Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.11.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1993 Ekki um frekari sameiningartilraunir á höfuðborgarsvæðinu að ræða Áliug’i fyrir sanieiningii á nokkrum stöðum á landinu UMDÆMANEFND höfuðborgarsvæðisins samþykkti á fundi sem hald- inn var í gær að leggja ekki til aðra tillögu um sameiningu sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu. Telur nefndin úrslit atkvæðagreiðslunnar 20. nóvember siðastliðinn lýsa ótvíræðum vilja íbúanna og því ekki raunhæft að búast við stuðningi við aðrar sameiningartillögur en þær sem þá voru greidd atkvæði um. Að sögn Braga Guðbrandssonar, for- manns samráðsnefndar um sameiningu sveitarfélaga, er þessa dagana verið að kanna möguleika á sameiningu sveitarfélaga á nokkrum stöð- um á Iandinu, og sagði hann að til dæmis væri mikill áhugi fyrir því þjá sveitarsljórnarmönnum á norðanverðum Vestfjörðum að sameina Isafjörð, Suðureyri, Flateyri og Mosvallahrepp í eitt sveitarfélag, en íbúar þessara sveitarfélaga lýstu yfir vilja til sameiningar í atkvæða- greiðslunni. Bragi sagði í samtali við Morgun- blaðið að sveitarstjómarmenn á Vestfjörðum væru nú að vega það og meta hvaða leiðir best væri að fara í sameiningarmálununT, og þá hvort rétt væri að leggja fram tillögu um sameiningu þessara sveitarfélaga sem greidd yrðu atkvæði um, eða hvort heija eigi vinnu við samninga milli sveitarfélaganna og greiða at- kvæði að þeirri vinnu lokinni. í grein- argerð frá umdæmanefnd Vestfjarða kemur fram að nefndin mun ekki gera aðrar tillögur um sameiningu sveitarfélaga í Strandasýslu og held- ur ekki í Vestur-Barðastrandarsýslu. Nefndin bendir á að það liggi ljóst fyrir að viðræður um sameiningu Drög að stjómmálaályktun Alþýðubandalagsins Frjálst framsal kvóta takmarkað markað verulega Tillaga um afnotagjald af fiskimiðum LAGT er til að fijálst framsal aflaheimilda verði takmarkað verulega með reglum meðan endurskoðun fiskveiðistefnunnar stendur yfir, í drögum að stjórnmálaályktun landsfundar Alþýðubandalagsins sem lögð voru fram á fundinum í gær. Lýst er fullri samstöðu með sjómönnum í baráttu þeirra gegn viðskiptum með aflaheimildir sem fari fram á þeirra kostnað og telur flokkurinn að banna eigi með lögum að sjó- menn taki þátt í kostnaði sem tengist viðskiptum með veiðiheimildir. Þá hafa Mörður Arnason og Jóhann Antonsson lagt fram tillögu á lands- fundinum um að þjóðareign fiskimiðanna verði tryggð með sérstöku afnotagjaldi sem útgerðin greiði í rikissjóð og/eða sjóði sveitarfélaga. „Með slíku afnotagjaldi er einnig hægast að mæta sveiflum í afkomu sjávarútvegsins," segir í tiilögunni. Á landsfundinum í gær kom einnig fram tillaga frá Bimi Guðbrandi Jóns- syni, Reykjavík, um að hluti fiskveið- ikvótans verði seldur hæstbjóðendum af ríkissjóði og hluta verði úthlutað til byggðarlaga eftir reglum sem al- þingi kveði nánar um. Einstök byggð- arlög hafi síðan sjálfdæmi um hvem- ig úthlutuðum kvóta verði varið. „Þær tekjur sm ríkissjóður aflar af kvóta- sölu verði notaðar til að lækka virðis- aukaskatt á vöru og þjónustu og Tillaga á landsfundi Alþýðubandalags Endurnýjun- arregla nái til þingmanna TVEIR fulltrúar Birtingar, Gísli Gunnarsson og Mörður Árnason, lögðu fram breytingartillögu við endumýjunarreglu í lögum Al- þýðubandalagsins á iandsfundi flokksins í gær. Leggja þeir til að í fulltrúastöðum, ráðum og nefnd- um utan Alþýðubandalagsins, hvort heldur á alþingi eða í sveitarstjórnum, skuli fulltrúar flokksins ekki gegna sömu trúnað- arstörfum Iengur en fjórum sinn- um í röð. Nokkuð var deilt um meðferð til- lögunnar á landsfundinum í gær en málinu var síðan vísað til úrskurðar laganefndar. Einnig kom fram um- deild tillaga þriggja fulltrúa frá Reykjanesi um að endumýjunarregla flokkslaganna gildi ekki um formenn og gjaldkera flokksfélaga. Afgreiðsla lagabreytinga fer fram á landsfund- inum í dag. lækka þannig verðlag í landinu," seg- ir í tillögu Bjöms. Þak á aflahlutdeild Á fundi miðstjómar Alþýðubanda- lagsins í júní sl. var hart deilt um hvort afnema bæri framsal aflaheim- ilda og var tillögu Kristins H. Gunn- arssonar alþingismanns þar um vísað frá til frekari umfjöllunar. í þeirri tillögu sem nú er komin fram sem tillaga að stjómmálaályktun á lands- fundi flokksins segir að tryggja verði að arðurinn af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar renni til íbúa byggðanna og landsmanna allra en ekki til fá- einna útgerðaraðila. Stöðva verði þá eignarmyndun á óveiddum fiski, sem þegar eigi sér stað í núverandi kerfi, þrátt fyrir sameignarákvæði físk- veiðistjómarlaganna. Takmarka eigi frjálst framsal kvóta verulega m.a. þannig að fram- vegis verði fyrst og fremst um að ræða skipti á jafngildum veiðiheimild- um og sveigjanleika ef bilanir eða óviðráðanlegar orsakir valda umtals- verðri röskun á útgerð. Athuga beri hvort setja eigi þak á aflahlutdeild úr einstökum fískistofnum, þannig að ljóst sé fyrirfram að núverandi útgerðir eigi ekki sjálfkrafa rétt á fastri hlutdeild í aukinni veiði þegar stofnar stækka og veiði vex. Lagt er til að forkaupsréttur sveit- arfélaga verði látinn ná til aflaheim- ilda en ekki einungis skipa á umþótt- unartímabilinu. Er þess krafist að krókaveiðileyfí haldist áfram og að eigendum smábáta gefíst kostur á að velja milli aflamarks og króka- veiða sem lúti almennum sóknartak- mörkunum. þá er lýst andstöðu við útfærslu hugmynda um þróunarsjóð sjávarútvegsins og vísað í staðinn í tillögur flokksins um nýsköpunarsjóð. Umræður um stjórnmálaályktun munu standa fram á sunnudag þegar tillagan verður tekin til afgreiðslu. hefjist fljótlega mjlli þeirra fjögurra sveitarstjórna í V-Barðastrandar- sýslu sem fengu umboð til slíkra við- ræðna, og ekki sé talin ástæða til að óttast að landfræðilegar ástæður hindri sameiningu þótt Tálknafjarð- arhreppur komi í milli þessara fjög- urra sveitarfélaga. Þá mun um- dæmanefndin ekki gera nýja tillögu um sameiningu milli sveitarfélaga í N-ísafjarðarsýslu, Bolungarvík eða Dýrafírði, en hvetur sveitarstjómir á Vestfjörðum til viðræðna um samein- ingu. Engar tillögur lagðar fram gegn vilja sveitarstjórnarmanna Bragi Guðbrandsson sagði að á Suðumesjum væri einnig verið að íj'alla um ýmsar hugmyndir um sam- einingu. Hann sagði að viðræður væri einnig hafnar milli sveitar- stjóma Hafnar í Hornafirði, Nesja- hrepps og Mýrahreppi, en íbúar þess- ara sveitarfélaga vom samþykkir sameiningu í kosningunum, og í Mýrasýslu þar sem fímm hreppar af átta samþykktu sameiningu er hafín athugun á því hvemig best unnið verði að málinu í framhaldi af kosn- ingunum. Þá hefði umdæmanefndin á Norðuriandi eystra skrifað öllum sveitarstjómum í kjördæminu bréf þar sem óskað er eftir hugmyndum þeirra um möguleika á annars konar sameiningu en fólst í þeim tillögum sem kosið var um. „Ég held að reynslan kenni okkur það að það verður ekki lögð fram tillaga um sameiningu sveitarfélaga f annarri umferð nema þar sem ljóst þykir að viðkomandi sveitarstjómir muni styðja þær eindregið. Það kom í ljós í kosningunum 20. nóvember að nánast alls staðar-hafa íbúarnir greitt atkvæði í samræmi við það sem forystumenn sveitarfélagsins lögðu til. Þar sem þeir vom andvígir var tillagan felld en samþykkt þar sem þeir vom fylgjandi. Menn vilja draga ályktanir af þessu og era sammála um að gera engar þær tillögur sem fælu það í sér að þær gengju í ber- högg við viðkomandi sveitarstjómar- menn á svæðinu," sagði Bragi. Móta á heild- arstefnu í málefnum útlendinga RÍKISSTJÓRNIN hefur að til- lögu Ólafs G. Einarssonar menntamálaráðherra sam- þykkt að mótuð verði heildar- stefna í málefnum útlendinga. Þegar hefur verið unnið dijúgt starf í menntamála- ráðuneytinu að málefnum nýbúa, en að mati mennta- málaráðherra þykir nauðsyn- legt að ríkisstjórnin móti heildarstefnu um málefni út- lendinga sem flytjast búferl- um hingað til lands. Menntamálaráðherra hefur lagt til að skipuð verði nefnd með fulltrúm forsætisráðuneyt- is, utanríkisráðuneytis, félags- málaráðuneytis, dómsmálaráðu- neytis og menntamálaráðuneytis svo og fulltrúa frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga til að koma með tillögur varðandi málefni þeirra sem flytjast bú- ferlum til landsins. Skal nefndin meðal annars kynna sér aðstöðu nýbúa hér á landi svo og stefnu í málefnum útlendinga í ná- grannalöndunum og leggja til hvemig tekið skuli á þeim mál- um hér á landi. Kjörið FRÁ kjörinu á „konu ársins“ f.v. Gullveig Sæmunsdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, Inga Elín Kristinsdótt- ir, gler- og leirlistakona, Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, og Magnús Hreggviðsson, stjómarformaður Fróða. Jóhanna valin kona ársins TILKYNNT var í hófi á vegum tímaritsins Nýs Lífs, fimmtu- dagskvöldið sl., hver hefði að þessu sinni verið kjörin „kona ársins" 1993. Það var Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð- herra, sem í ár fékk flestar tilnefningar lesenda og velunnara blaðsins. í ráeðu sinni í hófinu sagði Gull- veig Sæmundsdóttir, ritstjóri Nýs Lífs m.a. að á erfíðleikatímum kæmi best í Ijós hvort þeir sem þjóðin hefur kosið til þess að fara með fjöregg sitt, séu vandanum vaxnir. Samkvæmt nýlegri skoð- anakönnun Gallup og íslenskra markaðsrannsókna njóti aðeins einn ráðherra núverandi ríkis- stjómar almenns fylgis meðal þjóð- arinnar. Það væri Jóhanna Sigurð- ardóttir, félagsmálaráðherra og kæmi því varla á óvart að hún skyldi hafa orðið fyrir valinu þegar kom að því að kjósa „konu ársins" á íslandi. „Kona ársins hlýtur jafnan að gjöf verk eftir íslenska listakonu og var Jóhönnu Sigurðardóttur færð veggmynd eftir Ingu Elínu Kristinsdóttur, gler- og leirlista- konu. Þær konur sem áður hafa borið titilinn „kona ársins" era frá Vig- dís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Sophia Hansen. 11 dýralæknar sækja um embættí í Mýrasýslu Hvannatúni í Andakíl. AUs bárust 11 umsóknir um stöðu héraðsdýralæknis' í Mýrasýslu. Umsækjendur eru Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Innri-Akraneshreppi, Guðbjörg Þorvarðardóttir, Húsavík, Gunnar Gauti Gunnarsson, Andak- ílshreppi, Hildur Edda Þórarinsdóttir, Blönduósi, Kjartan Hreinsson, Reyðarfírði, Gunnar Gíslason, Stykkishólmi, Sigurbjörg Ó. Bergsdótt- ir, Þórshöfn, Vilhjálmur Svansson, Hofsósi og að auki þrír ' sem óska nafnleyndar. Landbúnaðaráðherra veitir stöð- una að fengnum tillögum stöðuveit- inganefndar Dýralæknafélags ís- lands. Sverrir Markússon lætur af störfum um áramót og hefur þá ver- ið dýralæknir í Mýrasýsluumdæmi í tæpt 21 ár. Aðeins tveir dýralæknar hafa þjónað í Mýrasýslu frá upphafi. Árið 1928 hóf Ásgeir Þ. Ólafsson þar störfum og er nú aftur fluttur í Borg- arnes, á 92. aldursári. - D.J. ■ MÁLÞING um um daggæslu barna í heimahúsum verður haldið í dag, laugardaginn 27. nóvember í Borgartúni 6 og hefst kl. 10. Málþingið hefst með ávarpi félags- málaráðherra, Jóhönnu Sigurðar- dóttur. Starf dagmóður og starf- semi samtakanna verða kynnt og íjallað verður um félagsþjónustu sveitarfélaga og bamaverndarlögg- jöfina og reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum verður kynnt sérstaklega. Starfsmenn frá dag- vist bama í Reykjavík og frá Akur- eyri og Selfossi kynna með hvaða hætti þessi sveitarfélög styðja við bakið á dagmæðrum og hafa eftir- lit með starfsemi þeirra. Sérstak- lega verður fjallað um sjónarmið og ábyrgð foreldra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.