Morgunblaðið - 22.11.1996, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þar sem
svínin hafa
forgang
Kennarar óskast, nýjasta leikrit Ólafs Hauks
Símonarsonar, verður frumsýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins í kvöld. Er sögusviðið skóli
í dreifbýlinu, þar sem sitthvað mætti betur
fara. Orrí Páll Ormarsson ræddi við höf-
undinn og aðalleikarana sem yljað hafa leik-
húsgestum á öðrum vettvangi undanfarin ár.
MAGGA hin makalausa (Ólafía Hrönn Jónsdóttir) setur sterkan svip á kennarastofuna
með hinum ólíklegustu tilburðum.
ÞAÐ ER nístingskuldi og
stórhríð. Dymar á litla
dreifbýlisskólanum ljúkast
upp og inn velta veðurbar-
in kennarahjón að sunnan sem ráðið
hafa sig að stofnuninni. Ætlunin er
að hefja nýtt líf en við þeim blasir
önnur mynd en þau hugðu - í þessum
skóla hafa svínin forgang. Skyldi ef
tii vill engan undra því „á misjöfnu
þrífast bömin best en það má ekki
vera vondur við svínin - þá deyja
þau.“
Fljótlega kemur síðan á daginn að
ekki er allt með felldu - hvorki í lífi
hjónanna né fólksins sem þau hitta
fýrir. Óhugnanlegir hlutir koma upp
á yfirborðið. Maðurinn er berslqaldað-
ur gagnvart ástinni, einsemdinni,
þránni, dauðanum og umfram allt
sorginni og ekki bætir fásinnið úr
skák enda „hefur það tilhneigingu til
að má út mörk þess sem telst eðlilegt
og óeðlilegt“. Skyldu hjónin eiga aft-
urkvæmt?
Ólafur Haukur Símonarson bindur
sögusvið nýjasta leikrits síns, Kennar-
ar óskast, sem svo oft áður, við vinnu-
umhverflð enda hefur hann „ailtaf
litið á vinnuna sem hluta af mótunar-
sögu fólks“. Fyrir vikið hefur hann
meðal annars fundið verkum sínum
umhverfí í fískiðnaði, kjötbúð, dósa-
verksmiðju, á bílaverkstæði - og nú
á kennarastofu. „Það sem kemur
fram af persónuleika manna í tengsl-
um við vinnuna er í senn mikilvægt
og dramatískt, auk þess sem menn
eru í mun nánari tengslum við samfé-
lagið í vinnunni en heima hjá sér.
Kannski er þetta öðrum þræði tilraun
til að sleppa út úr stofudramanu,"
segir Ólafur.
En hvers vegna skyldi hann kjósa
dreifbýlið að þessu sinni? „Við íslend-
ingar erum náttúrulega meira og
minna dreifbýlingar, líka þeir sem
hafa alist upp á mölinni; foreldrar
okkar flestra eru nefnilega komnir
af landsbyggðinni - þar liggja því
rætumar."
Spurningar á sveimi
Hlutverk uppalandans er jafnframt
í brennidepli i verkinu, þar sem kenn-
arinn kemur óhjákvæmilega við sögu.
Segir Ólafur margar siðferðislegar
spumingar vera á sveimi í verkinu,
um skyldur kennarans, ábyrgð hans
og hversu langt hlutverk hans eigi
að ná? Gegnir skólinn hugsanlega
ekki því hlutverki sem við viljum að
hann geri?
Leikhúsinu er ekkert óviðkomandi,
fullyrðir Sonja B. Jónsdóttir í leik-
skrá, þar á meðal ýmis mál sem áður
voru „tabú“ en hafa komið upp á
yfírborðið í seinni tíð, svo sem kyn-
ferðisleg misnotkun á bömum sem
er til umfjöllunar í Kennarar óskast.
„Það hefur verið umræða i þjóðfélag-
inu um það hvemig á þessum málum
er tekið og hafa verið uppi opinberar
skýrslur um að stjómsýslumeðferð-
inni sem við búum við sé ábótavant,
sérstaklega í dreifbýlinu. Þar er ná-
vígi manna mikið og þeir sem eiga í
hlut tengjast ef til vill allir þeim sem
leysa eiga úr málunum eða þurfa að
leita til dómstóla. Hvemig er hægt
að leysa úr málum af þessu tagi und-
ir slíkum kringumstæðum, hvaða leið
er sú rétta?" spyr Ólafur.
Leikstjóri Kennarar óskast er Þór-
hallur Sigurðsson, sem svo oft áður
þegar verk Ólafs eiga í hlut. „Við
höfum unnið saman á hverju ári í sjö
eða átta ár og ég hygg að svo langvar-
andi samvinna leikstjóra og höfundar
sé einsdæmi í íslensku leikhúsi. Þetta
hefur verið merkilega farsælt hjóna-
band.“
Tveir leikaranna í sýningunni,
Þröstur Leó Gunnarsson og Sigrún
Edda Bjömsdóttir, gera samvinnu
félaganna jafnframt að umtalsefni.
„Það hefur verið skemmtilegt að
fylgjast með þessari óvenjulegu og
fijóu samvinnu. Ólafur hefur verið
mjög virkur á æfíngatímanum og
þótt hann hafí ákveðnar skoðanir er
hann jafnframt einstaklega opinn fyr-
ir skoðunum annarra - sem gerir
hann stærri,“ segir Sigrún Edda.
Ákveðnir leikarar í huga
Ólafur hefur jafnan þann hátt á
að fylgjast grannt með æfíngum á
verkum sínum enda hefur hann „kom-
ist að raun um að öll leikrit em að
hluta skrifuð á æfíngatímanum“. En
skyldi hann, í seinni tíð, vera farinn
að skapa persónur með hliðsjón af
ákveðnum leikurum? „Þjóðleikhúsið
hefur yfír svo mörgum góðum leikur-
um að ráða að það hefur aldrei verið
vandamál að manna hlutverkin en nú
breytti ég í fyrsta skipti út af venj-
unni og skrifaði gagngert með
ákveðna leikara í huga og eftir á að
hyggja hefði ég ekki getað hugsað
mér aðra leikara."
Þröstur Leó og Sigrún Edda, sem
áður var vitnað til, leika kennarahjón-
in að sunnan, Ögmund og Ástu. Ólaf-
ía Hrönn Jónsdóttir og Om Ámason
leika Möggu og Binna, kennarana
sem gæða kennarastofuna lífí á dag-
inn en gráta sig í svefn á nóttunni.
Gunnar Eyjólfsson fer með hlutverk
Karls, bónda og fyrrverandi skóla-
MorgunblaðiO/Asdis
MUN sorgin sameina Ögmund (Þröst Leó Gunnarsson) og Ástu
(Sigrúnu Eddu Björnsdóttur) eða skilja þau að?
stjóra, sem er enginn aufúsugestur í
skólanum og Hjálmar Hjálmarsson
leikur son hans, Jens svínabónda, sem
tekið hefur við rekstri skólans. Enn
er ónefnd Dísa, unglingsstúlka sem á
auðsjáanlega um sárt að binda, sem
leikin er af Hörpu Amardóttur. Leik-
mynd og búningar em úr smiðju Hlín-
ar Gunnarsdóttur en Páll Ragnarsson
hannar lýsingu.
Ólafur hefur víða drepið niður fæti
í listinni en eftir hann liggja skáldsög-
ur, Ijóðabækur, söngtextar, lög, söng-
leikir, greinar og sjónvarpsþættir, auk
§ölda leikrita, fyrir svið og útvarp.
Hann hefur sem sagt „alls ekki ein-
angrað sig við eitt svið orðlistarinnar
heldur beitt flestum birtingarformum
hennar og ekki talið eftir sér að leggja
sparifötum hámenningarinnar og
mæta til leiks á vinnugalla alþýðlegr-
ar skernmtihefðar", svo sem Gunn-
laugur Ásgeirsson kemst að orði í
leikskrá.
í ljósi þessa þarf vart að koma á
óvart að Kennarar óskast er ekki eina
verk Ólafs sem kemur almenningi
fyrir sjónir á þessum vetri en skáld-
Á tvö verk á Stóra sviðinu
KENNARAR óskast er
ekki eina verk Ólafs
Hauks Símonarsonar sem
sýnt er á fjölum Þjóðleik-
hússins um þessar mund-
ir, því Þrek og tár hefur
gengið við miklar vin-
sældir frá því í fyrra
haust - sýningar eru
orðnar 73 og gestirnir
ríflega 30.000. Mun það
vera einsdæmi að tvö
verk eftir ísienskan höf-
und séu samtímis á Stóra sviði
hússins.
„Þetta er vitaskuld mikil við-
urkenning fyrir mig. Þrek og tár
virðist hafa einhvern gríðarleg-
an lífskraft að geyma,“ segir
Ólafur sem veit dæmi þess að
fólk hafí komið tvisvar og jafn-
Ólafur
Haukur
Símonarson
vel þrisvar að sjá sýning-
una. Og Guðrún J. Bach-
mann leikhúsritari bætir
um betur: „Við vitum um
heilu vinnustaðina sem
hafa komið oftar en einu
sinni að sjá verkið.“
Þröngt er í leikmuna-
geymslu Stóra sviðsins
um þessar mundir en auk
verka Ólafs eru Nanna
systir eftir Einar Kárason
og Kjartan Ragnarsson
og Kardemommubærinn sýnd
þar, auk þess sem styttist í jóla-
sýningu hússins, Villiöndina eftir
Ibsen. Engu að síður fullyrðir
Guðrún að sýningum á Þreki og
tárum verði fram haldið fram
yfir jól - að minnsta kosti. „Það
virðist ekki vera hægt að hætta!“
sagan Rigning með köflum kom ný-
verið út hjá Ormstungu. „Viss sögu-
efni eiga betur heima í skáldsögu en
á sviði,“ segir Ólafur en bætir svo
við eftir stutta umhugsun: „Maður
hefur hins vegar mjög gott af því að
koma inn í leikhúsið og umgangast
fólk, skáldsagnahöfundurinn er nán-
ast í einangrunarfangelsi meðan hann
er að skrifa verk sitt.“
í röngu leikhúsi?
Ef til vill á einhver leikhúsgestur
eftir að fá það á tilfinninguna að
hann sé staddur í röngu leikhúsi þeg-
ar hann sér Kennarar óskast, því
aðalleikendumir, Þröstur Leó og Sig-
rún Edda, voru um árabil innan vé-
banda Leikfélags Reykjavíkur. í haust
söðluðu þau hins vegar um og gengu
Þjóðjeikhúsinu á hönd.
„Ég held að það sé alltaf voðalega
gott að breyta til. Ég var búinn að
vera í tíu ár hjá LR og þó mér hafi
alltaf líkað vel var það búið að gerj-
ast í mér í nokkur ár að prófa eitt-
hvað annað - ekkert endilega Þjóð-
leikhúsið, þó það hafí á endanum orð-
ið ofan á,“ segir Þröstur Leó sem
leikur nú í fyrsta sinn á Stóra sviði
Þjóðleikhússins en fyrsta hlutverk
hans við húsið var í leikriti Karls
Ágústs Úlfssonar, í hvítu myrkri, á
Litla sviðinu.
í tilviki Sigrúnar Eddu eru fjalir
Þjóðleikhússins ekki eins framandi
enda var hún fastráðin við húsið í
þijú ár eftir að hún brautskráðist úr
Leiklistarskóla íslands. Fyrir átta
árum gekk hún hins vegar til liðs við
LR og iðkaði list sína á þeim vett-
vangi fram á þetta ár. En hvemig
leggjast vistaskiptin í hana? „Vel.
Leikarar eiga að gera miklu meira
af því að skipta um umhverfí, leika
á móti nýju fólki og vinna með nýjum
leikstjórum, sem er í senn gefandi og
skemmtilegt."
Leikaramir ljúka sundur um það
einum munni að vel hafí verið tekið
á móti þeim í Þjóðleikhúsinu - sem
beri um þessar mundir öll einkenni
leikhúss í uppsveiflu. Og Sigrún Edda
heldur áfram: „Það er alltaf gaman
að koma inn í leikhús, þar sem fólki
líður vel og maður fínnur að listamað-
urinn skipar öndvegi."
„Sölumað-
ur deyr“ á
Húsavík
Húsavík. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Húsavíkur frum-
sýnir í kvöld, föstudagskvöld,
„Sölumaður deyr“ eftir Arthur
Miller.
Leikstjóri er Guðrún Al-
freðsdóttir, leikmynd er eftir
Sigurð Hallmarsson og Grétar
Sigurðsson. Lýsingu hanna
Jón Arnkelsson og Guðrún
Alfreðsdóttir. Dómhildur Ant-
onsdóttir hefur umsjón með
búningum.
Aðalhlutverk era í höndum
Ingimundar Jónssonar og Her-
dísar Birgisdóttur, sem bæði
era leikhúsgestum á Húsavík
að góðu kunn, en þau hafa
leikið með félaginu í mörgum
fyrri uppsetningum og eru
meðal reyndustu leikara hjá
Leikfélagi Húsavíkur.
Þetta er annað verkefni fé-
lagsins á þessu ári, hitt verk-
efnið var „Auga fyrir auga“
sem unglingar innan félagsins
sýndu á Húsavík í september
en áður höfðu þau farið með
það í leikferð til Bornholm.
Einnig sýndu ungmennin á
Ung-list, listahátíð ungs fólks,
sem haldin var í Reykjavík og
á Akureyri í október.
í ár era 110 ár frá því að
fyrst var sýndur sjónleikur á
Húsavík og fagnar Leikfélag
Húsavíkur þeim merka við-
burði.
Formaður Leikfélagsins er
Regína Sigurðardóttir.
Síðustu sýn-
ingar á „Ef
væri ég gull-
fiskur“
EF VÆRI ég gullfiskur! eftir
Árna Ibsen var framsýnt í
byijun september og hefur nú
gengið í þijá mánuði á Stóra
sviði Borgarleikhússins.
Leikarar í sýningunni era;
Eggert Þorleifsson, Halldóra
Geirharðsdóttir, Helga Braga
Jónsdóttir, Kjartan Guðjóns-
son, Sóley Elíasdóttir, Sigurð-
ur Karlsson, Rósa Guðný Þórs-
dóttir, Guðlaug Elísabet Ólafs-
dóttir, Þórhallur Gunnarsson
og Ásta Amardóttir.
Síðustu sýningar era laug-
ardaginn 23. og föstudaginn
29. nóvember kl. 20. á Stóra
sviði Borgarleikhússins.