Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 7 Athugnn á lífrænt fram- leiddum búvörum BÆNDASAMTÖKIN og fieiri aðil- ar hafa sett á fót starfshóp til þess að safna saman upplýsingum um rannsóknir á gæðum íslenskra landbúnaðarvara. Jafnfraint er ætiunin að athuga markað fyrir vörur sem framleiddar eru á líf- rænan eða vistvænan hátt. Hvítabirnir í Hafnarfirði ÞAÐ tilheyrir í mörgum fram- haldsskólum að bregða sér í skrautlega búninga þegar námið er að baki og lokaprófin framundan. Stúdentsefnin í Flensborgarskóla spókuðu sig í gær í þessum hvítabjarnar- búningum sem vissulega voru í takt við veðrið. í starfshópnum sem er að hefja störf um þessar mundir eru fulltrúar frá Stéttarsambandi bænda, Búnað- arfélagi íslands, Framleiðsluráði landbúnaðarins og Upplýsingaþjón- ustu landbúnaðarins. Arnaldur Mar Bjarnason, atvinnumálafulltrúi Stéttarsambandsins, segir að hlut- verk hópsins verði að afla upplýsinga um stöðu rannsókna á íslenskum búvörum og hvaða niðurstöður liggi fyrir. Einnig að afla upplýsinga um hvaða kröfur seú gerðar erlendis og hvaða markaður sé fyrir hendi. Hann segir að vaxandi áhugi sé erlendis fyrir heilsusamlegum matvælum. Þegar upplýsingarnar hafi verið metnar verði hægt að hefja mark- visst markaðsstarf. Langtímamarkmið Arnaldur segir að ætlunin sé fyrst að leggja áherslu á að efla þá mark- aði sem fyrir hendi séu en það lang- tímamarkmið væri sett að athuga einnig markað fyrir búvörur sem framleiddar væru á lífrænan eða vist- vænan hátt því vitað væri að áhugi væri sífellt að aukast á slíkri fram- leiðslu. ------♦ ♦ ♦------ Sífellt fleiri leggja stund á ólöglegan leiguakstur FÆRST hefur í vöxt að menn stundi ólöglegan leiguakstur í Reykjavík um helgar. Harkararn- ir, sem svo eru nefndir, bjóðast til að aka fólki heim á einkabílum og segja leigubílsljórar að stund- aður sé leiguakstur með sendibíl- um í auknum mæli. Formaður Frama, félags leigubílsstjóra, seg- ir þetta koma illa niður á leigubíl- stjórum og auðvelt sé fyrir misind- ismenn að notfæra sér þetta ástand. Að sögn Sigfúsar Bjarnasonar, formanns Frama, hefur verið um vaxandi vandamál að ræða. Hann sagði að skólastrákar og sendiferða- bílstjórar á greiðabílum séu að harka um helgar, sérsaklega um það leyti sem skemmtistaðir loka. Undanfar- inn mánuð hefðu nýbúar svo orðið áberandi. Harðar tekið á málum Sigfús ságði að leigubílstjórar hefðu kært þá sem stunda ólöglegan leiguakstur og væri tekið harðar á slíkum málum en áður. Hann sagðist þó ekki vita til þess að neinn hefði verið dæmdur fyrir afbrot af þessu tagi. „Það alvarlegasta við þetta er að þegar þessi starfsemi er orðin svona algeng er auðvelt fyrir misindismenn að notfæra sér ástandið. Leigubíl- stjóri hefur fuilyrt við mig að hann hafí séð sveðju í bíl hjá einum harkar- anum og grunur leikur á að sumir reyni að tæla ómynduga unglinga upp í bíla hjá sér“, sagði Sigfús. Hann sagði að það hefði sýnt sig erlendist að starfsemi harkara leiði auðveldlega til glæpa af ýmsu tagi og því væri full ástæða til að taka harðar á þessu en gert hefur verið. Bóm KRIN<

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.