Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 53
I
fc
1
)
I
)
I
)
I
1
i
I
i
i
í
:
í
:
;
4
i
i
i
i
4
i
i
i
Frökkum tókst
að verja Olympíu-
titilinn í brids
Vestur Norður Austur Suður
LD ZY GG GL
1 lauf pass 1 tígull
3 spaðar dobl pass 4 lauf
pass 4 hjörtu pass 5 lauf
pass 5 tíglar pass 6 lauf
pass pass dobl/
BRIDS
R ð d o s
ÓLYMPÍUMÓTIÐ
Ólympíumótíð fór fram 19. októ-
ber til 2. nóvember. Frakkland
vann Ólympíumótið í opnum
flokki og Bandarikin unnu í
kvennaflokki.
ÞAÐ veðjuðu ekki margir fyrirfram
á að Frökkum tækist að veija
Ólympíutitilinn í sveitakeppni á
Ródos. Akkerispar Frakka í mörg
ár, Paul Chemla og Michel Perron,
var ekki í liðinu og þótt það væri
skipað þekktum bridsatvinnumönn-
um voru pörin ekki með langa sam-
æfingu, utan þeir Alaín Levy og
Herve Mouiel, sem einnig voru í
sigurliðinu árið 1992.
Hin pörin tvö voru Christian
Mari og Marc Bompis, og Henri
Szwarc og Frank Multon. Mari, sem
er menntaður stærðfræðingur, er í
hópi kunnustu spilara Frakka en
Bompis var að spila í fyrsta sinn í
frönsku landsliði. Szwarc hefur hins
vegar verið fastamaður í frönskum
Iandsliðum í 42 ár (!) og Multon
hefur verið mjög sigursæll á evr-
ópskum bridsmótum en þeir Szwarc
byijuðu ekki að spila saman fyrr
en skömmu fyrir Ólympíumótið.
En þetta var mót Frakkanna.
Þeir unnu sinn riðil í undankeppn-
inni og í úrslitakeppninni byijuðu
þeir á að vinna Rússa auðveldlega.
Þeir lentu síðan í nokkrum vand-
ræðum með Tævan í undanúrslitum
en niðurstaða úrslitaleiksins gegn
Indónesíu virtist aldrei í vafa.
Sagntækni er ekki sterkasta hlið
Indónesíumannanna en þeim gekk
allt í haginn í leiknum gegn íslandi
í 8 liða úrslitum mótsins. En þótt
Frakkamir noti ekki flókin sagn-
kerfi er sagntilfinning þeirra mjög
næm og í 128 spila úrslitaleik komu
yfirburðirnir í ljós.
Þeir Levy og Mouiel voru senni-
lega besta par Frakka í mótinu.
Þeir stálu m.a. þessu geimi af Indó-
nesunum:
Norður
♦ D10765
¥ D73
♦ G6
*D87
Austur
♦ KG93
VG
♦ D9874
*ÁK4
Suður
♦ Á2
VÁK98
♦ ÁK5
♦ G965
Við annað borðið lentu Danny
Sacul og Franky Karwur í ógöngum
í sögnum og spiluðu 4 spaða í NS
Vestur
♦ 84
♦ 106542
♦ 1032
♦ 1032
Morgunblaðið/Björn Eysteinsson
KAMPAKÁTIR Frakkar á verðlaunapalli. Frá vinstri eru Jean Claude Beineix varaformaður skipulagsnefndar mótsins, Alaín
Levy, óþekktur, Henri Szwarc, Franc Multon, Christian Mari, Marc Bompis, Herve Mouiel, Jean-Louis Stoppa fyrirliði, Pierre
Schemeil ráðgjafi liðsins og Jose Daminani forseti Alþjóðabridssambandsins.
Eftir að norður hafði opnað á
sterku laufi og suður afmeldað setti
hindrunarsögn vesturs allt úr skorð-
um. Norður doblaði til úttektar en
afgangur sagna er illskiljanlegur
enda doblaði Greenberg lokasamn-
inginn og uppskar 800 og 12 impa.
Guðm. Sv. Hermannsson
BANDARÍSKU Ólympíumeistararnir í kvennaflokki. Frá vinsti eru Juanita Chambers, Lynn
Deas, Shawn Quinn, Irina Levitina, Jill Blanchard og Gail Greenberg.
sem fóru 2 niður, 200 til Frakka.
Við hitt borðið komust Lévy og
Mouiel 3 grönd í suður, sem virtist
raunar ekki vera gæfulegur samn-
ingur heldur.
Tígull er besta útspilið en Henky
Lasut spilaði þess í stað út hjarta
sem Mouiel drap heima. Hann spil-
aði laufi á drottningu og ás og nú
var Eddy Manoppo í vandræðum
með útspil. Hann valdi loks tígul,
en Mouiel hleypti heim á gosann.
Hann spilaði laufi og svínaði
níunni þegar vestur gaf. Austur fékk
á tíuna og skipti í spaða. En það
drap Mouiel á ás og spilaði hjarta-
níunni og svínaði. Þegar hún hélt
átti sagnhafi 9 slagi með því að fría
laufið. 600 til Frakka og 13 impar.
Bandaríkin unnu
kvennaflokk
I kvennaflokki var sigur banda-
rísku kvennanna aldrei í hættu og
þær unnu Kínveija í úrslitaleiknum
með yfirburðum. Það kom nokkuð
á óvart því þær kínversku höfðu
áður valtað yfir bæði ísrael og
Kanada í úrslitakeppninni.
Bandaríska liðið var skipað
þekktum spilakonum sem flestar
eru atvinnumenn í íþróttinni. Sú
þekktasta er sjálfsagt Gail Green-
berg (hét áður Gail Moss), sem
hefur tvívegis áður orðið Ólympíu-
meistari kvenna og hefur einnig
tvívegis orðið heimsmeistari
kvenna. Dóttir hennar, Jill Blanch-
ard, var einnig í liðinu, og Lynn
Deas, sem þrívegis hefur unnið
heimsmeistaramót kvenna og Juan-
ita Chambers sem sömuleiðis skart-
ar nokkrum heimsmeistaratitlum.
Þá eru ótaldir tveir nýliðar,
Shawn Quinn og Irina Levitina.
Levitina er rússnesk að uppruna
og keppti áður með kvennalandsliði
Sovétríkjanna í skák. Þetta var
hennar fyrsta heimsmeistaramót í
brids og að vonum þótti henni sem
hún væri að upplifa ameríska
drauminn.
Eins og áður sagði sáu kínversku
stúlkurnar aldrei til sólar og þetta
spil er gott dæmi um hvernig leikur-
inn þróaðist:
Norður gefur, enginn á hættu
Norður
♦ 1043
¥ KDG7
♦ ÁD6
♦ ÁK7
Vestur
♦ ÁKDG985
¥53
♦ 972
♦ 3
Austur
♦ 7
¥ 108642
♦ KG3
♦ DG102
Suður
♦ 62
¥ Á9
♦ 10854
+ 98654
Við annað borðið opnaði Chamb-
ers í norður á 1 laufi og Quinn í
suður stökk í 3 lauf til hindrunar.
Wang Wen Fei í vestur sagði 3
spaða og fékk að spila þá. Þegar
tígullinn gaf sagnhafa tvo slagi
vannst þessi bútur siétt og Kína
fékk 140.
Við hitt borðið sátu Zhang Yalan
og Gu Ling NS og Deas og Green-
berg AV:
BRIDS
Umsjón
Arnór G. Ragnarsson
Föstudagsbrids BSÍ
Föstudaginn 15. nóvember var spil-
aður eins kvölds tölvureiknaður
Monrad-barómeter með þátttöku 30
para. Bestum árangri náðu:
Eðvarð Hallgrímsson - Magnús Sverrisson +104
Dúa Ólafsdóttir - Þórir Leifsson +91
Sturla Snæbjömsson - Cecil Haraldsson +63
EggertBergsson-BaldurBjartmarsson +46
Vilhj. Sigurðsson yugri - Daníel M. Sigurðsson +33
Að tvímenningnum loknum byrj-
aði miðnætur útsláttarsveitakeppni.
9 sveitir tóku þátt. Til úrslita spil-
uðu sveitir Jökuls Kristjánssonar
og Hrafnhildar Skúladóttur. Sveit
Jökuls vann með 22 impum gegn
10. Auk Jökuis spiluðu Jón Arna-
son, Björn Arnarson og Hermann
Friðriksson og með Hrafnhildi spil-
uðu: Jörundur Þórðarson, Eyþór
Hauksson og Helgi Samúelson.
Föstudagsbrids BSÍ er spilaður
öll föstudagskvöld. Spilaðir eru eins
kvölds tölvureiknaður tvímenningar
með forgefnum spilum. Eftir að tví-
menningnum lýkur er boðið upp á
miðnætur útsláttarsveitakeppni fyrir
þá sem hafa áhuga á að bæta nokkr-
um spilum við sig áður en heim er
haldið. Tvímenningurinn byijar kl.
19 og sveitakeppnin laust fyrir 11.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
A Hansen aðaltvímenningur fé-
lagsins kláraðist mánudaginn 18.
nóvember. Sigurvegarar voru Dröfn
Guðmundsdóttir og Ásgeir Ás-
björnsson eftir harða baráttu við
Jón Hjaltason og Gylfa Baldursson
sem höfðu leitt mótið frá fyrsta
kvöldi. Lokastaðan varð þessi:
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson 182
Jón Hjaltason - Gylfi Baldursson 156
Halldór Þórólfsson/Hulda Hjálmarsdóttir
-AndrésÞórarinsson 134
Friþjófur Einarss. - Guðbrandur Sigubergss. 115
Sigurður Siguijónsson - Jón Páll Siguijónsson 108
ÁmiÞorvaldsson-SævarMagnússon 85
Hæstu skor kvöldsins náðu:
Sigurður Siguijónsson - Jón Páll Sigiiijónsson 143
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjörnsson 80
Friðþjófur Einarss. - Guðbrandur Siprbergss. 69
Næsta keppni félagsins er Aðal-
sveitakeppnin. Hún byijar mánu-
daginn 25. nóvember. Þeir sem
hafa áhuga á að mæta geta haft
samband við Ásgeir Ásbjörnsson
eða Erlu Siguijónsdóttur og munu
þau hjálpa til við sveitamyndun ef
spilarar eiga í vandræðum með
hana. Þeir sem þegar hafa myndað
sveitir geta tilkynnt þær til ofan-
greindra eða mætt fyrsta spila-
kvöldið. Spilamennska fer fram í
félagsálmu Haukahússins með inn-
keyrslu frá Flatahrauni.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Eftir 18 umferðir í Butler Tví-
menning er staða efstu para eftir-
farandi:
EðvatðHallgrimsson-MapúsSverrisson 114
Sigurður Ámundason - Jón Þór Karlsson 62
Guðm. Guðmundsson - Gísli Sveinsson 62
Friðjón Magnússon - V aldimar Sveinsson 61
Friðgerður Friðgeirsd. - Friðgerður Benediktsd. 56
Bestu skor þ. 18. nóv. sl.:
SigurðurÁmundas.-JónÞórKarlsson 57
Guðm. Guðmundss. - Gísli Sveinsson 54
AldaHansen-Júlíanalsebam 48
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 45
Bridsfélag Suðurnesja
Minningarmótið um Guðmund
Ingólfsson hófst sl. mánudag með
þátttöku 18 para. Karl Hermanns-
son og Arnór Ragnarsson byijuðu
best, hlutu 49 stig yfir meðalskor
í fyrstu fjórum umferðunum.
Næstu pör:
Gísli R. ísleifss. - Hafsteinn Ögmundss. 44
Eyþór Jónsson - Bjöm Dúason 36
RandverRagnarsson-GuðjónJenssen 30
Sigurður Davíðsson - Þorvaldur Finnsson 20
Næstu fjórar umferðir verða spil-
aðar á mánudaginn kemur.
Keppnisstjóri er ísleifur Gíslason.
• aSCOm Hasler
• Frímerkjavél framtíðarinnar
• Stílhrein, falleg hönnun
• Svissnesk tækni og nákvæmni
KYNNING f APÓTEKIGARÐABÆJAR
ídag kl.14-18
MIKILL AFSLÁTTUR
2 fyrir 1 í krem- og hreinsilínunni
Vandamálalausnir:
Slæm húð - bólur - baugar - augnpokar - hrukkur
- glansandi húð - varaliturinn helst illa á - rauð
húð. Við ráðleggjum og lögum það sem hægt er.