Helgarpósturinn - 04.05.1995, Page 2
I
2
iMH
Póstunnn
Útgefandi:
Miðill hf.
Ritstjóri:
Gunnar Smári Egilsson
Aðstoðarritstjóri:
Styrmir Guðlaugsson
Framkvæmdastjóri:
Kristinn Albertsson
Markaðsstjóri:
Guðmundur ðm Jóhannsson
Auglýsingastjóri:
Örn Isleifsson
Dreifingarstjóri:
Sveinbjörn Kristjánsson
Setning og umbrot:
Morgunpósturinn
Filmuvinnsla og prentun:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Leiðari
JAFNRÉTT-
IÐ INN í
FANGELSIN
Staða kvenna innan ís-
lenskra fangelsisveggja er
fyrir neðan allar hellur. I
blaðinu í dag er viðtal við
kvenfanga sem afplánar
sinn dóm í Kópavogsfang-
elsi. Lýsingar hennar á því
hvernig henni og stall-
systrum hennar er mis-
munað í samanburði við
karlfangana segir okkur
þá sögu að jafnréttisumr-
æðan hefur ekki náð inn í
fangelsin. Konurnar fá
færri tækifæri til að vinna
og sækja sér menntun,
sem hlýtur þó að vera
grundvöllur þess að fang-
elsisvist geti hugsanlega
bætt einstakling. Félags-
legur vandi þessara
kvenna er lika oft meiri,
sérstaklega þegar um
mæður er að ræða sem
glapist hafa út í fen eitur-
lyfjaneyslu. Það er því
réttmæt athugasemd hjá
kvenfanganum að það
verði að hjálpa þeim að
fóta sig á ný. Fangelsis-
málayfirvöld ættu að
huga að þessu. Þrátt fyrir
naumt fjármagn mætti
byrja á því að athuga
hvort forgangsröðin sé
rétt.
Pósturínn
Vesturgötu 2, Reykjavík
sími 552-2211
fax 552-2311
Bein númer:
Ritstjórn: 552-4666
simbréf: 552-2243
Tæknideild: 552-4888
Auglýsingadeild: 552-4888
símbréf: 552-2241
Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900
Smáauglýsingar: 552-5577
HelgarPósturinn kostar 199 kr.
MánudagsPósturinn kostar 99 kr.
Áskrift er 999 kr. á mánuði
ef greitt er með greiðslukorti
en 1.100 kr. annars.
Uppleið/niðiirleid
A UPPLEIÐ
Ágúst Einarsson sæ-
greifi. Það skilja allir aðl
menn svíki hugsjónir sínarpiv
þegar þeir fá þrettán millj- *
ónir í arðgreiðslur af auðlind
sem þjóðin á öll. Það eru kláru
gæjarnir.
Séra Solveig Lára Guðmunds-
dóttir er hætt að lifa í synd eftir
að hún kvæntist séra Gylfa
Jónssyni um síðustu
helgi. Þá hlýtur hún að
verða þóknanlegri Guði
jog strangtrúuðum sókn-
I arbörnum sínum.
Kristján Ragnarsson sendi
flotann í Síldarsmuguna
þrátt fyrir óskir ríkis-
stjórnarinnar um að
halda mönnum heima um
skeið. Þannig minnti hann
Davíð á enn einu sinni hver
ræður í þessu landi.
A NIÐURLJEIÐ
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Ivar vinsælasti íslendingur-
irln fyr‘r ári á Iokaspretti
I kosningabaráttunnar. En
' það verður ekki margs að
’minnast frá fyrsta ári nýs
'meirihluta 28. maí. Sjálfur
heldur borgarstjórinn upp á af-
mælið með því að hnýta í vagn-
stjóra á skítakaupi og reyna að
koma í veg fyrir að menni
skemmti sér á HM.
Davíð Oddsson er fyrsti
forsætisráðherra Sjálf-'
stæðisflokksins án mál-
gagns. En að vera að klaga'
ritstjóra Moggans fyrir að
halda upp á Jón Baldvin gerir
þennan fyrrum strigakjaft að
vælukjóa.
í hvaöa sæti heldur þú aö við
lendum?
16...bæði á HM og
í Júróvisjóp!
/
ísland!
I gærkvöld var bundinn
Iokahnúturinn á undirbúning
landsliðsins fyrir HM-keppn-
ina en þá fóru leikmenn liðs-
ins út að borða á veitingahús-
ið Argentínu ásamt eiginkon-
um sínum og öðrum aðstand-
endum liðsins. PÓSTURINN
náði tali af Guðrúnu Helgu
Arnardóttur, eiginkonu Geirs
Sveinssonar landsliðsfyrir-
liða, á meðan að steikin henn-
ar kólnaði og spurði hvort
þetta væri síðasta kvöldmál-
tíðin.
“Síðasta kvöldmáltíðin
verður náttúrlega bara heima
í rólegheitunum á föstudag-
inn. Það er annars svolítið
krítískt að kalla þetta seinustu
kvöldmáltíðina því svo kemur
krossfestingin, er það ekki?
Við verðum að kalla þetta eitt-
hvað annað. Mér finnst þetta
stefna í svo neikvæða átt ef
við tölum um seinustu kvöld-
máltíðina. Þetta verður nátt-
úrlega engin krossfesting
heldur bara stanslaust fjör til 21.
maí.”
Þannig að þú ert svona bjart-
sýn á þetta?
“Maður verður að vera það.
Það er svo mikið í húfi og að-
dragandinn verið svo langur og
þetta er allt svo skemmtilegt.
Um úrslitin í keppninni vil ég
bara segja það að við ætlum okk-
ur að fara til Atlanta ‘96 og því
Landsliðsmennirnir og eiginkonur þeirra snæddu síðustu kvöldmál
tíðina saman í gærkvöld. Að sögn landsliðsfyririiðafrúarinnar er
krossfesting liðsins ekki næst á dagskránni heldur stanslaust fjör
fram til 21. maí.
eru öll sæti fyrir ofan það átt-
unda óskasæti.”
Er það nógu gott?
“Fólk vill helst að liðið nái
fyrsta sæti og auðvitað dreymir
okkur öll um það. Við stefnum
að því en við verðum að vera
raunsæ og fara í keppnina með
því hugarfari að allir geri sitt
besta.”
Ætlið þið stelpurnar að halda
hópinn á meðan keppnin stend-
ur yfir?
“Já, já, á morgun fer ég með
barnið okkar í pössun til Þýska-
lands og ég er búin að taka mér
frí í vinnunni allann þennan mán-
uð. Nú verður algjör einbeiting á
báða bóga. Það verður ekki bara
glaumur og gleði hjá konunum
því við erum undir mikilli pressu
líka. Við höfum fórnað heilmiklu
og lagt allt sem við getum af
mörkum. Við ætlum að koma
saman fyrir leikina og hittast,
hvað sem verður, bara svona
til að stappa stáli hver í aðra
og einbeita okkur saman. Við
tökum þetta voðalega alvar-
lega og viljum líka vera í æf-
ingabúðum. Strákarnir fara í
sveitina á laugardaginn og
verða þar í hálfan mánuð.
Það verða farnar einstaka
rútuferðir í Hveragerði þar
sem við fáum að hitta þá
svona einu sinni eða tvisvar
en það má ekki misskiljast
sem svo að verið sé að taka
þá frá okkur, heldur til að
menn geti einbeitt sér og séu
til dæmis ekki með ykkur
blaðamenn á bakinu eða pen-
ingaáhyggjur og grenjandi
börn í kringum sig. Við erum
náttúrlega á því að þeir
hefðu gott af því að hafa okk-
ur hjá sér en verðum bara að
taka þessu. Við erum bara
mjög bjartsýnar og ég sem
fyrirliðafrú tek mitt hlutverk
mjög alvarlega. Ég hef ekki verið
fræg fyrir að vera mikill stuðn-
ingsmaður, og verið umdeild og
allt það, en maður tekur þátt í
þessu hvort sem manni líkar bet-
ur eða ver og þá er eins gott að
gera það með glöðu geði. Við
mætum á alla leikina og látum
örugglega heyra vel í okkur.”
orgarleikhúsið er nú í
gjörgæslu vegna mikilla
fjárhagserfiðleika. Borg-
arráð hefur nú samþykkt beiðni
Leikfélags Reykjavíkur um veð-
leyfi í Borgarleikhúsinu og eru
það nokkur nýmæli. Starfsemin
hefur ekki gengið allt of vel und-
ir stjórn Sigurðar Hróarssonar
leikhússtjóra en það sem fór
endanlega með fjárhaginn var
þegar kassastykkið Kabarett
floppaði algjörlega og sýningum
hætt eftir 30 sýningar við
dræma aðsókn. Milljónatap varð
af uppsetningunni. Páll B. Bald-
vinsson hefur setið í viðræðu-
nefnd við borgina um það neyð-
arástand sem skapast hefur en
leikararnir tóku til sinna ráða og
settu upp nýtt kassastykki í leik-
stjórn Þrastar Leos Gunnarssonar.
Það hefur gengið nokkuð vel og
titillinn er táknrænn, Við borg-
um ekki. Sýningin var sett upp á
methraða, frumsýningargestir
fengu ekkert kampavín í hálfleik
og ekkert frumsýningapartí við
lok sýningar. Við borgum ekki...
Svo mælir Svarthöfdi
Brjóstvitið í Birni á Löngumýri
Um það bil sem menn héldu að
framsókn væri að kasta elli-
belgnum undir forystu nýs for-
manns og kusu flokkinn villt og
galið í Reykjanesi og í Reykjavík,
þeim tveimur vígjum fjölmennis
og fylgisleysis Framsóknar, sem
áratugum saman hafði staðið
eins og fleinn í holdi flokksins,
greip þingflokkurinn til þess
ráðs við val á ráðherrum í nýja
ríkisstjórn, að kjósa Pál Péturs-
son sem ráðherra samkvæmt til-
nefningu flokksformanns. Hefur
þá Framsókn náð þeim áfanga í
sérvisku og mannvirðingum að
koma manni af Guðlaugsstaða-
ætt til æðstu metorða. Hefur
hugur þeirrar ættar staðið mjög
til mannvirðinga allt frá því að
þeir Hannes frændi á Undirfelli
og Halldór Pálsson búnaðar-
málastjóri sóttu fram á vettvangi
þjóðmálanna. Hannes vann það
afrek að falla hvað eftir annað
fyrir Jóni á Akri, en Halldór varð
doktor í háfættu fé.
Mest afrek á vettvangi þjóð-
mála vann þriðji bróðir, Björn á
Löngumýri, en hann sat á þingi í
fjöldamörg ár fyrir Framsókn og
þó datt engum í hug að gera
þann snjalla mann að ráðherra.
Björn situr nú í aldurdómi sínum
við reisn norður á Löngumýri og
er hættur að standa í málaferlum
við Jón ísberg, sýslumann Hún-
vetninga, út af Skjónu, sem var
stoppuð upp og sett á húsdýra-
safn, eða böðun sauðfjár. En allt
vildi Björn hafa að sínum hætti í
búskap, enda langsigldur maður
í sauðfjárfræðum (Astralía) og
þurfti það ekki alltaf að fara sam-
an við laganna bókstaf eða mein-
ingar ágæts sýslumanns. Má
mikið vera ef Björn á Löngumýri
á ekki enn eitt eða tvö mál fyrir
hæstarétti, en hann ver og sækir
sjálfur. Talsmenn íslenskrar
þjóðmenningar munu hafa geng-
ist fyrir því að ræða hvað gert
verður við afganginn af Birni á
Löngumýri, en væntanlega er
honum ætlað eitthvert æðra
hlutverk en það sem varð örlög
Skjónu.
Páll Pétursson frá Höllustöð-
um er um margt vaskur maður,
eins og hann á kyn til. Á þingi tal-
ar hann í öllum málum sem hon-
um sýnist og hafa ekki allar ferð-
ir hans í ræðustól orðið frægðar-
ferðir eins og vonlegt er um þá
sem mikið tala. Heima í kjör-
dæmi sínu taldi Páll sig tala til
vinstri til að geta náð atkvæðum
frá Ragnari Arnalds. Hann náði
engu fylgi af honum fyrr en for-
ysta Framsóknar náði áttum
undir stjórn Halldórs Ásgríms-
sonar og tók sér stöðu í miðju ís-
lenskra stjórnmála. Eftir langa
og gagnslausa baráttu við að
krækja í vinstra fylgi í kjördæmi
sínu, má Páll Pétursson horfa á
eftir hálfu ævistarfi sínu í vask-
inn og sitja að lokum uppi með
sigursæla kosningabaráttu
vegna þess að hann var allt í
einu kominn í normal flokk. Hon-
um var svo þakkað með ráð-
herraembætti fyrir að hafa ekki
eyðilagt fylgi Framsóknar í kjör-
dæmi sínu.
Á Reykjanesi hafði ung stúlka,
Siv Friðleifsdóttir, náð umtals-
verðum árangri fyrir Framsókn
og komist á þing við annan
mann. Ekki hafði Steingrími tek-
ist svo vel í kjördæminu og var
hann þó formaður flokksins.
Enginn taldi að hann ætti ekki að
verða ráðherra, þótt svo vildi til
að hann væri kosinn á Reykja-
nesi. Nú bregður svo við, að
Framsókn sem komin er í ríkis-
stjórn, meðal annars vegna yfir-
burðasigurs Sivjar Friðleifsdótt-
ur, Finns Ingólfssonar og fleiri,
að ekki þykir ástæða til að
staldra við og átta sig á hvaðan
byrinn er kominn sem Framsókn
fékk í kosningunum. Siv átti tví-
mælalaust að verða ráðherra eft-
ir undirtektirnar í Reykjaneskjör-
dæmi.
Framsóknarflokkurinn hefur
ekki síðan 1934 fengið annað
eins tækifæri til að skipta um
ímynd og núna. Nú hefur birt til
og yngra fólk, sem leitt er á laun-
þegaþrasi og hatursáróðri, kýs
heldur að hverfa til miðjunnar í
íslenskri pólitík, sanngirni og
jafnvægis. Framsókn getur með
engu móti brugðist þessu fólki
með því að nota fylgi þess til að
setja einhverja bændur í ráð-
herrastóla. Nýja stjórnin hyggst
krukka eitthvað í kosningalögin.
Þar hefur Framsókn alltaf verið
eins og slagbrandur í óttans dyr-
um. Kannski þorir hún nú að
standa að auknum rétti þéttbýl-
isfólks í kjörklefanum. En hún
gerir það ekki með fulltingi Páls
bónda á Höllustöðum.
Segja má að Guðlaugsstaða-
ættin hafi loksins náð nokkrum
árangri með ráðherrastöðu Páls
á Höllustöðum. Helsti gallinn er
sá að upphefð hans kemur of
seint. Liðin er sú tíð í Framsókn,
þegar bændur og kaupfélags-
menn voru helstu blysberar
Framsóknar í ráðherrastólum og
annars staðar á vettvangi þjóð-
mála. Páll er því eins konar síð-
asti geirfugl í fuglalífi flokksins.
Björn frændi hans á Löngumýri
lagði mikið upp úr brjóstvitinu.
Þeir frændur hafa flotið á því
flesta vegi. Brjóstvitið í Páli hef-
ur dugað honum við búskapinn á
Höllustöðum. Annars konar vit
þarf í ráðherrastól. Hins vegar
eru líkur til þess að þegar allt um
þrýtur og grúi vandamála sækir
að, verði Páli það fyrst fyrir, að
leita til gamla frænda um brjóst-
vitið og verður þá ekki að sökum
að spyrja.
SVARTHÖFÐI
-ft