Dagblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 7
DACBl.AfMÐ — MlÐVIKUDAtiUK 7. JULÍ 1976
7
„Kenyamenn
vígbúast við
landamœrín"
— segir Idi Amin
Idi Amin forseti Uganda,
hefur nú sakað Kenyastjórn i
um að auka mjög liðstyrk sinn
við landamærin, sem tiggja að
Uganda. Hann segir þó að'
Kenyamenn þurfi ekki að óttast
árás frá Uganda í framhaldi af
„atburðunum undanfarið".
Þessi staðhæfing kom fram í
orðsendingu, sem Amin sendi
Jomo Kenyatta, forseta Kenya,
í gær, Efni orðsendingarinnar
var ,,hin sorglega innrás í
Uganda, sem nýlega var gerð af
hermönnum Zionista í ísrael.“
Orðsending Amins var lesin
upp í Uganda-útvarpinu. Þar
sagði Amin einnig: „Samkvæmt
öllum þeim upplýsingum, sem
ég hef aflað mér, var áhlaupið
gert með fullri vitneskju yðar
ágætis og stjórnar yðar.“
Amin lét í ljós mikta undrun
sina á því að yfirvöld í Kenya
skuti hafa veitt Israelsmörinum
aðstoð við aðgerðirnar á
Entebbe-flugvelli aðfaranótt sl.
sunnudags. Eins og fram hefur
komið leyfðu Kenyamenn flug-
vélum ísraelsmannanna aö
lenda á Nairobi-flugvelli á leið
heim frá Uganda með gíslana
hundrað og fjóra. í.sraelsmcnn
hafa neitað þvi, að Ken.vamenn
hafi átt þátt í áhlaupinu.
Sovétmenn óti í geimnum:
Annað geimskot
í undirbúningi?
Geimfarinu Suyuz 21 var skulið á
loft í gær, frá ókunnum stað i
Mið-Asiu. Eftir því sem næst
verður komi/.t, mun annað geim-
far fylgja í kjiilfar þess og háðar
áhafnirnar munu dveljast við
vísindastörl' úti i gcimnum. •
Tveir sovézkir geimfarar eru
nú komnir á braut umhverfis
jörðu í geimfari sínu, og er talið
að þeir munu tengja það ómann-
aðri geimstöð sem fyrsta lið í til-
raun mei) sameiginleg verkefni
fyrir þrjú geimför i einu.
Geimfararnir, Boris Volynov
höfuðsmaður og Vitaly Zholobov
liðþjálfi héldu í ferð sína í gær
frá skotstöð t Mið-Asíu, nákvæm-
lega tveim vikum eftir að hinni
mannlausu geimstöð var skotið á
loft. Geimfar þeirra heitir Soyuz
21, en geimstöðin Salyut 5.
Þeir komust strax á sporbraut
geimstöðvarinnar og miðað við
fyrri reynslu, er búizt við því, að
þeir verði i námunda við hana í
kvöld eða á morgun. Samkvæmt
fréttum frá Tass-fréttastöðinni
sem eins og venjulega voru ekki
ýtarlegar, var sagt, að þeir myndu
vinna við „ýmis verkefni", en að
sögn vísindamanna, sem fylgzt
hafa með geimferðum Rúsa, er
búizt við því, að geimförin verði
tengd saman, þegar þar að kemur.
Ennfremur halda þeir því fram,
að ef allt gengur að óskum, muni
enn eitt geimfar verða sent á loft
innan nokkurra vikna og tengt
geimstöðinni.
Erlendar
fréttir
REUTER
Myndin var tekin viö Grátmúrinn í Jerúsalem
á föstudaginn í sifiustu viku, þegar boðiö var
fyrír lífi og limum gíslanna, sem þá voru i
Uganda. Á laugardaginn, daginn óöur en
þeim var bjargað, var beöiö fyrír lífi þeirra i
öllum bænahusum landsins.
GRATUR OG BÆNIR
VH> GRÁTMÚRINN
Bretjand:
Leiðtogi Frjálslynda
flokksins valinn í dag
Nýr leiðtogi Frjálslynda
flokksins í Bretlandi verður
útnefndur i dag. Fastlega er búizt
við að fyrir valinu verði David
Steel, 38 ára, feiminn og
unglegur, sem vill leiða
baráttuna fyrir félagslegum
umbótum heima fyrir og
mannréttindum erlendis.
Frjálslyndi flokkurinn, sem i
tíð Viktoriu drottningar var
stærsti flokkur landsins, hefur að
undanförnu reynt að afla sér
aukins fylgis með því að skipu-
leggja og gangast fyrir „for-
kosningum“ um land allt. Þar
hefur kjósendum verið gefinn
kostur á að velja forystumann
flokksins í stað hinnar venjulegu
aðferðar, þ.e. að láta þingmenn
flokksins útnefna hann.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Bretar fá tækifæri til að hafa
áhrif á flokksforystu stjórnmála-
flokka. Félagar í Frjálslynda
flokknum eru tuttugu og fimm
þúsund.
Helzti keppinautur Steels um
stöðu flokksformanns er ákafur
og duglegur kaupsýslumaður,
John Pardoe að nafni.
I febrúar í fyrra tók Margaret
Thatcher við formennsku íhalds-
flokksifls, í apríl í ár varð James
Callaghan forsætisráðherra Breta
og um leið flokksformaður.
Jeremy Thorpe, leiðtogi
frjálslyndra, var neyddur til að
segja af sér vegna grunsemda,
ósannaðra og upploginna, um að
hann hefði átt í kynvillusam-
bandi.
Spánn:
SUAREZ LOFAR AÐ HERÐA
Á UMBÓTAÁÆTLUN SINNI
Adolfo Suarez, hinn nýi for-
sætisráðherra Spánar, hefur
heitið því að flýta fyrirumbótum í
lýðræðisátt. þrátt tyrir að helztu
umbótasinnarnir i sijórn hans
hafi neitað að starfa með honum.
I tíu mínútna langri
sjónvarpsræðu í gærkvöld sagði
Suarez að umbæturnar, sem fyrst
litu dagsins ljós eftir dauða
Francos í nóvermber, verði látnar
taka gildi „með því raunsæi, sem
timar okkar kef jast.“
Talið er að Suarez reynist erfitt
að koma stefnumiðum sínum í
framkvæmd eftir að umbóta-
sinnar á borð við de Areilza utan-
ríkisráðherra og Fraga Iribarne
innanríkisráðherra hafa yfirgefið
stjórnina.
Lítið var um viðbrögð við ræðu
forsætisráðherrans í gærkvöld,
nema hvað að Ugt-
verkalýðssambandið sagði hana
sýna, að spænsku þjóðinni væri
enn neitað um fullveldi sitt.
Adolfo Suarez Gonzalcs, hinn
nýi forsætisráðherra Spánar
heíur lofað skjótum úrbótum í
lýðræðisátt.
Búnir að finna lendinggrstgð
fyrir Mgrsfígugina Víkina /.
Bandarískir vísindamenn,
sem vinna að skipulagningu
geimferðar Marsflaugarinnar
Vikings 1. segjast nú vera
vongóðir um að hægt verði að
lenda flauginni mjúkri lendingu
á Mars 17. þ.m.
Fundizt hefur auðveldur
lendingarstaður. sennilega
uppþornað stöðuvaln á
norðurhluta plánetunnar.
Upi)haflega hafði verið áællaó aó
lenda flauginni á þjóðhátaðar-
degi Bandarikjanna. fjórða júli,
en lendingarstaðurinn, sem þá
hafði verið valinn. reyndist of
grýttur og að auki alsettur gígum,
til þess að slikt mvndi takast.
Einn vísindamannanna sagði í
viðtali við fréttamenn í gær: „Svo
virðist sem vió höfum allt að 98
prósent líkur fyrir þvi, að þarna
sé hentugur lendingarstaður.
samkvæmt þeini myndum, sem
okkur hafa borizt."
Stefnu Marsflaugarinnar
verður nú breytt á niorgun til
þess að undirbúa lendinguna.