Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Leiðtogafundurinn í Höfða
ÞAÐ ER samdóma álit flestra
þeirra sem sóttu málþing vegna 10
ára afmælis leiðtogafundarins í
Höfða, að hann hefði skipt sköpum
í þróun afvopnunarmála og jafnvel
markað tímamót í sögu 20. aldar-
innar. Einkum kom þetta fram í
máii Kenneth L. Adelmans sem
hafði verið einn helsti samninga-
maður Bandaríkjanna í afvopnunar-
málum á þeim tíma. Hann taldi að
þetta hefði verið einn mikilvægasti
fundur aldarinnar, ef ekki sá mikil-
vægasti, og þetta kom einnig fram
í sjónvarpsviðtali við hann.
Þegar ummæli leiðtoganna
beggja eru skoðuð kemur hið sama
í ljós. Ronald Reagan sagði í bók
sinni „Ævi Bandaríkja-
manns", sem kom út
árið 1990, að í Reykja-
vík hafi vonir hans um
kjamorkuvopnalausan
heim fengið meðbyr í
örstutta stund, en það
hafi síðan leitt til þess
að hann og Gorbatsjov
hafi náð samkomulagi
um afvopnun, sem
„enn í dag veldur undr-
un“. Jafnframt segir
hann: „Þrátt fyrir þann
skilning sumra að leið-
togafundurinn í
Reykjavík hafi mistek-
ist held ég að sagan
Guðmundur Rafn
Geirdal
muni sýna að hann
markaði tímamót í leit-
inni að öruggum og
skjólsælum heimi.“
Gorbatsjov sendi
ávarp í tilefni afmælis-
ins og þar segir meðal
annars: „Það er sann-
arlega ástæða til að
allar þjóðir muni þenn-
an atburð. Án fundar-
ins, sem jafnt blaða-
menn sem fræðimenn
kenna nú með gagn-
orðum og auðskildum
hætti við Reykjavík,
hefði síðastliðinn ára-
tugur orðið allt öðru-
vísi, ef hann hefði átt sér stað yfir
höfuð.“ Af orðum hans má skilja
að jafnvel hefði orðið gereyðingar-
stríð fyrir lok síðasta áratugar ef
ekki hefði verið gert eitthvað rót-
tækt til að sporna gegn því, sem
hefði þýtt að mannkynið hefði dáið
Ég legg til, segir
Guðmundur Rafn
Geirdal, að Höfði
sé gerður að safni.
út ög engin tímamæling í formi
áratuga ætti sér lengur stað ... og
við sem þjóð værum ekki lengur til!
Ennfremur segir hann: .... á
þessum tveimur dögum í Reykjavík
nálguðumst við oft, eftir þreytandi
L
Lapdsbanki
íslands
Banki allra Irndsmanna
Undankeppni
heimsmeistaramótsins
Miðvikudaginn 27 nóvember, kl. 20:40
kemur að úrslitastund í íslenskum handknattleik
iLaugardalshöll
Miðaverð: Fullorönir 1000 kr. / Börn 300 kr.
Frítt fyrirfélaga
í sportklúbbi
Landsbankans
Svona kemst þú í
sportklúbb Landsbankans
Þú leggur inn 1000 kr. á SPORTreikning
í Landsbankanum og færð þá að gjöf
íþróttasekk meó merki klúbbsins og
félagskort meó mynd en myndina leggur
þú til sjálfur.með.
wm
Frímiðar eru afhentir föstudaginn 22.
og mánudaginn 25 nóv. í eftirfarandi
útibúum Landsbanka íslands:
Grafarvogi, Fjallkonuvegi 1
Breióholti, Álfabakka 10
Hafnarfirói, Strandgötu 33
Vesturbæ, við Hagatorg
Suðurlandsbraut, Suðurlandsbraut 18
og lýjandi rökræður, það lykil-
augnablik þegar svo virtist sem
aðeins vantaði lítið skref til að við
næðum samkomulagi og undirrituð-
um það ... En 20 mínútum eftir að
forseti Bandaríkjanna og ég, báðir
í uppnámi, höfðum kvaðst fyrir utan
húsið, sagði ég á blaðamannafundi
að fundurinn hefði markað tíma-
mót, ekki mistekist. Og ég reyndist
hafa rétt fyrir mér. Reykjavík
markaði vissulega tímamót. Eftir
fundinn færðust viðræður um að
binda endi á kalda stríðið og fjar-
lægja kjarnorkuógnina úr heimin-
um á svið hefðbundinna sam-
skipta ... Svo virðist að með hjálp
Reykjavíkurfundarins hafi okkur á
næstu árum eftir hann tekist að
klífa tinda sem veittu okkur sýn
yfir nýtt tímabil friðar í mannkyns-
sögunni."
Ef þið skoðið textann vel, þá er
hér um geysimiklar yfirlýsingar að
ræða. Báðir leiðtogarnir eru í raun
og veru að gefa mjög sterklega í
skyn að þáttaskilin í heimssögunni
hafi verið hér í Reykjavík! Þeir sem
voru þeim næstir að völdum, utan-
ríkisráðherrarnir, hafa svipaða sögu
að segja. Þáverandi utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Shevardnadze,
sendi orðsendingu vegna afmælis-
ins. Þar segir m.a.: „Þegar hann
var haldinn var þegar ljóst að leið-
togafundurinn mundi marka sögu-
leg tímamót í þróun kjarnorkuaf-
vopnunar ... Vegna alls þessa má
Ííta á Reykjavíkurfundinn sem einn
mikilvægasta atburð aldarinnar."
George Shultz, sem var utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna á þessum
tíma, segir í viðtali við Morgunblað-
ið að leiðtogafundurinn „markaði
án nokkurs vafa tímamót. Mér
'veittist sú ánægja að taka á móti
Gorbatsjov á heimili mínu í Stan-
ford-háskóla í Kaliforníu eftir að
við höfðum báðir látið af embætti
og ég sagði við hann: „Þegar þú
tókst við embætti var kalda stríðið
enn undir frostmarki eins og í mínu
tilfelli, en þegar við hættum var því
lokið. Hvað iítur þú á sem vendi-
punktinn," spurði ég og hann sagði
án þess að hika eitt augnablik:
„Reykjavík." Ég spurði hann hvers
vegna og hann svaraði: „Vegna
þess að á hæstu stigum áttum við
í djúpum viðræðum um mikilvæg-
ustu máiin og við sýndum að við
gátum rætt þau með árangri, þótt
við næðum ekki samkomulagi þegar
upp var staðið." Þetta fundust mér
athyglisverð ummæli og ég held að
þau séu sönn.“
í ljósi þessa legg ég til að lögð
sé áhersla á að auka vægi fundar-
ins í íslandssögunni einnig. Ég get
ekki ímyndað mér annað en að at-
burður, sem hefur gerst á eylandi
okkar sem hefur gjörbreytt sögu
mannkynsins frá 40 ára köldu stríði
yfir í hlýjan frið síðastliðinna 10
ára, sé mikilvægari en nokkur ann-
ar atburður í sögu lands og þjóðar.
Þannig væri þjóðþrifamál að vel
menntaðir sagnfræðingar og stjórn-
málafræðingar þessa lands færu
yfir málið og gæfu frá sér einhvers
konar álitsgerð um áætlað mikil-
vægi fundarins. Einnig legg ég til
að Höfði sé gerður að safni til minn-
ingar um þennan atburð og sé op-
inn til sýnis fyrir innlenda sem er-
lenda ferðamenn allt árið um kring.
Höfundur er sjúkranuddari.