Morgunblaðið - 30.07.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1993
27
Musteristré
(Ginkgo biloba)
(Mynd S.Þ.)
Musteristréð í gróðurskála grasagarðs Reykjavíkur. Nærmynd
af laufblaði í homi.
Blóm vikunnar
Umsjón Ágústa Björnsdóttir
Nr. 275
í Frakklandsferð Garðyrkjufé-
lags íslands sem farin var í júní
síðastliðnum var margt að sjá og
við ferðalangarnir sáum fjöl-
margar jurtir og tré sem mörg
okkar höfðu aðeins komist í kynni
við í bókum. Ein þessara forvitni-
legu plantna er musteristré sem
á fræðimáli heitir, Ginkgo biloba.
Musteristré á sér langa sögu
en það er af ætt musterisviða
(ginkgoaceae). Blómaskeið
þeirra var fyrir 200 til 300 millj-
ónum ára þ.e.a.s. á tímum risa-
eðlanna. Talið var að allar teg-
undir ættarinnar væru útdauðar
þar til læknirinn og grasafræð-
ingurinn E. Kámpfer fann must-
eristréð í japönskum klaustur-
garði árið 1690.
Nafnið Ginkgo er afbökun á
japönskum framburði á kín-
verska tákninu fyrir „yin-kuo-
tsu“ (silfurplómu) sem er kín-
verska nafnið á trénu. Kámpfer
skrifaði nafnið með g en ekki y
í fyrstu lýsingu sinni á plöntunni
og hefur sú stafsetning haldist
síðan.
Musteristréð er eina núlifandi
tegund þessarar forsögulegu
plöntuættar og má ætla að grasa-
fræðingurinn hafí orðið jafnundr-
andi að sjá tréð, sem hann þekkti
aðeins af steingervingum, eins
og dýrafræðingur yrði ef hann
sæi lifandi risaeðlu.
Ekki er vitað með fullri vissu
hvort tréð hefur fundist í náttúru-
legu umhverfi á seinni öldum, en
það er upprunnið í Kína og er
talið að kínverskir búddamunkar
hafi flutt það til Japan fyrir um
þúsund árum.
Trénu fylgir mikil helgi hjá
búddatrúarmönnum og er það
ræktað víða í Kína, Kóreu og
Japan við musteri og á öðrum
helgum stöðum. í Japan er tréð
tákn um ftjósemi.
Musteristré eru stórvaxin tré.
Gömul tré í Austur-Asíu eru
30-40 m há og allt að 4 m í þver-
mál í bijósthæð. Nokkur tré í
Evrópu sem orðin ehi meira en
100 ára gömul hafa náð 20 m
hæð. Elsta tré Evrópu er í grasa-
garðinum í Utrecht í Hollandi en
því var plantað árið 1730 og er
enn í góðum vexti.
Laufblöð tijánna eru mjög sér-
stök að lögun. Þau eru 5-8 cm
að stærð, blævængslaga á löng-
um stilk. Þau eru oftast tvískipt
með djúpri klauf í miðju. Æða-
kerfi blaðanna er frumstætt
þannig að í blaðstilknum eru tvær
æðar sem greinast síðan út í
hvom blaðhelming án samteng-
inga með æðaneti. Blaðliturinn
er fagurgrænn á sumrin en fær
síðan gullgulan haustlit áður en
blöðin falla af.
Musteristré eru sérbýlisplönt-
ur þ.e.a.s. trén eru karlkyns eða
kvenkyns og blómstra þau fyrst
eftir að hafa náð 20 ára aldri.
Þau flokkast til berfrævinga og
eru þannig fjarskyld barrtijám,
en fijóvgunin er frábrugðin að
því leyti að frjóduftið frá karlbló-
munum festist í vökva sem kven-
blómin gefa frá sér og þar mynd-
ast einskonar sáðfrumur sem
hreyfa sig í vökvanum að egginu
og fijóvga það. Ávöxturinn er
plómulaga um það bil 3 cm stór.
Þegar hann er þroskaður er hann
grængulur og illa þefjandi en er
etinn í Austur-Asíu þrátt fyrir
það. Steinninn í ávextinum er
þrístrendur og í honum er ætur
kjarni sem þykir lostæti ristaður.
Musteristrénu er fjölgað með
sáningu en ágræðsla er notuð til
fjölgunar á vaxtarafbrigðum.
Bæði í Evrópu og Banda-
ríkjunum hefur musteristijám
verið plantað í raðir meðfram
götum og vegum og hafa þau
sýnt sig að hafa óvenjulegan
mótstöðúkraft gegn mengunar-
lofti svo sem bílaútblæstri og
annarri borgarmengun. Sagt er
að fyrstu trén sem gægðust upp
úr rústum Hiroshima eftir kjam-
orkusprenginguna hafí verið
musteristré.
Musteristré þrífst vel á megin-
landi Evrópu allt til Noregs, Hér
á íslandi hefur það verið nokkuð
í ræktun í garðskálum og einnig
hafa verið gerðar tilraunir með
að fá það til að þrífast utanhúss.
Vitað er að það lifði mörg ár í
garði breská sendiherrans í
Reykjavík fyrir rúmum áratug
en er þar ekki lengur. í grasa-
garði Reykjavíkur í Laugardal
er vöxtuleg planta í gróðurskála
garðsins þar sem menn geta virt
hana fyrir sér. Sáð var fyrir henni
1982 og er hún nú orðin rúmir
tveir metrar að hæð. í grasagarð-
inum hafa verið gerðar tilraunir
með útiræktun tijánna en þau
virð'ast lifa einn til tvo vetur en
deyja síðan. Gera má ráð fyrir
að hin stuttu og svölu sumur séu
ástæðan fyrir því að trén ná ekki
að þrífast, enda er sagt í erlend-
um fræðibókum að musteristré
þrífíst þar sem sumur eru heit.
Musteristré virðist henta vel í
svala eða kalda gróðurskála eða
jafnvel í potti sem stæði úti á .
summm en væri tekinn í hús á
vetrum. Búast má við að vöxtur-
inn í gróðurskálum geti orðið
nokkuð mikill og tréð orðið pláss-
frekt þegar það eldist. Hér í höf-
uðborginn hafa fengist ungar
musteristrésplöntur við vægu
verði og stóðst undirritaður ekki
mátið nú í sumar og keypti eina
plöntu sem búið er að koma fyrir
í svölum gróðurskála.
I grasagarðinum í borginni
Tours í Frakklandi var okkur sem
vorum í ferð Garðyrkjufélagsins
sýnt gamalt musteristré karl-
kyns, sem hafði að sjálfsögðu
aldrei borið ávöxt, þar til hugvits-
sömum garðyrkjumanni hug-
kvæmdist að græða á eina grein-
ina sprota af kventré. Þama
sáum við hina vöxtulegustu kven-
grein með miklu af ávöxtum sem
að vísu vora ekki þroskaðir enn-
þá. Þannig geta starfsmenn gra-
sagarðsins nú safnað fræi af
gamla karltrénu til eigin ræktun-
ar og frædreifíngar til annarra
grasagarða eða garðyrkjufélaga
víðsvegar um heim.
Að lokum má geta þess að
eins og margar aðrar plöntur er
musteristréð álitið hafa mikinn
lækningamátt. Seyði af blöðum
tijánna er talið hafa mátt til að
lækna æðasjúkdóma. Það er talið
örva blóðrás, koma í veg fyrir
æðakölkun og ýmsa aðra sjúk-
dóma sem leggjast á æðakerfíð.
Sigurður Þórðarson
Eldri borgarar á sólarströnd
eftir Sigurð R.
Guðmundsson
Undanfarin ár hef ég átt því láni
að fagna að leiða hópa eldri borg-
ara vor og haust til stranda sólar-
landa á Spáni og í Portúgal. Þar
sem fyrirspurnir um slíkar ferðir í
mín eyra hafa margfaldast að und-
anförnu langar mig að setja þessar
fáu línur á blað og gera örstutta
grein fyrir því einstaka orðspori sem
fer af þessum ferðum.
Langur dimmur vetur
Ég efa ekki að helsti hvatinn til
þátttöku í slíkum ferðum er hinn
langi og dimmi vetur sem við búum
við. Hvað er betra meðal en að
halda á vit sólarinnar snemma að
vori þegar gróður stendur með
blóma suður við Miðjarðarhaf? Eða
framlengja sumarið og búa sig und-
ir skammdegið með notalegri dvöl
á sólarströnd að hausti? Því er ekki
að leyna að þeir era margir þátttak-
endur í ferðum mínum á vegum
Úrvals-Útsýnar sem hreinlega geta
ekki án þessara ferða verið. Þeir
koma aftur og aftur.
Samstilltur hópur
Það sem alla jafna vekur athygli
útlendinga og annarra ferðalanga
ytra er það hversu samstilltur ís-
lenski hópurinn er. Allir virðast
þekkja alla (er það ekki raunin?)
og gleði og ósvikin ánægja skín úr
hveiju andliti. Það er strax í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar að maður sér
gamla vini og nýja fallast í faðma
og samgleðjast yfír því að eiga í
vændum nokkurra vikna samfylgd
undir suðrænni sól.
Leikfimin, kvöldvökurnar og
kynnisferðimar
Dagskráin ytra er fjölbreytt og
jafnan er reynt að gera sem flestum
til hæfis. Sumir taka þátt í öllum
dagskrárliðum en aðrir láta sér
nægja að koma endram og eins.
Hér er öllum fijálst að haga sér
eftir eigin höfði. Við hefjum ferðina
með kynningarfundi þar sem farið
er yfír dagskrá komandi vikna,
veittar ýmsar hagnýtar upplýs-
ingar, skoðunarferðir kynntar og
félagsstarfinu er gefínn sérstakur
gaumur. Það er einmitt félagsstarf-
ið okkar sem mest er spurt um.
Byijum á leikfiminni. Ég hef átt
því láni að fagna að hafa haft að-
stöðu til að kynna mér leikfimi fyr-
ir eldri borgara. Og í suðrænum
hita er yndislegt að miðla þeirri
þekkingu og vinsældir morgunleik-
fíminnar eru slíkar að oft eru yfir
hundrað þátttakendur. Við teygj-
um, marserum, syngjum og dönsum
undir skemmtilegri tónlist. Vegleg-
ar kvöldvökur eru haldnar reglulega
og þar er mikið lagt upp úr þátt-
töku hópsins. Margir eiga gott
skemmtiefni í pokahorninu og koma
með það að heiman. Við syngjum
mikið og ekki má gleyma dansinum
en stundum sláum við upp böllum.
Loks spilum við félagsvist a.m.k.
vikulega og stundum fer hópurinn
saman út að borða á völdum veit-
ingastöðum.
Auðvitað er reynt eftir föngum
að haga seglum eftir vindi og veðri
og áhuga þátttakenda.
Sigurður R. Guðmundsson
„Ég sé stundum fólk
hreinlega yngjast um
mörg ár þegar gleðin
og ánægja taka völdin.“
Hjúkrunarkona til lialds og
trausts
Það hefur reynst ómetanlegt að
hafa með í för íslenska hjúkrunar-
konu í hópferðum aldraðra. Óþarft
er að minna á öryggið sem slíku
fylgir en sem betur fer er næsta
fátítt að reyni verulega á störf
hennar. Hún hefur ráð undir rifí
hveiju þegar smákvillar gera vart
við sig og fylgir fólki til læknis
þegar svo stendur á. Vert er að
geta þess að við erum ávallt í sam-
bandi við lækna á staðnum sem
reynst hafa mjög vel.
Portúgal og Kanaríeyjar
Undanfarið hef ég leitt ferðir
eldri borgara á vegum Úrvals-
Útsýnar til Albufeira í Portúgal og
einnig til Gran Canaria á Kanaríeyj-
um í janúar. Að mínu mati er að-
staðan frábær á báðum stöðum. í
september liggur leiðin á Brisa Sol-
íbúðahótelið í Albufeira sem er eitt
glæsilegasta og best búna íbúðahót-
el sem ég hef kynnst. Boðið er upp
á loftkældar og frábærlega vel bún-
ar vistarverur og á hótelinu eru
fyrsta flokks veitingastaðir, mjög
hentugir salir er falla vel að kvöld-
vökum okkar, einstaklega góður
sundlaugargarður, upphituð inni-
sundlaug og síðast en ekki síst afar
alúðlegt starfsfólk. Hér líður öllum
mjög vel.
Fólk yngist um mörg ár
Oft er ég spurður að því hvort
það sé ekki dýrt að dvelja í 3 til 4
vikur á sólarströnd. Ég vil fullyrða
að svo er ekki. Að mínu mati er
fjárfestingin í léttari lund og oft
betri heilsu mjög ódýr. Samheldni
og glaðværð farþeganna er oft ótrú-
leg. Ég sé stundum fólk hreinlega
yngjast um mörg ár þegar gleðin
og ánægja taka völdin.
Farsælt samstarf
Úrval-Útsýn hefur átt því láni
að fagna að starfa náið með ýmsum
félögum eldri borgara, þ. á m.
ferðanefnd FEB-samtakanna. Allir
félagar í FEB-eiga kost á sérstök-
um afslætti í sólarferðir eldri borg-
ara. Auk þess hefur tekist ákaflega
gefandi og ánægjuleg samvinna
nokkur bæjarfélög sem efnt háfa
til hópferða meðal eldri borgara.
M.a. má nefna Selfoss og Hafnar-
fjörð í þessu sambandi. Hafnar-
fjörður hefur t.d. styrkt ferð eldri
borgara bæjarins með því að senda
sérstakan fararstjóra með hafn-
fírska hópnum.
Velkomin í hópinn
Ég vona að mér hafí tekist að
gera stutta grein fyrir því helsta
sem einkennir sólarferðir eldri borg-
ara á vegum Úrvals-Útsýnar. Eg
vonast til að sjá ný og gömul andlit
í haustferð okkar til Portúgals í
september.
Höfundur er iþróttakennarí og
fyrrverandi skólastjóri og hefur
umsjón med eldrí borgara ferðum
Úrvals-Útsýnar.
9097 Sykurkar
Verð: 3.800,-
VARIST EFTIRLÍKINGAR
ALESSI
KRINGLUNNI S: 680633