Morgunblaðið - 22.11.1996, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 23
LISTIR
Sigiirvegari Tón-
vakakeppninnar leik-
ur í Norræna húsinu
UM þessar mundir halda
Ungverjar upp á 1100 ára
búsetu í landi sínu. _Af því
tilefni eflir félagið ísland-
Ungverjaland til tónleika í
Norræna húsinu laugar-
daginn 23. nóvember kl 17.
Ungverski píanóleikarinn
Miklós Dalmay leikur verk
eftir ungversk og íslensk
tónskáld: Béla Bartók,
Franz Liszt og Hjálmar
H. Ragnarsson.
Miklós
Dalmay
Miklós Dalmay bar nýlega
sigur úr býtum í Tónvaka-
keppni Ríkisútvarpsins. Á
tónleikunum í Norræna hús-
inu leikur Miklós Svítu op.
14 og Allegro barbaro eftir
Béla Bartók, Fimm prelúdíur
eftir Hjálmar H. Ragnarsson
og tvö verk eftir Franz Liszt.
Tilbrigði við stefíð Weinen,
klagen eftir Jóhann Sebast-
ian Bach og Ungverska
rapsódíu nr. 13.
Freysteinn Bjarnason
er útgerðarstjóri Síldarvinnslunnar hf. Neskaupstað.
Hann er
• •'m
Starf hans felst í umsjón með útgerð og úthaldi fimm
skipa sem Síldarvinnslan gerir út. Vélfræðimenntunin
gerir það að verkum að Freysteinn hefur góða yfirsýn
og innsýn í það sem lýtur að viðhaldi og imikaupum
á flóknum tæknibúnaði til nútímafiskveiða.
Nánari upplýsingar veitir:
Vanti ykkur traustan starfsmann
með víðtæka sérmenntun á tæknisviði,
bæði bókiega og verklega,
þá eru þið að leita að vélfræðingi.
/gS|ö, Vélstjórafélag
ÆyKf Islands
Borgartúni 18,105 Reykjavík
Sími: 562-9062
Við skiptum við
SPARISJÓÐ VÉLStjÓRA
Þrjár mynd-
listarsýn-
ingar í Ný-
listasafninu
ÞRJÁR myndlistarsýningar verða
opnaðar í Nýlistasafninu, Vatnsstíg
3b, á laugardag kl. 16. Finnur Arn-
ar sýnir í neðri sölum safnsins og
Ingileif Thorlacius í efri sölum. Guð-
rún Halldóra Sigurðardóttir er gest-
ur safnsins í setustofu að þessu sinni.
í kynningu segir: „Sýning Finns
Arnars fjallar um blákaldan veru-
leikann og er samsett af veggverk-
um og gólfverkum sem listamaður-
inn kallar „skrappverk". Þetta er
önnur einkasýning Finns Arnars en
hann hefur tekið þátt í samsýningum
bæði hérlendis og erlendis. Hann
hefur starfað sem leikmyndahönnuð-
ur síðustu ár og ger m.a. leikmynd-
ir við leikritin West Side story, Hár-
ið, Himnaríki, Birtingur o.fl.
Ingileif sýnir vatnslitamyndir í
Súmsal og gólfverk á Palli. Þetta
er fimmta einkasýning hennar en
hún hefur einnig tekið þátt í samsýn-
ingum. Undanfarin ár hefur hún
verið stundakennari í málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands.“
Sýningarnar eru opnar daglega
frá kl. 14-18 ogþeim lýkur 8. desem-
ber.
------».-»-4-----
Stórsveitin
í Ráðhúsinu
TÓNLEIKAR Stórsveitar Reykjavík-
ur eru orðinn fastur liður á dagskrá
Ráðhúss Reykjavíkur, en stórsveitin
er eina starfandi „Big Band“ lands-
ins. Næstkomandi laugardag verða
næstu tónleikar Stórsveitarinnar í
Ráðhúsinu og hefjast þeir kl. 17.17.
Efnisskrá tónleikanna er úr ýms-
um áttum eins og gjarnan áður, en
meðal annars má nefna tónlist frá
Thad Jones og Sammy Nestico.
Stjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur
er Sæbjörn Jónsson. Edda Borg mun
koma fram með hljómsveitinni og
syngja nokkur lög og kynnir á tón-
leikunum verður Pétur Grétarsson.
Aðgangseyrir er enginn og allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
------» ♦ 4------
48 listamenn
SAMSÝNING 48 listamanna á litlum
myndum í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg verður opnuð á laugardag kl.
15. Sýningn nefnist 8 plús 40 gera
48, en 8 karlar og 40 konur taka
þátt í henni.
Valið var úr tæplega 400 innsend-
um verkum og varð útkoman sú að
sýndar verða um 170 myndir eftir
48 listamenn.
Listamennirnir fengu það vega-
nesti að halda stærð myndanna innan
ákveðinna marka og stilla verði
þeirra í hóf.
Sýningin stendur til 8. desember.
Gallerí Fold er opið daglega frá kl.
10-18, laugardaga frá kl. 10-17 og
sunnudaga 14-17.
^VÖXtUjj
- fjársjóðir um allt land
170
Fjöldi hluthafa
yfir 1300
•
Skattaafsláttur
Einstakur árangur
ÍSLENSKI FJARSJÓÐURINN er hlutabréfasjóður sem fjárfestir að mestu í
íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum og tengdum greinum um allt land.
Frá stofnun sjóðsins í nóvember 1995 hefur sjóðurinn skilað hluthöfum sínum
hærri ávöxtun en nokkur annar íslenskur hlutabréfasjóður. Á þessum tíma hefur
gengi sjóðsins hækkað um meira en 90%.
Tryggðu þér skattaafslátt með fjárfestingu í ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐNUM.
Með fjárfestingu að upphæð 135.000 krónum færð þú um 45.000 króna
endurgreiðslu á tekjuskatti í ágúst á næsta ári. Hjón fá um 90.000 krónur
af 270.000 króna fjárfestingu.
Kaupgengi ÍSLENSKA FJÁRSJÓÐSINS, _ Fjárfesting _
vísitala sjávarútvcgs og þingvísitala hlutabréfa 1.12.95 - 1.10.96 j ISLENSKÁ FJARSJOÐNUM
skilar ríkulegum arði og rennir
stoðum undir íslenskt atvinnulíf
hormóður fammi hf F^jusamlag
llusaviknr ht
fe Skag-
.'.trcmlinguf ftf
r‘ ' Jj 'ft' Fiskiðjan
Skagfirðingur hf
: i Sa’plast hf
i ll “ ÚA h
Haraldur Böðvarsson lif ,
Islcnskar sjávarafurðir hl i • .
Grandi Íif
SIF hf
Hampiðjan hf i
SUrc! hf Mcitillinn hf ;
SR-Mjolhf Arncshj. Ú
fiT Tangi hf
,^|p,lr 1 Hraðfrystihús
’ ^ Loðnuvhmslau hf
* Búlandstindur hf
Borgcy hf
Vinnslustöðin hf
‘Kaupgengi - kaupgengi m.t.t. arðs.
ÁBENDING FRÁ LANDSBRÉFUM:
Ávöxtun í fortíð þarf ekki að gefa vísbendingu um ávöxtun í ffamtíð
y LANDSBREF HF.