Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 47 KNATTSPYRNA Gamlir refir hverfa af braut ÞAÐ er alltaf eftirsjá þegar snjallir leikmenn ákveða að leggja skóna á hilluna, eða þá að leikmenn fari úr 1. deildarslagnum og gerast þjálfarar í neðri deildunum. Þá hafa knattspyrnuunn- endur horft á eftir mörgum góðum leikmönnum halda í víking. íslensk knattspyrna stendur fátækari eftir. Aldrei eins og nú, hverfa jafn margir snjallir knattspyrnumenn af braut í 1. deildar- keppninni. Ellefu kunnir leikmenn hafa yfirgefið deildina, eða sem svarar heilu 1. deildarliði — 10% af leikmönnum byrjunarliða deildarinnar. Leikmennirnir ellefu hafa allir nema einn, Lúkas Kostic, leikið með landsliðinu á undan- fömum árum. Þrír hafa lagt skóna á hilluna — Vals- mennimir Sævar Jónsson og Bjami Sigurðsson og Pét- ur Ormslev, leik- maður Fram, sem hefur átt við Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar Komnir og farnir Akranes Franir: Lúkas Kostic, Grindavík, Kristján Finnbogason, KR, Þórður Guðjónsson, Bochum, Brandur Sig- uijónsson, Fylki, Sigurður Sig- steinsson, Grindavík. FH Komnir: Jón Sveinsson, Fram. Famir: Andri Marteinsson, Lyn, Hilmar Bjömsson, KR. Kefiavík Komnir: Ólafu'r Gottskálksson, KR, Ragnar Margeirsson, KR, Ámi Vil- hjálmsson, Danmörku. Farnir: Ólafur Pétursson, Þór. Fram Komnir: Kristinn Hafliðason, Vík- ingi, Haukur Pálmason, Stjömunni, Anton Björn Markússon, ÍBV, Guð- mundur Steinsson, Víkingi, Hólm- steinn Jónsson, Víkingi. Famir: Ingólfur Ingólfsson, Stjam- an, Kristinn R. Jónsson, Haukar, Kristján Jónsson, Bodö, Pétur Am- þórsson, Leiknir, Valdimar Kristó- fersson, Stjarnan, Jón Sveinsson, FH. Valur » Komnir: Lárus Sigurðsson, Þór, Guðni Bergsson, Tottenham, Atli Helgason, Víkingi. Farnir: Sævar Jónsson og Bjami Sigurðsson, hættir. Anthony Karl Gregory, Bodö. KR Komnir: Hilmar Björnsson, FH, Kristján Finnbogason, Akranesi, Tryggvi Guðmundsson, ÍBV, Salih Heimir Porca, Fylki. Famir: Atli Eðvaldsson, HK, Ólaf- ur Gottskálksson, Keflavík, Ragnar Margeirsson, Keflavík. Steinar Ingimundarson og Gunnar Skúla- son á förum. Þór Komnir: Bjami Sveinbjömsson, ÍBV, Ólafur Pétursson, Keflavík, Ormarr Örlygsson, KA. Farair: Sveinbjöm Hákonarson, Þróttur Nes. ÍBV Komnir: Zoran Ljubicic, HK. Famir: Tryggvi Guðmundsson, KR, Anton Bjöm Markússon, Fram, Bjami Sveinbjömsson, Þór, Ingi Sigurðsson, Grindavík. BreiðaMík Komnir: Einar Páll Tómasson, Sví- þjóð/Noregur, Guðmundur Þ. Guð- mundsson, Víkingi. Stjaman Komnir: Valdimar Kristófersson, Fram, Ingólfur Ingólfsson, Fram, Goran Micic, Þróttur Nes. Farair: Haukur Pálmason, Fram. þrálát meiðsli að stríða. Fjórir hafa ákveðið að halda í víking — þrír til Noregs, Andri Marteinsson, Kristján Jónsson og Anthony Karl Gregoiy og einn til Þýskalands, Þórður Guðjónsson. Fjórir gamalkunnir leikmenn hafa snúið sér að þjálfun liða í neðri deildunum, eins og oft vill gerast þegar leikmenn sem eru að fara að hætta — gera, til að öðlast reynslu sem þjálfarar, jafn- framt því að leika með. Þessir fjór- ir leikkmenn eru Lúkas Kostic, Atli Eðvaldsson, Pétur Arnþórsson og Kristinn R. Jónsson. Það er eftirsjá í þessum snjöllu leikmönnum, en knattspyrnuunn- endur geta huggað sér við, að maður kemur í manns stað. Breið- fylking ungra leikmanna eru á leiðinni inn á knattspyrnusviðið — leikmenn sem eiga eftir að vera í sviðsljósinu á næstu árum. Fyrir eru hópur ungra leikmanna, sem hafa verið að öðlast þroska og reynslu til að takast á við hina hörðu baráttu í 1. deild. Eins og undanfarin ár hafa þó nokkuð verið um félagaskipti leik- manna á þessum árstíma. Mestu breytingamar hafa orðið hjá Fram af 1. deildarfélögunum, eins og sést á listanum hér á síðunni. Atli Eðvaldsson KR-HK Lúkas Kostic ÍA -Grindavík Sævar Jónsson Val-HÆTTUR Kristján Jónsson Fram - Bodö Andri Marteinsson FH - Lyn Pétur Pétur Amþórsson Ormslev Fram - Leikni Fram. HÆTTUR Kristinn R. Jónsson Fram- Haukar Anthony Kari Gregory Val-Bodö Þórður Guðjónsson ÍA - Bochum HÆTTIR I 1. DEILD KORFUKNATTLEIKUR/URVALSDEIL Morgunblaðið/Bjami „Nú er komiA að þér að taka vlA stöAu mfnni hjá Val, eins og þú gerðir hjá landsliðinu...“ getur Sævar Jónsson, miðvörðurinn sterki, verið að segja við félaga sinn Guðna Bergsson, sem er aftur kominn í herbúð- ir Vals eftir að hafa leikið með Tottenham undanfarin ár. Erlingur og Stein- grímur með KA Erlingur Kristjánsson og Steingrímur Birgisson voru í gær ráðnir þjálfarar 2. deildarliðs KA. „Við erum mjög ánægðir með að fá þá félaga til starfa. Þeir þekkja bæði félagið og leikmenn þess út í gegn. Við erum með ungt lið og horfum björtum augum á framtíð- ina,“ sagði Þórarinn E. Sveinsson, formaður knattspyrnudeildar KA í viðtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Ólafur ekki með Olafur Stefánsson, vinstrihand- arskytta úr Val, getur ekki farið með íandsliðinu til Krótatíu, en landsliðið leikur gegn Króötum í Evrópukeppni landsliða í Zagreb á miðvikudaginn kemur. Þorbergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari, mun tilkynna landsliðs- Njardvíkingar í ham gegn Gríndvíkingum Njarðvíkingar áttu alskostar við nágranna sína og frá Grindavík í „Ljónagryfjunni11 í Njarðvík í gærkvöldi. Grindvíkingar sem hafa leikið vel í síðust leikjum voru ákaflega slakir í fyrri hálfleik þeg- ar þeir settu aðeins 25 stig gegn 42 stigum Njarðvíkinga sem þó léku án þjálfara síns Vals Ingimundarsonar, sem enn á við meiðsli að stríða. „Tölurnar tala sínu máli. Sóknarleikurinn brást algjörlega hjá okkur ífyrri hálfleik, við lékum eins og fimm ein- staklingar og það vantaði alla liðsheild," sagði Guðmundur Bragason, þjálfari og leikmaður Grindvíkinga. Lokatölur urðu 83:63. Njarðvíkingar léku vel í gær- kvöldi og það var fyrst og fremst góður varnarleikur Jjeirra ^■■1 sem setti Grindvík- Bjöm inga út af laginu. Blöndal Friðrik Ragnarsson skrifarfrá lék þó mann best og tók Banaríkjamann- inn Wayne Casey í liði UMFN nán- ast úr umferð. Þá var Rondey með enn einn stórleikinn og Teitur gerði margt laglegt. Lið Grindvíkinga var slakt og í stað þess að bíta á jaxl- inn þegar illa gekk fóru leikmenn að láta dómarana og úrskurð þeirra fara í skapið á sér. „Þetta var ótrúlega auðveldur sigur og það kom mér á óvart hversu slakir Grindvíkingar voru að þessu sinni, því ég átti svo sann- arlega von á hörkuleik. En við lék- um líka einn okkar besta leik og þá sérstaklega í vöminni í fyrri hálfleik eins og tölurnar gefa til kynna," sagði Valur Ingimundar- son, þjálfari Njarðvíkinga. UMFIM-UMFG 83:63 íþróttahúsið í Njarðvík: Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 15:10, 22.T7, 29:24, 42:25, 51:31, 64:41, 73:48, 79:56, 83:63. Stig UMFN: Rondey Robinson 29, Teitur Örlygsson 20, Jóhannes Kristbjömsson 14, Isak Tómasson 7, Eysteinn Skarphéð- insson 5, Rúnar Ámason 4, Jón Júlíus Ámason 2, Friðrik Ragnarsson 2. Stig UMFG: Guðmundur Bragason 17, Wayne Casey 11, Undór Sigurðsson 9, Pétur Guðmundsson 8, Bergur Hinriks- son 8, Nökkvi Már Jónsson 4, Hjörtur Harðarson 3, Ingi Ingólfsson 2, Bergur Eðvarðsson 1. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Kristinn Óskarsson. Áhorfendur: Um 250. Knattspyrna ÞÝSKALAND: Kaiserslautem - Kiiin...........3:0 Schalke - Wattenscheid..........4:1 Dynamo Dresden - Leipzig........1:0 HEnn fagnar Siegfried Hcld og strák- arnir hans hjá Dresden sigri. hópinn á morgun, en hann verður væntanlega þannig skipaður: Guð- mundur Hrafnkelsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Geir Sveinsson, Júl- íus Jónasson, Konráð Olavson, Gunn- ar Beinteinsson, Patrekur Jóhannes- son, Gústaf Bjamason, Einar Gunnar Sigurðsson, Héðinn Gilsson, Valdi- mar Grímsson og Dagur Sigurðsson. Allir vilja sjá þær Heimsmeistarakeppni kvenna standur nú yfir í Noregi og fylgjast heimamenn spenntir með árangri norska liðsins. 6.600 áhorf- endur sáu Noreg vinna Ungveija- land, 18:15, í Ósló og í gærkvöldi mættu 6.800 áhorfendur til að sjá stúlkurnar leggja Spánveija að velli 20:16 í Þrándheimi. Norðmenn hvíidu þrjá bestu leikmenn sína. Reiknað er með að 9.000 áhorfendur sjái leik norska liðsins á morgun í leik gegn Pólveijum í Bergen. Ahug- inn er mikill fyrir stúlkunum, en þess má geta að aðeins um 2000 áhorfendur sjá leiki karlalandsliðsins. Aðrir leikir í A-riðlinum hafa farið þannig: Pólland - Spánn Ungveijaland - Pólland 20:19 25:25 B-RIÐILL: Rússland - S-Kórea 28:25 Danmörk - Látháen 25:23 C-RIÐILL: Þýskaland - Svíþjóð Rúmenia - Angóla 17:15 26:16 D-RIÐILL: Tékkó/Slóvakía - Austurríki 16:13 Bandaríkin - Kína 27:26 EJ, Noregi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.