Morgunblaðið - 09.07.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B
153. TBL. 84.ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
wnriííir
•| »l Hllt
nrainir
JMW HU
Morgunblaðið/Haukur Snorrason
Stríðsglæpadómstóll SÞ krefst framsals leiðtoga Bosníu-Serba
ÖSE vill útiloka flokk
Karadzic frá kosningum
Sarajevo, Brussel. Reuter.
Queen
Elizabeth II
í Reykjavík
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ víð-
fræga Queen Elizabeth II hafði
viðdvöl í Reykjavik í gær í blíð-
skaparveðri. Um borð voru 1.545
farþegar, flestir frá Bretlandi og
Bandaríkjunum, og rúmlega þús-
und manna áhöfn. Skipið lét aftur
úr höfn síðdegis.
■ Hótel á hafi úti /6
■ Um 1.100 farþegar/14
-----♦ ♦ ♦---
Sharon
tekur við
embætti
Jerúsalem. Rcutcr.
ARIEL Sharon sór í gær embættis-
eið sem ráðherra í ríkisstjórn Benj-
amins Netanyahus, forsætisráðherra
ísraels. Sharon tekur við nýstofnuðu
ráðuneyti innra skipulags ríkisins.
Fréttaskýrendur telja líklegt að
skipan Sharons í embætti muni valda
úlfúð meðal ráðamanna í arabaríkj-
um og í Bandaríkjunum. Sharon var
varnarmálaráðherra 1982 þegar
ísraelsmenn réðust inn í Líbanon.
Undir nýja ráðuneytið munu með-
al annars heyra samningaviðræður
við nágrannaríkin um rétt til vatns-
veitu, sem er viðkvæmt málefni í
Mið-Austurlöndum.
Netanyahu lagði í gær af stað í
fimm daga heimsókn til Bandaríkj-
anna. Mun hann funda með Bill Clin-
ton forseta og ávarpa þingið.
ALÞJOÐLEGUR þrýstingur jókst
enn í gær á Radovan Karadzic, leið-
toga Bosníu-Serba, um afsögn, að
öðrum kosti verði flokkur hans úti-
lokaður frá þátttöku í kosningunum
í Bosníu í september. Þá ítrekuðu
saksóknarar við stríðsglæpadómstól
Sameinuðu þjóðanna þá kröfu að
Karadzic og Ratko Mladic, yfirmað-
ur herafla Bosníu-Serba, verði hand-
teknir og færðir fyrir dómstólinn,
þar sem þeir eiga að svara ákæru
um þjóðarmorð.
Robert Frowiek, yfírmaður Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) sagðist í gær myndu gera allt
sem í hans valdi stæði til að koma í
veg fyrir að Serbneska lýðræðissam-
bandið, flokkur Karadzic, gæti boðið
LIK níu ara gamallar stúlku, Jade
Matthews, fannst á járnbrautar-
teinum í Liverpool í Bretlandi í
gær, og hafði stúlkan verið myrt á
hinn hroðalegasta hátt. Fulltrúi lög-
reglunar sagði að faðir stúlkunnar
hefði verið færður til yfirheyrslu
vegna morðsins, en ekki væri ljóst
hvort hann yrði ákærður.
Lögregla leitaði þriggja drengja
sem sáust nálægt staðnum þar sem
líkið fannst. Telur lögreglan, að
þeir hafi orðið vitni að atburðinum,
eða öðru honum tengdum. Sagði
fram í kosningunum í september, léti
Karadzic ekki af völdum. ÖSE skipu-
leggur og hefur eftirlit með fram-
kvæmd kosninganna.
Fjöldagrafir opnaðar
Rannsóknarmenn SÞ bjuggu sig
í gær undir að opna fyrstu meintu
fjöldagrafirnar á Cerska-svæðinu
nærri Srebrenica en uppgröftur
hófst þar á sunnudag. Eru Karadzic
og Mladic sakaðir um að hafa fyrir-
skipað fjöldamorð á múslimum frá
Srebrenica í júií i fyrra og fullyrða
vitni að Mladic hafi verið viðstaddur
fjöldaaftökur. Ibúar á svæðum Serba
í austurhluta Bosníu eru lítt hrifnir
af uppgreftrinum og veru fjölþjóða-
liðsins í Bosníu (IFOR). Var í gær
fulltrúi lögreglunnar, að þeir væru
ekki grunaðir um ódæðið.
Mál þetta þykir minna óþyrmi-
lega á morðið á hinum tveggja ára
gamla James Bulger 1993. Tveir
tíu ára drengir áttu sök á því ódæði.
skotið á portúgalska hermenn IFOR
skammt frá bænum Goradze.
Mark Harmon, saksóknari við
stríðsglæpadómstólinn, gagnrýndi í
gær að Karadzic og Mladic skyldu
ekki enn hafa verið handteknir og
krafðist þess að þeir yrðu færðir
fyrir dómstólinn en þar fer nú fram
vitnisburður í ákæru á hendur þeim.
Carl Bildt, sem stýrir alþjóðiegu
uppbyggingarstarfi í Bosníu, skoraði
í gær á Karadzic að mæta fyrir
stríðsglæpadómstólinn og reyna að
verjast ásökunum um stríðsglæpi,
„hefði hann einhveija sómakennd
eða hugrekki, myndi hann fara [fyr-
ir dómstólinn],“ sagði Bildt.
■ Óhugnanlegt starf/22
Þá réðst maður, vopnaður sveðju,
að sex ungum börnum, kennara
þeirra og tveim öðrum fullorðnum
á leikvelli við skóla í Woolverhamp-
ton í gær.
Læknar sögðu að eitt barnanna
Tyrkland
Stjórnin
hélt velli
Ankara. Reuter.
HIN nýja ríkisstjórn Tyrklands, undir
forystu heittrúarmannsins Necmett-
ins Erbakans, hlaut nauman sigur í
atkvæðagreiðslu, sem fram fór í gær
í tyrkneska þinginu, um traustsyfir-
lýsingu við stjórnina.
Ósigur stjórnarinnar hefði steypt
Tyrklandi'í stjórnarfarslega óreiðu á
ný. Fresta varð atkvæðagreiðslunni
um hríð vegna handalögmála, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, hlaut
hnefahögg í andlitið og var slegizt á
þinginu nokkru síðar.
Samsteypustjórn Velferðarflokks
heittrúarmanna og Sannleiksstígsins,
flokks Tansu Cillers, fyrrverandi for-
sætisráðherra, hlaut stuðning 278 af
550 þingmönnum, þremur fleiri en
nauðsynlegt var. 265 greiddu at-
kvæði á móti, þar á meðal nokkrir
þingmanna Sannleiksstígsins.
og kennarinn hefðu særst alvarlega
á höfði, en væru þó ekki í lífshættu.
Að sögn vitna var árásarmaður-
inn einn á ferð, stökk yfir girðingu
og „hreinlega bijálaðist“. Lögregla
vildi ekki staðfesta fregnir þess efn-
is, að 35 ára gamall maður hefði
verið handtekinn vegna málsins,
eftir að lögreglan hefði leitað úr
þyrlu í grennd við skólann.
Fyrir þrem mánuðum réðst
byssumaður inn í skólastofu í bæn-
um Dunblane í Skotlandi og myrti
16 börn og kennara þeirra, áður
en hann svipti sjálfan sig lífi.
Tvö ódæðisverk í Bretlandi þykja minna á fyrri voðaatburði
Livcrpool, Woolvcrhampton. Reutcr. j j ^
Niu ara stulka
finnst myrt