Óðinn - 01.07.1926, Qupperneq 12
60
Ó f) I N N
Ríkisráðfundur í Reykjavík 15. júní 1926. Á myndinni sjást, frá vinstri til hægri: fón Þorláksson núv. forsætisráð-
herra, Jón Magnússon fyrv. forsætisráðherra, Kristján konungur X., Magnús Ouðmundsson atvinnumálaráðherra og
Jón Sveinbjörnsson konungsritari.
fjallar um þýðingu prestaheimilanna fyrir menn-
ing landsins, en hann er þar fyrir ekki hinn
ómerkasti.
Síra Þorvarður var skyldurækinn um öll sín
prestsstörf. Hann þótti jafnan góður barnafræð-
ari. Ræður hans voru vel hugsaðar — einkum
tækifærisræður. En framburðurínn lýtti nokkuð,
enda var hann óskýrmæltur hin síðari árin fyrir
sjúkleika sakir. Dagfar hans var gott og prests-
legt. Hann var bindindismaður og áhugasamur
um bindindismál. Hann átti upptökin að stofn-
un »Jólasjóðs Súgfirðinga«, sem notaður er um
jólin til glaðnings þeim, sem við þröngan kost
búa. Sjóðurinn er nú um 1000 krónur.
Síra Þorvarður gekk jafnan að vinnu með
heimilisfólki sínu, enda voru efnin litil fyrstu
árin, en jukust jafnt og þjett. Voru þau hjónin
samtaka um alt er að búskapnum laut. Jarða-
bætur voru töluverðar gerðar. Túnið var girt á
síðasta árinu sem liann lifði. Hús öll voru í ágætu
standi og tún og jörðin öll í góðri rækt, er hann
fjell frá. Jafnan var hann stálbirgur að heyjum.
Eins og oft vill verða um presla, hlóðust á
hann ýms aukastörf. Las hann mikið lækninga-
bækur og þótti athugull um alt slíkt. Hann lagði
stund á búpeningslækningar og tók fyrstur manna
upp bólusetning á fje og bjálpaði öðrum til í
því efni. 1 hreppsnefnd sat hann mörg ár. Odd-
viti hreppsnefndar var hann í sex ár; fóru þau
störf honum vel úr hendi. Hann var aðgætinn
um öll fjármál og reikningsfærsla hans glögg.
Sex ár sat hann í sýslunefnd. Hann var einn
af stofnendum sparisjóðs Súgfirðinga og í stjórn
hans um nokkur ár, en varð að láta af stjórn-
arstörfum; þau urðu honum óhæg sakir fjar-
lægðarinnar frá Suðureyri,