Fréttablaðið - 23.11.2002, Blaðsíða 10
10 23. nóvember 2002 LAUGARDAGURKÖRFUBOLTI
SIGURGANGA
Lið Dallas Mavericks hefur verið óstöðv-
andi í NBA-deildinni í körfubolta og hefur
enn ekki tapað leik á tímabilinu. Liðið
vann 12. leik sinn í röð á fimmtudagskvöld
gegn Houston Rockets með 103 stigum
gegn 90. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki og
Avery Johnson, leikmenn Mavericks, fögn-
uðu öruggum sigrinum undir lok leiksins.
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
LAUGARDAGUR
12.00 Sýn
Man. Utd. - Newcastle
14.45 Stöð 2
Southampton - Arsenal
16.20 Sjónvarpið
Kjörísbikarkeppni karla
HANDBOLTI KVENNA
16.30 Seltjarnarnes
Grótta/KR-Valur
16.30 Víkin
Víkingur-Fram
16.30 Fylkishús
Fylkir/ÍR-KA/Þór
19.50 Sýn
Barcelona - Real Madrid
SUNNUDAGUR
13.45 Sýn
Tottenham - Leeds
14.00 Sjónvarpið
Leikur Stjörnunnar og Hauka í
Essodeild kvenna.
16.00 Sýn
Charlton - Blackburn
HANDBOLTI KARLA
17.00 KA-heimilið
KA-ÍR
17.00 Valsheimilið
Valur-Fram
17.00 Ásgarður
Stjarnan-HK
17.00 Selfoss
Selfoss-ÍBV
17.00 Seltjarnarnes
Grótta/KR-Þór
17.00 Ásvellir
Haukar-Afturelding
17.00 Víkin
Víkingur-FH
Íslenskir kylfingar:
76 fóru
holu í
höggi
GOLF Alls unnu 76 íslenskir
kylfingar það afrek að fara holu
í höggi á golfárinu 2002. Er það
svipaður fjöldi og undanfarin ár.
Það er draumur allra kylfinga að
fara holu í höggi en til að fá af-
rekið viðurkennt þarf það að
hafa gerst á alvöru golfvelli og
vitni þurfa að vera að högginu.
Þeir sem ná „draumahögginu“
þurfa að tilkynna um afrekið til
Golfsambands Íslands til að fá
afrekið samþykkt. ■
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
FÓTBOLTI Paul Merson, leik-
maður enska 1. deildarliðsins
Portsmouth, segir að standa
þurfi við bakið á Mark Bosn-
ich, markverði Chelsea, sem
þjáist af þunglyndi. Jafn-
framt er talið að hann hafi
fallið á lyfjaprófi, en það hef-
ur ekki fengist staðfest.
Merson átti sjálfur í vand-
ræðum vegna misnotkunar
áfengis og eiturlyfja og óhóf-
legs fjárhættuspils. Hann
hefur hvatt enska knatt-
spyrnusambandið til að veita
Bosnich, sem er fyrrverandi
félagi hans hjá Aston Villa,
stuðning.
„Verður honum gefið tæki-
færi eða mun enska knatt-
spyrnusambandið gera
glappaskot og dæma hann í
eins árs leikbann? Til hvers?“
sagði Merson.
„Ef hann myndi spyrja
mig ráða myndi ég glaður
miðla minni reynslu og segja
honum hvernig mér tókst að
vinna mig út úr vandamálum
mínum.“ ■
Paul Merson:
Styður við
bakið á Bosnich
BOSNICH
Mark Bosnich hefur lítið fengið að spila
hjá Chelsea síðan hann kom til liðsins frá
Manchester United.
FÓTBOLTI Riddararnir tveir í enska
fótboltanum, Sir Bobby Robson,
knattspyrnustjóri Newcastle, og
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, mæta með
lærisveina sína á Old Trafford í
dag. Auk þess að vera elstu knatt-
spyrnustjórarnir í enska boltan-
um eru þeir þeir einu sem hafa
verið slegnir til riddara af Elísa-
betu Englandsdrottningu.
Alls hafa átta leikmenn og
stjórar úr ensku knattspyrnunni
verið slegnir til riddara í gegnum
árin. Aldrei áður hafa tveir þeirra
mæst á vellinum sem knatt-
spyrnustjórar. Ferguson, sem er
61 árs, fékk riddaratignina árið
1999 en Robson, 69 ára, hlaut heið-
urinn síðastliðinn fimmtudag eft-
ir að hafa verið tilnefndur af Eng-
landsdrottningu í sumar.
Manchester er í 5. sæti deildar-
innar, níu stigum á eftir efsta lið-
inu Arsenal, og þarf nauðsynlega
á sigri að halda. Newcastle er einu
stigi á eftir og á leik til góða. Bæði
liðin hafa staðið sig vel í Meistara-
deildinni og eru komin áfram í 16
liða úrslit. Ætti það að efla þau til
dáða.
Manchester leikur án þeirra
Rio Ferdinand, David Beckham,
Roy Keane, Nicky Butt og Phil
Neville í leiknum.
Hugo Viana og Laurent Robert
verða ekki með Newcastle. Óvíst
er með þátttöku Craig Bellamy.
„Þetta verður erfiður leikur.
Við erum að spila gegn besta liði
landsins, þeir mæta tilbúnir til
leiks og hafa fjölda áhorfenda á
bak við sig,“ sagði Bobby Rob-
son.
Southampton tekur á móti
meisturum Arsenal. Southampton
hefur enn ekki tapað deildarleik á
heimavelli á tímabilinu.
Liverpool, sem er í öðru sæti
deildarinnar, sækir Fulham heim.
Stephane Henchoz, miðvörður
Liverpool, hefur náð sér af
meiðslum en verður að öllum lík-
indum ekki með í dag.
Óvíst er hvort Guðni Bergsson
geti leikið með Bolton á heima-
velli gegn Chelsea, þriðja efsta
liði deildarinnar. Chelsea er til
alls líklegt. Liðið hefur sigrað í
fimm af síðustu sex deildarleikj-
um sínum og haldið markinu
hreinu í síðustu fimm leikjum. ■
Riddararnir eigast
við á Old Trafford
Margir spennandi leikir í enska boltanum um helgina. Manchester
United tekur á móti Newcastle. Óvíst hvort Guðni Bergsson geti leikið
gegn Eiði Smára Guðjohnsen og félögum í Chelsea.
SIR ALEX FERGUSON
Manchester United þarf á sigri að halda til
að halda í við efstu lið deildarinnar.
SIR BOBBY ROBSON
Sir Bobby Robson heldur á orðunni sem hann fékk á fimmtudag. Newcastle hefur ekki
unnið Manchester United í „Leikhúsi draumanna“ síðan 1950.
FÓTBOLTI Jacques Santini, lands-
liðsþjálfari Frakklands í knatt-
spyrnu, telur að Nicolas Anelka,
leikmaður Manchester City, ráði
því sjálfur hver framtíð hans
verði hjá landsliðinu. Anelka neit-
aði fyrr í vikunni að leika með
Frökkum í vináttuleik gegn
Júgóslavíu. Taldi hann að Santini
hafi verið beittur þrýstingi og
hafi í raun ekki viljað velja hann í
hópinn.
„Ef ég þyrfti að taka ákvörðun
á næstu dögum um hvort Anelka
yrði í landsliðinu myndi ég segja
að hann ætti ekki mikla mögu-
leika. Ástæðan er sú að nokkrir
aðrir leikmenn sýndu góðan leik á
miðvikudaginn,“ sagði Santini.
„Ég býst ekki við neinu af honum.
Hann kom sjálfum sér í þessa að-
stöðu og nú er framhaldið í hans
höndum.“ ■
Jacques Santini, landsliðsþjálfari Frakka:
Framhaldið í
höndum Anelka
Á LANDSLIÐSÆFINGU
Jacques Santini, til hægri, leiðbeinir Sylvain
Wiltord, leikmanni Arsenal, á landsliðsæf-
ingu fyrir leikinn gegn Júgóslövum. Anelka
var fjarri góðu gamni í leiknum. A
P/
M
YN
D