Morgunblaðið - 22.11.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 41
Merking
raffanga
Nýjar reglur kveða á um CE-merki
DAGLEGA um-
gangast flest okkar
rafföng. Þegar við
kveikjum ljósið á bað-
herberginu, hellum
upp á fyrsta kaffibolla
dagsins, stimplum
okkur inn í vinnuna,
borum gat á vegginn
og tanlæknirinn borar
í tönnina. Rafmagns-
tæki og sá búnaður
sem þeim tilheyrir er
allt í kring um okkur,
flest okkar alla ársins
daga. Reglur um ör-
yggi þessa búnaðar,
raffanga, eru settar til
að auka öryggi við
notkun hans. Skylda er að ganga
þannig frá rafföngum að við eðlileg-
ar aðstæður stafi ekki hætta af
þeim. Framleiðendur raffanga
þurfa því að hafa yfir að ráða nægi-
legri fagþekkingu og að þekkja ör-
yggisákvæði viðeigandi staðla. Að-
Það eina sem ekki hefur
verið reynt að fram-
kvæma innan þessa
markaðssvæðis, segir
—
Orn Guðmundsson, er
tungumálið.
eins þannig geta þeir uppfyllt
ákvæði viðeigandi reglugerða og
laga um öryggi vöru.
CE-merking
Með breytingu á reglugerð um
raforkuvirki, sem tók gildi 1. janúar
1995 (nr. 674/1994), skal frá næstu
áramótum vera CE-samræmis-
merki á öllum rafföngum sem sett
eru á markað hér á landi. Reglu-
gerðarbreytingin er gerð með hlið-
sjón af lágspennutilskipun Evrópu-
sambandsins sem er hluti af við-
auka samningsins um
hið evrópska efnahags-
svæði (EES). Reglur
hér á landi um merk-
ingu raffanga verða
þannig hliðstæðar því
sem gerist í öðrum ríkj-
um innan EES. í reglu-
gerð um rafsegulsviðssamhæfi (nr.
146/1994) er einnig kveðið á um
að ákveðin rafföng skuli bera CE-
merki með tilvísum í tilskipun Evr-
ópusambandsins um sama efni.
Með CE-merkingu raffangs er
gefið til kynna að það uppfylli ör-
yggisákvæði lágspennutilskipunar
Evrópusambandsins og annarra
viðeigandi tilskipana. Hafa ber í
huga að CE-merkingar eru notaðar
mun víðar en á rafföngum. T.d. á
leikföng, hjálma og aðrar líkams-
hlífar, einföld þrýstihylki og almenn
lækningatæki. CE-merki á vöru er
staðfesting framleiðanda hennar á
að varan uppfylli þær kröfur sem
gerðar eru til hennar um öryggi,
heilbrigði og umhverfisvernd í til-
skipunum Evrópusambandsins.
Akvæðið um CE-merkingu raf-
fanga vegna lágspennutilskipunar-
innar hefur verið í gildi hér á landi
frá 1. janúar 1995, með bráða-
birgðaákvæði um að rafföng þurfi
ekki að bera merkið fyrr en frá og
með 1. janúar 1997. Rafföng sem
falla undir tilskipunina um rafsegul-
sviðssamhæfi eiga að bera CE-
merkið frá 1. janúar 1996.
Samræmisyfirlýsing
Til staðfestingar á CE-merki
þarf framleiðandi raffangs að hafa
metið samræmi þess við ákvæði
viðeiganda tilskipana. Að loknu
samræmismati lýsir
framleiðandinn, með
staðfestu innan EES,
því yfir að kröfum um
samræmi sé fullnægt
og festir CE-merki á
raffangið. I yfirlýsing-
unni eru upplýsingar
um nafn og póstfang
framleiðandans, lýsing
á vörunni (raffanginu)
og tilvísun í staðla eða
tækniákvæði sem við
eiga. Að endingu kem-
ur fram í yfirlýsingunni
árið sem CE-merkið
var sett á raffangið.
CE-merki, sem sett
er á raffang, og til-
heyrandi samræmisyfirlýsing eru á
ábyrgð framleiðanda innan EES.
Merkið gefur til kynna að við fram-
leiðslu vörunnar hafi verið stuðst
við viðeigandi ákvæði um öryggi
vöru og að sá sem gefur út yfirlýs-
inguna ábyrgist að svo sé og geti
stutt það með tæknigögnum.
Tæknigögnin innihalda m.a. lýsingu
raffangsins, hönnunarteikningar,
skrá yfir staðla sem stuðst var við
og á hvern hátt öryggisákvæðum
þeirra var fullnægt.
Frelsi eða höft?
Mikið er rætt og skrifað nú á
dögum um frelsi einstaklingsins. Á
sama tíma hafa aldrei verið í gildi
fleiri regiur um það sem snýr að
daglegu lífi. Sameiginlegt markmið
reglnanna er að tryggja frelsið svo
sem kostur er og að stuðla að auknu
öryggi því samfara.
Með niðurfellingu landamæra og
fjórfrelsinu svokallaða innan evr-
ópska efnahagssvæðisins (hafta-
lausan flutning vöru, fólks, þjón-
ustu og fjármagns) hefur verið stig-
ið stórt skref í opnun Evrópu. Með
sameiginlegum reglum er reynt að
tryggja fijálsa samkeppni innan
svæðisins. Á þessu byggjast reglur
um markaðssetningu raffanga og
fleiri vöruflokka.
Vara framleidd á ís-
landi og sett á markað
eftir framangreindum
leikreglum er hæf til
markaðssetningar hvar
sem er innan EES. Því
er ekki rétt að líta svo
á að krafan um CE-
merkingu vöru sé til að torvelda
viðskipti heldur opnar hún innlend-
um framleiðendum einn stærsta
markað heimsins. Það eina sem enn
hefur ekki verið rætt um að sam-
ræma innan þessa markaðssvæðis
er tungumálið. Rétt er að viðvaran-
ir og leiðbeiningar er varða rétta
og örugga notkun vöru séu á viðeig-
andi tungumáli, þ.e. íslensku þegar
vara er seld hér á landi.
Markaðseftirlit
Til að hindra að á markaði sé
hættuleg vara er á vegum stjóm-
valda stunduð markaðsgæsla. Hluti
þeirrar gæslu er markaðseftirlit og
er hlutverk þess að skoða þá vöru
sem er á markaði og sinna ábend-
ingum um vöru sem talin er vafi á
að uppfylli settar kröfur.
Markaðseftirlit með rafföngum
hefur verið starfrækt í nokkur ár.
Á þeim árum hafa farið fram víð-
tækar skoðanir á markaði og sinnt
hefur verið fjölda ábendinga sem
hafa borist eftirlitinu. Ábendingum
um rafföng, sem ekki eru talin ör-
ugg eða rétt merkt, má að koma
til Aðalskoðunar hf. sem annast
markaðseftirlit raffanga hér á
landi, en stjórnsýslan er í höndum
Rafmagnseftirlits ríkisins.
Höfundur er verkfræðingur bjá
Aðalskoðun hf.
Örn Guðmundsson
Jafnrétti
ÉG HEF oft velt því
fyrir mér hvað jafnrétti
sé í raun miðað við það
sem heyrist frá kven-
réttindakonum.
Kvenaréttindakonur
kvarta yfirleitt yfir því
að karlar séu í meiri-
hluta í stjórnunarstöð-
um og öðrum áhrifa-
stöðum í þjóðfélaginu,
s.s. á þingi og í ríki-
stjórn. Hver kannast
ekki við talið um
kvennaskort í ríkis-
stjórn Davíð Oddsson-
ar eða öðrum ábyrgða-
stöðum er tengjast
þingstörfum eða Sjálf-
stæðisflokknum. Það má ekki orðið
ráða karlmenn í stjórnunarstöðu
eða aðrar ábyrgðastöðu án þess að
einhvers staðar sé minnst á jafn-
rétti kynjanna. En ég heyri aldrei
minnst á jafnréttismál þegar ráðið
er í stöður sem ekki krefjast spari-
fatnaðar, s.s. vinnu í álveri, á bif-
reiðaverkstæði, á hjólbarðaverk-
stæði, á sjónum, við vegavinnu
o.s.frv. Kvartanir nokkurra kvenna
í þjóðfélaginu um kynjamisrétti
heyrist nær eingöngu þegar verið
er að velja fólk í störf þar sem kraf-
ist er snyrtilegs fatnaðar.
Fyrir nokkrum árum voru
kvennalistakonur alfarið á móti
byggingu nýs álvers. Ástæðan var
meðal annars sú að slík verksmiðja
bauð ekki upp á kvennastörf. Bera
kvennalistakonur ekki heldur hag
þjóðfélagsins fyrir bijósti? Eru þær
eingöngu að hugsa um sig? Því vil
ég ekki trúa og álít að þessi ummæi
hafi stafað af vanhugsun. Því aukin
störf í þjóðfélaginu hljóta að vera
allra hagur, einnig kvenna. Því auk-
in vinna, jafnvel þótt
karlmaður vinni hana,
eykur Qárstreymi í
þjóðfélaginu og veitir
hugsanlega konu starf
einhvers^ staðar annar
staðar. Ég hef oft velt
því fyrir mér hvers
vegna kvennalistakon-
ur vilji ekki að konur
vinni í álveri. Er það
út af klæðnaðinum sem
notaður er þar eða
óhreinindunum á
vinnustaðnurh? Ekki er
það vegna þess að
krafist sé líkamlegs
styrks þar sem flest er
unnið með vélum og
tækjum. Hefði ekki verið nær í stað
þess að vera móti álveri að beijast
fýrir því að konur yrðu ráðnar í
Sjaldan er talað um
jafnrétti, segir Jón
Arnar Siguijónsson,
þegar um er að ræða
störf sem ekki kreff ast
sparifatnaðar.
störfín jafnt og karlar þegar nýja
álverið væri risið? Ég tel að ráða
eigi í störf hvort sem um er að
ræða stjórnunarstörf eða aðrar
stöður út frá getu og hæfileikum
þeirra sem gefa kost á sér en ekki
út frá fáranlegum ástæðum, s.s.
kynferði, húðlit eða hvað maður
borðaði i hádeginu sl. þriðjudag.
Hitt er svo aftur annað mál að
Jón Arnar
Sigurjónsson
' Afmælis-
tilboð á
BK
kjúklingi
í tilefni 2ja ára afmælis Boston kjúklings bjóðum
við eftirfarandi dúndur kjúklingatilboð:
Kjúklingabifinn á aðeins
Grillaður kjúklingur
m/stárum frönskum
kr.-
kr.
Yfir 500 þúsund kjúklingabitar seldir < 2 árum.
Tilboðið gildir frð 18.11 - 81.11 1996.
/BKh
KJÚKLINGUR
Grensásvegl 5 • S: 588 8585
Essó Blönduósi
OG SKINANDI DEMANTUR
DIMMRAUÐURGRANAT
GULLSMIÐJAN
PYRIT-G15
SKOLAVÖRÐUSTlG 15 • SlMI 5511505
baráttan sem felst í sömu launum
fyrir sömu vinnu, sem m.a. kven-
réttindakonur hafa barist fyrir, á
fullan rétt á sér.
Hvað hefur áunnist í kvennabar-
áttunni síðustu ár? Jú, fleiri konur
hafa farið út á vinnumarkaðinn sem
er í sjálfu sér gott mál. Fleiri dag-
heimili hefur þurft að byggja til að
taka við börnum hinna vinnandi
foreldra. Er hugsanlega hægt að
tengja saman minni tíma foreldra
með börnum sínum við aukna of-
beldishneigð barna og unglinga?
Ég lít á það að ég hafi notið tölu-
verðra forréttinda að móðir mín var
heimavinnandi þegar ég var barn.
Það var alltaf hægt að leita til henn-
ar ef eitthvað bjátaði á sem jók
öryggiskenndina. Hvað gerir barn
sem getur ekki leitað til foreldra
sinna á raunastund? Bítur það ekki
á jaxlinn og geymir raunina innra
með sér? Safnar þeim síðan upp í
nokkur ár og fær síðan útrás síðar
þegar mælirinn er fullur? Þótt mað-
ur geti skilið ósk kvenna að komast
út á vinnumarkaðinn má ekki skilja
þannig við heimilið og börnin að
ekki sé vissa fyrir því að þau séu
í góðum höndum. Skipstjóri yfir-
gæfi aldrei brúna án þess að fela
það í hendur öðrum sem hann gæti
fullkomlega treyst. Ef það er fram-
tíðin að börn alist að stórum hluta
upp á stofnunum verður að tryggja
að slíkar stofnanir séu starft sínu
vaxnar. Því annars fáum við
ábyrgðarleysið í andlitið síðar, eins
og við höfum orðið vör við úr frétt-
um undanfarið. Ef þróunin verður
í þessa átt munum við þurfa að
fjölga sálfræðingum, félagsráðgjöf-
um og læknum sem eru eflaust störf
sem jafnréttiskonur gætu hugsað
sér að starfa við. Allavega er kraf-
ist snyrtilegs klæðnaðar í þeim
störfum.
Höfundur er tæknifræðingur og
rekstrmfræðingur.
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þekking - raðgjöl. Aratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SSrssanssr
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725
DISEfY) EN CSIAMICA
T
L n j'
íe a!
W 1?
StórhtiRJa 17 vt8 CulUnbrú, síml 567 4*44