Morgunblaðið - 22.02.1998, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Kripalujóga
Lykill ai) heilbrigði og lífihamingju
Áhersla á tengsl við orkustöðvar og tilfinningar
Byrjendanámskeið
26. febrúar - 17. mars
Þriðjudags- og fimmtudagskvöld kl. 20-22
Fjölskyldu- og hópaafsláttur
Kennari: Guðfinna S. Svavarsdóttir
Kynning þriðjudag 24. febrúar kl. 20 - Ókeypis
Upplýsingar og skráning í jógastöðínni
Heimsljósi, Ármúla 15
og í síma 588 4200, kl. 17-19
Aqalfflndur
1998
Aðalfundur Hampiðjunnar hf.
verður haldinn í fundarsal
félagsins, Bíldshöfða 9, Reykjavík,
föstudaginn 27. febrúar 1998
og hefst kl. 16:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og
reikningur félagsins, munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði
tekin til meðferðar á aðalfundinum þarf
skriflega beiðni um það að hafa borist
félagsstjórn með nægjanlegum fyrirvara
þannig að unnt sé að taka málið á
dagskrá fundarins.
Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn
en hyggjast gefa umboð þurfa að gera
slíkt skriflega.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða
afhent á fundarstað.
HAMPIOJAN
Crans Montana Crans Montana Crans Montana
Skíðaferð til Sviss
o
3
3.
tfl
Tíu daga páskaferð, brottför 4. aprfl.
Flogið til Ziirich og ekið þaðan á eitt besta
skíðasvæði Alpanna, gist á Grand Hotel du Parc.
Verð kr. 106.100.
Innifaliö f verði er flug, flugvallarskattar, akstur milli flugvallar og Crans
Montana, gisting ! tveggja manna herbergi, morgunverður og kvöldverður.
<3
Sex daga páskaferð, brottför á skírdag. Flogið til
Luxemborgar og ekið þaðan til Crans Montana, gisting á
Hotel Olympic. Verð kr. 47.300.
Innifalið í verið er flug, flugvallarskattar, akstur milli flugvallar og Crans
Montana, gisting í tveggja manna herbergi og morgunveröur.
Islenskur fararstjóri á staðnum.
Fer&askrlfstofa
GUDMUNDAR JÓNASSONAR ehf “
EUBiUO^á7
Borgartúni 34,105 Reykjavík, sími 511 1515
eueiuoiAi subjq euejuo|/\j subjq
i
INNLENT
Dagbók
Háskóla
Islands
Fyrirlestur
um norska
nýhreinsun-
arstefnu
HELGE Sandoy, prófessor í nor-
rænum málum við Háskólann í
Björgvin, flytur opinberan fyrirlest-
ur í boði heimspekideildar Háskóla
Islands miðvikudaginn 25. febrúar
kl. 17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn ber heitið Norsk
nýhreinsunarstefna og verður flutt-
ur á norsku. Margir Norðmenn ótt-
ast um framtíðarhorfur norsks máls
og Norsk málnefnd hefur reynt að
styðja andspymuna gegn áhrifum
enskunnar með misjöfnum árangri.
Síðustu tvö árin hefur málefndin
unnið að tillögu um að sum ensku
orðanna verði tekin í sátt á þeirri
forsendu að þau séu skrifuð sam-
kvæmt norskum rithætti (t.d. gaid
fyrir guide o.s.frv.). Tillagan hefur
vakið mikla umræðu og gagmýni í
fjölmiðlum, segir í fréttatilkynningu.
Helge Sandoy sem á sæti í norsku
málnefndinni skýrir frá hugmyndum
sem nefndin hefur stuðst við og þeim
vandamálum sem þarf að leysa með
þessari nýju málstefnu. Hann ræðir
einnig um samfélagsleg skilyrði fyrir
mótun norskrar nýhreinsunarstefnu.
Helge Sandöy hefur getið sér gott
orð fyrir rannsóknir sínar á norskum
mállýskum, norsku talmáli, skyld-
leika vestumorrænna mála og
norskri, íslenskri og færeyskri mál-
pólitík. Hann hefur gefið út bækur
og birt greinar í ritrýndum tímarit-
um um málfræði.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
------------------
Hraðnám-
skeið í ítölsku
FRÁ 9. til 23. mars nk. býður End-
urmenntunarstofnun Háskóla Is-
lands upp á tvö 45 klst. hraðnám-
skeið í ítölsku.
Annað er ætlað byrjendum en hitt
lengra komnum. Kennari verður Ro-
berto Tartaglione ítölskukennari
sem frá árinu 1987 hefur komið hing-
að til lands a.m.k. einu sinni á ári á
vegum Háskóla íslands og kennt
ítölsku. Hann beitir svonefndri sam-
talsaðferð í kennslunni, auk kennslu
í undirstöðuatriðum í málfræði og
réttritun. Hann hefur náð miklum
árangri með nemendum sínum hér á
landi sem nú eru orðnir um fimm
hundruð írá upphafi. Skráning fer
fram hjá Endurmenntunarstofnun
og þar fást nánari upplýsingar.
DAGBÓK Háskóla íslands 24.-28.
febrúar. Allt áhugafólk er velkomið
á fyrirlestra í boði Háskóla Is-
lands. Dagbókin er uppfærð reglu-
lega á heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Þriðjudagurinn 24. febrúar:
Sigrún Klara Hannesdóttir pró-
fessor við félagsvísindadeild flytur
rabb sem hún nefnir: „Ungt fólk og
upplýsingar" á vegum Rannsókna-
stofu í kvennafræðum kl. 12 í stofu
201 í Odda.
Agneta Ney gistifræðimaður
Sagnfræðistofnunar flytur fyrir-
lestur á sænsku sem hún nefnir
„Frán Slandan till Svárdet. Kvinn-
ligt gránsöverskridande i
medeltida myt och verklighet“ í
stofu 423 í Árnagarði kl. 16.15.
Dr. Robin Gwyndaf, þjóðfræð-
ingur frá Museum of Welsh Life í
Cardiff, flytur opinberan fyrirlest-
ur í boði heimspekideildar Háskóla
íslands kl. 17.15 í stofu 201 í Áma-
garði. Fyrirlesturinn nefnist „The
Welsh Folk Narrative Tradition"
og fjallar um þjóðsagnahefðir í
Wales.
Happdrætti Háskóla Islands, dreg-
ið í Heita pottinum.
Miðvikudagurinn 25. febrúar:
Pétur Grétarsson slagverk, Egg-
ert Pálsson slagverk/söngur, Steef
van Oosterhout slagverk og Snorri
Sigfús Birgisson píanó flytja verk
eftir John Cage á háskólatónleik-
um kl. 12.30 í Nprræna húsinu. Að-
gangur 400 kr. Ókeypis fyrir hand-
hafa stúdentaskírteinis.
Bjarld Guðmundsson M.S.-nemi
að Keldum flytur fyrirlestur sem
hann nefnir: „Þættir sem hafa áhrif
á vöxt mæði-visnu veiru í einkjama
átframum (macrophages)“. Fyrir-
lesturinn verður fluttur í bókasafn-
inu í Tilraunastöð Háskólans í
meinafræði að Keldum kl. 12.30.
Helge Sandoy prófessor í nor-
rænum málum við Háskólann í
Björgvin flytur opinberan fyrir-
lestur í boði heimspekideildar Há-
skóla íslands kl. 17.15 í stofu 101 í
Odda. Fyrirlesturinn ber heitið
„Norsk nýhreinsunarstefna" og
verður fluttur á norsku.
Fimmtudagurinn 26. febrúar:
Birkir Þór Bragason, líffræðing-
ur og M.S.-nemi flytur fyrirlestur
sem nefnist: „Rannsókn á prótein
samskiptum príon-próteinsins með
gersveppa tvíhýbríðkerfinu.“ Fyr-
irlesturinn er fluttur í málstofu í
læknadeild sem haldin er í sal
Krabbameinsfélags íslands, Skóg-
arhlíð 8, efstu hæð kl. 16.00.
Föstudagurinn 27. febrúar:
Árni Einarsson forstöðumaður
Nýkomin sending,
skrifborð, stólar, skápar.
Andblær liðinna ára
Skólavörðustíg 21, sími 552 2419.
SÍÐASTA
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐIÐ..!
ca Viltu marefalda lestrarhraöann og auka afköst í starfi?
m Viltu margfalda lestrarhraðann og auka afköst í námi?
Ef svarið er jákvaett skaltu skrá þig strax á síðasta hraðlestrar-
námskeið vetrarins sem hefst fiinmtudaginn 5. mars n.k.
Skráníng er í síma 565-9500.
MRAÐLESnTFtARSKCÓLJISIISÍ
Náttúmrannsóknastöðvarinnar að
Mývatni flytur fyrirlestur í mál-
stofu í líffræði í stofu G-6, Grensás-
vegi 12. kl. 12.20 sem hann nefnir:
„Er lífríki Mývatns í hættu?“.
Lýður S. Erlendsson sérfræð-
ingur á efnafræðistofu Raunvís-
indastofnunar flytur fyrirlestur
sem hann nefnir „Ríbónúkleotíðar-
edúktasi" í málstofu efna-
fræðiskorar, húsi VR-II við Hjarð-
arhaga kl. 12.20-13.00
Dr. Bo Jansson, lektor í bók-
menntafræði við háskólann í Falun
(Högskolan Dalarna) í Svíþjóð,
flytur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla Islands
kl. 13.15 í stofu 202 í Odda. Fyrir-
lesturinn nefnist „Den svenska nu-
tidsprosan" (Sænskar nútímabók-
menntir í lausu máli) og verður
fluttur á sænsku.
Laugardagurinn 28. febrúar:
Óttar Guðmundsson læknir flyt-
ur fyrirlestur á vegum Hollvinafé-
lags læknadeildar í fyrirlestrasyrp-
unni Undur líkamans - furður
fræðanna og nefnist hann „Fíknir;
fögnuður eða fár.“ Fyrirlesturinn
verður fluttur í sal 3 í Háskólabíói
og hefst kl. 14.00.
Sýningar
Stofnun Ama Magnússonar
v/Suðurgötu. Handritasýning í
Árnagarði er opin almenningi
þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 14.00-16.00. Hægt
er að panta sýningu utan reglulegs
sýningartíma sé það gert með dags
fyrirvara.
Landsbókasafn Islands - Há-
skólabókasafn Passíusálmar Hall-
gríms Péturssonar - frá handriti til
samtíðar, 9. febrúar til 9. apríl
1998.
Námskeið á vegum Endur-
menntunarstofnunar HÍ vikuna
23. -28. febrúar:
23. og 24. feb. kl. 8.30-12.30. St-
arfsfólk, þjónusta, viðskiptavinir
og árangur. Kennarar: Þórður
Sverrisson og Jón Gunnar Aðils
MBA, báðir rekstrarhagfræðingar
og ráðgjafar hjá Forskoti ehf.
23., 25. og 27. feb. kl. 9-12. Vef-
smíðar 2. Þróaðra HTML og
myndvinnsla. Kennari: Gunnar
Grímsson vefmeistari hjá this.is og
IO - InterOrgan.
25. og 26. feb. og 2. og 3. mars kl.
8.30-12.30. Verkefnastjómun í hug-
búnaðargerð. Kennari: Helga Sig-
uijónsdóttir tölvunarfræðingur,
sérfræðingur hjá Þróun ehf.
Mið. 25. feb., 11. mars, 25. mars
og 22. apríl kl. 9-16. Framhalds-
námskeið: Fötlun, langvarandi
veikindi og meðvirkar fjölskyldur.
Kennari: Andrés Ragnarsson, sál-
fræðingur.
26. feb. kl. 13-17 og 27. feb. kl. 9-
12. Hvernig má tryggja gæði vatns
frá miðlun til neytenda. Kennarar:
Hafsteinn Helgason Línuhönnun,
Franklín Georgsson Hollustuvemd
ríkisins og Hrefna Kristmanns-
dóttir Orkustofnun.
26. feb. og 2. mars kl. 16-19. Að
skrifa góða grein. Námskeið í ritun
greina í blöð og tímarit. Kennarar:
Guðlaug Guðmundsdóttir íslensku-
kennari í MH og Baldur Sigurðs-
son lektor við KHÍ.
26. feb. kl. 9-17. Evrópskur jarð-
tæknistaðall EC7. Evrópskur jarð-
tæknistaðaU, Eurocode 7: Geot-
echnical design - Part 1: General
mles. Kennarar: Jón Skúlason
verkfræðingur, Almennu verk-
fræðistofunni og dr. Eyjólfur Arni
Rafnsson, verkfræðingur, Verk-
fræðistofunni Hönnun.
27. febrúar kl. 9-13. Gæði og
gæðastjórnun á teiknistofu. Um-
sjón: Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt.
Fim. 26. feb.-26. mars kl. 20-22.
(5x). Fjölskyldur fatlaðra og „eðli-
legt lifKennari: Dóra S. Bjama-
son, dósent við KHÍ.
Föstud. 27. feb. kl. 9-16. Andfé-
lagsleg hegðun unglinga og ungs
fólks. Umsjón: Ásgeir Sigurgests-
son sálfræðingur. Kennarar: Karl
Steinar Valsson afbrotafræðingur
og lögreglumaður hjá Lögreglunni
í Reykjavík, Einar Gylfi Jónsson
sálfræðingur, deildarstjóri for-
vamadeildar SÁA, Ingvar Guðna-
son sálfræðingur hjá Barnavemd-
arstofu og Hugo Þórisson sjálf-
stætt starfandi sálfræðingur.