Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.12.2001, Blaðsíða 64
UMRÆÐAN 64 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Í tilefni af frumsýningu myndarinnar Hringadróttinssaga (The Lord Of The Rings) annan í jólum efnir mbl.is til spurn- ingaleiks. Með því að svara spurningun- um fimm rétt, áttu möguleika á að vinna glæsilega vinninga: Hugarheimur Tolkiens var bók 20. aldarinnar. Nú verður hann kvikmynd 21. aldarinnar. Boðsmiðar fyrir tvo á sérstaka forsýningu myndarinnar 19. desember Boðsmiðar fyrir tvo á frumsýningu myndarinnar 26. desember. Árskort í Laugarásbíó 5.000 kr. inneign í verslunum Símans 10.000 kr. inneign frá Landsbankanum Glæsilegt Tolkien-safn Vandaðar vörur merktar kvikmyndinni 15" pizzur frá Domino´s Ævintýrið lifnar við! á mbl.is NÝVERIÐ kom út skýrsla á vegum sam- göngumálaráðuneytis um menningartengda ferðaþjónustu á Íslandi. Flestir sem starfa að ís- lenskri menningu hljóta að fagna henni enda er þar tekin afdráttarlaus afstaða með nauðsyn þess að efla menningar- tengda ferðaþjónustu. Í skýrslunni eru settar fram hugmyndir um leiðir sem ríkisvaldið hefur til að styðja þenn- an vaxtarbrodd íslensks atvinnulífs. Er öruggt að þær verði til góðs ef þær komast í framkvæmd. Í skýrslunni er sú forsenda gefin að hér á landi séu ekki fornleifar sem vert sé að kynna (s. 17) og þessvegna beri fyrst og fremst að leggja áherslu á bókmenntir og sögu þjóðarinnar í menningartengdri ferðaþjónustu. Á þeim grundvelli er sett fram ákveðin skoðun á framvindu Íslandssögunnar og hvaða atriði á hverju tímabili séu helst líkleg til að vekja áhuga. Það er full ástæða til að efast um nauðsyn þess eða gagnsemi að ríkisvaldið byggi stefnu sína í ferðaþjónustu á einni tiltekinni sögu- skoðun, og víst er að í þessu tilfelli hefur þessi afstaða byrgt sýn á þá fjölmörgu möguleika aðra sem eru á vexti á þessu sviði. Ekki er hægt að kenna um áhugaleysi, því í skýrsl- unni er lögð áhersla á nauðsyn aukinna forn- leifarannsókna (s. 11, 23). Þar ræður fremur skortur á þekkingu á ís- lenskum fornleifum og möguleikum til að hagnýta þær. Íslenskar fornleifar Það er almenn skoðun en röng að ekki séu á Íslandi miklar eða merki- legar fornleifar. Íslendingar notuðu að vísu lengstaf forgengileg bygging- arefni eins og torf og tré þannig að mannvirkjaleifar skera sig ekki úr í landslaginu eins og byggingar úr steini myndu gera. Það þýðir hinsveg- ar ekki að leifarnar séu ekki til eða að þær séu ekki áhugaverðar. Á vegum Fornleifastofnunar er unnið að skráningu fornleifa um allt land og hefur nú verið safnað upplýs- ingum um 53.000 íslenska fornleifa- staði. Skráningin nær til um 44% landsins þannig að ætla má að alls séu 120.000 fornleifastaðir á landinu öllu. Það er því enginn skortur á fornleif- um þó að viljann skorti til að nýta þær. Í nýlegri könnun um áhuga er- lendra ferðamanna á íslenskum menningararfi kemur í ljós að flestir nefna fornleifar sem það atriði menn- ingararfsins sem þeir höfðu mestan áhuga á. Hinsvegar kom í ljós að þessir ferðamenn töldu gæði kynn- ingar á fornleifum hvað lakasta og var um þetta atriði mestur munur á vænt- ingum ferðamanna og frammistöðu íslenskrar ferðaþjónustu (Rögnvald- ur Guðmundsson: Sagnagarður Ís- lands, 2000). Með öðrum orðum þá stöndum við ekki undir þeim vænt- ingum sem erlendir ferðamenn hafa um eðlilega þjónustu á þessu sviði. Dæmi frá Orkneyjum Á Orkneyjum er ferðaþjónusta ein stærsta atvinnugreinin og hafa eyja- skeggjar um 3,5 milljarða íslenskra króna í tekjur af henni árlega. 23% ferðamanna nefna fornleifar sem meginástæðuna fyrir því að þeir heimsækja eyjarnar, en 73% nefna fornleifar sem eina af ástæðunum, þannig að tekjur hinna tuttugu þús- und Orkneyinga af fornleifum einum eru á bilinu 1-2 milljarðar íslenskra króna (upplýsingar frá Orkney Ent- erprise). Til Íslands koma tvöfalt fleiri ferðamenn og ætti því að vera raunhæft markmið að við gætum haft 2-3 milljarða tekjur á ári af þessari auðlind. Eins og er eru tekjur Íslend- inga af fornleifum varla meiri en nokkrar milljónir á ári. Ástæðan fyrir því að ég tek Orkn- eyjar sem dæmi er að þar eru hvorki pýramíðar né kastalar sem setja svip sinn á landslagið heldur eru fornleifar þær sem vekja svo mikinn áhuga ekki ólíkar þeim íslensku að eðli og um- fangi. Munurinn liggur í því að hinar orkneysku fornleifar hafa verið rann- sakaðar og staðirnir í kjölfarið gerðir aðgengilegir gestum. Orkneyingar hafa verið lengi að við þetta og verið óhræddir við að fjárfesta í rannsókn- um, kynningu á rannsóknarniður- stöðum og aðgengi að fornleifastöð- um. Hvernig getum við hagnýtt íslenskar fornleifar? Það eru margar leiðir til að hag- nýta íslenskar fornleifar. Aðeins er fjallað um eina þeirra í áðurnefndri skýrslu, þá að gera fornleifauppgröft sem síðan er byggt á við kynningu á viðkomandi stað. Það er dýrasta leið- in og sú sem lengstan tíma tekur. Ódýrari leiðir eru einnig til. Ljóst er að fjölmarga uppgrafna íslenska minjastaði mætti gera aðgengilega og kynna fyrir gestum. Í þeim skilningi má líta á eldri rannsóknir sem van- nýtta auðlind. En það þarf heldur ekki uppgröft til að hagnýta fornleifar. Sandblásin verbúð á eyðiströnd eða vallgróin beitarhúsatóft á lækjarbakka geta sagt meira um lífshætti og lífskjör Ís- lendinga á liðnum öldum en margar blaðsíður af ritmáli. Slíkar fornleifar er að finna um allt land og eru nánast endalausir möguleikar á því hvernig hægt er að nýta þær í ferðaþjónustu. Kynning á slíkum minjastöðum bygg- ist á því að líta á þá sem hluta af landslaginu og skynjun þess. Það ger- breytir upplifun ferðamannsins af ís- lenskri náttúru þegar honum er bent á minjar um íslenskt samfélag og komið í skilning um þá lífshætti sem hér tíðkuðust og þá lífsbaráttu sem hér fór fram. Það er ekki ómerkileg saga. Fornleifar hafa þann meginkost fyrir ferðaþjónustu að þær eru stað- bundnar og krefjast þess að menn ferðist til að hægt sé að skoða þær – öfugt við bókmenntir sem hver sem er getur notið í stofunni heima hjá sér. Þær hafa líka þann kost að þær eru dreifðar um allt land, sem þýðir að hægt er að hafa áhrif á hvert ferða- menn fara með því að stjórna upp- byggingu fornleifastaða. Skynjun okkar Íslendinga af fortíð- inni byggist nær alfarið á sögum og rituðu máli. Það er sérstaða okkar því fæstar aðrar þjóðir eiga jafnmikinn sagnaarf og við, eða eru jafnmeðvit- aðar um hann. Það er sjálfsagt fyrir okkur að nýta okkur þessa sérstöðu í ferðaþjónustu, en það er ástæðulaust að láta hana takmarka möguleika okkar. Erlendis er mönnum tamara að skynja fortíðina í gegnum hluti – byggingar, listaverk eða gripi – og þeir búast við því að þeim sé miðlað upplýsingum með sama hætta þegar þeir koma hingað. Hversvegna eigum við að valda þeim vonbrigðum? Fornleifar eru auðlind Orri Vésteinsson Fornleifar Það er enginn skortur á fornleifum, segir Orri Vésteinsson, þó að viljann skorti til að nýta þær. Höfundur er fornleifafræðingur á Fornleifastofnun Íslands. G læ si le g a r g ja fa vö ru r Hitakanna kr. 7.490 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.