem vert væri
að taka til athugunar, eins og t.d.
að heimavinnandi húsmóðir fær
aðeins greiddan fæðingarstyrk í
fæðingarorlofi, þó hún sé með fullt
hús af börnum, en ef hún tekur
að sér gæslu annarra barna gegn
Margrét Thoroddsen
„Þá er ekki síður mikil-
vægt að meta hlutverk
heimavinnandi mæðra
meira en verið hefur,
þannig að þær sem það
kjósa geti dvalið heima
hjá börnum sínum.“
greiðslu getur hún einnig fengið
greidda fæðingardagpeninga, sem
meira en tvöfalda upphæðina.
Margt fleira mætti nefna.
Það má ekki skilja orð mín svo,
að ég sé að veija þessa misnotkun
á kerfinu, en ág álít að það mætti
stuðla að því að hún yrði fátíðari
með því að hlúa betur að barna-
fólki í hjónabandi eða sambúð og
koma þannig í veg fyrir upplausn
fjölskyldunnar, sem nú er orðin
svo áberandi í okkar þjóðfélagi og
hefur ekki síst slæm áhrif á hina
upprennandi kynslóð, börnin okk-
ar, sem eru það dýrmætasta, sem
við eigum.
Höfundur er viðskiptafræðingur
■
Nú um helgina
verður stórsýning á
Nissan bílum
frá kl. 14 - 17
á Betri bílasölunni
Selfossi og að
Sævarhöfða 2
Reykjavík.
Úrval góðra bíla
svo allir ættu
að geta fundið
bíl við sitt hæfi.
Notaðir
bílar metnir
á staðnum.