Fréttablaðið - 23.11.2002, Side 6
6 23. nóvember 2002 LAUGARDAGUR
STJÓRNARRÁÐIÐ
Ársverkum fjölgaði úr 18,62 árið 1991 í
40,11 árið 2000. Þau eru 38 talsins í dag.
Forsætisráðuneytið:
Starfs-
mannafjöldi
tvöfaldaðist
STJÓRNVÖLD Unnin ársverk í for-
sætisráðuneytinu árið 2000 voru
rúmlega tvöfalt fleiri en þau
voru árið 1991. Við upphaf ára-
tugarins voru þau tæplega 19
talsins en voru orðin ríflega 40
tíu árum síðar. Í dag eru stöðu-
gildin 38 talsins.
Halldór Árnason, skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu,
segir að þegar verkefni heyri
ekki beint undir ákveðið
fagráðuneyti séu þau oft færð
undir forsætisráðuneytið. Því
geti starfsmannafjöldinn breyst
þegar ný verkefni bætast við og
önnur klárast.
Í svari ráðuneytisins við fyr-
irspurn Örlygs Hnefils Jónsson-
ar, varaþingmanns Samfylking-
ar, segir að rekja megi fjölgun
ársverka í ráðuneytinu undir lok
áratugarins til verkefna á borð
við ráðstefnuna um konur og
lýðræði, kristnihátíð, óbyggða-
nefnd, landafundanefnd og upp-
lýsingasamfélagið. Að auki
færðust tveir starfsmenn húsa-
meistara ríkisins undir ráðu-
neytið þegar embættið var lagt
niður. ■
SKILAÐI SÉR HEILL Á HÚFI
Björgunarsveitin Súlur á Akur-
eyri var kölluð út rúmlega tíu í
fyrrakvöld að beiðni lögreglunn-
ar til leitar að 86 ára gömlum
manni sem hafði ekki skilað sér
heim til sín frá því fyrr um dag-
inn. Í þann mund er leit var að
hefjast kom maðurinn til síns
heima heill á húfi. Hann hafði
ekki sakað á ferðalagi sínu og
var í ágætu ástandi miðað við
aðstæður.
INNBROT Á FJÖLFARINNI GÖTU
Geislaspilara var stolið þegar
brotist var í fyrrakvöld inn í bíl
sem stóð við Tryggvagötu í
Reykjavík. Fékk lögregla til-
kynningu um stuldinn rétt fyrir
miðnætti.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LANDBÚNAÐUR Bæjarráð Ísafjarð-
ar telur bæjarsjóði ekki heimilt
að lána vestfirskum kúabænd-
um fé til kvótakaupa, án vaxta
og verðbóta. Sex bændur í
Súgandafirði og Önundarfirði
hafa óskað eftir stuðningi bæj-
aryfirvalda við mjólkurfram-
leiðslu.
Þeir leggja til að bærinn láni
bændum allt að 80 krónur á
hvern lítra greiðslumarks sem
kann að verða keyptur.
Bændurnir vilja að lánin
verði vaxtalaus og óverðtryggð
og endurgreiðist á átta árum.
Komi ekki til stuðningur opin-
berra aðila telja bændur að
mjólkurframleiðsla á norðan-
verðum Vestfjörðum og mjólk-
ursamlagið á Ísafirði muni
leggjast af. Auk lánafyrir-
greiðslu frá Ísafjarðarbæ binda
bændur helst vonir við lánsfjár-
magn á hagstæðum kjörum frá
Lánasjóði landbúnaðarins og
Byggðastofnun.
Bændurnir segja nauðsynlegt
að einhver þessara aðila ríði á
vaðið. Afgreiðsla þeirra ráði úr-
slitum um framtíð greinarinnar
á svæðinu. Bæjarráð telur sér
hins vegar ekki fært að taka
ákvörðun fyrr en fyrir liggja
frekari upplýsingar um aðkomu
Byggðastofnunar að málinu. ■
Mjólkurframleiðsla á norðanverðum Vestfjörðum:
Líður undir lok
fáist ekki lánsfé
LAGOS, AP Frá því á miðvikudag
hafa hátt í hundrað manns látið
lífið í óeirðum í borginni Kaduna í
Nígeríu. Meira en 500 manns hafa
slasast. Tilefni ólátanna er blaða-
grein um fegurð-
arsamkeppni, þar
sem látin eru falla
niðrandi ummæli
um Múhameð spá-
mann.
Í Kaduna barst í gærmorgun
þykkur reykur frá götuvígjum
sem reiður múgur hafði kveikt í.
Fram eftir degi mátti heyra stöku
byssuskot í borginni.
Fólk hélt sig almennt innan
dyra af ótta við óaldarflokkana,
sem sumir hafa stungið og kveikt
í fólki sem orðið hefur á leið
þeirra. Þá hafa þeir kveikt í kirkj-
um og unnið ýmis skemmdarverk.
Hundruð hermanna voru komin
til borgarinnar og útgöngubann
gildir nú allan sólarhringinn.
Óeirðirnar hófust á miðviku-
daginn þegar múslimar í Kaduna
kveiktu í skrifstofum dagblaðsins
„ThisDay“. Síðastliðinn laugardag
birtist í blaðinu grein þar sem
spjótum var beint að samtökum
múslima. Þessi samtök hafa for-
dæmt fegurðarsamkeppnina Ung-
frú heimur, sem haldin verður í
Lagos, höfuðborg landsins, sjö-
unda desember. Þau segja keppni
af þessu tagi hvetja til lauslætis
og ósiðsemi.
„Hvað hefði Múhameð haldið?“
skrifaði Isioma Daniel í greininni
sem valdið hefur þessum látum
öllum. „Í einlægni sagt hefði hann
sennilega kosið sér eiginkonu úr
hópi þeirra,“ það er þátttakend-
anna í keppninni.
Þessi ummæli urðu til þess að
bæta gráu ofan á svart, því
múslimum þykja þau afar niðr-
andi í garð spámannsins. Á mánu-
daginn birtist á forsíðu blaðsins
stutt afsökunarbeiðni, þar sem
sagði að greinin hefði verið birt
fyrir mistök.
Margar fegurðardrottningar
sem ætluðu að taka þátt í keppn-
inni, þar á meðal frá Íslandi,
hættu við til þess að mótmæla
dauðadómi yfir konu sem hafði
framið þann glæp að eignast barn
utan hjónabands. Konan var
dæmd samkvæmt lögum mús-
lima, sem eru fjölmennir í norðan-
verðri Nígeríu.
Múslimum var fyrir nokkrum
árum leyft að dæma samkvæmt
trúarlögum sínum, sharia, þrátt
fyrir að landslög séu að öðru leyti
veraldleg. Ríkisstjórn Nígeríu
hefur heitið því að koma í veg
fyrir að dauðadómum sem þess-
um verði fullnægt. Dómurinn
stendur hins vegar óhaggaður,
þótt honum hafi ekki enn verið
fullnægt. ■
Tugir myrtir í óeirðum
Niðrandi ummæli um Múhameð spámann í dagblaðsgrein hafa gert allt
vitlaust í Nígeríu. Tugir manna hafa látist í óeirðum sem tengjast feg-
urðarsamkeppninni Ungfú heimur.
ÖRYGGIS GÆTT
Þessi öryggisvörður gætir stúlknanna sem keppa um titilinn Ungfrú heimur í Nígeríu.
Keppnin fer ekki fram fyrr en 7. desember en hefur þegar valdið miklum óeirðum í
landinu.
„Hvað hefði
Múhameð
haldið?“
AP
/B
O
R
IS
H
EG
ER
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 31
1.
2.
3.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
velja á lista um helgina. Hver
leiddi lista flokksins í Reykjavík
áður en Davíð Oddsson bauð
sig fyrst fram til þings?
Hvaða þrír bræður léku í lands-
liði Íslands sem tapaði 2-0 fyrir
Eistlendingum á miðvikudag?
Hvað heita leikararnir sem fara
með titilhlutverkin í leikritinu
Rómeó og Júlía sem frumsýnt
var í vikunni?
UNDIRHEIMAR „Hef ekki fengið hót-
anir í nokkra daga. Heimildir mín-
ar úti í bæ segja þó að ég sé ekki
vinsæll í undirheimum,“ segir
Guðmundur Sesar Magnússon,
faðir 14 ára stúlku, sem sagt hef-
ur handrukkurum og eiturlyfja-
sölum stríð á hendur. Í gær voru
stofnuð samtökin Upphaf, lands-
samtök foreldra barna og ung-
linga sem lent hafa í klóm fíkni-
efna. Guðmundur Sesar sagði
fyrst sögu sína í Íslandi í bítið þar
sem hann lýsti því að hann hefði
fengið líflátshótanir vegna þess
að hann var að reyna að bjarga
dóttur sinni úr heimi eiturlyfj-
anna. Hann fékk í framhaldi af
þættinum gífurleg viðbrögð frá
fólki sem vildi sýna honum sam-
hug í baráttu við handrukkara og
þá sem selja eiturlyf. Einnig fékk
hann hótanir þeirra sem töldu að
hann hefði farið yfir strikið.
„Þetta er banvæn meinsemd
sem líkja má við krabbamein.
Stofnun samtakanna er leiðin til
að sameina foreldra í baráttunni.
Það erum við foreldrarnir sem
grátum þegar börnin deyja og það
stendur engum nær að berjast,“
segir Guðmundur Sesar.
Hann sagði frá því á dögunum
að dóttir hans hefði strokið og
horfið dögum saman þegar hún
var í neyslu. Þá óttaðist hann hið
versta en nú er staðan ólíkt betri.
„Dóttir mín er í góðum málum
í dag,“ segir hann. ■
Guðmundur Sesar ekki vinsæll í undirheimum:
Samtök gegn handrukk-
urum og dópsölum
GUÐMUNDUR SESAR MAGNÚSSON
Í stríði við handrukkara og fíkniefnasala.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
MP BIO tapar Tap til lækkun-ar á eigin fé líftæknisjóðsins
MP BIO á fyrstu 9 mánuðum árs-
ins var 405 milljónir króna. Eigið
fé félagsins nam 597,0 milljónum
kr. í lok tímabilsins. Tapið á þrið-
ja ársfjórðungi var 31,0 milljón
króna samanborið við 367,2 millj-
ón króna tap á sama tímabili í
fyrra. Eignir félagsins eru að
mestu í óskráðum bréfum fyrir-
tækja sem starfa á sviði líftækni.
VIÐSKIPTI
Kveikt í þremur bílum:
Grunur
um íkveikju
LÖGREGLUMÁL Mikil sprenging
heyrðist frá geymsluporti við
bílasprautunarverkstæði við
Grófina í Keflavík tuttugu mínút-
ur fyrir eitt í fyrrinótt. Kviknað
hafði í þremur bílum, sem allir
voru númeralausir, og stóðu þeir
í ljósum logum þegar slökkvilið
og lögreglu bar að garði. Enginn
slasaðist í sprengingunni og gekk
greiðlega að slökkva eldinn.
Lögregla telur að um íkveikju
hafi verið að ræða og segir málið
í rannsókn. ■
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 85.91 -0.16%
Sterlingspund 135.85 0.29%
Dönsk króna 11.59 -0.17%
Evra 86.13 -0.16%
Gengisvístala krónu 129,14 0,10%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 256
Velta 6.027 m
ICEX-15 1.322 -0,15%
Mestu viðskipti
Vátryggingafélag Ísl. hf. 3.371.812.500
Kaupþing banki hf. 328.715.750
Landsbanki Íslands hf. 303.326.466
Mesta hækkun
Kögun hf. 8,11%
Marel hf. 6,06%
Hampiðjan hf. 4,88%
Mesta lækkun
Landssími Íslands hf. -6,19%
Íslandssími hf. -4,29%
Tryggingamiðstöðin hf. -3,74%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8819,4 -0,3%
Nsdaq*: 1459,2 -0,6%
FTSE: 4175,2 -0,4%
DAX: 3305,5 0,0%
Nikkei: 8772,6 1,2%
S&P*: 928,9 -0,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00