Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 35
34 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haligrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
VARAÐ VIÐ
OFBELDISMYNDUM
FRANSKAR sjónvarpsstöðvar hafa tekið upp þá ný-
breytni að merkja kvikmyndir til að vara foreldra við
að þær séu ekki ætlaðar börnum og geti skaðað þau. Mynd-
irnar eru einkenndar með merki neðst til hægri á skjánum
og það gefur til kynna að þær séu varhugaverðar börnum
og unglingum.
Ástæða þess, að frönsku sjónvarpsstöðvarnar tóku þetta
merki upp, er að 80% sjónvarpsáhorfenda í Frakklandi töldu,
að ofbeldi keyrði um þverbak í dagskrám stöðvanna. Merk-
ið er þrenns konar, grænn hringur, þegar myndir teljast
varhugaverðar, gulrauður þríhyrningur, þegar myndir eru
bannaðar börnum yngri en 12 ára og rauður ferningur
varar við grófu ofbeldi og klámi, sem gæti haft áhrif á
andlegan og siðferðilegan þroska ungmenna.
Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að sér fyndist sjálfsagt að kanna
hér á landi hvernig unnt væri að vara foreldra við ofbeldi
í sjónvarpi og nefndi þá einnig í því sambandi sérstakar
rafrænar ofbeldissíur, sem hann hefði rætt um á Alþingi.
Ráðherrann sagðist ekki myndu beita sér að öðru leyti í
máli þessu en lýsa skoðunum sínum á því.
í ljósi mikillar ofbeldisöldu, sem gengið hefur yfir ís-
lenzkt þjóðfélag að undanförnu, er eðlilegt, að sjónvarps-
stöðvarnar geri einhverjar ráðstafanir í þessum efnum.
Með því má líka segja að boltanum sé velt til uppalenda,
þeirra sem bera eiga ábyrgð á andlegum og siðferðilegum
þroska yngstu kynslóðarinnar.
NORRÆNU TONLISTAR-
VERÐLAUNIN
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR hlýtur tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs árið 1997 og verða þau afhent á
menningarmálaráðstefnu ráðsins í Osló 3. marz n.k. Þetta
er í fyrsta sinn, sem verðlaununum er úthlutað til lista-
manns á sviði dægurtónlistar og það er gleðilegt, að Björk
skuli verða þessa heiðurs aðnjótandi. Enginn vafi leikur á
því, að hún hefur borið hróður íslenzkrar dægurtónlistar
víðar um heim en nokkur annar fyrr eða síðar.
í rökstuðningi sínum fyrir valinu sagði úthlutunarnefnd-
in m.a, að Björk hefði um árbil stöðugt þróað tjáningar-
máta sinn og sigurganga hennar á alþjóðavettvangi væri
staðfesting á tónlistarhæfileikum hennar. Þetta má til sanns
vegar færa, því stíll Bjarkar er mjög persónulegur og sér-
stæður.
Björk Guðmundsdóttir er því vel að norrænu tónlistar-
verðlaununum komin og hún bætist nú í hóp tveggja ís-
lenzkra tónskálda, sem verðlaunin hafa hlotið, þeirra Atla
Heimis Sveinssonar og Hafliða Hallgrímssonar. Allir eru
þessir listamenn landi og þjóð til sóma.
AFNEMUM ÓLÖGIN
UMMÆLI Guðmundar Bjarnasonar landbúnaðarráð-
herra á Alþingi í fyrradag um sölu lambakjöts verða
að teljast afar einkennileg. Að sögn ráðherrans eru beinir
samningar bænda um sölu lambakjöts í stórverzlanir, á
öðru verði en verðlagsnefndir ákvarða, brot á búvörulögum.
Engu að síður segist ráðherrann ekki ætla að hafa af-
skipti af þessum samningum, þar sem engar kvartanir eða
kærur hafi borizt vegna þeirra!
Það er sérkennilegt að ráðherra þess ráðuneytis, sem á
að sjá til þess að búvörulögum sé framfylgt, láti sér í léttu
rúmi liggja að sum ákvæði þeirra séu brotin. Öðrum ákvæð-
um búvörulaga, til dæmis um innflutning landbúnaðaraf-
urða, hefur verið framfylgt af harðfylgi af hálfu landbúnað-
arráðuneytisins og að frumkvæði þess.
í orðum landbúnaðarráðherra virðist felast viðurkenning
á því, að ákvæði búvörulaga um opinbera verðlagningu á
lambakjöti séu óskynsamleg og ekki í samræmi við veruleik-
ann. Það sýndi sig líka síðastliðið sumar að umræddir samn-
ingar voru til hagsbóta bæði fyrir bændur og neytendur.
En landbúnaðarráðherra ætti þá að beita sér hið fyrsta
fyrir afnámi þessara ólaga, sem heilbrigð skynsemi segir
mönnum að fara ekki eftir.
STJÓRNVÖLD í löndum inn-
an Efnahags- og framfara-
stofnunar Evrópu hafa sett
sér það markmið að vinna
saman gegn peningaþvætti og eins
hafa löndin hvert fyrir sig skuld-
bundið sig að tryggja það með lög-
gjöf að peningakerfið sé á vakt
gagnvart öllum óeðlilegum viðskipt-
um.
ísland er í þessum hópi og Jón
H. Snorrason starfandi vararann-
sóknarlögreglustjóri segir að banka-
kerfið sé skuldbundið til að tilkynna
lögregluyfirvöldum um grunsamleg-
ar peningayfirfærslur eða afgreiðsl-
ur. Þetta á m.a. við ef viðskipta-
mennirnir eru ekki þekktir eða fjár-
hæðimar eru óvenjulega háar.
Jón segir þetta samstarf banka
og lögreglu enn á bytjunarstigi og
því nokkuð viðkvæmt en upplýs-
ingar frá bönkunum til lögreglu séu
lögum samkvæmt bundnar miklum
trúnaði.
„Þarna er ekki um að ræða kæru-
skyldu peningastofnana heldur til-
kynningarskyldu til lögregluyfir-
valda, sem eiga síðan að kanna hvort
einhver tilefni séu til að ætla að
málið tengist refsiverðri háttsemi.
Ef svo reynist ekki vera eyðir lög-
reglan öllum gögnum sem hún hefur
fengið. Ef hins vegar er um að ræða
peningatilflutninga sem eiga upp-
runa í sakamáli þá em þetta upplýs-
ingar sem fara inn í viðkomandi
sakamál," segir Jón.
Ur ólöglegu í löglegt
Skilgreining á peningaþvætti er
hverskyns meðferð á eignum eða
peningum sem eru til komnir vegna
afbrota í þeim tilgangi að leyna ólög-
mætum uppruna eignanna eða pen-
inganna. Með öðrum orðum lýsir
orðið því, þegar verið er að koma
peningum, sem fengnir em með
ólögmætum hætti, yfir í lögmæta
starfsemi.
Eðli málsins samkvæmt eru mál
sem falla undir peningaþvætti marg-
víslegs eðlis, allt frá smáþjófnaði upp
í umfangsmikil alþjóðleg svikamál.
Þeir sem skipuleggja slíkar svika-
myllur reyna að hafa starfsemina
dreifða um mörg lönd svo það verði
tafsamt að rekja þræðina. En með
samstarfi lögregluyfirvalda i gegn-
um Interpol og árvakurri bankavakt
er auðveldara að höndla þessi mál.
Mál sem kennt hefur verið við
Grimaldi Hoffman er eina alþjóðlega
peningaþvættismálið sem tengst
hefur Islandi svo vitað sé. Það komst
raunar upp, þegar íslenskir bankar
tilkynntu RLR um óeðlilegar pen-
ingahreyfíngar á bankareikningum
sem stofnaðir höfðu verið hér á
landi. Þetta mál er enn í rannsókn
hjá yfirvöldum í Belgíu.
Jón H. Snorrason segir, að mál
SVOKALLAÐ Grimaldi Hoff-
man-mál er nokkuð klassískt
dæmi um alþjóðlegt svikabrail.
Fyrirtækið Grimaldi Hoffman
var skráð á Bahamaeyjum árið
1992. Stjórnarmenn fyrirtækis-
ins voru búsettir á Ermarsunds-
eyjunni Sark og þeir stofnuðu
útibú á Spáni, sem var í raun
aðeins pósthólf. Árið 1994 voru
stofnaðir bankareikningar í
nafni fyrirtækisjns hér á landi í
Landsbanka og Íslandsbanka.
Þeir sem stóðu á bakvið Gri-
maldi Hoffman stofnuðu gervi-
fyrirtæki í Kanada og Bandaríkj-
unum og skráðu þau á hluta-
bréfamörkuðum með því að gera
tilboð í eigin hlutabréf og sam-
þykkja þau á genginu 4. Síðan
hóf Grimaldi Hoffman söluher-
ferðir gegnum síma og bauð
vænlegum fjárfestum hlutabréf
í gervifyrirtækjunum. Þetta var
kynnt sem áhugaverð skamm-
tímafjárfesting því fyrirtækin
störfuðu í hátækniiðnaði og væru
um það bil að koma fram með
nýjung sem ekki hefði verið
kynnt enn, þannig að hlutabréfin
væru í raun á undirverði.
Þúsundir manna um alla Evr-
ópu létu blekkjast og sendu
greiðslu fyrir hlutabréfin inn á
bankareikningana á íslandi, alls
um 1,6 milljarð króna. Að nokkr-
um mánuðurn liðnum fóru fjár-
Á vakt
gegn pen-
ingaþvætti
Aðgerðir gegn alþjóðlegu peningaþvætti verða
stöðugt víðtækari enda er um stjarnfræðileg-
ar upphæðir að ræða. Enginn veit með vissu
hve miklir peningar eru þvegnir í heiminum
árlega en árið 1991 var upphæðin áætluð 20
þúsund milljarðar króna. Guðmundur Sv.
Hermannsson kynnti sér málið og ræddi við
Jón H. Snorrason hjá RLR.
eins og Grimaldi Hoffman-málið segi „Land sem er veikt í þessum skiln-
til um styrkleika landa gagnvart ingi fær á sig það orð, að viðskipti
fjármálasvikum. við það geti verið viðsjárverð. Menn
□□□□□□
JÓN H. Snorrason starfandi
vararannsóknarlögreglustjóri
hugsa sig um tvisvar áður en þeir
eiga viðskipti við aðila í Nígeríu en
öðru máli gegnir um viðskipti við
kringum innflytjendur frá Asíu og
Afríku. Þannig hafa innflytjendur
frá Afríku nánast tekið öll völd á
eiturlyfjamarkaðinum í Ósló, ogþað
er talið tengjast skipulagðri starf-
semi í öðrum löndum. Jón segir
hins vegar ekkert benda til þess,
að aukin skipulagning fíkniefna-
starfsemi hér á landi tengist nýbú-
um.
Við fíkniefnaviðskipti og aðra
ólöglega starfsemi eða viðskipti
verður til neðanjarðarhagnaður sem
koma þarf á löglegan markað. Jón
segir að ekki hafí verið áætlað hver
velta slíkrar starfsemi hér á landi
sé á ári, en það skipti örugglega
hundruðum milljóna króna.
Netfé
aðila gegnum banka á íslandi vegna
þess að íslenskir bankar líða ekki
óheiðarlega starfsemi. En ef bank-
arnir á íslandi hefðu ekki gert við-
vart um Grimaldi Hoffman-málið,
þá hefðu þeir hugsanlega fengið á
sig þann stimpil sem fylgdi því að
vera viðskiptabankar Grimaldi Hoff-
man.
Það hangir því meira á spýtunni
en að koma upp um ólöglega starf-
semi einstakra fyrirtækja. Þetta
snertir allan orðstír landanna og við-
skiptalífs þeirra," segir Jón.
Skipulagning
Um helmingur peningaþvættis í
heiminum er talinn tengjast við-
skiptum með fíkniefni. Hér á landi
er peningaþvætti einna
helst talið eiga sér stað í
tengslum við slík mál
enda tengjast þau við-
skipti einnig alþjóðlegum
glæpahringum.
„Hverskyns eiturlyfja-
starfsemi hér á landi tengist skipu-
lagðri glæpastarfsemi í útlöndum
með einum eða öðrum hætti,“ segir
Jón. „Innflytjendur og dreifendur
fíkniefna hér á landi eru farnir að
tengjast skipulögðu neti og það
hefur ítrekað gerst að útlendingar
hafa verið teknir hér þegar þeir
koma með fíkniefni til landsins.
Þetta er því orðið einskonar póst-
kerfi: menn fiytja efni samkvæmt
ákveðnu skipulagi frá einu landi til
annars.
Á Norðurlöndunum hafa víða
myndast skipulagðir glæpahópar
Öll samskipti manna á milli verða
stöðugt greiðari með nýjustu tækni
óg afbrotamenn hafa víða um heim
tekið tæknina í þjónustu sína. Um
leið opnast nýjar leiðir til að flytja
peninga og þvo þá um leið og aðrar
hefðbundnar leiðir, svo sem að færa
peninga yfir á svissneska banka-
reikninga, verða torfarnari.
Ein aðferð, sem enn er verið að
þróa, er að nota svokallað „cyber-
cash“ eða netfé. Það er einskonar
kort með tölvuflögu, sem hægt er
að geyma á upplýsingar. Hægt er
að flytja „peninga" inn á kortið í
gegnum síma eða úr bankasjálfsala
og flytja peninga milli korta. Engin
skráning fer fram um millifærsluna.
Þá býður alnetið upp á ótal mögu-
leika til afbrotastarfsemi. Jón segir
að innan lögreglunnar sé byijað að
ræða um alnetið og ýmislegt sem þar
geti farið fram og sé ekkert annað
en lögbrot og svikastarfsemi. „En
þeir sem ganga til þess leiks, að vera
á netinu, verða að gera sér grein
fyrir göllunum. Það er ekki stöðugt
hægt að halda í höndina á fólki.“
En hvernig er lögreglan í stakk
búin til að fylgjast með þessari þró-
un mála? „Við erum í
nánu samstarfí við lög-
regluyfirvöld á Norður-
löndunum, bæði við grein-
ingu á því sem er að ger-
ast og þjálfun á viðbrögð-
um,“ segir Jón. „Lögregla
á Norðurlöndum hefur mikla sam-
vinnu sín á milli enda eru landamær-
in milli Noregs, Svíþjóðar og Dan-
merkur ekki mjög skýr. Innan Evr-
ópusambandsins hefur samstarf lög-
regluyfirvalda ekki gengið jafn hratt
fyrir sig og samstarf landanna á
viðskiptasviðinu en nú er unnið að
úrbótum. Samstarfið hjálpar mönn-
um til þess að sjá þetta í víðu sam-
hengi yfír landamæri. En það er
verið að reyna að samræma löggjöf-
ina þannig að lögregla hafi sömu
möguleika í öllum löndunum, því
annars er samstarfið þýðingarlítið.“
Peninga-
þvætti hér
tengist eink-
um fíkniefnum
Alþjóðlegar
fjársvikamyllur
festarnir að ókyrrast, höfðu sam-
band við Grimaldi Hoffman, og
vildu selja hlutabréfin. Þá létu
forsprakkar svikakeðjunnar
selja hlutabréf í gervifyrirtækj-
unum á genginu 0,5 til að fá það
gengi skráð í kauphöllum. Síðan
voru hlutabréf fjárfestanna seld
á því gengi. Fjárfestarnir fengu
söluverðið og fullkomið uppgjör
yfir söluna frá kauphöllunum en
töguðu stórfé.
I millitíðinni höfðu fjárhæðirn-
ar sem komu inn á íslensku
bankareikningana verið milli-
færðar á bankareikninga fyrir-
tækis í Belgíu. Þetta voru óeðli-
legar peningahreyfingar og
bankarnir tilkynntu RLR um
málið. Það hleypti af stað rann-
sókn á málinu sem staðið hefur
síðan í Belgíu, en þar eru höfuðp-
aurar málsins taldir vera.
Þunnir ferða-
bæklingar
Þekkt dæmi um alþjóðleg fjár-
svik eru tilraunir svindlara til
að selja auglýsingar í alþjóðlega
ferðabæklinga sem aldrei koma
út. Þá eru viðurkennd kynning-
arfyrirtæki ráðin til að safna
auglýsingum í bæklingana til að
búa til trúverðuga framhlið. Þeg-
ar reynt er að rekja mál af þessu
tagi kemur oft í ljós, að fyrirtæk-
in sem bjóða auglýsingarnar hafa
verið ráðin til þess verks af svip-
uðum fyrirtækjum í öðru Iandi,
sem aftur hafa verið ráðin til
sama verks í enn öðni landi
o.s.frv. þannig að erfitt er að
finna þá sem í raun standa á bak
við svindlið.
Pappírskráin
í Noregi kom upp mál þar sem
maður sem efnaðist á eiturlyfja-
sölu vildi kaupa sér hús í fínu
hverfi í Ósló. Sá böggull fylgdi
skammrifi að hann hafði nær
engar opinberar tekjur sam-
kvæmt skattframtali og því gætu
mikil fasteignakaup og umsvif
vakið athygli skattayfirvalda.
Maðurinn brá á það ráð að setja
á stofn krá, og skilaði til skatta-
yfirvalda nákvæmum skýrslum
um virðisaukaskatt sem sýndu
veruleg umsvif í kráarrekstrin-
um. Þá greiddi maðurinn skatta
og launatengd gjöld af fjölda
starfsfólks. Með „gróðanum" af
kránni keypti hann sér stórt hús
og lifði í vellystingum praktug-
lega þar til yfirvöld létu kanna
krána hans nánar. Þá kom í ljós
að umsvifin voru mjög lítil og
þangað komu nánast engir gest-
ir.
Okurleiga
Framkvæmdastjóri rússnesks
útgerðarfyrirtækis ákvað að
flylja til Vestur-Evrópu og und-
irbjó flutninginn með því að
draga sér fé frá fyrirtækinu. Til
að koma fénu út úr Rússlandi
fékk hann vitorðsmann í fyrir-
heitna Evrópulandinu til að gera
við sig húsaleigusamning og
leigði af honum kjallaraholu fyr-
ir geypiverð. Framkvæmdastjór-
inn sendi síðan reglulega pen-
inga frá rússneska fyrirtækinu
til að greiða húsaleiguna. Vit-
orðsmaðurinn gaf leigutekjurnar
upp til skatts en afganginum
skiptu framkvæmdastjórinn og
vitorðsmaðurinn með sér. Þannig
dró framkvæmdastjórinn pen-
inga út úr fyrirtæki sínu en'þvoði
þá jafnframt með því að nota þá
til að greiða húsaleigu á opinber-
um markaði þótt hún væri hátt
yfir markaðsverði.
Gervifyrirtæki
Á íslandi hafa fyrirtæki verið
búin til í þeim tilgangi einum
að stunda fjársvik. Þessi fyrir-
tæki hafa verið skráð opinber-
lega og með eðlilega kennitölu
en engin starfsemi fór þar fram
heldur voru þau notuð til að
stofna til viðkipta og skuldbind-
inga. Dæmi er um fyrirtæki sem
ákveðnir menn voru fengnir til
að vera í forsvari fyrir. Fyrir-
tækið var skuldbundið upp á
milljónatugi en þegar að skulda-
dögum kom varð ljóst að fyrir-
tækið hafði enga starfsemi og
öll verðmæti, sem fyrirtækið
hafði aflað sér, voru horfin. Eft-
ir sat skráður forsvarsmaður,
sem ekkert hafði fylgst með
málinu; sagðist raunar hafa ver-
ið drukkinn mánuðum saman.
Hann var dæmdur í 2Vi árs fang-
elsisvist.
Bankasvik
Svikahrappar hafa komist inn
á alþjóðleg bankanet og svikið
fé út úr bönkum með því að óska
eftir millifærslum á reikninga.
Það er í sjálfu sér ekkert nýtt
og að bankar séu á verði er líka
eðli máli samkvæmt hluti af
þeirra skyldum og vinnuaðferð-
um. En það hefur í nokkrum til-
vikum sýnt sig að þessi skylda
bankanna að gaumgæfa mjög vel
uppruna peninga og gaumgæfa
frá hveijum þeir stafa, hefur
upplýst um fjársvik.
Dæmi um mál sem komst upp
í einu Norðurlandanna er þegar
banki A fékk peningasendingu,
sem samsvaraði 2 milljörðum ís-
lenskra króna, frá banka B í
sama landi með ósk um að fjár-
hæðin yrði færð á 15 bankareikn-
inga í 10 öðrum löndum. Banki
A spurði banka B hvaðan þessir
peningar hefðu komið en það
sagðist banki B ekki hafa kannað
sérstaklega því upphaflega óskin
hefði komið frá öðrum banka,
C, og sá banki yrði skuldfærður
fyrir upphæðinni. Banki A hafði
þá samband við banka C og þá
kom í ljós að C kannaðist ekkert
við málið.
í þessu tilviki var þar það ár-
vekni starfsmanna banka A sem
voru að gegna skyldum sínum
við lögin um peningaþvætti, sem
varð til þess að forða banka B
frá stórtapi. Hann hafði sofið á
verðinum og talið að banki C
hafi verið búinn að ganga úr
skugga um að allt væri með
felldu.
Um 40% fuilorðinna hafa aldrei reykt
ÁRSSKÝRSLA tóbaksvarnanefndar um reykingar landsmanna er nýkom-
in út en nefndin hefur falið Hagvangi að gera árlega þrjár úrtakskannanir á
reykingum landsmanna síðan 1985.
Stærð úrtaksins í hverri könnun nam 1.400 manns, á aldrinum 15 til 89 ára,
og voru þeir valdir af handahófi, en könnunin var gerð símleiðis.
Svarhlutfall var frá 71,6% til 73,0%. í skýrslunni kemur meðal annars fram
að 38,6% karla á aldrinum 18 til 69 ára hafa aldrei reykt, 30,3% reykja
daglega en 3,3% sjaldnar en daglega, 24,1 % hætti fyrir meira en ári en
3,8% hættu fyrir minna en ári.
Hjá konum á sama aldursbili er samsvarandi niðurstaða sú að 40,5%
kvenna hafa aldrei reykt, 30,5% reykja daglega en 3,7% sjaldnar en
daglega, 21,6% hættu fyrir meira en ári en 3,6% hættu fyrir minna en ári.
Reykja eða reykja ekki
Reykja daglega
I Reykja sjaldnar
-—I en daglega
-Hættif. minna enári
Hætti fyrir
meira en ári
Hef aldrei reykt
KONUR
18-69 ára
Þau sem reykja daglega, eftir aldri (is-89ára)
100%
-Hafaaldrei reykt
- - Eru hætt
Reykja stundum
Reykja daglega
15-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80-89
ára ára ára ára ára ára ára ára
5J5KJ Hvað reykja þau? (15-79 ára)
100
é
e
co
co
80
10,1% vindla 60
6,9%, pípu
KONUR
15-79 ára
<D
s
40
20
-vindla
- þípu
3
£
<xs
-5?
w
TO
cn
-Sí
«o
15-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80-89
ára ára ára ára ára ára ára ára
Þau sem reykja daglega (is-69ára)
Skipt eftir skólagöngu
Háskólapróf
50%
Þau sem reykja daglega 1985 til 1996
I f
43%1 V"— KARLAR, 18-69 ára '
37% < II
31%
30%
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996