Morgunblaðið - 22.02.1998, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1998 39 ■-
MAGNUS J.
MAGNÚSSON
+ Magmís J. Magn-
ússon fæddist á
Kirkjubóli í Reykja-
vík 2. júní 1912.
Hann lést á Land-
spítalanum 10. febr-
úar síðastliðinn. Fað-
ir hans var Magnús
Vigfússon, f. 20.
febr. 1870 í Reykjar-
koti í Mosfellssveit,
d. 11. júní 1935,
vegavinnu verkstj óri
og bóndi. Móðir hans
var Sólveig Jónsdótt-
ir, f. 30. júní á Bakka
í Garðahreppi, d. 27.
febr. 1957, húsmóðir. Magnús
var yngstur fímm systkina og
eru þau nú öll látin. Hin hétu
Margrét, Björgvin, Guðbjörg og
Regína.
Magnús kvæntist árið 1936
eftirlifandi eiginkonu sinni
Kristínu Collin Guðmundsdótt-
ur, f. 11. ágúst 1913, dóttur Guð-
mundar Eiríkssonar bónda frá
Kjarnholtum í Biskuptungum og
Margrétar Oddsdóttur frá Mels-
húsum á Álftanesi. Þau hjónin
stofnuðu heimili sitt á Laugar-
nesvegi 34, á jörð Kirkjubóls, og
hafa búið þar síðan. Börn þeirra
eru: Guðmundur Kristján, f. 21.
apríl 1937, prófessor, kvæntur
Valdísi Árnadóttur, Sólveig, f.
14. maí 1939, búsett í Bandaríkj-
unum, og Halla, f. 14. maí 1939,
Það er komið að kveðjustund.
Hann afi á Laugarnesveginum er
horfinn yfir móðuna miklu. Þegar
ég horfí til baka þá sé ég fyrir
mér hljóðláta manninn sem var
eins og klettur. Hann var heiðar-
legur út í gegn og ákaflega vand-
virkur í öllu sem hann gerði, enda
þúsundþjalasmiður. Ef eitthvað
þurfti að laga þá var afi kominn,
hvort sem það var til að plokka úr
sárunum smágrjót eða til að
koma bílnum í gang, lagfæra,
smíða eða setja upp. Allt gat afi.
Hann var mjög fastur fyrir og
hélt fast við sínar ákvarðanir og
dugði ekki einu sinni að nota per-
sónutöfra til að hnika þeim. Afi
hafði einnig hliðar á sinni per-
sónu sem voru tónlistargáfur, góð
kímnigáfa, ást á ljóðum og bók-
menntum. Þær voru oft skemmti-
legar samræðurnar sem við átt-
um saman.
Þær eru margar minningarnar
um hann afa á uppvaxtarárum
mínum á Laugarnesveginum og
fram til þessa dags. Minnist ég t.d.
þess þegar ég var sjö ára þegar afi
gaf mér fyrsta hjólið mitt og
kenndi mér að hjóla. Þetta var
gamalt hjól sem hann hafði gert
upp og var það eins og nýtt væri.
Einnig kenndi hann mér að synda.
Og hvílíkur fjöldi af franskbrauð-
um og tepokum hljóta að hafa farið
hjá afa og ömmu, en það var
„ritúalið" hjá mér, Dóu, Elfu og
Asgeiri að fá te og ristað brauð hjá
þeim í morgunmat og ekki má
gleyma kvöldkaffinu. Þau hljóta að
hafa verið stórkúnnar hjá bakar-
anum. Afi passaði vel upp á okkur
og vorum við kölluð á teppið ef
honum líkaði elcki gjörðir okkar.
Eg á nú von á að þau okkar sem
erum „gloppótt í allar áttir“ hafi
átt eitthvað í gráu hárunum hans.
Hann og amma reyndust systur
minni Dóu sérstaklega vel, en hún
gekk ekki heil til skógar og lést
um tvítugt. Henni þótti ákaflega
vænt um þau. Einnig studdi hann
lom
ubúð
m
öarðskom
v/ Fossvocjski <-kj»goi-3
Sími. 554 0500
húsmóðir. Barna-
börn Magnúsar eru
sjö (eitt látið) og
barnabarnabörnin
eru einnig sjö.
Magnús stundaði
iðnám hjá Kristjáni
Kristjánssyni, járn-
smíðameistara í
Reykjavík, 1927-30.
Hann tók sveinspróf
í vélvirkjun 1938 í
vélsmiðjunni Héðni
og fékk meistara-
réttindi í sömu grein
1942. Hann sótti
námskeið hjá véla-
framleiðendum í Englandi 1949
og í Þýskalandi 1959 og fékk
1968 styrk frá Evrópuráðinu til
að kynna sér verklega kennslu
o.fl. í norskum vélskólum. Hann
var kyndari og vélstjóri á togur-
um og línuveiðurum 1931-36,
vélstjóri á ms. Laxfossi 1937-38.
Hann starfaði í vélsmiðjunni
Héðni 1938-52, síðustu 11 árin
sem verkstjóri við skipa- og
vélaviðgerðir. Magnús var kenn-
ari við mótornámskeið Fiskifé-
lags fslands 1952-66 og for-
stöðumaður þeirra frá 1961.
Hann var fastráðinn kennari við
Vélskóla íslands frá 1966 þar til
hann lét af störfum 1979 sökum
aldurs.
Útför Magnúsar fór fram í
kyrrþey að hans eigin ósk.
mig dyggilega við andlát fóður
míns.
Eina sögu vil ég segja sem lýsir
vandvirkni afa. Þegar ég flutti í
nýja íbúð þá ákvað ég að hlífa afa
einu sinni. Ég kalla pabba til í
staðinn og við drifum upp allar
festingar o.þ.h. á baðherberginu.
Það var miðað, borað og skrúfað
með miklum hamagangi. Pabba
verður að orði: „Það er eins gott að
hann Magnús afi þinn sjái ekki
vinnubrögðin." Afi kemur í heim-
sókn og ekki er sagt orð um bað-
herbergið. Viku seinna Þá dettur
Elfu frænku í hug að gera upp
baðherbergið heima hjá mömmu
sinni og hefur samband við afa.
Eitthvað var hann upptekinn og
Elfa segir honum að hún hljóti að
geta gert þetta sjálf eins og Dídí.
Þá segir afi: „Það er nú allt ramm-
skakkt hjá henni.“
Amma mín, ég votta þér samúð
mína og get ekki annað en dáðst að
því hversu vel þú hefur staðið við
hliðina á honum afa í veikindum
hans undanfarin ár. Att þú heiður
skilinn.
Þegar við barnabörnin bárum
kistuna hans afa út úr Laugarnes-
kirkju varð mér hugsað til þess að
hann afi fæddist á Kirkjubóli,
byggði hús á jörð Kirkjubóls og
var jarðaður í kirkjunni sem
stendur einnig á þeirri jörð, „alltaf
staddur í túnfætinum heima". Með
þessum orðum kveð ég þig, kæri
afi. Minningin um þig lifir með
mér. ^
Kristín Þórarinsdóttir.
Hann elsku afi minn er dáinn.
Ég hugsa til þeirra góðu tíma sem
við áttum saman og hversu stórt
hlutverk hann spilaði í mínu lífi.
Afi var maður sem var með allt á
hreinu, í orðsins fyllstu merkingu.
Það var margt sem við gerðum
saman og var það allt eftir ákveð-
inni „formúlu“. Meðal annars
minnist ég veiðiferðanna til Þing-
valla á vel bónaða Volvónum,
skylduferðanna í sund á miðviku-
og laugardagsmorgnum og þeirrar
venju að drekka te með ristuðu
brauði á morgnana og maltsins og
tvíbakanna klukkan níu á kvöldin,
óborganlegu ferðanna á gamla
uppgerða skíðasleðanum, þegar
hann spyrnti okkur á siglingu með
fagmannlegum sveiflum og kassa-
bflsins sem hann smíðaði handa
mér (sá flottasti í hverfinu).
Afi var fljótur að skerast í leik-
inn þegar ég var í einhverju
„stússi“. Má þar nefna dæmi sem
lýsir honum best. Það var þegar ég
kom með skellinöðrutuðruna mína
til hans og bað hann um að lagfæra
bremsurnar. Hjólið fékk ég ekki
aftur fyrr en mánuði seinna og var
ég alveg að brjálast úr óþolin-
mæði. En afi lét sig ekki muna um
að rífa hjólið niður í „frumeindir“
og fékk ég ekki hjólið aftur fyrr en
það var komið í óaðfinnanlegt
stand að hans mati. Og viti menn,
skellinöðrutuðran var orðin að
nýju hjóli, glæsifai-artæki.
Ég kveð þig núna, afi minn, með
sáru hjarta og þakka þér fyrir allt
það sem þú varst mér. Þú munt
lifa með mér að eilífu.
Ásgeir Hrafnkelsson.
M hafðir fagnað með gróandi grösum
og grátið hvert blóm, sem dó.
Og þér hafði lærzt að hlusta unz hjarta
í hverjum steini sló.
Og hvemig sem syrti, í sálu þinni
lék sumarið öll sín ljóð,
og þér fannst vorið þitt vera svo fagurt
og veröldin ljúf og góð.
(Tómas Guðm.)
Kæri pabbi, ég mun geyma
minningu þína í hjarta mínu.
Halla Magnúsdóttir.
Mig langar með þessum orðum
að minnast Magnúsar J. Magnús-
sohar, langafa litlu dóttur minnar.
„Þá mælti Almítra: Mál er nú að
spyrja um dauðann. Og hann
sagði: Þú leitar að leyndardómi
dauðans. En hvernig ættir þú að
finna hann, ef þú leitar hans ekki í
æðaslögum lífsins? Uglan, sem sér
í myrkri, en blindast af dagsbirt-
unni, ræður ekki gátu ljóssins.
Leitaðu að sál dauðans í líkama
lífsins. því að líf og dauði er eitt
eins og fljótið og særinn. I djúpi
vona þinna og langana felst hin
þögla þekking á hinu yfirskilvit-
lega, og eins og fræin, sem dreym-
ir undir snjónum, dreymir hjarta
þitt vorið. Trúðu á draum þinn, því
að hann er hlið eilífðarinnar.
Og hvað er að hætta að draga
andann annað en að frelsa hann
frá friðlausum öldum lífsins, svo að
hann geti risið upp í mætti sínum
og ófjötraður leitað á fund guðs
síns?“ (Kahlil Gibran)
Ég sendi fjölskyldu Magnúsar
og öðrum aðstandendum mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Halla og Embla.
PETUR JOHANNSSON
+ Pétur Jóhannsson fæddist í
Glæsibæ í Sléttuhlíð í
Skagafírði hinn 12. aprfl 1913
og ólst þar upp. Hann lést á
heimili sínu í Kópavogi hinn 12.
febrúar síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn 21. febrúar.
í bemskuminningum mínum
berð þú, elsku frændi, höfuð og
herðar yfir aðra, fyrir þekkingu
þína og góðar gáfur, og er ég þá
ekki að halla á aðra, sem ég um-
gekkst, síður en svo.
Átta-Pétur, það var viðumefnið
sem þú ávannst þér í Menntaskól-
anum; átta var hæsta einkunnin
sem gefin var í þá tíð. En mennta-
brautin, sem hæfði þér svo vel,
varð ekki löng. Átján ára gamall
varðstu að hætta, kallaður heim til
að taka við bústjórn ásamt móður
þinni, á æskuheimilinu í Glæsibæ,
þegar faðir þinn fórst af slysför-
um. Þrátt fyrir erfiði og amstur
hættir þú ekki að afla þér frekari
kunnáttu og lærdóms allt fram á
síðustu ár, þegar tölvumenningin
ruddi sér til rúms, greipst þú þá
möguleika, sem hin nýja tækni
hafði upp á að bjóða, og nýttir þér
hana til hins ýtrasta.
Þú varst fæddur kennari og
ósínkur á að miðla öðrum af þekk-
ingu þinni. Jafnframt því tókst þér
að innstilla í nemendum þínum
fróðleiksfýsn, sem þeir nutu góðs
af löngu eftir að skólagöngu þeirra
var lokið. Ég var svo lánsöm að
njóta kennslu þinnar á unga aldri
og hefir það verið mér ómetanlegt
vegarnesti.
Það er fáum gefið að hafa veru-
leg jákvæð áhrif á líf annarra, en
það var nokkuð sem þú lagðir þig
fram við af öllum kröftum. Hvort
sem um var að ræða ungt fólk,
sem þú miðlaðir af vizku þinni,
eða heil sveitar- eða bæjarfélög,
sem þú bjóst í - hvar sem þú
fórst lagðir þú þig fram við að
efla hag og bæta aðbúnað fólks.
Ég dáðist að hvemig þú aðlag-
aðist breyttum aðstæðum allt fram
á efri ár, eftir langan og annasam-
an starfsferil utan heimilisins kom
það í þinn hlut að hjúkra Sigríði,
konu þinni, sem þú gerðir af ein-
stakri nærgætni, umhyggjusemi
og ástúð í langvarandi veikindum
hennar. Tókst þú á þig að sjá um
hana og heimilishaldið, sem hafði
verið hennar hlutverk til þessa. Ég
minnist þess að koma í heimsókn
eitt sinn, þú barst mér myndarlegt
kaffi með meðlæti og sagðir hlæj-
andi um leið: „Ja, þú veist ekki
hvað ég er orðinn húslegur í mér!“
Já, Pétur minn. Við söknum þín-
um mjög. En eins og þú hefðir
sagt sjálfur: Lítum á björtu hlið-
ai-nar og verum þakklát fyrir að
hafa átt þig sem frænda og fyrir-
mynd.
Ástarkveðjur.
Hafdís Bennett
og fjölskylda.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson, útfararstjóri
Sverrir Olsen, útfararstjóri
Utfararstofa Islands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn.
írjiíryííjur
Upplýsingar í símum
562 7575 & 5050 925
HOTEL LOFTLEIÐIR
Glæsileg kaffihlaðborð
FALLEGIR SALIR
OG MJÖG GÓÐ ÞJÓNUSTA
ICE LANDAIR HOTELS
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morg-
unblaðinu. Til leiðbeiningar
fyrir greinahöfunda skal eft-
irfarandi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvem einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar minningargreinar um
sama einstakling takmarkast
við eina örk, A-4, miðað við
meðallínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2200 slög (um 25
dálksentimetrar í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er
fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systk-
ini, maka, og böm, skóla-
göngu og störf og loks hvaðan
útfór hans fer fram. Ætlast er
til að þessar upplýsingar
komi aðeins fram í formálan-
um, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar em beðn-
ir að hafa skímamöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Frágangur og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykui' öryggi í textamenferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að
birtast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útfór er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skila-
frestur er útmnninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifœri
Opið til kl.IO öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fákafeni 11, sími 568 9120