Helgarpósturinn - 04.05.1995, Síða 7
FIIyIMTuDAGu FT4” m AI 1995
X
Sjónvarpsþátturinn um íslenska myndlist á lýðveldistímum var tilbúinn í febrúar en verður ekki
sýndur fyrr en í fyrsta lagi seint í haust þar sem forráðamenn Sjónvarpsins hafa enn ekki náð
samningum um höfundarrétt við myndlistarmenn
Mynclistarmenn
greidslur
í febrúar var lokið við gerð
sjónvarpsþáttar um íslenska
myndlist í þáttaröðinni List á
lýðveldistímum, en enn er ekki
ljóst hvenær af sýningu hans
verður. Þó er ljóst að það verð-
ur í fyrsta lagi síðla næsta haust.
Ástæðan fyrir þessari töf er sú
að enn hafa ekki tekist samning-
ar á milli Sjónvarpsins og Mynd-
stefs, sem er félag höfundarrétt-
areigenda að myndlistarefni.
„Við skiluðum þættinum af
okkur í febrúar og ég veit ekki
annað en að hann verði sýnd-
ur,“ sagði Valdimar Leifsson í
samtali við blaðamann PÓSTS-
INS, en Vaidimar stjórnaði upp-
töku þáttarins sem var í umsjá
Halldórs B. Runólfssonar listfræð-
ings. „Þegar ég talaði við Svein-
björn [I. Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóra innlendrar dag-
skrárdeildar,] síðast talaði hann
um að hann yrði líklega ekki
sýndur fyrr en í haust héðan af
og mér finnst það í sjálfu sér
skynsamlegt.“
MEIRA Á SPÝTUIUMI
„Það hefur ekkert verið talað
sérstaklega um þennan einstaka
þátt í okkar samningaviðræð-
um,“ segir Hörður Vilhjálmsson,
fjármálastjóri Ríkisútvarpsins.
„Það hafa hins vegar verið í
gangi samningaviðræður við
Myndstef um greiðslu fyrir af-
not af myndefni í sjónvarpinu
yfirleitt og okkur finnst óþarfi
að vera að ögra myndlistar-
mönnum með því að sýna þenn-
an þátt fyrr en þeir samningar
hafa tekist. Enda liggur í sjálfu
sér ekkert á að sýna hann, þetta
er klassískur þáttur og það var
Hörður Vilhjálmsson, fjár-
málastjóri Ríkisútvarpsins.
„Óþarfi að ögra myndlistar-
mönnum með því að sýna
þáttinn áður en samningar
hafa tekist."
aldrei gert ráð fyrir því að hann
yrði endilega sýndur á lýðveld-
isárinu frekar en þátturinn um
klassíska tónlist, sem heldur
hefur ekki verið sýndur enn.“
Knútur Bruun, formaður Mynd-
stefs, segist vita af þessum
þætti en hann segir samtökin
ekki hafa skipt sér af gerð eða
sýningu þessa þáttar sérstak-
lega. „Halldór B. Runólfsson
hafði samband við mig þegar
hann byrjaði á þessum þætti, en
ég hef ekkert heyrt frá honum
síðan. Við eigum hins vegar í
stöðugum samningum við Sjón-
varpið vegna höfundarréttar og
þeir samningar ganga í sjálfu
sér ágætlega eins og er, eftir að
okkur tókst loks að fá það viður-
kennt að við hefðum eitthvað til
okkar máls yfirleitt. Það hefur
lengi verið í gildi samningur á
Knútur Bruun, formaður
Myndstefs. „Hef ekkert upp
á Sjónvarpsmenn að klaga."
milli Ríkisútvarpsins og Stefs, og
við erum að leita eftir samningi
á svipuðum nóturn."
SEIIUAGAMGUR í
SAMMIMGUM
Samningaviðræðurnar milli
Sjónvarpsins og Myndstefs hafa
nú staðið í á annað ár og hafa
samningsaðilar ekki setið nema
þrjá sameiginlega fundi á þess-
um tíma. Það er því ekki annað
að sjá en að þessir samningar
gangi bæði seint og brösuglega.
Þrátt fyrir það þvertaka bæði
Knútur og Hörður fyrir það að
illa gangi að komast að sam-
komulagi. „Þetta gengur allt
hægt og bítandi og ég hef ekkert
upp á Sjónvarpsmenn að klaga í
því sambandi," segir Knútur.
Á meðan verða landsmenn
semsagt að bíða þess áfram að
fá yfirlit yfir myndlistarlíf land-
ans á lýðveldistímum og þykir
eflaust mörgum miður. Það má
þó hugga sig við það að þáttur-
inn getur hugsanlega skapað
mönnum verðugt umræðuefni
þegar skammdegið skellur á að
nýju með öllum sínum drunga,
altént ef viðbrögðin verða eitt-
hvað í líkingu við þau sem bók-
menntaþátturinn fékk síðasta
haust.
-ÆÖJ
Halldór B. Runólfsson listfræðingur. Þáttur hans um mynd-
list á lýðveldistímum var tilbúinn í febrúar en verður ekki
sýndur fyrr en í fyrsta lagi í haust, ef samningar takast á
milli Sjónvarpsins og Myndstefs.
ins og lesendur
PÓSTSINS hafa
tekið eftir hafa
veitingastaðir borg-
arinnar verið gagn-
rýndir á síðum
blaðsins undanfarn-
ar vikur. Jónas Krist-
jánsson, ritstjóri á
DV, hefur með jöfnu
millibili síðasta ára-
tuginn eða svo skrif-
að sams konar gagn-
rýni í sitt blað og
hefur verið nokkuð
einráður á þeim
markaði. Eitthvað
virðist hann hafa tek-
ið eftir samkeppn-
inni því nú fréttist af
honum víða um bæ-
inn á veitingahúsum
með pennann í hönd.
Það er því Ijóst að
veitingahús verða
mikið til umfjöllunar
í fjölmiðlum með
hækkandi sól...
^r. Ágúst Einars-
son er einn
fjögurra nýrra
þingmanna Þjóð-
vaka. Flokkurinn fór
fram með últra-
vinstristefnu og úti-
lokaði samstarf við
frjálshyggjuna í Sjálf-
stæðisflokknum. Dr.
Ágúst var því svolít-
ið eins og álfur út úr
hól í Birtingarhópn-
um en hann er nú
kominn á þing og
þarf ekki að hafa
áhyggjur af fjármál-
um frekar en fyrri
daginn. Hann er ann-
ar stærsti eigandinn
I Granda en á aðal-
fundi félagsins fyrir
helgi var samþykkt
að greiða hluthöfun-
um 8 prósenta arð.
Fyrirtæki Ágústar,
Haf hf., á 14,7 pró-
sent í Granda og því
fær Ágúst í sinn hlut
nærri 13 milljónir
króna sem jafngildir
rúmlega einni milljón
á mánuði, bara fyrir
hlut sinn í Granda.
Þingmannslaunin
megi sín lítils í þess-
um samanburði. Það
fylgir hins vegar ekki
sögunni hvort Ágúst
ætlar að nota eitt-
hvað af auðæfum
sínum til þess að
borga niður kosn-
ingaskuidir Þjóð-
vaka...