Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 21
Marsgrjótið of dýrt
UPPBOÐ var haidið í New York í gær á
nokkrum loftsteinum frá Mars en eigand-
inn fékk ekki nógu gott boð, lét sér ekki
nægja rúmar 70 milljónir króna og á því
steinana áfram. Sá stærsti er á stærð við
greipaldin. Fundist hafa alls 40,8 kíló af
marsgrjóti ájörðunni en aðeins 3,6 kíló
eru í eign einkaaðila.
Héðinn Stefánsson
er stöðvarstjóri Sogsstöðva hjá Landsvirkjun.
Hann er
Vélfrœðingur...
Starf hans er fólgið í umsjón með daglegum
rekstri þriggja stöðva: Ljósafossstöðvar,
Irafossstöðvar og Steingrímsstöðvar.
Hann stjórnar eftirliti með vélbúnaði, viðhaldi
og keyrslu margbrotinna og flókinna tækja.
t ISJáníiri upplvsingar v
Atvmnurehendur!
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bædi bóklega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
Nán«iri upplýsingar
/ggfa. Vélstjórafélag
'IEwlslands
Borgartúni 18, 105 Kevkjavíki
Sími: 562-9062
■
■
Reuter
Verðmæt frímerki
VAXANDI eftirspurn er eftir fágætum frímerlqum. Safnarar eiga
þess kost að sjá sjaldgæf merki að verðmæti 100 milljóna dollara,
6,7 milljarða króna, á sýningu, sem opnuð verður í New York um
helgina. Þar verður m.a. sýnd fjórblokkin af „Bakfalls Jenný“, sem
slegin var 1989 á 1,1 milljón dollara, jafnvirði um 73 milljóna króna.
Við skiptum við
SPARISJÓÐ VÉLSTJÓRA
Rokke eign-
ast Frionor
Ósló. Morgunblaðið.
NORWAY Seafoods, norskt dóttur-
fyrirtæki RGI, fyrirtækjasamsteypu
Kjells Inge Rokkes, hefur tryggt
sér meirihluta í Frionor, einu
stærsta útgerðar- og fiskvinnslu-
fyrirtæki Noregs.
Mikil andstaða hefur verið við
kaupin í Noregi vegna þeirra yfir-
burða aðstöðu, sem það hefði skap-
að Rokke á sviði veiða og vinnslu.
Meðal annarra hafði Karl Eirik
Schjott-Pedersen sjávarútvegsráð-
herra lýst efasemdum um þau.
Til þess að blíðka yfirvöld, sem
óttast hafa að fiskvinnslan í Norð-
ur-Noregi væri að færast á fárra
hendur, hefur verið gert um það
samkomulag, að norðurnorska fyr-
irtækið Nokom kaupi 40% hluta-
bréfa Frionor í veiða- og vinnslufyr-
irtækinu Myregruppen, sem rekur
tvo ísfiskstogara.
Einnig hefur Norway Seefood
lýst því yfir, að Melbu-fiskvinnslu-
fyrirtækið í Troms verði helsta fisk-
löndunar- og úrvinnslufyrirtæki
Frionor. Ætti það að hafa í för með
sér aukin umsvif Melbu.
Velta Norway Seafoods nemur
um 50 milljörðum íslenskra króna
á ári eftir kaupin á Frionor.
Umferð
hafin um
Ermar-
sundsgöng
London. Reuter.
TAKMÖRKUÐ umferð vöruflutn-
ingalesta hófst í gærmorgun um
Ermarsundsgöngin og sögðust tals-
menn Eurotunnel, sem rekur göng-
in, búast við, að starfsemin yrði
komin í eðlilegt horf eftir nokkra
daga.
Tvær flutningalestar óku frá
Dover í Englandi til Calais í Frakk-
landi árla í gærmorgun og ein í
gagnstæðaátt strax að því loknu.
Oryggisnefnd ganganna heimilaði
að allt að sex lestar gengju í hvora
átt á 90 mínútna fresti.
Takmarka verður umferðina, þar
sem lestar á leið til Englands verða
að flytja sig á milli ganga skömmu
áður en þær koma að staðnum, þar
sem bruninn varð á.
Fulltrúi Eurotunnel sagði, að
gert væri ráð fyrir, að allt að þijár
vikur myndi taka að ljúka fullnaðar-
viðgerð vegna skemmda er urðu af
völdum bruna í flutningalest sl.
mánudagskvöld.
Vegna brunans varð að loka
göngunum fyrir allri umferð í rúma
tvo sólarhringa, en það er í fyrsta
sinn sem umferð stöðvast um göng-
in, sem tekin voru í notkun fyrir
tveimur árum.
Hondúras
Flóð leggja
borgar-
hluta í rúst
Tegucigalpa. Reuter.
ÁTTA manns að minnsta kosti
hafa týnt lífi og allt að 40.000
misst heimili sín í flóðum í norð-
urhluta Hondúras að und-
anförnu.
Hrun norskra laxastofna
Sjúkdómar og
menmm orsakir
nrminhloAiA
Ósló. Morgunblaöið.
VÍSINDAMENN í Noregi telja nú
líklegast að sjúkdómar, mengun og
aukinn sjávarkuldi hafi valdið hruni
villtu laxastofnanna, þeir séu nú
samanlagt aðeins um 7.000 t.
Alls hefur 41 stofni verið útrýmt
og 50 að auki eru í hættu, að sögn
vísindamanna í Þrándheimi. Ekki
veiddust nema 835 t í fyrra og hefur
veiðin ekki verið lélegri í hálfa öld.
Mikilvægustu orsakir hrunsins eru
taldar vera súrt regn og nýting
vatnsorkunnar í ánum. Á hinn bóginn
er einnig bent á að framieidd eru
um 250.000 t af eldislaxi á ári og
meira sleppur af fiski frá þeim á
hveiju ári en veiðist af villtum laxi.
Frelsingjarnir blandast síðan villta
fiskinum og geta valdið breytingum
á erfðaeiginleikum er gera fiskinn
mun viðkvæmari fyrir sjúkdómum.
í sumum ám hafa 80% af laxinum
reynst vera eldislax er sloppið hefur
úr stöðvunum.
Hitabeltisúrhelli hefur verið
í Hondúras í 11 daga sem vald-
ið hefur því að ár hafa flætt
yfir bakka og aurskriður fallið.
Af þessum sökum er fá-
tækrahverfið La Lima í San
Pedro Sula, næst stærstu borg
landsins, farið undir vatn.
Embættismenn sögðu í gær,
að enn hefði ekki verið hægt
að meta hugsanlegt tjón á ban-
anaekrum landsins, en ræktun
bjúgaldins er mikilvægasta at-
vinnugreinin í þessum hluta
Hondúras, einu fátækasta ríki
heims.
Leita föður Tutank-
amons í erfðavísum
London. The Daily Telegraph.
BRESKIR vísindamenn hyggjast
heíja rannsókn á því hverjir sváfu
hjá hveijum við hirð egypsku faraó-
anna og er markmiðið að komast að
því hver hafi verið faðir sjálfs Tut-
ankamons. í verkefninu er gengið
út frá því að gerður verði gagna-
banki með sýnum úr egypskum
múmíum, sem eru í söfnum víðs veg-
ar um heiminnn.
Vísindamennirnir munu notast við
erfðaefni tekið úr múmíum til að
átta sig á því hve rammt hafi kveðið
að lauslæti og sifjaspellum á tímum
faraóanna. Verður beitt sömu aðferð-
um og notaðar hafa verið við lausn
nauðgunar- og faðernismála hér á
landi þegar sýni hafa til dæmis verið
send til Noregs.
„Það eru sannfærandi vísbending-
ar um að aðallinn hafi gifst og átt
böm innan fjölskyldunnar," sagði
Rosalie David, stjórnandi verkefnis-
ins og yfirmaður Egyptalandsdeildar
safns Manchester-háskóla.
Föt ur
rifiluðu flaueli
Kjolar
ÍOO% bómull
St. 90-140
Verð kr. 3.900
St. 90-160
Jakki frá kr. 3.300
Buxur frá kr. 1.900
Vcsti frá kr. 1.700