Morgunblaðið - 09.07.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996 35
engu skilað í peningum.
• VM var í leiguhúsnæði og hafði
ekki greitt húsaleigu um alllangan
tíma. Eigandi húsnæðisins gerði
kröfu til þess að húsnæðið yrði
tafarlaust rýmt. Ef þrotabúið hefði
ætlað að efna til útsölu eða annarr-
ar sölustarfsemi í húsinu hefði að
sjálfsögðu þurft að greiða áfallna
húsaleiguskuld, sem var veruleg.
• Þið feðgar voruð búnir að ráð-
stafa Grattan-vörulistaumboðinu
út úr fyrirtækinu á greiðslustöðv-
unartímanum.
Það hefði við þessar aðstæður
verið fáránleg ákvörðun að efna
til verslunarstarfsemi á vegum
þrotabús VM. Allar forsendur að
baki þeirri ákvörðun minni að gera
slíkt ekki voru kynntar fulltrúum
helstu kröfuhafa og gerði enginn
þeirra nokkru sinni athugasemdir
við hana.
6. í blaðagreininni segir þú að
ég hafi haft skyldu til að greiða
þá kröfu lífeyrissjóðsins sem leiddi
til útgáfu ákæru á hendur ykkur
feðgum. Þetta er rangt. Skiptaráð-
andi hafði ekki heimiid til að greiða
af eignum búsins kröfur sem ekki
var lýst í þrotabúið.
7. Ég leyfi mér svo að minna
þig á þrennt, sem beinlínis sneri
að þér sjálfum og ég gekk í sjálfur
til að milda nokkuð áhrifin af þessu
gjajdþroti:
• Ég ákvað að þú skyldir eiga
þess kost að búa áfram í húsinu
að Hólastekk 6 í 12 mánuði eftir
upphaf skipta án þess að nokkur
leiga kæmi fyrir. Þessa ákvörðun
tók ég án þess að bera hana upp
við fulltrúa kröfuhafa, en þeir
gerðu aldrei athugasemd vegna
þessa.
• Ég fékk samþykki skiptafundar
fyrir því að ekki yrði hróflað við
innbúi á heimili þínu, en lögum
samkvæmt hefði andvirði þess að
öðrum kosti komið til skipta með
öðrum eignum.
• Ég fékk samþykki allra helstu
kröfuhafa við skiptin fyrir því að
þeir tækju úthlutunina úr þrotabú-
unum sem fullnaðargreiðslu á
kröfum sínum gagnvart þér per-
sónulega. Af því leiddi að ógreidd-
ar kröfur féllu niður gagnvart þér
en hefðu annars fylgt þér næstu
10 árin eftir lok skiptanna.
Eins og þú getur ráðið af fram-
angreindu er ég afar ósáttur við
þá framsetningu þína í umræddri
blaðagrein að ég hafi níðst á þér
eða ykkur feðgum við þessi skipti,
og raunar er mér hún óskiljanleg
í ljósi þeirra samskipta sem við
áttum meðan þau stóðu yfir og
einnig eftir að þeim lauk. Mér
finnst sjálfum að ég eigi það inni
hjá þér að þú biðjir mig afsökunar
á umfjöllun þinni um störf mín í
þessari blaðagrein.
Með kveðju,
Höfundur er fyrrverandi
skiptarádandi í Reykjavík.
Biddu um Banana Boat
sólmargfaldarann
el þú vilt verða sólbrún/n á mettíma i skýjaveíri.
□ Yfir 60 gerðir Banana Boat sólkrema, -olía,-gela,-úða,-salva
og -stifta m/sólvöm írá I til 150, eða um tvöfatt öflugri en
aðrar atgengar sólarvörur. Banana Boat sólarlinan er Iram-
leidd úr Aloa Vera, kollageni og elastini, jojoba, minkoliu,
banönum, möndlum, kókos, A, B, D og E vítamínum
□ Sértiönnuð sólkrem tyrir íþróttamenn. Banana Boat Sport
m/sólv, <15 og <30.
□ 99,7% hreint Banana Boat Aloe Vera gel (100%). Hvers
vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlitra af Aloe geli þegar þú
getur fengið sama magn af Banana Boat Aloe Vera geli á 700
kr? Eða tvöfatt meira magn af Banana Boat Aloe Vera geli á
1000 kr? An spírullnu, tilbúinna lyktarefna eða annarra ertandi
ofnæmisvalda.
Biddu um Banana Boat á sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv.
verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana
Boat E-gel fæst lika hjá Samtökum psoríasis og exemsjúklin-
9a.
Heilsuval - Barónsstíg 20 w 562 6275
SAGAN um faríse-
ann og tollheimtumann-
inn í helgidóminum er
ein þekktasta dæmisag-
an í Nýja testamennt-
inu.
Jesús segir þannig
frá, Lúkas 18:11-12:
„Faríseinn stóð og baðst
þannig fyrir með sjálf-
um sér: Guð, ég þakka
þér, að ég er ekki eins
og aðrir menn: ræningj-
ar, ranglætismenn, hór-
karlar eða þá eins og
þessi tollheimtumaður.
Ég fasta tvisvar í viku
og geld tíund af öllu,
sem ég eignast"
Á aðalfundi prestafélagsins, 28.
júní, síðastliðinn, var m.a. fjallað um
deilur í Langholtssókn og greidd
atkvæði um það hvort taka ætti af-
stöðu með sóknarprestinum. Morg-
unblaðið segir þannig frá, laugar-
daginn 29. júní 1996, bls. 35, hvern-
ig prestur: „bað starfsfélaga sína
um stuðning." „Ég er ekki hommi,
ég er ekki hórdómsmaður, ég er
ekki þjófur, ég er ekki fyllibytta.
Mér hefur ekki orðið á í störfum
mínum svo varðaði embættismissi.
Ég er prestur sem hef reynt að
rækja störf mín af þeim heiðarleika
sem guð hefur gefið mér. Ég fer
fram á að þið sýnið mér þá virðingu
að ég sé einn úr ykkar hópi, og þið
getið lýst því yfir að þið styðjið mig
sem prest og félaga
ykkar.“
Aðalfundur kvittaði
fyrir þessi orð með því
að samþykkja stuðn-
ingsyfirlýsingu við
prest með 26 atkvæð-
um á móti 6. í sama
Morgunblaði er greint
frá því að formaður
prestafélagsins hafi
verið endurkjörinn með
59 atkvæðum gegn 55,
þannig að þar tóku
minnst 114 þátt í at-
kvæðagreiðslunni.
Sumir gætu freistast
til þess að álykta, að
sá prestur, sem fyrir
stuttu taldi það ekki marktæka and-
stöðu við sig að 40% sóknarbarna
hans skrifuðu undir ósk um að hann
yrði látin víkja, teldi svona atkvæða-
greiðslu að litlu hafandi. Ég hef þó
ekki séð neinar slíkar yfirlýsingar.
Það er því líklegra að prestur telji
að atkvæðagreiðslan sýni að prestar
landsins styðji hann. Ekki skal ég
efna til deilu um það. Samþykkt
aðalfundar prestafélagsins hlýtur að
skoðast sem skoðun prestafélagsins,
þangað til önnur samþykkt er gerð.
Þótt mér sé það þvert um geð, verð
ég því að taka það trúanlegt að
prestar landsins standi með prestin-
um gegn okkur sóknarbörnum hans
og að þeir séu sammála honum um
það að hommar, hórdómsmenn, þjóf-
ar og fyllibyttur séu réttrækir úr
embætti.
Því skyldi ég, sem ekki tek neina
af framangreindum ávirðingum til
mín, taka til andsvara? Er það ekki
í lagi að prestar landsins telji rétt
að taka af hörku á fólki með aðra
kynhneigð en við flest? Það var rík-
ið en ekki kirkjan sem gaf fyrstu
hommana á íslandi í hjónaband
sömu dagana og prestastefna stóð.
Er það ekki líka í lagi að prestar
landsins telji að taka skuli hart á
þeim sem misstíga sig?
Nei. Það er ekki í lagi. Það er
ekki heldur í lagi að prestar telji
sjálfsagt að standa með presti gegn
söfnuði hans, óháð málavöxtum. Við
kristnir menn eigum kirkjuna sam-
Prestur sem getur ekki
unnið með söfnuði sín-
um, getur ekki, að mati
Asmimdar Stefáns-
sonar verið virkur þjónn
kirkjunnar.
an. Kirkjan er ekki eign prestanna
og hún á að vera samfélag hinna
umburðarlyndu.
Prestur sem getur ekki unnið með
söfnuði sínum, getur ekki verið virk-
ur þjónn kirkjunnar. Prestafélag sem
stillir sér upp í helgidóminum eins
og faríseinn, þarf að skoða hug sinn.
Við sem erum í þjóðkirkjunni hljót-
um að gera þá kröfu til þeirra sem
starfa fyrir okkur að þeir vilji vinna
með okkur og þeir gangi ekki fram
af hroka og fyrirlitningu.
Höfundur er framkvæmdastjóri
íslandsbanka.
AÐSENDAR GREINAR
Farísear o g
tollheimtumenn
Ásmundur
Stefánsson
í
Verið hagsýn og
komið tíí okkar
Blldshðlða 20-112 Reykjavík - Síml 587 1410
Eigum til góðar og
ódýrar töskur fyrir
sportið, sundið o.þ.h.
Fleiri litir til
Marqir litir