Helgarpósturinn - 04.05.1995, Side 18
Þótt veiðimanns-
eðlið sé ennþá ríkt í
mannskepnunni þá
er það engum vafa
undirorpið að flest
venjulegt fólk á
sterkari rætur í kyn-
stofni safnaranna.
Það eru ótrúlegustu
hlutirsem ein
manneskja sankar
að sér í gegnum
tíðina, oft hlutir
sem aldrei voru
notaðir og verða
aldrei notaðir, held-
ur eru geymdir ein-
hvers staðar á góð-
um stað sam-
kvæmt mottóinu
„maður veitaldrei
nema..." Aðrir
hlutir, ýmist ónýtir,
of litlir, úreltir eða
einfaldlega búnir
að þjóna sínu hlut-
verki, hverfa líka
undirverndarvæng
kompunnar og
njóta þar friðhelgi
nostalgíunnar og
safnaraeðlisins um
áratugaskeið. Á
hverju ári á að
hreinsa út, á hverju
ári á að taka til
hendinni og henda
öllu þesu „drasli",
en — eitthvað
heldur aftur af
manni, því maður
veitjú aldrei
nema...
Og nú er komið að
því að þessir löngu
gleymdu hlutir
komi loksins að
langþráðu gagni
aftur, þegar þeir
veita lesendum
póstsins örlitla
innsýn í líf þeirra
sem geymt hafa.
Cuðný Halldórsdóttir kvikmyndacperðarmaður
Nóbelstaska, ekta Spur og kvenskór nr. 46
• „Þetta er gamall rafmagnsofn sem afi
mannsins míns átti. Hann er ennþá notaður
reglulega, bæði I bílskúrnum og annar staðar
þar sem kalt er og þar fyrir utan reyni ég að
troða honum í allar myndir sem ég geri því
hann er svo flottur I laginu."
• „Við fundum einu sinni heilan kassa af
svona Spur-flöskum í einhverju samkomuhúsi
úti á landi og það er ekta Spur í flöskunni. Ég
geymi semsagt Spur-bragðið í þessari flösku
fyrir komandi kynslóðir."
• „Gamla skjalataskan hans pabba sem hann
notaði mikið á árum áður og gengur undir
nafninu Nóbelstaskan. Hún er búin að vera á
leiðinni í viðgerð í mörg ár og bíður þeirrar
ferðar semsagt í skúrnum."
• „Þetta er efri parturinn af gínu sem við
þurftum einu sinni að nota og þennan haus er-
um við búin að eiga í nokkur ár. Við notum
hann við aðstæður sem ég get ekki sagt frá, en
hann er semsagt alltaf notaður reglulega."
• „Hippapelsinn minn, Afganistanpelsinn. Ég
nota hann ekki lengur en ég tek hann fram
svona einu sinni á ári og viðra hann
og sýni hann börnum
sem hafa aldrei séð
svona. Létt nostal-
gíutripp svona."
• „Ég fékk þennan hnakk um 13 ára bilið og
hann er allur í pörtum en ég timi ómögulega að
henda honum."
• „Þetta er kvenskór númer 46, sem ég lána
karlmönnum í myndum og hér til sveita. Mjög
sérstakur skór og líkist helst skíðum."
• „Götuskórnir hans Halldórs Gunnarssonar
kamerumanns. Hann gleymdi þeim hérna í boði
hjá mér fyrir nokkrum árum og ég tek þá alltaf
út svona einu sinni á ári til að viðra þá."
• „Þessi skór er helmingurinn af pari sem ég
keypti mér í Róm fyrir margt löngu. Það er ekki
hægt að henda svona skóm því þetta er svo
sérstakt design og agalegt að það verður að
geyma þetta og ég set þá á Þjóðminjasafnið
næst."
• „Gamla hippateppið mitt skil ég aldrei við
mig og ligg alltaf á því úti í náttúrunni. Það er
svo gott nælon I þessu."
• „Það er eiginlega svindl þetta
net, því það var útbúið fyrir hana
Fínu Jónsen I Kristnihaldinu. En
þetta er bara svo smart gert hjá
proppsurunum að ég tími ekki
að láta það fara."
• „Þetta skip smíðaði ég 12 ára
gamall (og það heitir auðvitað Kle-
ópatra), svo það hefur verið erfitt að
skilja við það þótt það sé orðið illa
farið. Synir mínir tóku það ósjaldan
með sér í baðið, og ég vona að ég
hafi nægan tíma í ellinni til að
bæta það aftur."
• „Þetta líkist gömlu afa-vasaúri
en er framleitt í Sovétríkjunum
skömmu áður en þau hrundu. Ég
fékk það í skiptum fyrir mitt eigið
úr þar sem vini mínum í Stokk-
hólmi, sem þá var nýkominn frá Sovét,
fannst það eitthvað vesældarlegt. Eini gall-
inn við það er að það gengur ekki alltaf. Þegar
ég tók það fram núna eftir að það hafði legið í geymsl-
unni í heilt ár, þá fór það auðvitað að ganga aftur."
• „Þessi jakki er orðinn að minnsta kosti 15 ára gamall,
ég keypti hann einhvern tímann þegar mig vantaði slíka
flík. Mér fannst hann vera á ansi góðu verði, en þegar ég
fór í hann í fyrsta skipti komst ég að því að hann hæfði
mér ekki. Kannski passar hann mér betur í ellinni."
• „Þetta er merkilegur bolli sem mér áskotnaðist ein-
hvern tíma fyrir fjölda ára síðan og drakk margan góðan
sopann úr. Það sést ekki á myndinni, en í honum eru
kaffitaumar og ég hef alltaf haldið í bollann enda aldrei
að vita nema líf mitt sé skráð í hann."
• „Ég átti lengi kött sem hét Dvergarnir sjö og þvældist
lengi með fjölskyldunni. Hann hefði orðið 13 ára síðustu
jól og við vildum gera eitthvað fyrir hann greyið. Þá var
fjárfest í þessu forláta kattaklósetti, en þá veiktist kisa og
gaf upp andann, þó ekki hafi það verið vegna klósetts-
ins."
• „Þetta er teygja sem hægt er að teygja á alla kanta til
að verða stór og sterkur. Þegar ég var strákur gekk hér yf-
ir Bullworker-æði og allir voru með þessi undratæki, þar á
meðal félagi minn einn. Ég vildi ekki vera minni umfangs
en hann en vildi þó ekki apa eftir honum og fékk mér
þessa galdrateygju í staðinn. En ég notaði hana nú aldr-
ei."
Kunn-
ingi minn í
Stokkhólmi gaf mér
þetta Ijós þegar hann var að flytja. Honum tókst að sann-
færa mig um að ég þyrfti mikla og góða birtu við mína
vinnu en því miður hefur mér ekki tekist að nota það enn-
þá."
• „Þetta er byrjunin á hobbíi sem ég hef oft verið að
hugsa um að koma mér upp, sem er að safna steinum.
Þennan stein fann ég í bænum Lysekil í Svíþjóð og er
hann ætlaður til gatnagerðar."
• „Ég man ekki hvernig þessi bæklingur komst í mína
eigu, ég held að frænka mín hafi gefið mér hann stuttu
eftir að ég fékk bílpróf. Ég hef aldrei átt Volkswagen en
alltaf haldið upp á þennan bækling, enda eru svona leið-
beiningabæklingar alveg sérstök tegund af bókmenntum
sem getur verið gaman að spá í."
• „Ég veit ekki hvað þetta er, en ég fann þetta einhvern
tímann úti á götu þar sem ég var á ferðalagi. Þetta er
eitthvað rafmagnstæki eða eitthvað í rafmagnstæki en
hvað það er veit ég semsagt ekki. Og það vekur auðvitað
upp ýmsar heimspekilegar spurningar. Svo er aldrei að
vita nema maður hafi einhver not fyrir það ef maður
kemst einhvern tímann að því hvað þetta er."
Pétur W. Kristjánsson tónlistarmaður
Færeyskir boxhanskar og gjafabréf á klippingu
• Afi minn var Færeyingur og ég er skírður
í höfuðið á honum. Hann var Norðurlanda-
meistari í boxi á 3. áratugnum og hann vann
einmitt titilinn með þessum hönskum. Hann
boxkennarinn hér og má eigin-
hann hafi innleitt boxið á
retta eru sögulegir hansk-
• „Samstarfsfélagar mínir hjá
Steinum gáfu mér þetta gjafa-
kort fyrir klippingu hjá Villa Þór
á fertugsafmælinu mínu. Það
giídirtil 7. janúar
2002, en því
fylgir það skil-
yrði að lágmark
20 sentímetrar
verða að fljúga.
Ég hafði einhvern
tímann sagt það að
ég ætlaði að klippa
mig fyrir fertugt en
ég er búinn að fresta
því um tíu ár og ætla
að taka Andreu Jóns
með mér.
• „Fyrsta myndavélin mín, ég fékk hana
1967 þegar ég var sendur í danskan sumar-
skóla, þar sem ég þótti fremur óstýrilátur
unglingur. Þetta var alveg toppurinn þá. Ég
var svo sendur í Núpsskóla um haustið en
fékk í millitíðinni að dvelja í viku í Koben og
aðra í London og myndaði óspart öll aðal
poppgoðin með henni þessari."
• „Metsöluplatan okkar í Pelican sem seld-
ist í 11.000 eintökum og við ætlum að gefa
út á diski í ár."
• „Önnur gömul og góð, plata með Parad-
ís, sem á líka að setja á geisladisk á þessu
ári."
• „Þessi smáskífa er ófáanleg í dag og er
gefin út 1970 af Lauf- útgáfunni hans Óla
Laufdal. Ætlunin var að gefa út tvær tveggja
laga plötur, en Óli hafði ekkert verið í út-
gáfumálum og þess vegna klúðraðist ýmis-
legt. Á endanum kom aðeins önnur platan
út, en hún var hins vegar sett í umslag sem
átti við hina plötuna, þannig að þetta er
næsta merkilegt fyrirbæri."
• „Föðurafi minn, Kristján Karl, keypti öll
blöð og klippti út allt það sem birtist um mig
hér í den og safnaði saman. Þegar upp var
staðið fyllti þetta 5 til 6 úrklippubækur.
Maður var ekkert að pæla í þessu sjálfur á
þessum tíma en mér þykir afskaplega vænt
um þetta framtak afa míns núna."
• „Pabbi minn, KK, kom með þetta koffort
frá Ameríku eftir að hann fór þangað að
læra músík með Svavari Gests. I þessu koff-
orti kom hann með hljómsveitarjakkana
frægu og snyrtilegu sem einkenndu KK-sex-
tettinn og voru nýlunda hér á landi þegar
hann kom með þá."
• „Ég komst einhvern tímann yfir kassa
með 40 stykkjum af þessari plötu og mér
skilst að þetta gangi á 130 pund hjá bresk-
um söfnurum núna og ég bíð bara eftir að
þær hækki ennþá meira."
• „Þetta er forláta hermannabolur sem ég
var alltaf í á hátindi ferilsins '75-76 og ég
fékk ekki af mér að henda. Þegar ég tók
hann upp núna ákvað dóttir mín, sem er að
verða 15 ára, að hann væri æðislega svalur
og hefur nú tekið hann til handargagns."
_____________. _ „ ._si ...,
*-C -T- . *w HXT'í - -. A* *.T*«r** 1