Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Borgarlistasafn
Björgvinjar
Gunnari
boðin staða
forstöðu-
manns
GUNNARI Kvaran, forstöðu-
manni Kjarvalsstaða, hefur
verið boðið að taka við stöðu
forstöðumanns í Borgarlista:
safni Björgvinjar í Noregi. Í
samtali við Morgunblaðið
sagði Gunnar að viðræður
stæðu yfir um ráðningu hans
til safnsins.
„Það hefur verið samþykkt
í menningar-
málanefnd
Björgvinjar að
ganga til
samninga við
mig um fram-
tíðarráðn-
ingu,“ sagði
Gunnar í sam-
tali VÍð Morg- Gunnar
unblaðið. „Eg Kvaran
mun fara utan innan tíðar og
ræða málin við þá.“
Borgarlistasafnið í Björg-
vin, eða Bergen kommunes
kunstsamlinger, samanstend-
ur af þremur söfnum; Bergen
billedgalleri, Rasmus Meyers
samlinger og Stenersens saml-
ing. í eigu safnsins er bæði
fjöldi norskra verka frá nítj-
ándu og tuttugustu öld, meðal
annars eftir Edvard Munch,
og alþjóðlegra verka, einkum
frá þessari öld, svo sem eftir
Paul Klee, Picasso og lista-
menn af Parísarskólanum svo-
kallaða.
Morgunblaðið/Halldór
Hvassaleit-
isskóli fékk
Skrekk
HÆFILEIKAKEPPNI grunn-
skóla var haldin í Laugardals-
höll í gær og var þetta í sjöunda
sinn sem hún var haldin. Innan
skólanna voru haldnar forkeppn-
ir, en bestu atriðin frá hverjum
skóla voru með í lokakeppninni.
Sigurvegarinn var fulltrúi
Hvassaleitisskóla, Sveinbjörg
Pétursdóttir, og fékk hún að
launum verðlaunastyttuna
Skrekk. Mikill fögnuður braust
út meðal skólafélaga hennar þeg-
ar dómnefndin kynnti niðurstöðu
sína.
-----♦ ♦ ♦
Undirstöð-
ur Skeið-
arárbrúar
komnar
STRAUMUR er aftur kominn á
byggðalínu Landsvirkjunar á Skeið-
arársandi. Upphaflega var talið að
viðgerðin gæti tekið þijár vikur, en
linuflokki Landsvirkjunar og verk-
tökum tókst að ljúka henni á tveim-
ur vikum. Alls eyðilögðust 24 stæð-
ur I hlaupinu og er tjónið metið á
54 milljónir króna.
Lokið var við að setja nýjar undir-
stöður undir Skeiðarárbrú í gær.
Að sögn Einars Hafliðasonar, yfir-
verkfræðings hjá Vegagerðinni, á
enn eftir að ganga frá vatnaveiting-
um, gijótvörn og slóðum milli
Skeiðarár og Gígju. Mikið rok var
á sandinum í gær og urðu menn
sem voru þar að störfum svartir I
framan af leimum úr hlaupinu.
Lokið verður við fyrri áfanga
brúar yfír Gígju á morgun en þann
síðari eftir helgi. „Það verður orðið
fært fyrir alla bíla í síðasta lagi
fyrir mánaðamót," segir Einar.
„Við viljum ekki fá neina umferð
fyrr. Það hefur verið farið yfír Gígju
á jeppum, en þó hún sé vatnslítil
er botninn laus. Við erum bundnir
í öðrum verkum og getum ekki stað-
ið í því að hjálpa mönnum upp úr.
Leiðin milli Skeiðarár og Gígju er
rétt fær jeppum, en bílarnir geta
farið illa.“
Vilja skip-
stjórann
í land
ÁÆTLAÐRI brottför togarans
Skafta frá Sauðárkróki var frestað
um sólarhring í gær eftir að níu
skipveijar gengu frá borði. Krefjast
þeir þess að skipstjórinn verði sett-
ur af.
Sjómennirnir saka skipstjórann
um að hafa misfarið með starfs-
mannasjóð sem var í vörslu hans
og einnig kost skipsins. Jafnframt
hafa þeir kvartað eindregið undan
langvarandi misbrestum í samskipt-
um sínum við skipstjórann.
Um mál þessi var fjallað á félags-
fundi í sjómannadeild verkalýðsfé-
lagsins Fram í gærkvöldi og var
þar samþykkt ályktun um fullan
stuðning við sjómennina og ósk um
fund með stjómarmanni og fram-
kvæmdastjóra Fiskiðjunnar til þess
að leita lausnar á deilunni. Skipveij-
ar á öðrum skipum Fiskiðjunnar
Skagfirðings sem eru í höfn hafa
lýst yfir vilja til samúðaraðgerða.
Sjómennirnir hafa fjarlægt fögg-
ur sínar frá borði til að leggja
áherslu á kröfur sínar.
Gagnrýni stj órnarþingmanns á frumvarp um Landsvirkjun
í mótsögii við stefnu
ríkisstj órnarinnar
EINAR Oddur Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisfiokks, gagn-
rýndi harðlega frumvarp ríkis-
stjórnarinnar um breytingar á lög-
um um Landsvirkjun, sem Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra mælti
fyrir á Alþingi I gær.
Að mati Einars Odds er frum-
varpið í mótsögn við þá stefnu sem
hann telur ríkisstjómina hafa sett
sér, sem miðar að innleiðingu sam-
keppni á sem flestum sviðum efna-
hagslífsins, og jafnframt í mótsögn
við niðurstöður nefndar sem iðnað-
arráðherra skipaði til að vinna að
tillögum um stefnumörkun í raf-
orkuiðnaði og orkumálum, sem
einnig leggi til að samkeppni verði
innleidd í íslenzkan orkubúskap.
Frumvarpið er lagt fram í fram-
haldi af samningi þeim sem eignar-
aðilar Landsvirkjunar gerðu 28.
október sl. um endurskoðun á
eignarhaldi, rekstrarformi og hlut-
verki Landsvirkjunar. Sá samning-
ur var saminn af sérstakri við-
ræðunefnd eignaraðilanna, sem
eru Reykjavíkurborg, Akureyrar-
bær og ríkið. Frumvarpið byggist
á niðurstöðum viðræðunefndarinn-
ar, sem lagði til að rekstrarform
Landsvirkjunar yrði óbreytt að
sinni, en fyrir 1. janúar 2004 fari
fram athugun á því hvort ástæða
sé til að stofna hlutafélag um fyrir-
tækið. Þá var lagt til að sett yrðu
sérstök arðgjafar-, gjaldskrár- og
arðgreiðslumarkmið fyrir Lands-
virkjun, fækkað í stjórn fyrirtækis-
ins o.fl.
„Óbreytt skipan
treyst í sessi“
Einar sagði frumvarpið „nær
eingöngu til þess fallið að treysta
í sessi þá skipan sem hér er og
hefur verið, sem er einokun á heild-
sölu á rafmagni." Einar sagði
orkuverð hér of hátt, vegna einok-
unarinnar, og það skaðaði sam-
keppnishæfni íslendinga. Einar
vísaði til tillagna nefndar iðnaðar-
ráðherra um stefnumörkun í orku-
málum, sem gengju út á að sam-
keppni skyldi innleidd I orkufram-
leiðslu hér á landi. Einar lýsti þeirri
sannfæringu sinni, að einokunar-
fyrirtæki í eigu opinberra aðila
verði alltaf óhagkvæmt í rekstri.
Iðnaðarráðherra tók í andsvari
sínu undir sjónarmið ofangreindrar
nefndar um að í áföngum skuli
innleiða samkeppni í orkugeiran-
um, en vísaði því á bug, að þær
breytingar sem fyrirhugað væri að
gera á skipulagi Landsvirkjunar
gengju þvert á slíkar hugmyndir.
„Þær eru áfangi á þeirri leið,“
sagði ráðherra, en bætti við, að
„það verður ekki hægt á einni
nóttu að innleiða samkeppni í orku-
geiranum." Þær umfangsmiklu
skipulagsbreytingar sem gera
þyrfti krefðust undirbúningstíma,
sagði ráðherrann.
Landsvirkjun rædd í borgarsljórn
Samkomulag eig-
enda samþykkt
BORGARSTJÓRN samþykkti í gær-
kvöldi samhljóða samkomulag eig-
enda Landsvirkjunar um breytingar
á rekstrarfyrirkomulagi fyrirtækis-
ins. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, sagði að pólitísk sátt
hefði tekist um breytingar og mark-
mið borgarinnar að njóta eðlilegs
arðs af eign sinni gengið eftir.
Gunnar J. Birgisson, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokks, telur sam-
komulagið ganga í berhögg við tillög-
ur nefndar um framtíðarskipulag
orkumála. Sagði hann borgaryfirvöld
hafa gefíst upp við að koma á virkri
samkeppni í orkuvinnslu með því að
skipta upp Landsvirkjun og greina
að orkuvinnslu og flutning.
Borgarstjóri fullyrti að pólitísk
sátt hefði aldrei tekist við núver-
andi aðstæður um jafnróttækar hug-
myndir og að gera fyrirtækið að
hlutafélagi, hvorki á Alþingi né í
borgarstjóm. „Verið er að stíga
ákveðið skref í þá átt að breyta til
á raforkumarkaðinum og laga
rekstrarfyrirkomulag Lands-
virkjunar að því sem gerist með
fyrirtæki á almennum markaði,"
sagði hún.
I bókun sjálfstæðismanna segir
að tekist hafí að nálgast það lang-
tímamarkmið að breyta Landsvirkjun
í hlutafélag. Hvöttu þeir til þess að
vinnu við að gera fyrirtækið að hluta-
félagi yrði hraðað.
Meirihlutinn vísaði á bug gagnrýni
sjálfstæðismanna um slælega máls-
meðferð. Borgarstjóri sagði að báðar
fylkingar í borgarstjóm hefði átt
fulltrúa í viðræðunefnd um endur-
skoðunina.
Hvolsvöllur
Tækiog
geisla-
diskar
hurfu
TALSVERÐUM verðmætum
var stolið í innbroti í Félags-
miðstöð Hvolhrepps á Hvols-
velji í fyrrinótt.
í Félagsmiðstöðinni er m.a.
miðstöð unglingastarfs í
hreppnum. Stolið var 33“
Kolster-sjónvarpstæki, tvö-
földum geislaspilara, mynd-
bandstæki, hljóðblöndunar-
tæki og tugum geisladiska.
Innbrotið uppgötvaðist um
kl. 11 í gær. Spenntur hafði
verið upp gluggi á bakhlið
hússins og sprengdar upp
hurðir inni. Ekki er vitað
hveijir voru að verki.
I
1
í
I
\
i
I
L
f