Óðinn - 01.07.1926, Síða 11
59
Ó Ð I N N
Síra Þorvarður Brynjólfsson
og
Anna Stefánsdóttir
á Stað í Súgandafirði.
Síra Þorvarður Brynjólfsson var fæddur á Isa-
flrði 15. maí 1863. Foreldrar hans voru Bryn-
jólfur Oddsson bókbindari og kona hans Rannvcig
Ólafsdóllir. Brynjólfur hók-
bindari var fjörmaður, ræðinn
og skemlinn, hagorður vel
og vinsæll. Rannveig var dóltir
Ólafs I’jeturssonar, er lengi
bjó á Kalastöðum í Borgar-
firði. Ólafur var atgervis- og
dugnaðar maður, þjóðhaga-
smiður og er mælt að hann
hafi smíðað á þriðja hundrað
báta; hann álti um skeið útgerð
með Ólafi Stephenscn stiftamt-
manni og voru þeir aldavinir.
l}orvarður ólst upp með for-
eldrum sínum. Flultust þau lil
Reykjavikur er hann var átla
ára að aldri. Ljetst móðir hans
nokkru síðar, en faðir hans
giflist aftur Þorgerði Magnús-
dóttur, ágætri konu, er reynd-
ist stjúpsonum sinum sem besta móðir. Mintist
síra Þorvarður hennar jafnan með ást og
virðingu.
í’orvarður var setlur til menta. Útskrifaðist
hann úr lærða skólanum í Reykjavík 30. júní
1888. Gekk hann síðan i Prestaskólann og úl-
skrifaðist þaðan 25. ágúst 1892. Stundaði hann
síðan um skeið barnafræðslu í Múlasýslu. 17.
scpt. 1896 varð hann forslöðumaður fríkirkju-
safnaðar i Vallaness- og Þingmúlasóknum. Úví
starfi hjelt hann til 24. ágúst árið 1901, er hon-
um var veittur Staður í Súgandafirði, og tók
hann þá vígslu 22. sept. sama ár. Úau ár er
hann var í Múlasýslu hafði hann barnafræðslu
á vetrum og verslunarstörf á sumrum jafnframt
safnaðarstörfunum. Tvö síðustu árin hafði hann
og forstöðu fríkirkjusafnaðarins í Reyðarfirði.
Árið 1899 gekk síra Þorvarður að eiga Önnu
dóttur síra Stefáns Pjeturssonar prests á Hjalta-
stað og konu hans Ragnhildar Metúsalemsdóttur
bónda í Möðrudal, Jónssonar. Er myndin af
þeim hjónum tekin um likt leyti og þau giftust.
Frú Anna misli föður sinn er hún var 13 ára
gömul. Átti móðir hennar þá mörg börn i ó-
megð. Meðal bræðra hennar eru þeir Björn og
Halldór alþingismenn og Metúsalem búnaðar-
málastjóri. Anna var hjá móður sinni þar til
1894, að hún fór í kvennaskólann í Ytri-Ey.
Sumarið eflir var hún í kaupavinnu þar nyrðra,
en næsta vetur hafði hún barnakenslu á hendi.
Hauslið 1896 fór hún aítur að
Ytri-Ey og stundaði þar nám,
en að því loknu ílutti hún
aftur austur á firði, og gift-
ist nokkru síðar, eins og áður
var sagt.
Þeim hjónum varð tíu barna
auðið. Ljetst einn dreng-
ur ungur, en niu eru á lífi.
Börn þeirra eru þessi: Stefán,
cand. jur., starfsmaður í ut-
anríkisráðuneyti Dana, Bryn-
jólfur, er tekið hefur verslun-
arpróf á Samvinnuskólanum,
nú verslunarmaður á Reyðar-
firði, Jón, gekk á Hvanneyrar-
skólann 1924—25, ráðsmaður
hjá móður sinni, Ragnheiður,
lauk kennaraprófi 1924 og
hefur verið kennari við ungl-
ingaskólann á Hesti siðasta vetur, Brynveig og
fjögur börn í ómegð: Laufey, Haraldur, Þor-
gerður og Þórdís. Auk þess átti síra Þorvarður
einn son áður en hann giftist; ólst hann upp á
heimili þeirra hjóna sem þeirra eigið barn og
hafði lokið búnaðarnámi á Hvanneyri, en fórst
í snjóflóði nálægt Stað á síðasta vetri.
Heimili þeirra sira Þorvarðar og frú Önnu
var til fyrirmyndar. Hjónin voru samvalin og
fór jafnan vel á með þeim. Börnin voru vanin
við vinnu og góða siðu, enda hafa þau reynst
vel, sem út í lífið eru komin, og hin efnileg, sem
enn eru í æsku. Heimilisbragurinn var hinn
besti, konan stilt og stjórnsöm. Umgengni öll
bar vott um dugnað og búskaparáhuga. Það
leyndist ekki fyrir ókunnugum að heimili þeirra
hjóna var eilt hinna mörgu prestaheimila hjer
á landi, sem mikla þýðingu hafa fyrir sveitina.
Sá þáttur úr sögu Islands er enn óritaður, sem