Morgunblaðið - 22.11.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 27
LISTIR
Verðlaunaverk Yictors Urbancics í tilefni Skálholtshátíðar 1956 frumflutt á laugardaginn
KÓR Langholtskirkju, Gunnar
Eyjólfsson og 23 manna
blásarasveit undir stjórn Jóns
Stefánssonar, mun á laugardag
í Langholtskirkju frumflytja „Óð
Skálholts" eftir dr. Victor Ur-
bancic við texta sér Sigurður Ein-
arssonar. Dóttir dr. Victors, Sibyl
Urbancic, sem er prófessor við
tónlistarháskólann í Vínarborg,
fann verkið sl. vor meðal muna
sem dr. Victor lét eftir sig, en
hann lést á föstudaginn langa,
fjórða apríl 1958.
í kynningu segir, að Sibyl Ur-
bancic hafi haft samband við
Kjartan Óskarsson klarinettu-
leikara og Jón Stefánsson kór-
Óður Skálholts
stjóra sem gerðu sér strax grein
fyrir um hvílíkan dýrgrip er að
ræða.
Verkið var samið fyrir Skál-
holtshátíð 1956 sem haldin var
til að minnast 900 ára afmælis
biskupsstóls í Skálholti. Ljóða-
keppni fyrir hátíðina var haldin
árið 1955 þar sem séra Sigurður
Einarsson prestur í Holti undir
Eyjafjöllum fékk fyrstu verðlaun
fyrir Hátíðaljóð sín. Síðan var
efnt til keppni um tónverk
við vinningsljóðin þar sem
dr. Páll ísólfsson fékk
fyrstu verðlaun fyrir
Skálholtskantötu sína
fyrir blandaðan kór og
píanó/orgel, en verk dr.
Victors Urbancic fyrir
blandaðan kór, þul og
blásarasveit önnur verð-
laun.
Verkið er stórt í snið-
um. Sjö kaflar eru valdir
úr Hátíðaljóðum Sigurðar
Einarssonar sem heita
„Lofgjörð", „ísland“,
„Gjöf Gissurar“, „Hug-
leiðing", „Skálholt" og
„Ljóðalok". Auk þeirra
eru tveir kaflar sem eru
sinfónísk millispil sem
samin eru um tvo gamla
sálma frá lútherskum
tíma, „Jesús, mín morg-
Dr. Victor
Urbancic
unstjarna“ og „Dýrð, vald, virð-
ing og vegsemd hæst“. Tónlist
kórþáttanna byggir að miklu leyti
á þremur stefjum úr Þorlákstíð-
um, sem ganga í gegnum verkið
í ótrúlega frumlegum útfærslum.
Skipan hljómsveitarinnar lýsir
mikilli dirfsku miðað við þann
tíma er tónlistin var samin. Þann-
ig eru, auk hefðbundinna hljóð-
færa, notuð hljóðfæri sem sjald-
gæf voru hér s.s. englahorn,
bassaklarinett, tenór saxófónn,
kontrafagott og tvær túbur.
Verkið er tæpur klukkutími í
flutningi og tónleikarnir hefjast
kl. 16.00. Verkið verður aðeins
flutt einu sinni.
Menningar-
vaka Menor á
Hvammstanga
MENOR, menningarsamtök Norður-
lands standa fyrir menningarvöku í
Félagsheimilinu á Hvammstanga,
laugardaginn 23. nóvember. A aðal-
fundi Menors fyiT á þessu ári var
ákveðið að efna til fjögurra menning-
arvaka á Norðurlandi og er þessi hin
fyrsta. Megintilgangur er að vekja
athygli á því mikla starfi sem fer fram
í tónlistarskólum héraðanna og einnig
að koma á framfæri hinum fjölmörgu
aðilum sem leggja stund á listir og
hverskyns menningu á Norðurlandi.
Menningarvakan hefst með list-
myndasýningu kl. 14. Þar munu sýna
málverk og myndlist þau Guðráður
Jóhannsson, Guðlaugur Þór Ásgeirs-
son, Kristín Elfride, Gyða Ölvisdóttir
og Jón Eiríksson. Þá mun handverks-
fólk frá Galleríi Bardúsa á Hvamms-
tanga sýna margvíslega muni sína
og einnig handverkshópur úr Austur-
Húnavatnssýslu.
Á dagskrá vökunnar, sem hefst kl.
15 verður leikin og sungin tónlist.
Þar koma fram m.a. atriði frá Tónlist-
arskólum Vestur-Húnavatnssýslu og
Austur-Húnavatnssýslu. Bamakór
Grunnskólans á Hvammstanga, Lillu-
kórinn sem er kvennakór og samkór
kirkjukóra í Vestur-Húnavatnssýslu.
Einnig verða vísnaþættir, einsöngur
og tvísöngur, leiklestur og ljóðalestur.
I/)k dagskrár verður um kl. 17.
Menor var stofnað af Fjórðungs-
sambandi Norðlendinga, en þegar því
sambandi var skipt upp í tvö sam-
bönd, urðu samtökin nokkuð ut-
anveltu og misstu m.a. fjárstuðning,
sem þau höfðu haft frá sambandinu.
Menor hefur þó leitast við að halda
markmiðum sínum á lofti og á liðnum
árum staðið fyrir samkeppnum um
ljóða- og smásagnagerð og einnig
söngvarakeppni, svo eitthvað sé nefnt
af starfseminni.
Formaður Menors er sr. Ólafur
Hallgrímsson á Mælifelli.
------»...»-■♦---
Jo Going kynnir
verk sín og
hugmyndir
BANDARÍSKA listakonan Jo Going
kynnir verk sín og hugmyndir í Hafn-
arborg, lista- og menningarstofnun
Hafnarfjarðar, mánudaginn 25. nóv-
ember kl. 20, en hún er stödd hér á
landi um nokkurra mánaða skeið.
Jo er þekktust fyrir litrík rýmisverk
sín og innsetningar, en hefur einnig
gefíð út bækur og haldið fjölda sýn-
inga, auk þess sem hún hefur kennt
myndlist víða, meðal annars í ríkishá-
skólunum í Kaliforníu og í Alaska.
Jo er búsett í Alaska þar sem hún
vinnur að list sinni á heimili sínu langt
inn í óbyggðum. Menning norðurþjóða
hefur verið henni hugleikið viðfangs-
efni og í Alaska hefur hún einkum
heillast af menningu og siðum Inúít-
anna.
í Hafnarborg mun hún sýna lit-
skyggnur af verkum sínum og segja
frá þeim og bakgrunni þeirra. Loks
mun hún svara spurningum áheyr-
enda. Aðgangur er ókeypis og allir
Á ótrúlega góðu verði!
Tilboðsverð:
Unnur Steinsson:
Ég mœli eindregið meðþessari bók og tel að
hún cetti að vera til á sem flestum
heimilum...Frábœr gjöf við öll tœkifœri.
Fiillt verð: 3-860 kr.
Þu sparar: 1.410 kr.
Tryggðu þér eintak í nóvember. Fra 1. desember kostar bókin 3.8
VAKAHELGAFELL
A næsta bóksölustað
‘ fyrir sálina
® ©
Einstök bok þar sem er aö finna
stuttar sögur úr lífi fólks sem sýna
okkur hvernig við getum bætt líf
annarra - og sjálfra okkar um leið.
Höfundar bókarinnar, Jack Canfield
og Mark Victor Hansen, eru þekktir
víða um lönd fyrir fyrirlestra sína og
námskeið um það hvernig hægt er
að bæta árangur í lífi og starfi.
Sera Bragi Skulason, sfúkrahúsprestur:
Þessi bók er hvatning.
Hún veitir innblástur lúinni og svangri sál...
og vitnar um mátt kœrleikans.