Morgunblaðið - 22.11.1996, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAPIÐ
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
BUIÐ er að sameina skrifstofur Fiskiðjusamlags Húsavikur og
Höfða og setja upp nýtt skipurit fyrir sameinaða félagið.
Nýtt skipurit Fiskiðjusamlags Húsavíkur
Aukin ábyrgð og
sjálfstæði stjóm-
enda deilda
UR VERIIMU
Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra
U mhverfisvænir
skattar komi í stað
annarra skatta
STJÓRNENDUR Fiskiðjusamlags
Húsavíkur hf. hafa ákveðið nýtt
stjórnskipulag fyrir fyrirtækið eftir
sameiningu við útgerðarfélagið
Höfða hf. og kynnt það fyrir starfs-
fólki. Skrifstofur fyrirtækjanna
hafa verið sameinaðar og segir Ein-
ar Svansson framkvæmdastjóri að
í stjórnskipulaginu sé reynt að
tvinna saman stjórnkerfin og nýta
starfsfólk beggja félaganna eins og
mögulegt er.
Fiskiðjusamlaginu er skipt upp í
þrjú svið, fjárhags- og upplýsinga-
svið, framleiðslusvið og útgerðar-
svið. Athygli vekur að ekki er sér-
stakur framleiðslustjóri en fram-
kvæmdastjórinn gegnir sjálfur því
hlutverki. Undir það svið heyra
rækjuvinnsla og bolfiskvinnsla, auk
stoðdeilda. Rekstrarstjórar eru yfír
hvorri framleiðsludeild. Einar segir
að þetta sé nokkur áherslubreyting,
svipuð og sést hefur í sambærileg-
um fyrirtækjum, til þess gerð að
auka ábyrgð og sjálfstæði stjóm-
enda þessara mikilvægu deilda.
„Með þessu er stjórnkerfíð gert flat-
ara, færri milliliðir og styttri boð-
leiðir. Við höfum unnið á þennan
hátt frá því í september og það
hefur sýnt sig að skipulagið virkar
vel og er markvisst," segir Einar.
Frystitogararnir Kolbeinsey og
Júlíus Havsteen heyra undir útgerð-
arsvið ásamt bátnum Kristey og
netagerðarverkstæði.
Helmingurinn
rússaþorskur
Áætluð velta Fiskiðjusamlagsins
er tveir milljarðar kr. Helmingur
af tekjunum er frá rækjuvinnsl-
unni. Þar eru keyrðar tvær átta
tíma vaktir, 5-6 daga vikunnar. Á
hvorri vakt eru 20 menn sem skila
hálfum milljarði kr. í brúttótekjur,
eða svipaðri fjárhæð og stærstu
frystitogarar. Bolfískvinnslan veltir
um 300 milljónum og útgerðarsvið-
ið hátt í 700 milljónum kr.
Um það bil helmingur af hráefni
bolfískvinnslunar, um 1.000 tonn á
ári, er keyptur af heimabátum og
á fiskmörkuðum. Er það gert til að
vinna upp í samninga við belgíska
verslunarkeðju. Hinn helmingurinn
er rússaþorskur. Erfíðleikar hafa
verið í sölu á rússaþorski og oft
hátt hráefnisverð. Hráefnisverðið
hefur hins vegar lækkað nokkuð
og íslenskar sjávarafurðir hafa gert
samning við stórt bandarískt dreif-
ingarfyrirtæki um sölu tvífrysta
físksins. Einar Svansson segir þetta
jákvæða þróun, sérstaklega af því
fyrirtækinu hafi gengið vel að fram-
leiða hnakkastykki og aðrar dýrari
afurðir úr rússafíski. Hann segir
að samkvæmt lögmálum markaðar-
ins ætti hráefnisverðið að fara
áfram lækkandi, vegna aukinna
kvóta í Barentshafi, en tekur fram
að erfítt sé að spá í þróunina eystra.
Viljum verða trúverðugir
Stjórn Fiskiðjusamlagsins ætlar
að fara með hlutabréf félagsins á
almennan markað. Meðal annars í
þeim tilgangi keypti félagið sjálft
liðlega 10% hlutafjár af Húsavík-
urbæ til þess að bærinn hefði ekki
meirihluta. Ekki hefur verið ákveð-
ið hvernig eða hvenær bréfín verða
seld aftur. Einar segir hugsanlegt
að bjóða einhvern hluta þeirra til
sölu á Húsavík.
Telur hann ekki rétt að hefja
mikil viðskipti með bréfin fyrr en
eftir aðalfund sem fyrirhugaður er
um miðjan desember. Þá verði af-
koma síðasta starfsárs kynnt, en
rekstrarárið miðast við kvótaárið,
og megi búast við slakri afkomu
því rækjuverðslækkunin komi öll á
þetta tímabil. „Við viljum að þessir
hlutir séu uppi á borðinu ásamt
skýringum okkar og áætlunum fyr-
ir yfirstandandi rekstrarár, áður en
bréfín fara á markað. Við viljum
verða trúverðugir á markaðnum,"
segir Einar.
GUÐMUNDUR Bjarnason, um-
hverfisráðherra, sagði á Fiskiþingi
í gær koma til greina að breyta
skattaáherslum í þágu umhverfís-
verndar án þess þó að auka skatt-
heimtuna frá því sem nú er. Ekki
síst væri mikilvægt hér á landi að
gott samstarf skapist á milli sjáv-
arútvegsins og þeirra, sem hefur
verið falið að treysta framgang
úrbóta í umhverfismálum. Ekki
væri hinsvegar svo að skilja að
ætlunin væri að boða einhvern
sérstakan skógræktarskatt á sjáv-
arútveginn.
Umhverfisráðherra sagði að á
ráðstefnunni í Rio de Janeiro hafi
náðst samstaða um almenna
grundvallarreglu um að einstök
ríki skuli stuðla að því að tillit sé
tekið til umhverfiskostnaðar og
að hagrænum stjórntækjum sé
beitt með hliðsjón af því að meng-
unarvaldur skuli bera kostnað af
mengun með tilhlýðilegu tilliti til
almenningshagsmuna og án þess
að raska alþjóðaviðskiptum og
fjárfestingu. „Þessi grundvallar-
regla er höfð að leiðarljósi í nýleg-
um lögum um spilliefni og það er
stefna umhverfisráðuneytis að
beita þessari reglu í enn ríkari
mæli í framtíðinni. Víða í ná-
grannalöndunum fer fram mikil
umræða um að leggja aukna
áherslu á umhverfisskatta er komi
í stað annarra skatta. Ætla má
að á næstu árum sjáum við ýmsar
breytingar í þessa veru. í sam-
vinnu umhverfís- og fjármálaráðu-
neyta er nú fylgst með þessari
umræðu og þeim athugunum, sem
gerðar hafa verið erlendis á áhrif-
um slíkra breytinga á efnahagslíf-
ið.“
Koldíoxíðlosun
minnkuð um 50%
Guðmundur sagði að þó mikið
hafi áunnist á undanfömum árum
til að tryggja verndun hafsins,
væri ljóst að enn væru mörg verk
óunnin. „Áfram þarf að vinna að
því að takmarka ósóneyðandi efni,
bæði í skipum og á landi með því
að taka í notkun staðgengla sem
skaða ósónlagið minna og valda
ekki öðrum umhverfisspjöllum. Nú
virðist sem það ætii að takast að
ná markmiðum samningsins og
þess er vænst að gangi það eftir
verði ósónlagið um miðja næstu
óld aftur í eðlilegu ástandi. En
áfram verður að fylgjast vel með
framkvæmd samningsins, bæði
hér heima og erlendis, til að
tryggja að sá árangur náist. Þess
má geta að enn hafa menn nokkr-
ar áhyggjur vegna þess að samn-
ingurinn er enn ekki kominn til
framkvæmda í mörgum þróunar-
löndum. Hér á landi eru skipin
stærsti notandi ósóneyðandi efna
og því er ábyrgð sjávarútvegs
mikil á því sviði.
Okkar bíður mikið og erfítt starf
svo að tryggja megi að markmið
rammasamnings Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar náist.
Óvíða verða áhrif loftslagsbreyt-
inga meiri en á norðurhjara og
m.a. er talið að þau geti haft áhrif
á hafstrauma. Á heimsvísu þarf
að draga úr losun koldíoxíðs um
meira en 50% frá núverandi notk-
un ef takast á að koma í veg fyr-
ir hættulegar breytingar á loft-
slagskerfinu.
Ábyrgð sjávarút-
vegs er mikil við-
víkjandi mengun
Samningaviðræður fara nú
fram um leiðir til að styrkja samn-
inginn enn frekar. Það skiptir
sköpum um framtíðarlífsskilyrði á
jörðinni að þær samningaviðræð-
ur, sem ætlunin er að ljúka í lok
næsta árs, gangi vel. Ríkisstjórnin
hefur samþykkt áætlun um að-
gerðir og um ráðstafanir til að
draga úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda hér á landi í samræmi við
núverandi samning. í kjölfar
samningaviðræðnanna er þess að
vænta að við íslendingar þurfum
að grípa til enn víðtækari aðgerða
á þessu sviði,“ sagði Guðmundur.
Sjávarútvegurinn
fjármagni verkefni
í máli hans kom einnig fram
að brennsla á olíu væri helsta
uppspretta gróðurhúsalofttegunda
hér á landi sem og annars staðar.
„Losun fiskiskipa nemur í dag um
þriðjungi losunar koldíoxíðs á ís-
landi og hefur farið vaxandi á
undanförnum árum. Það er óhjá-
kvæmilegt að draga úr losun koldí-
oxíðs vegna fiskveiða á næstu
'árum og áratugum. Því fyrr sem
okkur tekst að bæta orkunýtingu
og draga úr losun koldíoxíðs í sjáv-
arútvegi, því betra. Það verður að
tryggja gott samstarf á milli hags-
munaaðila og stjórnvalda til að
leita leiða til að leysa þennan
vanda.
í þessu sambandi langar mig
að nefna að nú er verið að vinna
að áætlun um aðgerðir til að auka
bindingu koldíoxíðs í gróðri á ís-
landi. Eg vil nota tækifærið til að
benda á að það gæti orðið fýsileg-
ur valkostur fyrir sjávarútveg að
taka þátt í því að fjármagna verk-
efni á þeim vettvangi í stað þess
að leggja í kostnaðarsamar tækni-
legar aðgerðir til að draga úr olíu-
notkun á meðan tækni til þess
hefur ekki verið þróuð.“
Þjóðgarðar verði
stofnaðir í hafinu
Ráðherrann sagði að alþjóðleg
umræða og aðgerðir tengdar frið-
un sjávardýra, eins og hvala, hefðu
valdið nokkrum áhyggjum. Af-
staða fjölmargra alþjóðlegra um-
hverfísverndarsamtaka, sem oft
og tíðum byggðist fremur á tilfínn-
ingum eða misskilningi í stað vís-
indalegrar þekkingar, hefði og
myndi í framtíðinni geta skaðað
hagsmuni Islendinga. „Við megum
ekki sitja undir slíkum málflutn-
ingi aðgerðarlaus. Eina færa leiðin
er, að mínu mati, að kynna af-
stöðu okkar og með hvaða hætti
við verndum okkar auðlind gegn
mengun og stýrum nýtingu. Við
íslendingar eigum tilvist okkar
undir sjálfbærri nýtingu auðlind-
anna og verður að hafa þá reglu
í öndvegi. Við höfum ævinlega
haldið því fram þegar þessi mál
hefur borið á góma á alþjóðavett-
vangi að annað væri ekki í sam-
ræmi við markmið um sjálfbæra
þróun. Þetta útilokar þó ekki að
gripið sé til friðunar á ákveðnum
tegundum á ákveðnum svæðum,
en það verður að gerast á grund-
velli vísindalegra gagna. Þá vil ég
einnig segja að það gæti komið
að því að við teldum tímabært að
hugleiða kosti þess að stofna eins
konar þjóðgarða í hafinu. Slíkt
hefur verið gert í mörgum löndum
og reynslan af slíkum aðgerðum
hefur oft verið góð.“
Fyrirtæki gefi út
umhverfisársskýrslur
Guðmundur gat þess að um-
hverfisráðuneytið hefði á alþjóð-
legum vettvangi haldið uppi mál-
flutningi til að auka skilning á
nauðsyn þess að nýta auðlindir
hafsins á sjálfbæran hátt. Eins
hefði ráðuneytið við ýmis tækifæri
kynnt fulltrúum alþjóðlegra um-
hverfíssamtaka stefnu íslenskra
stjórnvalda. Gott samstarf hefði
verið við sjávarútvegsráðuneytið
um þessi mál. „í þessu sambandi
langar mig til að minnast á að ég
hef oft hugleitt hvort ekki sé tíma-
bært að íslensk fyrirtæki í sjávar-
útvegi gefi reglulega út sérstakar i
umhverfisársskýrslur, eins og ,
tíðkast hjá ýmsum fyrirtækjum í
grannlöndum okkar sem nýta end-
urnýjanlegar auðlindir. Eg held
að slík skýrslugerð gæti bætt
ímynd okkar, stuðlað að betri
umgengni okkar við náttúruna og
auðveldað markaðssetningu á
mörkuðum þar sem neytendur
hafa sívaxandi áhyggjur af um-
hverfismálum."
Hann sagði að Norðurlöndin
væru nú að kanna grundvöllinn í
fyrir því að merkja sérstaklega j
físk og fiskafurðir þar sem hægt
væri að sýna að auðlindin hefði
verið nýtt á sjálfbæran hátt. Um-
hverfísráðuneytið fylgdist grannt
með þessu starfi og vænti þess að
í framtíðinni muni þetta merki
taka til fleiri umhverfisþátta en
ástands fiskistofna og veiðarfæra-
notkunar. j
Þrávirk lífræn efni hafa mælst .
í sjónum hér við land og þau er
einnig að finna á fleiri stöðum á »
norðurhjara, að sögn Guðmundar.
„Þessi efni berast langt að og telj-
ast því hnattrænt vandamál. Enn
sem komið er, er vitneskja okkar
um langtímaáhrif þeirra á um-
hverfíð takmörkuð enda hófst
framleiðsla á þeim ekki í neinum
mæli fyrr en um miðja þessa öld,
en ýmsar vísbendingar, sem fram *
hafa komið um áhrif, valda veru- I
legum áhyggjum, m.a. áhrif þeirra j
á getu lífvera til að fjölga sér og
þann skaða á ónæmiskerfinu sem
þau kunna að valda. íslensk stjórn-
völd hafa unnið að því að koma á
alþjóðlegum samningi til að tak-
marka eða banna notkun hættu-
legustu efnanna. Nú virðist sem
verulegur skriður sé að komast á
það mál og frekari vinna á þessu ft
sviði verður eitt helsta alþjóðlega l
viðfangsefni okkar á næstu árum.“ ,
Umhverfisráðherra sagði að *
nýlega hefði verið samþykkt al-
þjóðleg áætlun um aðgerðir til að
vernda hafið vegna mengunar frá
landstöðvum. „Island tók mjög
virkan þátt í gerð þeirrar áætlunar
og m.a. var einn undirbúnings-
fundur haldinn hér á landi. Á
næstu misserum þurfum við að .
meta þær aðgerðir, sem við höfum
gripið til hér á landi og sjá hvort f
þær fullnægi þeim kröfum, sem |
gerðar eru í þessari áætlun."
Fiskiðjusamlag
Húsavíkur hf.
Skipurit,
nóvember 1996
Stjórn
Z
Framkvæmdastjóri
Einar Svansson
~L|
Rækjuvinnsla —
Fjáhags- og upplýsingasvið Fjármálastjóri Hjalti Halldórsson Framleiðslusvið Framleiðslustjóri Einar Svansson Útgerðarsvið Útgerðarstjóri Kristján B. Garðarsson
Þjónusta og viðhald
Viðhaldsstjóri
Þráinn Gunnarsson