Morgunblaðið - 22.11.1996, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 45
AÐSEMPAR GREIIMAR
Hávaðaofbeldi
Félagsmálaráðu-
neytið hefur fellt úr
gildi þá samþykkt bæj-
arstjómar Hafnar-
fjarðar að synja um
veitingu vínveitinga-
leyfis til samkomuhúss
á Strandgötu 30,
Hafnarfirði. Er úr-
skurðurinn byggður á
þeim misskilningi að
hér sé um sambærilega
starfsemi að ræða og
hjá veitingastöðum
sem vínveitingaleyfi
hafi fengið í miðbæ
Hafnaríjarðar. p^jj y
Ömurlög saga Daníelsson
Árið 1969 fékk nýbyggt sam-
komuhús á Strandgöngu 1 í Hafn-
arfirði vínveitingaleyfi og vom þá
fyrirheit um að það skyldi rekið á
myndarlegan hátt og verða bænum
til sóma. Húsið var staðsett í íbúðar-
húsahverfi eins og önnur starfsemi
í miðbæ Hafnarfjarðar. Ég ætla
ekki að rekja sögu þessa húss. Til
að sjá um reksturinn völdust menn
sem höfðu fullan hug á að láta
hann fara sem best úr hendi. En
Er það ekki skylda
sveitarstjómamanna,
spyr Páll Daníelsson,
að gæta friðhelgi
heimilanna?
það fór á annan veg. Mikið ónæði
varð af starfsemi hússins. Bæjarbú-
ar á stóru svæði höfðu ekki svefn-
frið um helgar. Undirskriftir þar
að lútandi bámst bæjarstjóm og í
stuttu máli sagt endaði margra ára
starfsemi hússins með hörmungum
og starfsemin var stöðvuð og húsið
tekið til annarra nota.
Ný mistök
Húsið á Strandgötu 30 er síst
betur staðsett gagnvert íbúðar-
byggð en húsið á Strandgötu 1.
Búið er að reyna að halda uppi
skemmtanahaldi í húsinu. Það mis-
heppnaðist algerlega. Varþað hvort
tveggja að starfsemin olli miklu
ónæði og ekki tókst að halda settar
reglur varðandi aðgang unglinga.
Gjörbreyttist nú ástandið í miðbæn-
um til hins betra.
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Mest seldu flotefni í Evrópu
n
IDNAÐAROÓLI<
Smlðjuvogur 70, 200 KOpavoour
Siman B84 1740, 892 4170, Fox; B54 1789
Hlutverki
hússins breytt
Starfsemi þessara
tveggja samkomuhúsa
var ekki sambærileg
við smærri veitingahús
í miðbænum. Jafnræð-
isregla gildir því tæp-
ast. En hvað er jafn-
ræðisregla? Er það
ekki skylda sveitar-
stjómamanna að gæta
friðhelgi heimilanna?
Og er það ekki skylda
að sjá um að fólk í
sveitarfélaginu geti
haft sæmilegan svefn-
frið og gæta þess að
þar sé jafnræðis gætt
meðal bæjarbúa? Strandgata 30
var, þar til fyrir örfáum árum, frið-
sælt bíó og hafði verið það um ára-
tugaskeið. Þá var ekki íbúunum til
ama þótt þeir byggju við sömu götu.
Svo er hlutverki hússins breytt og
þrátt fyrir eftirlit og ítrekaðar at-
hugasemdir og kvartanir verður
mikiil fjöldi manns fyrir því að
svefnfriði þeirra er raskað og um
helgar var vart hægt að sofna fyrr
en komið var langt fram á nótt.
Réttur íbúanna
íbúar miðbæjarins eiga sinn rétt,
jafnræðisrétt. Margir hafa búið í
þessu hverfí um áratuga skeið.
Breyting húsnæðis úr bíói í hávaða-
samt danshús á því engan rétt á
sér. Sá rekstur hafði verið reyndur
og verið stöðvaður. Engar líkur er
á að einhverjir nýir menn geti rekið
þessa starfsemi með betri hætti.
Það var áratuga reynsla af sam-
komuhúsinu á Strandgötu 1. Þar
urðu mannaskipti í rekstrinum en
hávaðinn og ónæðið hélt velli. Það
er því óeðlilegt að fara að endur-
taka slíkar tilraunir á fólki í mið-
bænum.
Bæjarfulltrúar gerðu þá skyldu
sína að taka á þessu máli og hafa
fólkið í fyrirrúmi og vemda heilsu
þess og velferð með því að leyfa
ekki á ný starfsemi á Strandgötu
30, sem hafði reynst illa og verið
stórum hópi bæjarbúa til erfiðleika
og tjóns.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Lífeyrissjóáir
Góá fjárhaqsstaða
i Láqur rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna í hlutfalli við
eignir hefur lækkað á undanförnum árum og
stenst fyllilega samanburð við erlenda sjóði.
Sameining og fækkun sjóðanna hefur stuðlað að
aukinni hagkvæmni lífeyrissjóðakerfisins í heild.
Ávöxtun sjóðanna er umfram hagvöxt og hækkun
raunlauna. Fjárhagsstaða þeirra er því mun betri
en almennt hefur verið talið og fer batnandi.
greiðir í Umhverfissjóð
Verslunarinnar
UMHVERFISSJÓÐUR
VERSLUNARINNAR
Sýningarsalur og vlnnustofur
Stangarhyl 7, slmi 567 3577
flQ HOl $
Bindindisdagur
allra hagur!
Á Bindindisdegi fjölskyldunnar 1996 vekjum við
athygli á því, að áfengið er óvinur skynseminnar.
Við fjölmennum í blysförina og gönguna, sem farin verður til að minnast fórnarlamba
slysa og harmleikja, sem eiga rætur að rekja til neyslu áfengis og annarra fíkniefna.
Blysförin hefst á Hlemmi klukkan 17:30 og lýkur með ávarpi Helga Seljan á Ingólfstorgi.
Lúðrasveit leikur fyrir göngunni og hópur fermingarbarna eru meðal þeirra sem taka þátt
í henni. Bregðum blysum á loft og látum ljós samúðar og kærleika lýsa okkur leiðina.
Laugardaginn 23. nóvember klukkan 14:00 -16:00 fjölmennum við á fjölskylduhátíðina í
Vinabæ, Skipholti 33. Par verður á dagskrá söngur, leikþáttur, töframaður og fleira
skemmtilegt. Aðgangur er ókeypis. Þangað ferð þú með fjölskylduna, auðvitað !
Verið velkomin.
► Gerum Bindindisdaginn 1996 að áfengislausum degi.