Morgunblaðið - 22.11.1996, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1996 63
»
)
)
I
í
í
J
í
:
;
i
í
t
4
4
i
(
<
<
<
(
<
i
(
(
i
í
(
SIMI 5878900
http://www.islandta. is/sambioin
AÐDAANDINN
DAUÐASOK
KORFUBOLTAHETJAN
GULLGRAFARARNIR
Far- eða Gullkortshafar VISA og Námu- og Gengismeðlimir Landsbanka fá 25% AFSIÁTT. Gildir fyrir tvo.
£4MBllO«lll Æ4MB1Q
„Myndin er byggð á s
Iterkri sögu sem gott
handrit hefur verið
gert eftir og hún er
mjög vel leikin."
★★★ A.l. Mbl
,Mynd sem vekur umtal."
SANDIiA liULI.OCK
SAMUELL. JACKSON
MA1THEW MCCO.NAUGHEY
KIÍVIN SPACV
Axel Axélsson FM 95,7
Ómar Friðleifsson X-ið
TIN CUP
Damon Wayans Daniel Stern ahd
Dan Aykroyd
Splunkuný stórmynd frá leikstjóranum Tony Scott (Crimson Tide, True
Romance, Top Gun). Róbert DeNiro fer hreinlega á kostum í magnaðri
túlkun sinni á geðveikum aðdáanda sem tekur ástfóstri við skærustu
stjörnuna í boltanum. Spennan er nánast óbærileg og hárin rísa á
áhorfendum á þessari sannkölluðu þrumu!!!
Aðalhlutverk: Róbert DeNiro, Wesley Snipes, Ellen Barkin, Benecio Del
Toro og John Leguizamo.
CELTIC
PRIBE
lirnM er ekkert
. 1 að óttast—
Christina Ricci Anna Chlumsky
Stórskemmtileg ævintýramynd um tvær
stúlkur á ferðalagi í leit að horfnum fjársjóði. í
aðalhlutverkum eru þær Christina Ricci (Adams
Family, Casper) og Anna Chlumsky ( My Girl).
TLJ 11 ij
DONALD Sutherland og félagar í MASH.
Læknir lækna sjálfan þig
■ sérflókki þessa helgina
______________________________ er sýning Sýnar á Spítalali'fi (MASH laugar-
dagur ►21.00). Robert Altman, bandaríski leikstjórinn hefur ávailt farið sínar
eigin leiðir, rambað inn á þjóðveginn annað slagið en tekið óvæntan afleggjara
fyrr en varði. Það var ekki fyrr en árið 1969 að hans eigin leið varð þjóðveg-
ur þegar hann gerði MASH, alveg makalausa, persónulega, villta og feiki-
skemmtilega satíru um kolgeggjað gengi starfsfólks herspítaia í Kóreustríðinu.
Snjallt handrit Rings Lardner jr. (sem margir leikstjórar höfðu hafnað) er byggt
upp á laustengdum atriðum sem Altman sveipar sínum óviðjafnanlega stíl. Hér
talar hver kostulegur karakterinn í kapp við annan, samskipti kynjanna, yfir-
manna og undirmanna, eru öll í steik, ringulreiðin er blönduð undirliggjandi
listrænni reiðusemi. MASH (stendur fyrir Mobile Army Surgical Hospital) hafði
mikil áhrif - en trúlega mest á feril og stíl höfundar síns. Donald Sutherland,
Elliott Gould, Tom Skerritt, Sally Kellerman og fleiri sköpuðu persónur sem
gengu aftur í sjónvarpsþáttunum sem einnig er verið að sýna á Sýn. ★ ★ ★ ★
Laugardagur
eskjunni. Leikstjóri Stan Dragoti. ★ 'A
Sýn ►23.20 Ég hef ekki séð Blá-
stróka (Blue Tornado, 1990), en Malt-
in og Potter segja myndina fyrst reyna
að líkjast Top Gun og síðan E.T. en
mistakast hvorutveggja. Þa.u gefa
þessum háloftahasar ** (af fimm
mögulegum) Aðalhlutverk Dirk Bene-
dict og Patsy Kensit. Leikstjóri Tony
Dobb.
Sjónvarpið ►21.35 Steven Spiel-
berg dansar nálægt væmninni með
Ætíð (Always, 1989), þar sem flug-
kappinn Richard Dreyfuss ferst við
hetjudáð og gengur aftur í lífi ástvina
sinna - Holly Hunter og Johns Good-
man. Fagmennskan er auðvitað óað-
finnanleg og ásjáleg. Audrey Hepburn
leikur engil í sínu hinsta hlutverki og
er það við hæfi. ★ ★
Sjónvarpið ►23.40 Engar umsagnir
liggja fyrir um bresku bíómyndina
Sæiiífi (Pleasure, 1994), um undarlegt
par í Rúðuborg sem lendir í ýmsum
ævintýrum. Leikstjóri er Ian Sharp
og í aðalhlutverkum eru Jennifer Éhle,
James Larkin og Adrian Dunbar.
Stöð 2 ►15.00 Kwagga læturtil
sín taka (Kwagga Strikes Back, 1993)
kemur langt að - eða frá Suður-Afr-
íku og telst því velkominn gestur.
Þessi gamanmynd fjallar um ævin-
týramann sem er rifinn út úr kyrrlátu
lífí og rambar í hættuspil. Aðalhlut-
verk Leon Schuster og Casper De
Vries en leikstjóri David Lister - allir
óþekktar stærðir rétt eins og myndin
sjálf.
Stöð 2 ^21.20 Kynferðisleg áreitni
á vinnustað komst í brennidepil eina
ferðina enn þegar spennumyndin Af-
hjúpun (Disclosure, 1994) var frum-
sýnd en hún snýr kynjaskiptingunni
við: Kona sem er yfirmaður (Demi
Moore) beitir karlmann sem er undir-
maður (Michael Douglas) kynferðis-
legum þrýstingi með dramatískum
afleiðingum fyrir þau bæði. Nokkuð
rennilega framreitt af hálfu leikara
og Barrys Levinson leikstjóra en mála-
tilbúnaðurinn erekki allurjafn sann-
færandi. ★ ★ ★
Stöð 2 ►23.30 Danny Boyle leik-
stjóri, handritshöfundur hans, John
Hodge, og einn aðalleikaranna, Ewan
McGregor, lofuðu strax góðu með
hinni eitruðu spennumynd í grunnri
gröf (Shallow Grave, 1994) - áður
en þeir slógu í gegn með Trainspott-
ing. Þrenning ungs fólks í Edinborg
tekur nýjan leigjanda inn í íbúðina sem
þau deila og þegar þau finna hann
látinn og tösku fulla af peningum eiga
þau í jafnmiklu sálarstríði innbyrðis
sem átökum við hættuleg öfl að utan.
★ ★ ★
Stöð 2 ► 1.05 Fjölskyida sem hefur
verið hundelt af FBI árum saman
vegna þátttöku foreldranna í róttækl-
ingahreyfingunni á sjöunda áratugn-
um er í sjónarmiðju vel gerðrar drama-
tískrar myndar Sidneys Lumet Ögur-
stund (Running On Empty, 1988).
Christine Lahti, Judd Hirsch, River
heitinn Phoenix og Martha Plimpton
eru hvert öðru betra. ★ ★ ★
STÖÐ3 ►Upplýsingarumkvik-
myndasýningar Stöðvar 3 lágu ekki
fyrir þegar gengið var frá þessum
pistli.
Sýn ^21.00 - Sjá umfjöllun í
ramma.
Sunnudagur
Sjónvarpið ►15.30 Rokkópera Pet-
es Townsend úr hljómsveitinni The
Who um daufdumban og blindan pilt
sem verður poppstjarna er ekki bein-
línis á djúpmiðum. En þótt kvikmynd
Kens Russell Tommy (1975) sé barn
síns tíma og skilgetið afkvæmi þessa
myndfijóa og missmekkvísa leikstjóra
er glás af góðmeti jafnt á mynd sem
hljóðrás innan um illbærilegar lummur
og jukk. Leikhópurinn - Roger Dal-
trey, Ann-Margret, Oliver Reed, Elton
John, Eric Clapton, Keith Moon, Jack
Nicholson o.m.fl. - er ómótstæðileg-
ur. ★ ★ 'A
Sjónvarpið ►22.25 Nikulásarkirkj-
an seinni hluti (sjá föstudag).
Stöð 2 ►23.25 Terrence Malick var
umsvifalaust skipað í hóp fremstu
kvikmyndagerðarmanna Bandaríkj-
anna með frumraun sinni í óbyggðum
(Badlands, 1974), magnþrunginni lýs-
ingu á sambandi tveggja ungmenna -
Martin Sheen og Sissy Spacek - í
uppreisn gegn umhverfi sínu sem leið-
ir þau út í blóðsúthellingar. Malick var
jafnákaft fagnað fyrir Days Of Heav-
en árið 1978 en síðan hefur lítið til
hans spurst. Missið ekki af þessari
ljóðrænu og afar lúmsku ofbeldis-
mynd, sem byggð er á sönnum atburð-
um. ★ ★ 'A
Sýn ►23.00 Lewis Collins leikur
málaliða i Stríðsforingjanum (The
Commander, 1988), einu af voðaverk-
um eins versta leikstjóra samtímans,
Anthony M. Dawson, réttu r.afni An-
tonio Margheriti. Ég hef ekki séð hana
og er ákveðinn í að gera það ekki.
Aðrir gera það á eigin ábyrgð.
Loks get ég ekki stillt mig um að
benda á að tvívegis á mánudag sýnir
Stöð2 ►13.00 og ►23.25 einaaf
albestu spennumyndum meistara Alf-
reds Hitchcock Lestarferð (Strangers
On A Train, 1951). Þessi sjaldséða
perla segir frá tveimur mönnum sem
hittast um borð í lest og annar sting-
ur upp á því að þeir skiptist á morð-
um. Sá sami tekur hugmyndina
lengra. Hann er leikinn snilldarlega
af Robert Walker. Mynd sem enginn
má missa af: ★ ★ ★
Árni Þórarinsson
i