Óðinn - 01.07.1926, Síða 18
66
ÖÐINN
B. H. Ðjarnason kaupmaður
og
Steinunn H. Bjarnason.
Brynjólfur H Bjarnason kaupmaður á 18.
október í ár 40 ára verslunarafmæli og mun
enginn núlifandi kaupmaður í þessum bæ hafa
rekið hjer verslun sam-
fleytt eins lengi og hann.
Hann er nú liðlega
sextugur, fæddur 14.
febrúar 1863. Brynjólf-
ur Hermann er fult nafn
hans og er liann heít-
!nn efl mei k tshjónun-
11 v l • og Her-
di-.ui B nedicueníFlat-
ey á Breiðafirði, en
foreldrar hans voru Há-
kon kaupm. Bjarnason
á Bíldudal og kona lians
Jóhanna Porlei fsdótii r
prófasts í Hvammi, syst-
ir Jóns skálds Þorleifs-
sonar. Ólst Brynjólfur
npp hjá foreldrum sín-
um á Bíldudal. Faðir
hans rak þar verslun
og þilskipaútgerð og
var dugnaðar- og at-
orkumaður hinn mesli,
hafði kotnið upp þil-
skipaútgerð þar veslra
áður en hún reis upp
að nokkru ráði hjcr
syðra, og komið fram-
leiðsluvöru sinni í það álit erlendis, að besti
saltfiskuiinn lijeðan hlaut nafnið »Bildudalsfisk-
ur« og hjellst það lengi síðan. En Hákon kaup-
inaður fjell frá á hesta aldri, 49 ára gamall.
Vöruskip, sem hann kom með frá Kaupm.höfn,
strandaði á Mýrdalssandi í páskaveðrinu mikla
1877 og fórst hann þar ásamt ílestum þeim, sem
á skipinu voru. Ekkja lians rak útgerðina og
verslunina um nokkur ár eftir dauða hans, og
er Brynjólfur souur þeirra var 16 ára, sendi hún
hann til útlanda til þess að læra skipasmíði, og
var hann við það nám i Svendborg i Danmörku
á árunum 1881 — 84. En næstelstu bræðurna tvo,
Þorleif og Lárus, Ijet hún fara í lalínuskólann.
r*egar Brynjólfur kom heim aftur, leitst honum
ekki á að hyrja hjer skipasmíðar, en kaus held-
ur að byrja á verslun. Hann keypti borgarabrjef
hjer í Beykjavik 18. okt. 1886 ogbyrjaði að versla,
með tilstyrk móður sinnar, í húsi því, sem hann
enn verslar í, Aðalstræti 7. Seldi hún þá Bíldu-
dalsverslunina, með öllu, sem henni fylgdi, Pjetri
Thorsteinsson kaupm.
Brynjólfur kvæntist hjer
í Beykjavík Bagnheiði
Zoega og eignuðus þau
mörg hörn, er öll dóu
nema eitt, Hákon
Bjarnason-Goodmann,
hinn efnilegasti maður,
sem nú er húsettur vest-
ur við Kyrrahaf. Fór
hann ungur vestur um
haf með móður sinni
eftir að foreldrar bans
höfðu slitið samvistum.
En B. H. Bjarnason
hjelt áfram verslunar-
rekstri sínum og gerð-
ist efnaður maður. Á
árunum 1896 —98keypti
hann húseign þá, sem
hann hafði verslað í,
og hefur nú rekið þar
verslun í samfleitl 40 ár.
Hann kvæntist i ann-
að sinn 4. júlí 1906,
Steinunni Hjartardóttur
frá Austurhlíð. Eru þau
barnlaus, en hafa alið
upp tvö fósturhörn. Fi ú
Steinunn er hin ágælasta kona, stilt og greind
og vel menluð. Hefur hún til skams tíma verið
formaður »Bandalags kvenna« og gengist mjög
fyrir framkvæmdum til þess að koma upp
kvennaheimili hjer í Beykjavik fyrir alt landið.
Er það mál nú vel á veg komið. Húsið á að
standa á Arnarhólslúni, heita Hallveigarstaðir,
eftir Hallveigu konu Ingólfs landnámsmanns,
verða stórt og vandað og komið upp 1930. Frú
Steinunn hefur og gengist fyrir stofnun styrktar-
sjóðs fyrir ekkjur og börn sjódruknaðra manna.
Á fimlugsafmæli sínu stofnaði B. H. Bjarna-
B. H. Bjarnason og Sleinunn H. Bjarnason.