Morgunblaðið - 09.07.1996, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1996 45
SKAK
Elista
HEIMSMEISTARA
EINVÍGI FIDE
Heimsmeistaraeinvígi FIDE haldið
í Elista Rússlandi, höfuðborg sjálf-
stjómarlýðveldisins Kalmykíu 6.
júni - 14. júlí. Eftir að Kamsky
vann sextándu skákina á laugar-
daginn getur hann enn lifað í veikri
von um að jafna metin. Staðan eft-
ir þá skák: Karpov 9 ‘A v. Kamsky
6 ‘A v.
ÞAR sem Karpov þarf aðeins
einn vinning til viðbótar úr fjórum
skákum eru yfirgnæfandi líkur á
því að hann sigri. Eftir að hafa
lent í nánast vonlausri aðstöðu
2 '/2—6 ’A eftir níu skákir hefur
Kamsky klórað í bakkann og það
ætlar að verða meira en formsatr-
iði fyrir Karpov að Ijúka einvíginu.
Þær fréttir berast frá Elista að
mótið hafi farið nokkuð skikkan-
lega fram, nema hvað Rustam
Kamsky, faðir Gata, hefur verið
til talsverðra vandræða eins og
svo oft áður. Það hefur gengið á
með klögumálum og hótunum og
formaður dómnefndar, Norðmað-
urinn Morten Sand hefur fengið
ærinn starfa. M.a. kvartaði Rust-
am undan því að einvígið væri
aðeins 20 skákir, það dygði ekki
til að Kamsky næði að vinna for-
skotið upp og ætti því að lengja
það upp í 24!
Einn aðstoðarmanna Kamskys,
bandaríski stórmeistarinn John
Fedorowicz, fór heim eftir níu
skákir, hafði fengið nægju sína
af Rustam. Hann telur föðurinn
spilla mjög fyrir möguleikum
áskorandans með ráðríki sínu.
Sagði hann Rustam meira að
segja fá að ráða því hvaða byijan-
ir sonurinn veldi, þótt hann sé
sjálfur rétt rúmlega manngangs-
maður.
Áhugi á einvíginu var orðinn
Kamsky heldur í
veika von
lítill eftir þessa miklu
yfirburði Karpovs í
fyrri hlutanum. En
Kamsky minnkaði
muninn í tíundu skák-
inni og næstu þremur
lauk með jafntefli.
Kamsky missti af
gullnu tækifæri í
þrettándu skákinni
eftir að Karpov lék
herfilega af sér í
betra endatafli. Hann
nýtti það ekki og
Karpov jók bilið aftur
með sigri í þeirri ijórt-
ándu. Eftir jafntefli 1
fimmtándu skákinni,
sl. fimmtudag tókst
Kamsky síðan að vinna sigur í
sextándu skákinni. Við skulum
líta á tvo laglega sigra Kamskys
í tíundu og sextándu skákunum:
10. einvígisskákin:
í þessari skák tókst Kamsky
snemma að flækja taflið og
Karpov treysti sér ekki til að
hróka en geymdi kónginn á mið-
borðinu. Þarna tókst áskorandan-
um að finna snöggan blett á stíl
FIDE heimsmeistarans: Hvítt:
Gata Kamsky
Svart: Anatoly Karpov
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
b6 4. a3 - Bb7 5. Rc3 - d5 6.
cxd5 - Rxd5 2. Bd2 - Rd7 8.
Dc2 - c5 9. Rxd5 - exd5 10.
dxc5 - bxc5 11. e3 - Be7 12.
Bd3 - g6 13. h4 - Db6 14. h5
- Bf6 15. Hbl -
Hc8?!
Eftir þennan óná-
kvæma leik nær
Kamsky sterku
frumkvæði. Hér
hefði svartur líklega
átt að langhróka.
16. Da4 - Bc6 17.
Dg4 - Bb5
Hér hefði svartur
átt að freista gæf-
unnar með 17. -
Db3! og hefur þá
mótspil.
18. Bc2! - a5 19.
hxg6 - hxg6 20.
Hxh8+ - Bxh8 21.
Rg5! - Bf6 22. a4
- Bc6 23. Kfl - Ke7 24. e4 -
Da6+ 25. Kgl - Re5 26. Df4 -
d4 27. Rh7 - Bh8 28. Dh4+ -
f6 29. f4 - Rd7 30. Hel - Dc4
31. Bbl - Kd6
STÖÐUMYND I
32. e5+! - fxe5 33. fxe5+ -
Rxe5 34. Bf4 - Dd5 35. Be4 -
De6 36. Rg5 - De7 37. Bxc6 -
Kxc6 38. Bxe5 - Bxe5 39. De4+
- Kd6 40. Dxg6+ - Kc7 41.
Re6+ - Kd6 42. Rf4+ - Df6
43. Dxf6+ - Bxf6 44. He6+ -
Kd7 45. Hxf6 - Hb8 46. Rd3 -
c4 47. Re5+ - Ke7 48. Hf4 -
Hxb2 49. Rxc4 - Hb4 50. Hxd4
- Hxa4 51. Kf2 - Ha2+ 52.
Kf3 - a4 53. Re3 - Ke6 54.
Ke4 - Hal 55. g4 - Ke7 56.
Hd5 - Kf6 57. Ha5 - Kg6 58.
Kf4 - Kf7 59. Ha6 og Karpov
gafst upp.
16. skákin
í þessari skák tókst Kamsky
að leggja FIDE heimsmeistarann
að velli með hans eigin vopnum.
Karpov kom með nýjung gegn
eigin uppáhaldsafbrigði í 23. leik,
en hún reyndist gjörsamlega van-
hugsuð. Kamsky vann peð með
einfaldri fléttu og skákina um síð-
ir.
Hvítt: Gata Kamsky
Svart: Anatólí Karpov
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
b6 4. g3 - Ba6 5. b3 - Bb4+
6. Bd2 - Be7 Bg2 - c6 8. Bc3
- d5 9. Re5 - Rfd7 10. Rxd7 -
Rxd7 11. Rd2 - 0-0 12. 0-0 -
Hc8 13. e4 - c5 14. exd5 -
exd5 15. dxc5 - dxc4 16. c6 -
cxb3 17. Hel - Bb5 18. axb3 -
Bxc6 19. Bxc6 - Hxc6 20. Hxa7
- Bf6 21. Rc4 - Bxc3 22. Hxd7
- Df6 23. He4 - Df5?
Kamsky
gefst aldrei upp
STÖÐUMYND II
Illa ígrunduð nýjung Karpovs.
Áður hefur hér verið leikið 23. -
He6, en einnig í því tilviki eru
möguleikar hvíts betri.
24. Hf4 - De6 25. Hdxf7 - He8
26. Df3 - Bf6 27. Hb7 - h6 28.
Kg2 - Kh8 29. h4 - Kg8 30.
Kh2 - Kh8 31. Dh5 - Hd8 32.
Hf7 - Bd4 33. Hf8+ - Hxf8
34. Hxf8+ - Kh7 35. Df3 - Bc5
36. Hf5 - Hc8 37. h5 - Hd8
38. He5 - Dd7 39. De4+ - Kh8
40. Kg2 - Hf8 41. f4 - Hd8
42. Df3 - Bd4 43. He2 - b5 44.
Rd2 - Bb6 45. Re4 - Ddl 46.
Rf2 - Dbl 47. Rg4 - Df5 48.
Re5 - Kg8? 49. Rc6 og Karpov
gafst upp.
Ólympíuliðið valið
Stjórn Skáksambapds íslands
hefur valið landslið íslands sem
fer á Olympíuskákmótið I Arme-
níu sem hefst 15. september: 1.
borð Margeir Pétursson SM 2.570,
2. borð Jóhann Hjartarson SM 2.565,
3. Hannes Hlífar Stefánsson SM
2.560, 4. Helgi Ólafsson SM 2.500,
lv. Þröstur Þórhallsson AM 2.480,
2v. Helgi Áss Grétarsson SM 2.465.
Liðsstjóri verður Ágúst Sindri
Karlsson, lögmaður, en auk þess
verður Gunnar Eyjólfsson, leikari,
með í för eins og á Ólympíumótun-
um 1990 og ’92. Fararstjóri verð-
ur Andri_ Valur Hrólfsson, vara-
forseti SÍ.
Margeir Pétursson
BRIPS
U m s j ð n
Arnór G. Ragnarsson
Sumarbrids 1996
Mánudaginn 1. júlí spiluðu 24 pör
tölvureiknaðan Mitchell tvímenning.
Spilaðar voru 10 umferðir með 3 spil-
um á milli para.
Meðalskor var 270 og efstu pör
voru:
NS:
Guðbjörn Þórðarson - Guðmundur Baldursson 328
Björn Theódórsson - Ragnar S. Halldórsson 317
Baldur Kristjánsson - Hlynur Garðarsson 314
Randver Ragnarsson - Guðjón Svavar Jensen 295
AV:
Helgi Sigurðsson - ísak Öm Sigurðsson 329
Halldór Þorvaldsson - Baldur Bjartmarsson 319
Gunnar Þórðarson - Guðmundur Gunnarsson 318
Jón V. Jónmundsson - Hermann Friðriksson 288
Þriðjudaginn 2. júlí var góð þátt-
taka. 30 pör spiluðu 15 umferðir með
2 spilum á milli para.
Meðalskor var 420 og efstu pör
voru:
NS:
Guðbjörn Þórðarson - Hermann Friðriksson 489
Erla Siguijónsdóttir - Sigurður Siguijónsson 480
Ormarr Snæbjömsson - Eyjólfur Magnússon 464
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 459
AV:
RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 490
Maria Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 484
Hannes Sigurðsson - Gísli Halldórsson 458
Una Árnadóttir - Kristján Jónasson 452
Miðvikudaginn 3. júlí spiluðu 24 pör
tölvureiknaðan Mitchell tvímenning.
Spilaðar voru 10 umferðir með 3 spil-
um á milli para. Meðalskor var 270
og efstu pör voru:
N/S-riðill
Eggert Bergsson - Tómas Siguijónss. 340
ÓlafurLárusson-HermannLárusson 335
Bjöm Svavarsson - Svavar Bjömsson 328
Guðbjöm Þórðarson - Hermann Friðriksson 306
A/V-riðill
Baldur Bjartmarsson - Halldór Þorvaldsson 337
ÞorsteinnBerg-ÓmarOlgeirsson 332
Þórður Bjömsson - Erlendur Jónsson 314
Páll Þór Bergsson - Sveinn Sigurgeirsson 300
Fimmtudaginn 4. júlí var spilaður
Mitchell tvímenningur. 18 pör spiluðu
9 umferðir með 3 spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og bestum árangri
náðu:
N/S-riðill
IngiAgnarsson-AronÞorfmnsson 265
Jón Viðar Jónmundsson - Agnar Kristinsson 249
HallaÓlafsdóttir-IngaBemburg 240
Guðrún Jóhannesd.—Vilhjálmur Sigurðsosn jr. 220
A/V-riðill
Guðlaugur Sveinsson - Páll Þór Bergsson 250
Páll Valdimarsson - Steinberg Rikarðsson 246
Sigfús Þórðarson - Þórður Sigurðsson 245
Ari Konráðsson - Kjartan Ingvarsson 222
Æsispennandi keppni um
vikummeistarann
Guðbjörn Þórðarson er með góða
stöðu í vikukeppninni en þeir Baldur
Bjartmarsson og Halldór Þorvaldsson
koma næst á eftir honum. Vikumeist-
ari þessarar viku er boðið út að borða
ásamt öðrum á veitingahúsið Argent-
ínu steikhús. Staðan í vikukeppninni
er þannig:
Bronsstig
1. Guðbjörn Þórðarson 56
2. -3. Baldur Bjartmarsson 40
Halldór Þorvaldsson 40
4.-6. Hermann Friðriksson 32
Ragnar Briem 32
Þóranna Pálsdóttir 32
Spilamennska í Sumarbrids 1996
hefst kl. 19 sex daga vikunnar (ekki
laugardaga) og er spilað í húsnæði
Bridssambandsins að Þönglabakka 1,
3. hæð. Á sunnudagskvöldum verður
spilaður Monrad-Barómeter ef þátt-
taka fæst en annars hefðbundinn Ba-
rómeter. Aðra daga er Mitchell-tví-
menningur. Spilin eru alltaf forgefin.
Keppnisstjórar eru Sveinn R. Eiríks-
son og Matthías G. Þorvaldsson og
taka þeir vel á móti öllum spilurum.
Reynt er að hjálpa til við myndun para.
LYFTARAR
VERKVER
Smiðjuvegi 4b • 200 Kópavogur • 7T 507 6620
bis -systeme Laufenberg
’ Gott úrval skurðarhnífa
• Þýsk
k.
NORRÆNI FJÁRFESTINCARBANKINN, NIB, er
fjölþjódleg lánastofnun í eigu Nordurlandanna
fimm. Bankinn veitir lán á vidskiptalegum kjör-
um til fjárfestingarverkéfna innan Nódurlana og utan, þar sem
um norræna hagsmuni er ad ræda. NIB hefur hæsta mögulega
lánshæfi, AAA/Aaa, og aflar lánsfjár med lántökum á norrænum
og alþjódlegum fjármálamörkudum.
Nidurstödutala efnahagsreiknings bankans var í lok sidasta árs um
8 miljardar ECU. Starfsmenn eru rúmlega 100 og frá öllum
Nordurlöndum. Adalskrifstofa bankans er í Helsingfors en hann-
hefur auk þess markadsskrifstofur í ödrum norrænum höfudborg-
um og skrifstofu i Singapore.
Starfsemi fjármáladeildar NIB felur m.a. í sér ad:
- afla langtímalána á alþjódlegum og norrænum fjármagnsmör-
kudum. Lántökuáætlunin fyrir 1996 nemur um 2 miljördum
ECU.
- adstoda og starfa útlánadeildum bankans í tengslum vid lánveit-
ingar.
- stýra lausafé bankans, sem er um 2 miljardar ECU, bædi hvad
vardar fjárfestingu á reídufé og skammtímalán á millibanka- eda
peningamarkadi, m.a. með útgáfu bankabréfa í Evrópu og
Bankarikjunum.
- hafa umsjón með ávöxtun eigin fjár bankans, sem er um 1 mil-
jardur ECU, bædi á fjármagns- og peningamörkudum.
- girda fyrir gengis- og vaxtaáhættu og stýra vaxtanæmi eiginfjár-
verdbréfasafnsins, m.a. á afleidslumarkadi, og þá adallega skipti-
markadi (swap).
NIB leitar nú að framúrskarandi
FJÁRMÁLASTJÓRA
Fjármálastjórinn er í forsvari fyrir fjármáladeild NIB
þar sem nú starfa 17 manns. Starfið heyrir beint
undir aðalbankastjóra NIB og fjármálastjórinn á sæti
í framkvæmdanefnd bankans, lánanefnd og fjármála-
nefnd.
Skilyrt er að fjármálastjórinn hafi langa og viðeigandi
reynslu af lántökum og fjármálaumsýslu á alþjóð-
legum fjármagnsmörkuðum, stjórnunarreynslu og
góða málakunnáttu.
Boðið er upp á krefjandi og áhugavert starf f alþjóð-
legu bankaumhverfi og samkeppnishæf starfskjör.
Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurðsson, aðalbankastjóri í síma +358 0 18001.
Umsóknir og æviágrip þurfa að hafa borist fyrir 2.ágúst 1996 til NORDISKA INVESTERINGSBANKEN,
Carola Lehesmaa, PB 249, FIN-00171 HELSINGFORS, FINLAND.
NORRÆNI FJÁRFESTINGARBANKINN