Morgunblaðið - 09.07.1996, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Slysavarnaátak Landhelgisgæslunnar, Pósts og síma og Slysavarnafélagsins
Morgunblaðið/Ásdís
AÐSTANDENDUR slysavarnaátaksins „Skoðum björg-unarvestin" kynntu átakið í Laugardalslaug-
inni og fengu til Iiðs við sig þau Ara Edwald, aðstoðarmann sjávarútvegsráðherra, Brynjólf Bjarna-
son, forsljóra Granda hf., Klöru Arnalds og Ragnheiði Leifsdóttur, sem prófuðu björgunarvesti
af fullkominni gerð í lauginni.
Björgunar-
vesti próf-
uð og fólki
leiðbeint
ALMENNINGI gefst á morgun,
miðvikudaginn 10. júlí, kostur
á að koma með björgunarvesti
sín til prófunar í 12 sundlaug-
um víðs vegar um landið milli
kl. 16 og 21, og verður slysa-
varnafólk þar til staðar og gef-
ur góð ráð og leiðbeiningar um
notkun björgunarvesta.
Að þessu átaki, sem hlotið
hefur heitið „Skoðum björg-
unarvestin", stendur yfirstjórn
leitar og björgunar á hafinu
umhverfis ísland, þ.e. Land-
helgisgæslan, Póstur og sími
og Slysavarnafélag íslands.
Þetta er fyrsta samstarfsverk-
efni þeirra í slysavörnum á
þessu sviði, en ráðgert er að í
framtíðinni verði þetta að ár-
legu slysavarnaátaki. Tilgang-
urinn er að vekja athygli al-
mennings á mikilvægi björgun-
arvesta þegar farið er út á sjó
og vötn á bátum, réttri notkun
þeirra og síðast en ekki síst að
minna á að reglulega þarf að
kanna hvort flot vestanna virk-
ar eins og ætlast er til.
Að sögn Gunnars Tómasson-
ar, formanns Slysavarnafélags
íslands, leikur grunur á að víða
sé misbrestur á því að björg-
unarvesti í eigu fólks séu í full-
komnu lagi.
„Við höfum grun um að menn
séu jafnvel að nota vesti sem
fleyta fólki alls ekki og eru að
öðru leyti ekkialveg eins og
þau eiga að vera. Vesti sem eru
orðin 5-6 ára gömul eru t.d. oft
ekki með klofólum og það vant-
ar á þau flautu og ýmsan annan
búnað sem er á vestum í dag.
Þetta eru allt atriði sem menn
verða að vera vissir um að séu
í lagi,“ sagði Gunnar.
Þeir 12 sundstaðir sem al-
menningi gefst kostur á að
koma með björgunarvesti sín til
skoðunar á morgun eru Laugar-
dalslaug í Reylgavík, Sundlaug
Akureyrar, íþróttamiðstöðin í
Vestmannaeyjum og sundlaug-
arnar í Grindavík, Sandgerði,
Grundarfirði, Patreksfirði,
ísafirði, Sauðárkróki, Húsavík,
Neskaupstað og Höfn.
Formaður kjaranefndar Félags íslenskra náttúrufræðinga um flutning Landmælinga
Fliitningiir j afngildir
niðurlagningu starfa
EINAR Kjartansson, formaður
kjaranefndar Félags íslenskra
náttúrufræðinga, segir að búast
megi við að ákvörðun umhverfís-
ráðherra um flutning Landmæl-
inga ríkisins til Akraness verði
túlkuð þannig að um sé að ræða
niðurlagningu á viðkomandi störf-
um og að mögulega verði látið
reyna á þá túlkun fyrir dómi.
Einar segir að málið hafi hins
vegar ekki ennþá komið til kasta
félagsins. Flestir starfsmenn
Landmælinga eru félagsmenn í
Starfsmannaféiagi ríkisstofnana
eða Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga.
Arni Stefán Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Starfsmannafélags
ríkisstofnana, segir að stjóm fé-
lagsins hafi ekki tekið málið fyrir
ennþá, en félagið muni gæta þess
að ekki verði brotið gegn hags-
munum starfsfólks Landmælinga.
„Þetta er gífurlegt rask fyrir
starfsfólkið og það er nánast óþol-
andi að ríkisstarfsmenn þurfi að
búa við svo lélegt starfsöryggi.
Þetta kemur verst við eldri starfs-
mennina, sem hafa unnið hjá
Landmælingum í mörg ár og eru
sérhæfðir í sínum störfum, og eiga
því erfítt með að skipta um vinnu.
Við erum í sjálfu sér ekki á móti
því að ríkisstofnanir séu starf-
ræktar úti á landi, en veigamikil
fagleg rök þurfa að liggja fyrir
flutningum á stofnun eins og
Landmælingum, og okkur fínnst
þau ekki vera fyrir hendi nú,“
sagði hann í samtali við Morgun-
blaðið.
Engin efnisleg rök
fyrir flutningi
Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir, þingmaður Þjóðvaka, er
algjörlega andvíg flutningunum.
„Eg sé engin efnisleg rök fyrir
því að flytja Landmælingar ís-
lands til Akraness og auk þess
hefði ég haldið að fjármunum
stofnunarinnar væri betur varið í
annað. Það hefur verið sátt um
að stjórnsýslan eigi að vera hér
í höfuðborginni og ég tel að svo
eigi að vera áfram. Það má
kannski hugsa sér að nýjum
stofnunum yrði komið á fót úti á
landi, en mér finnst algjörlega út
í hött að flytja svona gamalgrónar
stofnanir,“ segir Ásta Ragnheið-
ur.
Hlynnt flutningi
stofnana
Rannveig Guðmundsdóttir,
þingflokksformaður Alþýðuflokks-
ins, segist vera hlynnt flutningi
ríkisstofnana út á landsbyggðina.
„Við höfum talið það jákvætt að
skoða flutning ríkisstofnana út á
Iand og að efla hin ýmsu bæjarfé-
lög með þeim hætti. Auðvitað er
mjög mikilvægt að taka eins mik-
ið tillit til starfsfólksins og unnt
er, og ég tel mikilvægt að í undir-
búningi slíkra flutninga sé haft
náið og gott samráð við starfs-
menn,“ segir Rannveig. Hún
kvaðst ekki vera í aðstöðu til að
meta hvort eðlilega hefði verið
staðið að samráði við starfsfólk
Landmælinga að þessu sinni.
HjHi
p
GúbJd ndí
BOKASUMAR
I SIJORNARSKRA
| I YDVFI PISINS
{ ISLANPS
nf..y ;;;
[ m tv
\ . h.; -u '
[ v \ . >
7 .<.*-■ ’■ ' V -
a
VAKA-HELGAFELL
» Lifandi útgáfa -115 ár •
Lesum í sumar
illll
65% af heyi baggað
TALIÐ er að 800-1.000 tonn af
plasti falli til í landbúnaði hérlendis
á hveiju ári og þar af eru tæp 900
tonn af heybaggaplasti, að sögn
Grétars Einarssonar deildarstjóra
hjá bútæknideild Rannsóknastofn-
unar landbúnaðarins á Hvanneyri.
Rúlla af heybaggaplasti kostar
um 4.000 krónur, og fást um 20
baggar úr rúllu. Má því gera ráð
fyrir að bændur noti heybaggaplast
fyrir um 160-200 milljónir á ári.
Grétar segir að hlutfall böggunar í
heildar heyfeng landsmanna hafi
aukist mikið seinustu ár, og sé nú
um 65% af öllu heyi baggað í plast.
Hins vegar hafí heyfengur dregist
saman á sama tíma, vegna fækkun-
ar gripa og lítillar aukningar í
mjólkurframleiðslu, þannig að
plastnotkunin hafi ekki vaxið um-
talsvert. „Nær ekkert hefur verið
byggt af heygeymslum á undan-
förnum árum, því sem stendur sjá
menn ekki ástæðu til að byggja
hlöður,“ segir hann.
Aðspurður um hugsanlega meng-
unarhættu segir hann menn hafa
velt fyrir sér ýmsum möguleikum
við endurnýtingu plastsins, en það
hafi sýnt sig að það henti illa við
endurvinnslu sökum þess hversu
mikið hey og rusl verði eftir í því
og dýrt sé að hreinsa plastið. Hins
vegar komi til greina að nota það
við framleiðslu kubba í vörubretti
og á Akureyri sé þegar reynt að
nota hráefnið í því skyni.
Faríð að
lækna-
lögnm
AUÐUR Guðjónsdóttir, móðir
Hrafnhildar Thoroddsen, gagnrýnir
harðlega framgöngu landlæknis og
taugaskurðlækna gagnvart dr.
Zhang, kínverskum lækni sem gerði
aðgerð á dóttur hennar, í viðtali sem
birtist í sunnudagsblaðið Morgun-
blaðsins. Leitað var til Bjama
Hannesson, taugaskurðlæknis og
einn stjórnarmanna í heila- og
taugaskurðlæknafélagi íslands, og
sagði hann að félagið hafí sent fyr-
irspurn til landlæknis eins og þeim
beri að gera samkvæmt læknalög-
um, þar sem vakin var athygli á
aðgerðinni.
Að sögn Bjarna liggur úrskurður
landlæknis fyrir og eins og fram
hafi komið í viðtalinu við Auði, leit-
aði landlæknir eftir áliti Kristjáns
Ragnarssonar endurhæfingarlækn-
is, sem starfar í Bandaríkjunum,
en hann byggði sitt álit á viðtölum
við sérfræðinga í New York.
„Hvað gerðist í framhaldi af því
er ekkert sem við ráðum við,“ sagði
Bjarni. „Við vinnum ekki á Land-
spítalanum og höfum engin áhrif
þar.“
Vegna hugsanlegrar kæru á
hendur Sjúkrahúsi Reykjavíkur
vegna rangrar sjúkdómsgreiningar
og meðferðar sagði Bjarni að tauga-
skurðlæknar þar hafi aldrei tekið
þátt í meðferð á Hrafnhildi. Eins
og fram komi í viðtalinu hafi það
verið Halldór Jónsson læknir, sem
tók við meðferðinni fimm dögum
eftir slysið og leitaði hann aldrei
álits heila- og taugaskurðlækna.
„Ég get ekki borið neitt um með-
ferðina, ég þekki hana ekki,“ sagði
Bjarni.
Ólafur Ólafsson landlæknir vildi
ekki að svo stöddu svara gagnrýni
Auðar þegar leitað var til hans.
Unun semur við
breska útgáfu
Skrifað
undir á
Jökli
HUÓMSVEITIN Unun hyggst
undirrita á Snæfellsjökli út-
gáfusamning við erlenda út-
gáfu þann 23. júlí. Samningur-
inn felur í sér útgáfu á sex
breiðskífum á næstu 5-10 árum
og verulegar fjárupphæðir.
Að sögn Árna Benediktsson-
ar umboðsmanns Ununar er
samningurinn við breska fyrir-
tækið Go! Discs, undirmerki
risafyrirtækisins Polygram, af-
rakstur margra mánaða samn-
ingaumleitana og að á endan-
um hafí fyrirtækin Epic og Go!
Discs keppst um útgáfuréttinn.
Árni segir Unun hafa gengið
til liðs við Go! Discs vegna þess
að það fyrirtæki hafi boðið
hljómsveitinni mest frelsi til að
haga málum að vild.
Árni vildi ekki greina nánar
frá upphæð samningsins og
sagði að allar vangaveltur um
slíkt væru villandi þar sem end-
anleg útkoma færi eftir því
hvernig plötur hljómsveitarinn-
ar seldust erlendis.
Árni segir loks að væntan-
legur sé til landsins tíu manna
hópur starfsmanna Go! Discs
og breskra blaðamanna og sé
stefnt að því að fara með hann
vestur á Snæfellsnes og undir-
rita samninginn á Jökli.