Morgunblaðið - 22.11.1996, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 29
LISTIR
Vita Brevis, Lífíð er stutt, heitir nýjasta skáldsaga norska rithöfundarins Josteins Gaarders. Bókin kemur út
þessa dagana í Noregi. Skáldsaga Gaarders, Veröld Soffíu, var mest selda skáldverk í heimi í fyrra og ekkert lát er
á sölu bókarinnar. Jóhann Hjálmarsson hefur lesið nýju skáldsöguna sem er í formi bréfa sem Floria Aemilia
- —----------------------------->—-------—----------------------------
er látin skrifa ástmanni sínum og fyrrum sambýlismanni Agústínusi kirkjuföður.
ritar hann einnig inngang og skýr-
ingar. Hér er stuðst við þýðinguna
þegar vitnað er í Játningarnar, aðr-
ar J)ýðingar eru greinarhöfundar.
I upphafi FJórðu bókar stendur
þetta: „A þessum árum, frá nítjánda
aldursári mínu til tuttugasta og átt-
unda, var ég vegvilltur og villti aðra,
tældur og táldrægur í margs kyns
ástríðu ljóst og leynt. “
Hroki, hjátrú, lýðhylli, óhófiegar
nautnir er meðal þess sem Ágústín-
us játar á sig.
Blæðandi und
Ágústínus þráir að hverfa frá
glaumnum og bæta ráð sitt. Syndir
hans margfaldast sífellt:
„Sú kona, sem veríð hafði rekkju-
nautur minn, var siitin frá mér, til
þess að hún stæði ekki í vegi fyrir
hjónabandi mínu. En hjarta mitt var
henni bundið, og það var hvössum
broddi stungið og bar blæðandi und. “
Konan sem Ágústínus nefnir er
Floria Aemilia, sú sem hefur orðið
í nýrri skáldsögu Josteins Gaarders,
Vita Brevis (útg. Aschehoug). Sú
kona sem aftur á móti hafði mest
áhrif á hann var Monica, móðir
hans, sem kom því til leiðar að hann
gerðist kristinn árið 386. í bréfum
Floriu birtist hún sem örlaga- og
ógæfuvaldur sonar síns. Gefið er í
skyn að Ágústínus hafi alltaf óskað
að lifa lífínu til fulls og njóta lysti-
semda holdsins, jafnvel er látið að
því liggja að samband þeirra mæðg-
ina hafi með einhvetjum hætti verið
óeðlilegt.
Bréf Floriu eru þrungin holdleg-
um kenndum um leið og þau eru
studd lærðum dæmum úr sögu
heimspekinnar. Heimspekingar eru
kallaðir til vitnis jafnóðum og orðin
streyma úr pennanum. Bréfin eru
hægra megin á opnu en skýringar
og neðanmálsgreinar vinstra megin.
Á nokkrum stöðum eru þær ítarleg-
ar, oftar þó aðeins fá orð.
Gaarder byggir söguna þannig
Tilfinningarnar ráða þó mestu.
Lýsingar verða oft ljóðrænar og
um leið munúðarfullar, en líka
ásakandi:
„Manstu enn hvernig þú
straukst mér um allan iíkamann
og líkt og þandir alla blómhnappa
áður en þeir sprungu út? Hvað þú
naust þess að tína mig! Hvað þú
ölvaðist af ilmi mínum! Hvað þú
nærðist á safa mínum! Svo gekkstu
burt og seidir mig fyrír freisi sáiar
þinnar. Hvílík ótryggð, Aurel, hví-
lík sök! Nei, ég trúi ekki á Guð
sem heimtar mannfórnir. Ég trúi
ekki á Guð sem eyðileggur líf konu
til að frelsa sál mannsins. “
í augum Floriu (nafnið merkir
blóm) ætti Guð ekki að reiðast eða
fordæma fólk fyrir að njóta ástalífs-
ins. Hún sýnir líka fram á tvöfeldni
Ágústínusar og að hann hafi ekki
verið jafn staðfastur og hann vill
vera láta.
Guð skapaði
líka girndina
Fioria segir að Ágústínus skrifi
stöðugt um lostasemi og fýsnir og
spyr hann: „Hefur þér komið i hug
að kannski sért það þú sem lítir gjaf-
ir Guðs fyrirlitningaraugum?" Þann-
ig snýr Ágústínus baki við þvi sem
Guð hefur skapað því að hann skap-
aði líka girndina. Ágústínus minnir
Floriu á platónista og manikea sem
sveifluðust milli trúar og heimspeki
í frelsisboðun sinni, grundvölluðu
kenningu sína á að heimurinn skipt-
ist í tvennt: gott og illt, ljós og myrk-
Jostein
Gaarder
upp að í inngangi er
hann í Buenos Aires
á bókastefnu og
staddúr á flóamark-
aði þar og verður
reikað inn í_ forn-
bókaverslun. í henni
rekst hann á gamalt
handrit og kaupir
það. Þetta eru bréf Floriu til Ágúst-
ínusar. I eins konar eftirmála er
hann að velta fyrir sér spurningum
eins og þeim hvort Floria hafi nokk-
urn tímann sent bréfin og hvort
Ágústínus hafi lesið þau.
Hvort Vita Brevis fjallar fyrst og
síðast um ást eða heimspeki geta
lesendur skorið úr hver með sínum
hætti. Vissulega eru margar heim-
spekilegar umþenkingar í bókinni.
ur, anda og efni. Maðurinn gat að
þeirra dómi hafíð sig yfir efnið með
fulltingi andans og með því stuðlað
að frelsi sálarinnar.
Ágústínus héit fram erfðasynd-
inni og hvernig menn geta einungis
frelsast fyrir náð Guðs.
Umræða um heimspeki getur ást-
arsaga Josteins Gaarders líka kall-
ast vilji menn hafa það svo. Það er
aftur á móti óvenjulegt að lesa
skáldsögu og í þessu tilviki ástar-
sögu sem skírskotar til heimspek-
innar með jafn afgerandi hætti og
gert er í Vita Brevis. Hvað það varð-
ar má líta á söguna sem kennsiubók
í heimspeki. Einhver héldi því
eflaust fram og með nokkrum rétti
að sama megi segja um Veröld Soff-
íu. Alveg nýlega kom líka barnabók-
in Halló! er nokkur þarna? eftir sama
höfund og þar er glímt við tilveruna
í anda heimspekinnar.
„Lífíð er stutt og við vitum svo
ósköp lítið," skrifar Floria Aemilia
undir lok Vita Brevis. Hún hefur
lesið Játningarnar en kveðst ekki
ætia að láta skírast. Hún segist
ekki óttast Guð, hún fylgi honum
og spyr hvort hann hafi ekki skapað
hana. Maðurinn frá Nasaret er
henni að skapi enda var hann rétt-
látur í garð kvenna. Floria óttast
kennimennina mest, guðfræðing-
ana.
Ekki veit ég í hvaða flokki Vita
Brevis lendir meðal bóka Josteins
Gaarders, hvar í röðinni hún verð-
ur. En þetta er ein læsilegasta bók
hans, hugnæm og á erindi.
Þorir þú
Höfundur bókarinnar, Brian Tracy, er einn
af helstu sérfræðingum heims í velgengni
og persónulegum árangri og efni hans hefur
verið þýtt á 14 tungumál í 30 löndum.
Hann hefur einnig talað til yfir milljónum karla
og kvenna.
Brian Tracy hefur tileinkað líf sitt og starf rann-
sóknum á mismuninum þeim sem ná velgengni
í lífí sínu og þeirra sem ná henni ekki.
að ná HAMARKS ARANGRI
í eigin lífí - og viltu gefa öðrum
tækifæri að gera slíkt hið sama?
„í bókinni Hámarks árangur setur Brian Tracy fram einfaldar aðferðir
til að leysa úr læðingi það besta í hverjum einstaklingi. Með því að
beina athyglinni inn á við í stað þess að bíða eftir tækifærum sem
aldrei koma lærir lesandinn að skapa aðstæður til að koma sér áfram
í lífinu og gera sig að heilsteyptari einstaklingi. Þessi bók er einstök í
röð sjálfshjálparbóka að því leiti að hún dregur lesandann út úr heimi
óraunhæfra draumóra og inn f raunveruleika þar sem honunt eru allir
vegir færir ef hann tileinkar sér ákveðnar meginreglur í lífsbaráttunni.
Þessi bók er grundvallarlesning fyrir hvern þann sem vill ráða
eigin örlögum.“
Árni Þór Hilmarsson, sálfræðingur og höfundui
„Tilfinningalífs karla“ og „Uppkomin börn alkahólista*1
f' 1 „Markmiðiu virðast stundum jafn fjarri og stjömumar.
tr '? Sk Brian Tracy kveikir í þér þann eldmóð sem þarf til að
ná til þeirra, komast í ferðina til stjamanna, okkar
W*f^ / æðstu drauma og markmiða."
X s J* Fanný Jónmundsdóttir, lciðbeinandi.
„Bók Brian Tracy „Hámarks árangur" er frábær bók. í henni setur hann
fram áhrifaríkar reglur sem gagnast öllum á leið þeirra til betra lífs.
Ég mæli óhikað með þessari bók.“
Stella Sæmundsdóttir, verslunarstjóri Betra lífs.
„Á undanförnum árum hef ég kynnst Brian Tracy gegnum
bækur hans, myndbönd og hljóðsnældur.
Hann er tvímælalaust í hópi hæfustu manna á sviði
sjálfsþekkingar, tímastjórnunar og þjálfunar til árangurs.“
Thomas Möller, framkvæmdastjóri markaðssviðs Olís.
„Brian Tracy hefur hæfileika til að gera jafnvel stærstu ákvarðanir í lífinu
í;, 1 auðveldar. Leit hans eftir hámarks árangri í lífinu og list hans í að setja
f f flS fram markmið, sem auðvelt er að ná, gerir þessa bók að nauðsynlegu
lesefni fyrir alla.“ Phil Hunter, atvinnumaður í golfi.
„Kveiktu ekki á sjónvarpinu fyrr en þú hefur lesið þessa bók.
Sum ráðin eru milljóna virði. Önnur verða ekki metin til fjár,
t.d. Besta lækningin við óhamingju er að gera einhvern
annan hamingjusaman.“
Jón Ögmundur Þormóðsson, lögfraeðingur,
höfundur bókarinnar „Fegursta kirkjan á Islandi“
„Bókin er ekki bara athyglisverð fyrir þá lýsingu sem sett er fram á
lífinu eins og við flest lifum því. Hún er einnig holl áminning um að
þrátt fyrir mismunandi aðstæður er sérhver einstaklingur sinnar eigin
gæfu smiður.“
Jóhann Björnsson, M.A. í heimspeki.
LEIDARIJ S ehf.
Leiðandi í útgáfu á sjálfsrœktarefni
Brekkubæ - Hellnuni, 355 Snæfellsbæ.
Sími 435 6800. Fax. 435 6801
Farsími: 855 2105. Afgreiðsla í Reykjavík: 567 3240.
e-mail :leidar@aknet.is
Okkur markmið er... að hjálpa þér að ná þínu
Fæst í öllum helstu
bókaverslunum landsins.
Innbundin kr. 3.490
Dreifingarsími:
567-3240
Bók fyrir bæði kynin í öllum aldurshópum,
í hvaða starfstétt sem er,
því það er aldrei of snemmt eða of seint að leita eftir
HÁMARKS ÁRANGRI