Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 45 Norrænn leikja- og íþróttadagur vel heppnaður Frá Þorsteini Einarssyni: FYRIR nokkru var haldið upp á Norrænan leikja- og íþróttadag aldraðra. í hinn stóra sal Hallarinnar mættu til þess að leika sér, iðka leikfími, syngja og dansa, öll í senn, um 300 aldraðir. Söng leiddu feðgarnir Sigurður Guðmundsson og Guðmundur. Sýn- ingarflokkar tveir komu frá félags- málastofnunum aldraðra. Öðrum stýrði Soffía Stefánsdóttir. Lék fólkið sér að knöttum og beitti kröftum á teygjubönd. Hinum flokknum stjórnaði Sigvaldi Þor- gilsson danskennari. Voru konur sem karlar klædd viðhafnarfötum karla, báru hvíta trefla, pípuhatta og hvíta stafi. Flokkurinn sýndi „stepp“ af frábærri leikni. Það var marsérað og þeir öldruðu brugðu sér í „svensk maskeraði". Elísabet Hannesdóttir leiddi hóp- leikfimi. Dans- og söngleikjum stjómaði Guðrún Nielsen. Að lokum var stiginn almennur dans, sem Sigvaldi danskennari sagði fyrir í. Öllum var svo boðið að þiggja veit- ingar. Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) stóð fyrir þessum leikjum, söng, dansi og kaffí- drykkju, en naut aðstoðar Félags- málastofnunar borgarinnar við að aka þátttakendunum. Léleg hefði sóknin orðið, ef eigi hefði notið velvilja forstöðukvenna og þeirra sem stjórna líkamsæfíngum í stofn- unum. Frá Hafnarfirði og Keflavík komu flokkar með leiðbeinendum sínum. Iðkendumir nutu þess sýni- lega að hittast svo margir og fá að hreyfa sig á góðu gólfi stórs rýmis. Þegar kvaðst var tóku sumir fram að líkir leikdagar innivið í stór- um sölum þyrftu í framtiðinni að verða nokkrir árlega. Úr því að við lögðum áherslu á að auglýsa þennan Leikja- og íþróttdag aldraðra þá þykir okkur rétt að fá frá því sé skýrt, að fyrir- ætlunin tókst. Sérstakt þakklæti viljum við bera fram til forstöðu- manns íþróttahallarinnar og starfs- fólks til að geta veitt okkur aðstöðu í svo umsetnu húsi, svo og öllum þeim öðram sem lögðu hönd á plóg- inn. Fyrir hönd stjórnar FÁÍA, ÞORSTEINN EINARSSON. Stór stafur í Héraðsdómi Frá Friðgeiri Björnssyni: Tryggvi Agnarsson hdl. ritar les- endabréf í Morgunblaðið 24. nóv- I ember sl. og vekur athygli á því ' að mismunandi sé hvernig nöfn ís- lenskra stofnana eru rituð. Er þetta þakkarvert. Tryggvi tekur sem dæmi að nafn Héraðsdóms Reykja- víkur sé ýmist ritað með stóra eða litlu h og telur að starfsmenn dóm- stólsins noti almennt lítinn staf við ritun heitis dómstólsins. Ég kannast ekki við að svo sé nú, en rétt er að heiti dómstólsins var í fyrstu ritað ýmist með litlum eða stórum staf. Átti það m.a. rót sína að rekja til þess að í lagatextum kom fyrir að lítill stafur var notaður. Þetta varð til þess að leitað var álits ís- lenskrar málstöðvar á því hvemig heitið bæri að rita. Málstöðin lét í ljósi álit sitt í bréfí dagsettu 11. janúar sl. og er efni þes birt hér með leyfí hennar. „Vísað er til fyrirspumar í bréfí yðar, dags. 6. þ.m. Þær stafsetningarreglur sem nú I er farið eftir styðjast við „Auglýs- ingu um íslenska stafsetningu" nr. 132/1974 og yngri auglýsingu (nr. 261/1977) um breytingu á hinni fyrri. Samkvæmt ákvæði í d-lið 5. gr. 3. kafla í fyrri auglýsingunni skal rita nöfn stofnana með stórum staf. Ég geri ráð fyrir að Héraðsdómur Reykjavíkur teljist vera heiti á stofnun, og ber þá að rita það svo. Um heiti á húsum er ekkert sagt berum orðum í auglýsingunum, ein- ungis að bein sérnöfn skuli rita með stórum staf. Heiti húsa geta auðvit- að fallið undir það ákvæði jafnvel þótt ekki sé um lögformlega opin- bera nafngift að ræða. Til dæmis er nokkur hefð að rita stóran upp- hafsstaf í þessum heitum: Alþingis- húsið, Dómkirkjan, Fríkirkjan, Höfði, Seðlabankahúsið, Stjórnar- ráðshúsið. Með hliðsjón af þessu Frá Þórði E. Halldórssyni: VEGNA sjónvarpsviðtals er Eiríkur Jónsson á Stöð 2 átti við Hilmar Kristjánsson að kvöldi 18. nóvem- ber sl. um ástand mála í Suður-Afr- íku. Einnig um viðtal er Eiríkur átti við færeyskan ungan mann. Virtist það samtal eiga að vera mótvægi við ummæli Hilmars. Pilt- urinn var þeldökkur (ekki svartur) og ættleiddur sem bam til Færeyja, en hefur aldrei stigið á land í Suður- Afríku. Viðtalið við hann fór fram á Stöð 22. s.m. Þar sem ég bjó og starfaði sem verkstjóri í Suður-Afríku í eitt og hálft ár fínnst mér skylt að stað- festa að hvert orð í frásögn Hilm- ars var fyllilega sannleikanum sam- kvæmt. Ég harma að Eiríkur, sem er afbragðs útvarpsmaður, skuli ekki gæta fóta sinna betur en það að taka þátt í áralöngum áróðri á stjórnarfar ríkis, sem aldrei hefur verður að telja bæði rétt og eðlilegt að rita Dómhúsið við Lækjartorg. “ Álit íslenskrar málstöðvar er ótvírætt og éra það tilmæli mín til þeirra sem rita þurfa nafn Héraðs- dóms Reykjavíkur eða dómhússins að fara eftir því. FRIÐGEIR BJÖRNSSON, dómstjóri. reynt að hafa neikvæð áhrif á stjórnarfar íslendinga. ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON, Sólheimum 25, Reykjavík. Pennavinir Þýskur frímerkjasafnari vill skiptast á merkjum: Thomas Stuckert, Lessingstrasse 13, D-64407 Fr-Crumbach, Germany. Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka með áhuga á matargerð, tónlist, sjónvarpi o.fl.: Josephine Galton Helm, P.O. box 1192, Oguaa, Ghana. Sextán ára írsk stúlka með áhuga á tónlist, kvikmyndum og frímerkj- um: Michelle Pollard, 2 Elm Mount Heights, Beaumont, Dublin 9, Ireland. LEIÐRÉTTIN G AR Svanhildur fyrst Blaðinu hefur verið bent á það að Svanhildur Ólafsdóttir hafi verið fyrst kvenna til að útskrifast úr stærðfrteðideild MR, en ekki þær Halldóra Briem og Ingibjörg Böð- varsdóttir, eins og frá var skýrt í blaðinu s.l. þriðjudag. Svanhildur var dóttir dr. Ólafs Daníelssonar stærðfræðikennara og útskrifaðist árið 1924. Þátttakendur ekki boðendur í fréttatilkynningu í Morgunblað- inu í gær um ráðstefnu um ofbeldi var sagt að Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavikurprófasts- dæmum væra boðendur ráðstefn- unnar. Þetta er ekki rétt heldur era þeir þátttakendur. Á eftir fram- söguerindum á ráðstefnunni verða pallborðsumræður og gleymdist að geta eins þátttákendans, en það er Andri Heide, Æskulýðssambandi kirkjunnar í Reykjavíkur. VELVAKANDI LOTTOKASSA VANTARÍ HLÍÐARNAR KONA hringdi til Velvakanda og kvartaði yfir því að það væri enginn lottókassi í Sölu- tuminum, Barmahlíð 8. Hún segir að rætt hafi verið við for- svarsmenn lottósins og þeir borið því við að enginn kassi væri til. Hún vill fá úr þessu bætt sem fyrst. GÆLUDÝR Kettlingar ÁTTA vikna, kassavanir kett- lingar fást á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 620080. Læða fæst gefins FALLEG og blíð þriggja og hálfs mánaða gömul læða fæst gefíns af sérstökum ástæðum. Upplýsingar í síma 811481. TAPAÐ/FUNDIÐ Bíllykill tapaðist BÍLLYKILL með fjarstýringu tapaðist líklega í Elliðaárdal í októbermánuði. Lyklakippan er með kringlótta koparplötu sem á stendur „Power of London". Finnandi vinsamlega hringi í síma 654013. Úr fannst KARLMANNSÚR með leðuról fannst á mótum Snorrabrautar og Vífílsgötu. Eigandi má liringja í síma 18613 eftir kl. 19. Handtaska tapaðist LITIL svört handtaska með handfangi og axlaról tapaðist í áhorfendastúku í sjónvarps- salnum við upptökur á þættin- um „Á tali hjá Hemma Gunn“ sl. miðvikudag. Finnandi vin- samlega hringi í síma 75619. Leiðrétting að gefnu tilefni i irmiii .... i i i i i i i i i i i i i i-rrr n L i i — PLANHVÍTT ELDHÚSINNRÉTTING BÆJARHRAUNI 8. HAFNARFIRÐI, SlMI 651499 STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI GOÐ GREIÐSLUKJOR 4- 'y er kominn í hiýSegon jóiabúning. Aðventukransar iK og skreytingarefni. Stakir engiar og jólaskraut í miklu órvali. Opiö: Mánudaga - taugardaga 10.00-22.00. Sunnudaga 11.00-19.00. Vesturgötu 4,101 Reykjavík. Sími622707. CHATEAU D AX TEG. 871 3ja sæta sófi og tveir = stólar í leðri © 5 kr. 239.800 stgr. Opið laugardaga kl. 10-16. Síðumúla 20, sími 688799. Mest seldu amerísku dýnurnar Marco HÚSGAGNAVERSLUN Langholtsvegi 111, sími 680 690.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.