Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 9 Sýning íHafnarfirði Astrid Ellingsen, prjónahönnuður, og Bjarni Jónsson, listmálari, sýna í matsal Hvaleyrar dagana 13.-28. nóvember. Sýningin er opin á rúmhelgum dögum kl. 16-22 og um helgar kl. 14-19. Þetta er sölusýning. DentogMed-föt fyrir heilbrigðisstéttirnar Sloppar - „T-shirt“ - blússur og buxur úr kínabðmull ó hreint ótrúlega lógu verði. GK-HÖNIMUM S/F Snorrabraut 29, sími 13133. BORÐSTOFUHUSGOGN - mikið úrval Teg. GARDA, dökk, bæsuð eik. Borð + 6 stólar kr. 114.750 stgr. Teg. BALI, svartur askur. Borð + 6 stólar kr. 93.600 stgr. Visa—Euro raógreióslur OPIÐ í DAG TIL KL. 16 SUNNUDAG FRÁ KL. 14-17 HUSGAGNAVERSLUN REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100 Sérstæður vinnutímiá sjúkrahúsum Lára Margrét Ragnars- dóttír, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, komst þann- ig að orði í þingræðu 22. nóvember sl.: „Fyrir rúmum 6 vikum ræddum við utan dag- skrár um málefni leik- skóla sjúkrahúsanna og bentí ég í þeirri umræðu á þá sérstöðu sem þessar stofnanir hafa. Bentí ég meðal annars á sveigjan- lega vistun bama sem færi eftir vinnutima for- eldra og að slíka þjónustu væri ekki hægt að fá á öðrum sambærilegum stofnunum. Enn fremur benti ég á það að þessi þjónusta sjúkrahúsanna við starfsmenn væru hlunnindi tíl starfsfólks og færu þessi hlunnindi eftir ákveðnum reglum þar sem forgangur væri m.a. veittur því starfs- fólki sem kæmi til starfa á deildum þar sem mann- ekla væri. Við getum stöðugt deilt um það hvort hiunnindi í þessu formi eigi rétt á sér og ég tek undir með þeim sem ræða um skyldur sveitarfélaga í þessu efni, en ég vil jafnframt benda á hlunnindi annarra ríkis- starfsmanna, svo sem þeirra sem hafa fasta yf- irvinnu, og hlunnindi í einkageiranum, eins og t.d. hjá flugfélögum í formi farmiðaafsláttar og fleira mættí telja til.“ Hefur reynzt sjúkrahúsun- um vel „Eg vil árétta að þetta Lára Margrét Ragnarsdóttir Leikskólar sjúkrahúsanna Umræður hafa farið fram á þingi um leik- skóla sem sjúkrahúsin hafa rekið fyrir börn starfsfólks. Sjúkrahúsunum var gert að hætta þessari starfsemi til að draga úr kostnaði, enda væri það hlutverk sveit- arfélaga að sjá um þjónustu af þessu tagi. Frá þessari ákvörðun hefur nú verið horfið. fyrirkomulag hefur reynzt sjúkrahúsunum afar vel og ieyst mýmörg vandamál við ráðningar starfsfólks til spítalanna. Mun minni hreyfing hef- ur reynzt vera á starfs- fólki og vinnuveitandinn hefur getað sett fi-am ákveðnar kröfur um vinnuskyldu tíl að sem mest hagræðing næðist i starfsmannahaldinu og jafnvægi jafnframt. Stjómir sjúkrahúsaiuia hafa einnig sýnt vilja sinn fyrir áframhaldandi fyr- irkomulagi. Vinnuhópur, sem heilbrigðisráðuneyt- ið skipaði í október síðast- liðnum og skilaði álití 5. nóvember, segir í álití sínu mikilvægt að sjúkra- húsin reyni að standa þannig að málum að rekstur ieikskóla sjúkra- húsamia haldi áfram og reynt verði með sam- komulagi að tryggja áframhaldandi hami og að ráðuneytið beití sér í viðræðum við viðkomandi sveitarfélög ... Eg ætla ekki að fara nánar út í tilboð ráðu- neytisins til sjúkrahús- anna um kostnaðarhlut- deild ríkisins í þessum rekstri sem enn er deilt um. Hins vegar vil ég lýsa vonbrigðum minum yfír því að enn hafi ekki tek- izt að koma þessu máli á hreint Foreldrum hefur verið haldið í óvissu um vistun barna sinna, fóstr- um þessara stofnana er haldið í óvissu um starf sitt og bömin fá sinn skammt Það þarf að ná sátt um þetta mál strax.“ Kynningu ábótavant „Það hafa orðið miklar framfarir í heilbrigðis- þjónustu ... Það hafa líka orðið auknar kröfur hjá sjúklingum um meira ör- yggi í læknismeðferð ... Samhliða þessu hafa orð- ið breytingar í heilbrigð- isþjónustu í landinu. Sér- hæfð þjónusta hefrn- vax- ið hratt ... Þessvegna er það orðið löngu tímabært að skoða skipulagningu sjúkra- hússþjónustu í landinu með það fyrir augum að tryggja öllum landsmönn- um beztu, öruggustu og ódýrustu þjónustu sem völ er á ásamt með því að ná fram hagræðingu. Hins vegar tel ég afar óheppilegt hvemig að kynningu vinnuhóps um þessi mál er staðið. Svo gat litið út sem niðurstöð- ur skýrslunnar væra póli- tískar skoðanir og jafnvel áform ráðherrans en ekki skýrsla nefndar sem eftir er að meta pólitískt og á enn fremur eftir að fá víðtækari faglega um- fjöllum, bæði frá sjónar- miði starfsfólks í heil- brigðisþjónustu og hag- ræðingar- og stjórnunar- legum sjónarmiðum ..." Deilt um ljósaskilti Kringlunnar Laugavegssamtökin hafa snúið sér til Samkeppnisstofn- unar eftir að ljóst er að þeim verður ekki heimilað að auglýsa á ljósaskilti við Kringluna í des- ember. Að sögn Bjarna Frið- rikssonar framkvæmdasljóra Kviksýn, sem samdi við Lauga- vegssamtökin, var auglýsinga- tíminn sem fyrirtækið hafði heimild fyrir uppseldur í jóla- mánuðinum. Bjarni sagði, að Kviksýn sem á auglýsingaskiltið í miðbænum sjái einnig um sölu auglýsinga á skilt- ið í Kringlunni. „Það er ákveðinn samningur okkar á milli um að ef ekki er laus tími á skiltinu þá fara engar auglýsingar frá okkur þar inn,“ sagði hann. „Það vildi þannig til að þegar við sömdum við Laugavegssamtökin þá voru Kringlumenn að fylla sitt skilti. Þetta er fyrst og fremst þeirra skilti, sem fyrirtækin í Kringlunni eiga.“ Ekkí staðið við samning Laugavegssamtökin segja, að fyrirtækið Kviksýn hafi boðið sam- tökunum pakkatilboð í einn mánuð á auglýsingum við Lækjargötu og á bílageymslunni við Kringluna. Skrifað var undir auglýsingapakk- ann og átti hann að gilda frá 20. nóvember til 24. desember. Byrjað hafi vérið á tilsettum tíma í Lækjargötu en Kringlumenn neit- að samtökunum um birtingu keyptra auglýsinga og sé ekki séð að staðið verði við þann hluta samningsins. Laugavegssamtökin hafi því haft samband við Sam- keppnisstöfnun varðandi réttar- stöðu í málinu, þar sem svo virðist sem brotið sé gegn samkeppnis- lögum. ÁLAGAELDUR EFTIR AÐALSTEIN ÁSBERG SIGURÐSSON Það er bannaö að hrófla við Skiphólnum því þó brennur bærinn í Litluvík. Óðinn og Logi heillast af sögu Kobba gamla um fjórsjóS og skip víkingsins sem grafiS var í Skiphól. Drengirnir hefja leit aS fjórsjóSnum og dragast um leiS inn í spennandi atburðarós þar sem þeir kljóst viS dularfull örlög og eiga í höggi við hættulegan afbrotamann. Álagae\du tyrir börn á afdrinum 8 ^ ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.