Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 Afmælismót Soffíu Guðmundsdóttur hefst í dag Um 80pörtaka þáttímótinu AFMÆLISMÓT Soffíu Guðmundsdóttur hefst í Verkmenntaskólanum á Akureyri kl. 11 í dag, laugardag. Soffía varð 75 ára í vikunni, 23. nóvember síðastliðinn, en hún heldur upp á afmæli sitt með því að efna til opins bridsmóts. Greinilegt er að áhugi er mikill á mótinu því um 80 pör hafa skráð sig til þátttöku. Um helmingur þátt- takenda eru heimamenn, en aðrir koma víða af Norðurlandi, úr Húna- vatnssýslu, Þingeyjarsýslum, Fljót- um og íslandsmeistararnir siglfirsku mæta einnig til leiks, Soffía er sjálf alin upp á Siglufirði, en.hún fæddist að Syðsta-Mói í Fljótum. Þá koma um 20 pör eða 40 manns til mótsins úr Reykjavík. Sest / verður- að spilaborðum skömmu fyrir hádegi í dag, laugar- dag og að lokinni fyrri lotu býður Soffía spilurum upp á afmæliskaffi áður en seinni lotan hefst, en áætlað er að spilamennsku verði lokið um kl. 21 í kvöld. Á morgun, sunnudag verður byijað að spila kl. 10 og er áætlað að mótinu ljúki um kl. 14, en þá tekur við verðiaunaafhending og síðan verður að nýju boðið í kaffi. Ásprent með litgreiningu ÁSPRENT hefur keypt fullkomin litgreiningartæki og þá keypti fyrirtækið nýlega nýja tveggja lita Roland prentvél sem er sú þriðja sem prentsmiðjan eignast. Litgreiningartækin sem Ásprent keypti eru dönsk, frá Scanview, en með tilkomu þeirra verður hægt að bjóða viðskiptavinum upp á litgrein- ingu á litskyggnum og negatívum og pósitívum Reflex myndum. Lit- greiningakerfíð byggir á svokallaðri tromlutækni, glertromla snýst á ógn- arhraða og skannar inn upplýs- ingamar. Þar sem litgreiningar taka geysi- legt diskapláss þurfti að stækka net- kerfi prentsmiðjunnar og stórauka diskapláss og fjölga tölvum. Unnið er bæði í PC og Macintosh umhverfi og fer öll filmuútkeyrsla á fullkomna litaútkeyrslu frá Linotype-Hell. Næg verkefni eru hjá Ásprenti og að sögn Rósu Guðmundsdóttur fram- kvæmdastjóra er mikið prentað fyrir fyrirtæki og stofnanir á Reykjavíkur- svæðinu. Þá hefur fyrirtækið um árabil gefið út íj'órar bækur á mán- uði auk þess sem 'útgáfa tímarits hófst í vor, en það er gefíð út mánað- arlega. Góða tíðin notuð til hins ýtrasta TÍÐ hefur verið góð undanfarnar vikur og fátt sem minnir á að vetur sé genginn í garð fýrir alllöngu. Norðanlands hefur vart fest snjó svo heitið geti á þessu hausti. Byggingaframkvæmdir ganga eins og að sumarlagi og menn keppast við að nota þessa góðu tíð því skjótt geta veður skipast í lofti. Á stærri myndinni sjást smiðirnir Már Axfjörð, Eiríkur Sig- urðsson og Friðgeir Vilhjálmsson uppi á þaki ný- byggingar í Giljahverfi. Á innfelldu myndinni er Ingólfur Ingólfsson að skipta um perur í umferðar- ljósum bæjarins. Morgunblaðið/Rúnar Þór Messur ■ HVÍTASUNNUKIRKJAN Samkoma fyrir ungt fólk í kvöld, laugardagkvöld kl. 20.30. Sunnudagur 28. nóv- ember, barnakirkjan kl. 11. Öll börn velkomin. Samkoma kl. 15.30, ræðumaður Vörður Traustason, samskot til tækja- kaupa. Boðið upp á barna- gæslu á sunnudagssamko- munum. Mánudagur 29. nóv- ember, brauðsbrotning. Verðstríðið milli matvöruverslana er hreinasta geggjun að mati heildsala Heildsöluverð á sósubréfi 44 krónur en er selt á 16 Félagsmenn KEA og ríkið greiða herkostnaðinn, segir Hólmgeir Valdimarsson ■AKUREYRARPRESTA- KALL: Sunnudagaskóli á morgun kl. 11. Guðsþjónusta verður 1. sunnudag í aðventu kl. 11. Félagar í kór Akureyrarkirkju syngja og einn- ig barnakór kirkjunnar undir stjórn Hólmfríðar Benediktsdóttur. Guðs- þjónusta á hjúkrunardeild aldraðra, Seli, kl. 14. og á dvalarheimilinu Hlíð kl. 16. ■GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur og bænastund kl. 13 í dag. Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 11 á morgun. Fundur æskulýðsfélagsins verður kl. 17.30. ■KAÞÓLSKA KIRKJAN við Eyrarlandsveg 26: Messa kl, 18 laugardag og á sunnudag kl. 11. ■HJÁLPRÆÐISHERINN: Helg- unarsamkoma kl. 11 á morgun. Sunnudagaskóli kl. 13.30, bæn kl. 19.30 og almenn samkoma kl. 20. Flokksforinginn í Reylg'avík, Sven Fosse, talar á samkomum dagsins. „ÞETTA er hrein geggjun," segir Hólmgeir Valdimarsson, einn eig- enda heildverslunar Valdimars Baldvinssonar, um verðstríðið sem háð hefur verið milli KEA-Nettó og Bónuss síðustu þrjár vikur eða frá þvi siðarnefnda verslunin var opnuð á Akureyri. Hann fullyrðir að báðar verslanir tapi stórum fjárhæðum á hveijum degi og seg- ir það spurningu hvort félags- menn í Kaupfélagi Eyfirðinga séu tilbúnir að taka þátt í þessum herkostnaði og eins segir hann hluta hans lenda á ríkinu í formi endurgreiðslu á virðisaukaskatti. Hólmgeir nefndi í samtali við Morgunblaðið eitt dæmi til að styðja þá skoðun sína að verðstríðið væri orðið hrein geggjun, eins og hann orðar það. Heildsöluverð á Toro-ber- nessósu í verslun hans er 44 krónur en bemessósubréfið kostaði að hans sögn 16 krónur í KEA-Nettó á fímmtudaginn. Samskonar bréf með piparsósu var selt á 22 krónur í versl- uninni eða með 50% afslætti frá heildsöluverði. „Þar sem varan er seld undir inn- kaupsverði fær verslunin endur- greiddan virðisaukaskatt. Þessir aðil- ar eru að borga með svo mörgum vörutegundum að þeir hljóta að fá virðisaukann endurgreiddan,“ sagði Hólmeir. „Ruglið er svo ótrúlegt orð- ið í þessu. Það mun enginn standa uppi sem sigurvegari í þessu stríð, en öll verslun á Norðurlandi mun hins vegar hljóta skaða af,“ sagði Hólmgeir. Hann sagðist þess fullviss að báðar búðirnar væru reknar með stórtapi á hveijum degi. „Hvað segja þessir aðilar við fólkið sem á Kaupfé- lag Eyfírðinga, þeir borga milljónir með þessu dæmi. Maður spyr sig hvort félagsmenn séu tilbúnir að borga þennan kostnað." Bændur hagnast á að kaupa mjólk í stórmörkuðunum BÆNDUR í Eyjafirði létu sér detta í hug nú í vikunni að kaupa mjólk í stórmörkuðum KEA-Nettó og Bónus, en lægst fór verð á mjólk niður í 52 krónur lítrinn. Þar sem bændur fá nú greidda vetrarupp- bót á mjólk fá þeir 64 krónur borgaðar fyrir hvem lítra sem þeir leggja inn. Verðstríð verslananna tveggja hefur staðið í þijár vikur, en í gær fór að bera á hækkunum. Sem dæmi má nefna mjólkina. Að und- anfömu hafa verið víxllækkanir á þessum vörum milli verslananna og hjá Nettó fengust þær upplýsingar að í upphafi vikunnar hefði mjólkur- lítrinn verið seldur á 52 krónur, en í gær var hann kominn í .62 krónur. Bændur fá svokallaða C-bein- greiðslu fyrir mjólkina á tímabilinu frá nóvember til loka febrúar, en það er vetraruppbót sem greidd er í þeim tilgangi að fá bændur til að jafna út mjólkurframleiðsluna yfír árið. Á þessu tímabili fá bændur 64 krónur fyrir mjólkurlítrann, en 52,85 krónur á öðrum tíma. Á meðan mjólkurverðstríð versl- ananna stóð sem hæst fyrstu daga vikunnar ræddu bændur á samlags- svæðinu möguleikann á því að kaupa mjólk í þessum verslunum á rúmar 50 kr., hella í tankana hjá sér aftur og selja hana aftur á 64 krónur, en þannig hefðu þeir hagn- ast á viðskiptunum. Til að sleppa við að greiða flutningskostnaðinn hefði verið best að skila mjólkinni beint í samlagið í femunum. Þú færð mikið fyrir íítið hjá okkur Úrval af búsáhöldum og gjafavörum á ótrúlegu veröi. Verðdæmi: 18 glös í pk. kr. 910,- Eldföst form kr. 650,- Ávaxtasett kr. 690,- 1 2 manna matar- og kaffistell kr. 7.320,- Opið mánudaga tii föstudaga frá kl. 12-19. Laugardaga kl. 10-17 og sunnudaga kl. 13-17. BÚSÁHALDAMARKADURIM, SMIÐJUVEGI30, RAUÐ GATA, KÓPAVOGI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.