Morgunblaðið - 22.11.1996, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEÍMT
Mikil ólga meðal fólks í Belgíu vegna hneykslismála og umræðu um barnaníðinga
Sögð jaðra við móð-
ursýki og minna á
ofsóknir McCarthys
Brussel. Reuter.
BELGÍSK þingnefnd ákvað í gær
að fresta því að taka ákvörðun
um framtíð Elios Di Rupos að-
stoðarforsætisráðherra, sem hef-
ur verið sakaður um hafa haft
kynmök við drengi undir lö-
galdri. Ákvörðuninni var líkt við
tímasprengju, sem gæti orðið
samsteypustjórn landsins að falli
vegna mikillar ólgu meðal lands-
manna í kjölfar hneykslismála
sem tengjast barnaklámhring og
drápum á fjórum ungum stúlk-
um. Æsingurinn er orðinn svo
mikill að belgísk dagblöð segja
hann jaðra við móðursýki og
minna á þá sjúklegu tortryggni
sem ríkti í Bandaríkjunum þegar
öldungadeildarþingmaðurinn
Joseph McCarthy þóttist sjá
kommúnista og landráðamenn í
hveiju horni á sjötta áratugnum.
Þingnefndin ræddi mál aðstoð-
arforsætisráðherrans í 16
klukkustundir og fram kom mik-
ill ágreiningur meðal fulltrúa
stjórnarflokkanna. Samþykkt var
málamiðlunartillaga um að taka
ekki ákvörðun í málinu fyrr en
eftir tvær vikur. Di Rupo, sem
er er hommi, segir að enginn
fótur sér fyrir ásökunum um að
hann hafi haft mök við unga
drengi.
Vitnið vefengt
Nefndin óskaði eftir frekari
upplýsingum frá ríkissaksóknar-
anum í Brussel og bað æðsta
dómstól landsins að rannsaka
ásakanirnar. Að tveimur vikum
liðnum hyggst hún taka ákvörð-
un um hvort leggja beri til að
Di Rupo verði sviptur þinghelgi
til að hægt verði að sækja hann
til saka. Fari svo þykir einsýnt
að hann verði að segja af sér og
jafnvel þótt málinu verði vísað
frá stendur hann svo höllum fæti
að líklega á hann sér ekki við-
reisnar von í stjórnmálunum.
Hingað til hafa þó aðeins þing-
menn stjórnarandstöðunnar kraf-
ist þess opinberlega að hann
segði af sér.
Framtíð stjórnarinnar er einn-
ig í veði. Málamiðlunartillagan
var ekki samþykkt fyrr en Jean-
Luc Dehaene forsætisráðherra
lagði fast að flokksbræðrum sín-
um í Kristilega demókrataflokkn-
um að styðja Di Rupo.
Afskipti Dehaene urðu til þess
að dagblaðið La Libre Belgique
lýsti honum sem „forsætisráð-
herra sem aflýsti heimsókn til
starfsbróður síns í Austurríki en
kaus þess í stað að leggja sig
allan fram við að bjarga félaga
sínum, jafnvel stjórninni."
Talsmaður Di Rupos sagði í
gær að hann hygðist ekki segja
af sér og frönsk dagblöð tóku
að vefengja trúverðugleika vitnis,
sem ásakanirnar eru byggðar á.
„Óhugnanlegt"
andrúmsloft
Dagblaðið Le Soir birti í gær
skopmynd er þykir lýsa vel and-
rúmsloftinu í Belgíu vegna
hneykslismálanna sem tröllriðið
hafa samfélaginu. Maður sést þar
horfa með sjónauka út um glugga
sem hlera hefur verið dregið fyr-
ir. „Já, dómari, hann ekur á
hverjum degi þremur börnum í
skólann og faðmar þau,“ segir
maðurinn.
„Segja má að hér sé aðferðum
McCarthys beitt gagnvart öllum
með vafasama fortíð,“ sagði Kris
Deschouwer, prófessor í stjórn-
ELIO Di Rupo, aðstoðar-
forsætisráðherra Belgíu.
málafræði við Frjálsa háskólann
í Brussel. „Auðvitað stöndum við
frammi fyrir spillingar- og
glæpamálum og þau verður að
afhjúpa. En þegar farið er með
menn sem glæpamenn fyrir smá-
syndir er ástandið orðið hættu-
legt.“
„Þetta hefur gengið of langt,“
sagði Marie-France Botte, leið-
togi samtaka sem berjast fyrir
réttindum barna, og sagði and-
rúmsloftið orðið „óhugnanlegt".
„Ég hvet fólk til að sýna stillingu
vegna þess að ég fæ það á tilfinn-
inguna að menn séu að nota mál
barnaníðinganna til að hefna sín
á óvinum."
Hundruð ásakana á dag
Botte sagði að samtök hennar
fengju hundruð bréfa á hverjum
degi þar sem menn væru bornir
þungum sökum. Þúsundir manna
hafa einnig hringt í sérstakt
símanúmer sem yfirvöld hafa
boðið upp á til að upplýsa mál
sem varða barnaníðinga og spill-
ingu embættismanna. Ásakan-
irnar snúast yfirleitt um kynferð-
islega misnotkun, fjársvik og
spillingu og beinast oft að ná-
grönnum, stjórnmálamönnum og
embættismönnum í dómskerfinu.
Di Rupo er ekki fyrsti þekkti
Belginn sem hefur verið borinn
slíkum sökum. Alain Van der
Best, fyrrverandi ráðherra, var
t.a.m. handtekinn í september
vegna rannsóknar á morðinu á
Andre Cools, leiðtoga Sósíalista-
flokksins.
Ennfremur er verið að rann-
saka ásakanir á hendur saksókn-
ara í Liege um aðild að barnakl-
ámhring og kynferðislega mis-
notkun barna. Annar saksóknari
í borginni hefur verið sakaður
um íjársvik. Þá hefur virtur
mannvinur, sem hefur getið sér
gott orð fyrir góðgerðastarfsemi,
verið sakaður um að hafa misnot-
að unga konu kynferðislega fyrir
tveimur áratugum.
Slík mál hafa tröllriðið samfé-
laginu frá því tveimur ungum
stúlkum var bjargað úr húsi
barnaníðingsins Marc Dutroux
fyrir hundrað dögum. Lík Ijög-
urra stúlkna fundust einnig í
húsakynnum mannsins og ýmis-
legt hefur komið fram sem bend-
ir til þess að embættismenn í
dómskerfinu og stjórnmálamenn
hafi haldið hlífiskildi yfir honum
og gert honum kleift að ræna
og nauðga ungum stúlkum í
nokkur ár.
Var dregið úr
tengslum Clint-
ons við auðkýf-
ing frá Asíu?
Washington. The Daily Telegraph.
Reuter
BILL Clinton Bandaríkjaforseti er nú staddur í opinberri sex
daga heimsókn í Ástralíu, en fjármál demókrata í kosningabarátt-
unni eru nú til umræðu heima fyrir og á blaðamannafundi í gær
gat forsetinn ekki vikist undan spurningum um þau þótt fjarri
væri heimaslóðum. Á myndinni sést forsetinn flytja ræðu í Sydn-
ey en í baksýn er óperuhúsið fræga eftir Danann Jarn Utzon og
mikil brú yfir höfnina.
ÞVÍ er nú haldið fram að embætt-
ismenn Bills Clintons Bandaríkja-
forseta hafi ekki sagt rétt frá
tengslum forsetans við James
Riady, auðkýfing frá Indónesíu og
forkólf Lippo-bankasamsteypunn-
ar, á lokadögum kosningabarátt-
unnar fyrir forsetakosningarnar
5. nóvember.
Clinton, sem staddur er í opin-
berri heimsókn í Ástralíu, var
spurður um það á þriðjudag hvort
stjórn hans hefði svarað spurning-
um um framlög Lippo-samsteyp-
unnar frá Indónesíu og áhrif þeirra
á utanríkisstefnu Bandaríkja-
manna.
Clinton sagði að framferði hans
hefði verið viðeigandi í alla staði
og bætti við að stjórn hans hefði
til dæmis hætt að selja Indónesum
vopn vegna þess að þeir hefðu
tekið völdin í Austur-Tímor og
verið aðili að ályktun Sameinuðu
þjóðanna um að auka mannrétt-
indi þar.
„Við skulum leyfa staðreyndun-
um að koma fram og greina frá
þeim,“ sagði Clinton og líkti mál-
inu við það þegar Richard Jewell,
öryggisvörður í Atlanta, var rang-
lega sakaður um að hafa átt þátt
í sprengjutilræðinu á Ólympíuleik-
unum í sumar.
Bob Doíe, frambjóðandi repú-
blikana, reyndi að gera sér mat
úr fréttum um að fulltrúa hags-
munahópa í Asíu hefðu látið pen-
ingana streyma í kosningasjóði
demókrata og sagði að þetta væri
enn eitt dæmið um spillinguna í
innsta hring Clintons.
Sögðu samskipti
félagsleg
Starfsmenn forsetans svöruðu
því til að fundir Clintons og samt-
öl við Riady í síma hefðu verið
félagslegs eðlis. í raun var hins
vegar verið að ræða viðskipta-
stefnuna gagnvart Asíu og póli-
tíska þróun í álfunni. Clinton hefur
gengist við því að Riady hafi í
einu samtali óskað honum til ham-
ingju með stefnu hans gagnvart
Kína og að láta vera að tengja
viðskipti við Kínveija frammistöðu
þeirra í mannréttindamálum.
John Huang, fyrrverandi starfs-
manni Riadys, var veitt starf í við-
skiptaráðuneytinu áður en hann
gekk í þjónustu Demókrataflokks-
ins til að sjá um fjáröflun meðal
Bandaríkjamanna af asískum upp-
runa. Hann aflaði 160 milljóna
króna, en þurfti að skila 40 millj-
ónum króna eftir að grunsemdir
vöknuðu um að framlögin væru
ólögleg.
Repúblikanar hafa haldið því
fram að verið gæti samband milli
örlætis Riadys og ákvörðunar
stjórnar Clintons að hætta við
rannsókn á réttindum verkamanna
í Indónesíu.
Uppljóstranir
um þátt Huangs
Nú er einnig komið í ljós að
Huang hringdi að minnsta kosti
70 sinnum til banka í Los Angel-
es, sem er í eigu Riadys, þá 17
mánuði, sem hann starfaði í við-
skiptaráðuneytinu. Samkvæmt
bandarískum lögum mátti Huang
ekki leita pólitískra framlaga frá
fyrrverandi vinnuveitanda sínum
eftir að hann gekk í þjónustu hins
opinbera og siðareglur kveða á um
að hann megi ekki með nokkrum
hætti hafa afskipti af Riady eða
Lippo-samsteypunni, sem á Lippo-
bankann í Los Angeles, í minnst
tvö ár.
Dagblaðið The Washington Post
hefur í höndum yfirlit yfir símtöl
Huangs og sagði í frétt blaðsins
á þriðjudag, að Benjamin Gilman,
þingmaður repúblikana og for-
maður alþjóðasamskiptanefndar
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings,
hefði sagt í bréfi, sem sent var til
Mickeys Kantors viðskiptaráð-
herra á mánudag, að yfirlitið vekti
áleitnar spurningar um fjáröflun-
araðferðir Huangs.
Nýttlyf
gegn mal-
aríu sam-
þykkt
London. The Daily Telegraph.
NÝTT lyf gegn malaríu, sem hald-
ið er fram að lækni 99% sjúklinga
af sjúkdómnum, hefur verið sam-
þykkt til notkunar í Bretlandi.
Nýja lyfið heitir Malarone og
hafa læknar verið beðnir að nota
það aðeins þegar sjúklingar eru
haldnir malaríu, sem er ónæm fyr-
ir öðrum lyfjum. Er talið að þann-
ig verði hægt að tryggja að sem
lengstur tími líði áður en afbrigði
af malaríu, sem lyfið bítur ekki
á, komi fram.
Tvær milljónir
deyja á ári
Rúmlega tvær milljónir manna
deyja af völdum malaríu á ári
hveiju, flestir í Afríku, Suðaustur-
Asíu og Suður-Ameríku. Lyfið
gæti bjargað mörgum, en kostnað-
ur gæti sett strik í reikninginn.
Verðið hefur ekki verið ákveðið
en búist er við að sá skammtur,
sem mælt er með gegn malaríu,
muni kosta milli 2.000 og 2.500
krónur.
Fyrirtækið Glaxo Wellcome
framleiðir Malarone og hyggst gefa
birgðir af lyfinu í ljósi þess að neyð-
in er stærst í ríkjum, sem síst hafa
efni á að kaupa það. Hefjast á
handa í Kenýa á næsta ári og er
stefnt að því að gefnir verði milljón
skammtar á ári þar sem sjúkdóm-
urinn er útbreiddastur.
Alþjóðaheilbrigðisstofnun Sam-
einuðu þjóðanna hefur fagnað
þessari áætlun og lýst yfir vilja
til að styðja hana.